Alþýðublaðið - 03.03.1987, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 03.03.1987, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 3. mars 1987 3 Vaka—Helgafell: Af menningarástandi — æskuskrif Halldórs Laxness guðfræði, og reyndust dálkarnir undirritaðir Halldór frá Laxnesi, Halldór Guðjónsson, Halldór Lax- ness og Halldór Kiljan. Það var gaman að rekast á þetta spakvitr- íngaslúður aftur eftir rúmlega hálfa öld og sumt eldra. Við glugguðum í þessa mis- laungu blaðadálka og ekki er því að leyna að mér þótti mart forvitnilegt sem þar skrifað stóð, þó víða gætti nokkurs únggæðíngsháttar. Ljóst var að skrifarinn hafði sumsstaðar tekið meira uppí sig en góðu hófi gegnir, líklega til þess að vekja þjóðina upp með andfælum og skaprauna yfirvöldum. Forleggjari minn tjáði mér að með góðra manna aðstoð hefði hann safnað saman þessu efni, úr gömlum blöðum og tímaritum, sem ekki fyndust leingur nema á söfn- um. Fátt eða ekkert af þessu blaða- lesmáli mínu hefði enn komist á bók og væri því almenningi í land- inu ótilkvæmt. Þetta taldi hann fulla ástæðu til að velja úr efninu dálitla syrpu sem kynni að eiga er- indi í ritsafn mitt, þar sem ýmis roskinlegri greinasöfn voru fyrir og höfðu notið vinsælda. Á þessu málaleitan félst ég og nú Ólafur H. Einarsson: Nafni minn Palme A síðkvöldi þú gengur af bíósýningu með konu þinni. Þið röltið eftir malbikuðu strœti leiðist hönd í hönd, eins og lífið hefur okkur best kennt. Á síðkvöldi þið gangið og strœtið ómar af borgarnið, það gellur í hávœrum bílhornum og loftið er mettað af borgarlykt. Á síðkvöldi leiðist þið og ræðið um efni myndar, sem var stundarafþreying ykkar frá amstri hins vélvœdda borgarsamfélags. Á síðkvöldi lœðist hönd í lófa það er mannmargt á götum, það eru hundruð ykkur lík á leiðinni til þeirra sem best ykkur unna og búast við ykkur heim. Á síðkvöldi þú gengur af bíósýningu með konu þinni og afrek dagsins fara um huga þinn. Hugsjón sem drifin er af eldmóði um frelsi jafnrétti og brœðra/ag. Á síðkvöldi þið gangið og fólkið sem þú elskar og virðir líður hjá ykkur og viðmót þess er elskulegt, því það þekkir sína bestu. Á síðkvöldi verður gangan öll því morðingjar heimsins eiga aldrei frí frá vonsku, hatri og vélabrögðum; þyí þeir hata lífið með eðli sínu. Á síðkvöldi þegar lœðist hönd í lófa heyrist skothvellur á strœtishorni og krampakenndur sársauki þrýstir hönd þess sem best þér unnir, en um huga þinn flýgur heil mannsœvi. Á síðkvöldi þegar gangan er öll og þú hnígur máttvana niður er ævin þín öll, því fljótið stemmist að ósi. Þá skellur i hœlum ódœðisins sem lifir á því að flýja verk sín. Á síðkvöldi þegar œvin er öll ertu frjáls í nýjutn heimi þar sem morðingjar heimsins fá aldrei völd. Þú gengur frjáls um strœtin. A síðkvöldi þú gengur af bíósýningu með konu þinni, þið röltið eftir malbikuðu strœti leiðist hönd í hönd, það er ilmur rósa á strœtishorni. Á síðkvöldi leiðist þið framhjá hljóðu fólki sem drjúpir höfði er fyrirlítur ofbeldi, þessa heims; í svip þess vakir friður, frelsi, jafnrétti. Ólafur Hafsteinn Einarsson samið árið 1987 í feb. Fvrir síðustu jól kom út hjá Vöku-Helgafelli bók sem inniheld- ur greinasafn eftir Halldór Lax- ness. Allar eru greinarnar um og yf- ir 60 ára gamlar og því í meira lagi forvitnilegar af ýmsum ástæðum. Til dæmis sýna þær og sanna að Halldór hefur snemma byrjað að reyna að tukta þjóð sína til og haft uppi tilburði til að koma henni til betri siða en í þá daga voru viðhafð- ir á landi hér. Þegar staldrað er við í dag og litið á útkomuna verður ekki annað séð en að skáldinu hafi orðið allvel ágengt. , Halldór segir í upphafsorðum: » Ekki ósjaldan hefur komið í ljós að þessi höfundur hefur í meira lagi' götóttar endurminníngar um ýmis æviskeið sín. Samferðamenn og atburðir frá fyrri tíð kynnu að vera lifandi í minningunni, en skyndi- skrif af margvíslegum toga, sem ég hef breitt út í blöðum og tímaritum á úngum aldri, kynni ég ekki að rifja upp núna svo í lagi væri, hversu mjög sem að mér væri lagt. Það kom mér skemmtilega á óvart þegar nýr útgefandi minn, Ólafur Ragnarsson, sýndi mér á liðnu sumri haug af blaðagreinum um þjóðmál, list, bókmenntir og Halldór Laxness Mynd J. Smart hefur sá góði maður komið efninu saman og heim með nokkrum skýr- íngum sem hann hefur sótt í sam- tímaheimildir og til fróðra manna; auk þess sem ég hef samkvæmt bestu vitund bætt smámunum við hinn forna texta minn til að gera hann nútímalesendum ljósari. Mér er sagt að vaxandi áhugi sé meðal úngs fólks um fortíð þjóðar- innar og fer vel á því. Kynni þá þetta raus úngs manns frá því fyrir rúm- um sex tugum ára að vera viðlíka nýtt fyrir ýmsum lesurum og það er fyrir mcr núna. Stundum finst mér tíminn hafi geingið afturábak síðan þetta v tr .” Og þa hafa menn það. Það getur vel verið að endurminningarnar séu götóttar, jafnvel í rneira lagi. Hvað sem því líður þá eru þær stór- skemmtilegar aflestrar og fróðlegar vel fyrir það ungt fólk sem ef til vill langar að hnýsast í rifrildi og þras manna fyrir sextíu árum. Og fleira. Ekki er nefnilega allt rifrildi og þras sem þar stendur, þrátt fyrir að Hall- dór segi á einum stað: „Landslýður- inn varð stundum moldöskuvondur út af þessum skrifum mínum enda stillti ég vandamálunum oft upp á rosalegasta hátt!‘ Og einnig: „Það er augljóst að þarna eru á ferð strákur og kjaftaskur í einni og sömu persónu." Halldór hefur komið víða við í skrifum sínum á þessum árum. Menningarástand íslendinga hefur haldið skáldinu vakandi árið 1925. Tæpar fimmtíu blaðsíður í þessari bók eru hugleiðingar og vangavelt- ur um það furðufyrirbæri, — og hefur varla veitt af, þar sem ekki verður annað séð en þjóðin hafi í þá daga haft í meira lagi furðulegar hugmyndir um menningu almennt, svo ekki sé nú talað um daglegan framgangsmáta og mannasiði í þess orðs hringlaga merkingu. Einnig er i bók þessari þáttur um ritdómara. Verður ekki betur séð en að hann eigi erindi til þeirrar stéttar enn þann dag í dag, með fullri virð- ingu auðvitað og mætti undirritað- ur taka vel til greina allt sem þar stendur, — svona sér í lagi. Talið um útvarpið hefur á þess- um árum verið hið fróðlegasta, en þá veltu mcnn því til dæmis fyrir sér hvað það fyrirbrigði skyldi kallast upp á íslensku. Halldór notar í grein sinni um fyrirtækið orðið „viðboð“. Þykir það sennilega nokkuð kindugt í dag. Ættarnöfnin fá einnig sinn skammt. Einnig Þjóðkirkjan. Þá skrifar Halldór um tisku og menningu. Fróðlegt nokk fyrir nútimann. Einnig Drengjakollurinn og íslenska kon- Annars er tómt mál að reyna að tína allt það til sem Halldór tekur fyrir í þessari bók. Hann kemur víða við og virðist óþreytandi að hvetja þjóð sína til dáða á flestum ef ekki öllum sviðum. Bók Halldórs Laxness er stór- skemmtileg aflestrar. Þar að auki fróðleg eins og best verður á kosið. Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi hefur skrifað skýringar framan við hvern kafla, lesendum til glöggvun- ar, þannig að háttvirtir neytendur eru alltaf með á nótunum af hvaða tilefni viðkomandi grein er rituð. Hefur þetta ráð þeirra Halldórs og Ólafs tekist með ágætum. Örn Bjarnason Drögum vel úr ferð við blindhæðir og brýr. GÓÐAFERÐ! || uweroar VEXTIH Frá 1. mars 1987 eru vextir í Landsbankanum sem hér segir: INNLANSVEXTIR: Vextir alls á ári Sparisjóðsbækur 11,0% Kjörbækur 20,0% Vextir eftir 16 mánuði 21,4% Vextir eftir 24 mánuði 22,0% Vaxtaleiðrétting v/úttekta 0,8% Verðtryggður Sparireikningur: Með 3ja mánaða bindingu 2,0% Með 6 mánaða bindingu 3,5% Sérstakar verðbætur á mán. 0,92% 11,0% Sparireikningar bundnir í 3 mán. 12,0% Sparireikningar bundnir í 12 mán. 13,0% Sparilán 13,0% Tékkareikningar 6,0% Innlendir gjaldeyrisreikningar: Bandaríkjadollar 5,0% Sterlingspund 9,5% Vesturþýsk mörk 3,0% Danskar Krónur 9,5% ÚTLÁNSVEXTIR: Vextir alls á ári Víxlar (forvextir) 19,0% Hlaupareikningar 20,0% 21,0% Almenn skuldabréf Verðtryggð lán: Lánstími í alltað21/2ár 6,0% Lánstími minnst 2'/2 ár 6,5% Lapdsbanki islands Banki allra landsmanna

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.