Alþýðublaðið - 27.02.1987, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 27.02.1987, Blaðsíða 3
Föstudagur 27. febrúar 1987 3 Fé/agsmálastofnun Frétta bréfaröð uiri málefni aldraðra Félagsmálastofnun Reykjavikur- horgar hefur nú sent frá sér 4 frétta- hréf til aldraðra Reykvíkinga, en byrjað var að senda út slík hréf á sl. ári. Fréttabréf um málefni aldraðra eru send öllum íbúum Reykjavíkur- borgar, 67 ára og eldri og hafa margir aldraðir látið í Ijós þakklæti fyrir fréttabréfin. í fréttabréfi þessu er fjallað um réttindi aldraðra og ýmis hlunnindi sem veitast öldruðum Reykvíking- um en í ljós hefur komið að fjöl- margir aldraðir vita ekki um ýmiss konar réttindi sem þeir hafa. Ennfremur er sagt frá því að höf- uðstöðvar félags- og tómstunda- starfs aldraðra hafa nú flust frá Norðurbrún 1 yfir í nýja félags- og þjónustumiðstöð í Hvassaleiti 56—58, V.R.-húsið. Helena Halldórsdóttir sem hefur verið yfirmaður félagsstarfsins læt- ur nú af þeim störfum en sinnir áfram störfum sem forstöðumaður i Norðurbrún 1, en Anna Þrúður Þorkelsdóttir hefur nýlega verið ráðin sem yfirmaður félagsstarfs aldraðra hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg rekur nú opið félagsstarf fyrir aldraða á 8 stöðum í borginni. Níunda félagsmiðstöðin í Bólstaðahlíð 41—45 er tilbúin undir tréverk og verður væntanlega tekin í notkun í haust og fyrir skömmu hófust byggingafram- kvæmdir við 10. félags- og þjón- ustumiðstöð aldraðra á horni Vest- urgötu og Garðarsstrætis. Það er ellimáladeild Félags- málast. Reykavíkurborgar sem hef- ur staðið að útgáfu fréttabréfsins og er hún til húsa í Tjarnargötu 11. Mál og menning: Hundrað ára einsemd Út er komin hjá Máli og menn- ingu ný útgáfa skáldsögunnar Hundraó ára einsemd eftir kólumb- íska Nóbelsverðlaunahafann Gabríel García Marquez. Er hún bók fcbrúarmánaðar í ritröð sem gefin er út í tilefni af 50 ára afmæli forlagsins, en bók janúarmánaðar var Ijóðabókin Tengsl eftir Stefán' Hörð Grímsson. Hundrað ára einsemd kom fyrst út á frummálinu árið 1967 og vakti mikla athygli; nú er hún talin eitt helsta verk höfundar síns. Sagan greinir frá því er Búendía fjölskyld- an nemur land og reisir bæinn Macondo hjá bergvatnstæru fljóti þar sem sérhvert hús er sumarhús fullt af birtu. í upphafi lifa þar allir jafnir án valdhafa, einangraðir frá umheiminum og hlíta forsjá goðans Góðandag. En fyrr en varir ber gesti að garði og brátt kemst rót á kyrrstæða draumaveröld Macondo. Þessi goðsagnakennda frásögn sýn- ir heim í hnotskurn, í litríkri ættar- sögu Búendíafjölskyldunnar krist- allast líf suður-amerískra þjóða. Hundrað ára einsemd var gefin út á íslensku í þýðingu Guðbergs Bergssonar árið 1978 og endur- prentuð 1982, en hefur verið ófáan- leg urn margra ára skeið. Þessi þriðja útgáfa er 365 bls. að stærð og kostar 1690 krónur. Fyrsta mánuð- inn eftir útkomu verður takmarkað upplag af henni selt á sérstöku af- mælistilboði, 1190 krónur. Bókin er prentuð í Prentstofu G. Benedikts- sonar, en Bókfell annaðist bók- band. Robert Guillemette gerði kápu þessarar útgáfu. FÉLAGSSTARF ALÞÝÐUFLOKKSINS Björgvin talar í kosningamiðstöðinni A laugardaginn þ. 28. þ.m. verður opinn l'undur í kosninga- miðstöð Álþýðuflokksins, Síðu- múla 12. Þar mun Björgvin Guðinundsson, sem skipar 6. sætið á lista Alþýðuflokksins í Reykjavík, fjalla uin efnið: „Ný viðhorf í markaðsmálum". Fundurinn liefst klukkan 14:00 og er öllum opinn. Reykjaneshátíð A-listans, Stapa A-listinn á Reykjanesi efnir til stórhátíðar í Stapa, laugar- daginn 28. þessa mánaðar. Hátíðin stendur frá klukkan 22:00 til klukkan 3 eftir miðnætti. Á hátíðinni verða frambjóðendur A-listans kynntir. Kristján Jóhannsson óperusöngvari syngur. Spaugstofan kemur öllum f gott skap. Ríó-tríó leikur. Guðmundur Oddsson flyturávarp. Hljómsveitin Klassík leikur fyrir dansi. Rúllugjáld er 500 krónur. Sætaferðir: Upplýsingar í símum 44700 — 50499 — 689370. Sætaferöir frá: Þverholti Mosfellssveit kl. 20:50 Nýjabæ Seltjarnarnesi kl. 20:45 Kosningamiðstöðin Síðumúla 12, Rvík kl. 21:00 Hamraborg 14 Kópavogi kl. 21:10 Goðatúni 2 Garðabæ kl. 21:20 Alþýðuhúsinu Strandgötu 32, Hafnarfirði kl. 21:30. Nánari upplýsingar I síma: 44700, 50499 og 689370. Um hvad verður barist? Borgarafundur á Akureyri Alþýðuflokksfélögin á Akureyri efna til borgarafundar i Al- þýðuhúsinu á Akureyri sunnudaginn 1. mars klukkan 15.00. Raeðumenn á fundinum verða: Árni Gunnarsson, sem fjallar umefnið: „Vandi landsbyggð- arinnar". Hreinn Pálsson, sem fjallar um „Örlagaríkar kosningar“. Jóhanna Sigurðardóttir, sem talar um „Húsnæðismálin". Jón Sigurðsson, sem ræðir um „Stjórnmálin við upphaf kosningabaráttu". Að framsöguerindum loknum verður riflegur tími til fyrir- spurna. Akureyringar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega. Alþýðuflokksfélögin á Akureyri. Flokksstjórnarfundur og árshátíð á Akureyri Flokksstjórn Alþýðuflokksins kemur saman til fundar á Ak- ureyri laugardaginn 28. febrúar. Flokksstjórnarmenn, sem fara frá Reykjavík, fara með flugvél frá Reykjavíkurflugvelli föstudaginn 27. febrúar klukkan 19.00 (Mæting klukkan 18.30). Dagskrá flokksstjórnarfundarins á laugardag, verður á þessa leið: Kl. 11.00: Fundurinn settur I Alþýðuhúsinu. JóhannaSiguröar- dóttir, varaformaður flokksins, setur fundinn. Kl. 11.15: Staðfesting á framboðslistum Aiþýðuflokksins vegna væntanlegra aiþingiskosninga. Kl. 12.00: „Málefni landsbyggðarinnar" — Árni Gunnarsson, ritari flokksins, og efsti maður á lista hans í Norðurlandskjör- dæmi eystra, flytur framsögu. Kl. 12.35: Matarhlé. Létt máltíð á staðnum. (250 kr.) Kl. 13.00: „Málefni landsbyggðarinnar". Umræður. Kl. 14.30: Onnur mál. Kl. 15.00: Fundarlok. Að loknum flokksstjórnarfundinum býður fulltrúaráð Al- þýðuflokksfélaganna á Akureyri flokksstjórnarmönnum og mökum þeirra í skoðunarferð um Akureyri. Að ferö lokinni verða veitingar i boði fulltrúaráðsins í skrifstofu flokksins að Strandgötu 9. ÁRSHÁTÍÐ Alþýðuflokksfélaganna á Akureyri verður síðan í Alþýöuhúsinu um kvöldið, og hefst með borðhaldi klukkan 19.30. Sölustaðir á Austurlandi: Vopnafjörður Seyðisfjörður Egilsstaðir Neskaupstaður EskifjörðurLÁ/S Reyðarfjörður m" Fáskrúðsfjörður Djúpivogur Höfn í Hornafirði w HENNI TÓKST ÞAÐ! Ung kona í Reykjavík varð rúmlega 2,5 míUjónum ríkarí með þátttöku sínni í Lottóinu síðasta laugardag. Hún var eín með fimm réttar tölurl HVAÐ MEÐ WG? Hefur þú 5 réttar tölur í fórum þínum fyrír næsta Iaugardag?

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.