Alþýðublaðið - 06.03.1987, Side 2
2
Föstudagur 6. mars 1987
RITSTJÓRNARGREIN
Skerum upp herör
gegn lyfjamafíunni
Ami Johnsen aipingismaöur hefur, ásamt
þremur þingmönnum Sjálfstæðisflokksins,
lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu sem
gerir ráð fyrir að ríkisstjórninni verði falið að
undirbúa lagafrumvarp um að lyfjasala verði
gefin frjáls. I greinargerð með tillögunni segir
m.a. að 99% af upplýsingum um lyf komi frá
apótekurum en aðeins 1% frá landlækni.
Gróðabrallið væri siíkt að landlæknir fengi
ekki einu sinni að vita hvert væri söluhæsta lyf
landsins. Þessar upplýsingar hefur landlæknir
staðfest.
Alþýðublaðið fagnar þessari þingsályktunar-
tillögu. Það er kominn tími til að skera upp her-
ör gegn gróðastarfsemi lyfjamafiunnar sem
þrífst í skjóli sjúkdóma almennings ( landinu.
Enginn rekstur í landinu borgar sig eins vel og
iyfjasala. íslendingar kaupa lyf fyrir 1.800 millj-
óniráþessu ári. Með skynsamlegri stýringu og
afnámi einokunar I sölu lyfja á hins vegar að
vera unnt að spara 600—700 milljónir króna,
þar af stærstan hluta sem rfkisstjórnin greiðir
nú beint af skattpeningum. Það er því algjört
forgangsverkefni að afnemna einokunina I
lyfjasölunni, ef ná á verðinu niður, og alþýða
landsins og rikið greiði sanngjarnt verð fyrir
nauðsynleg læknislyf.
Uæmin um einokunaraðstöðu og gróðasvall
lyfjamafíunnar eru mýmörg í greinargerð Árna
Johnsen. Eitt þeirra er, að lyfjasalar og lyfja-
fræðingar eru nær einráðir í lyfjasölunni allri.
Þeir eru innflytjendur lyfja, framleiðendur,
heildsalar, smásalarog ráða útsöluverðinu þar
sem 4 lyfjafræðingar eru I 5 manna nefnd sem
ákveður verð á lyfjum, svonefndri lyfjaverð-
lagsnefnd. Að auki ráðaþessir aðilar innkaups-
verðinu að hluta, þvl það er samningsatriði.
Harðasta sölumennska I heiminum I dag er
ekki I vopnum, heldur I lyfjasölu, svo orð Arna
séu notuð. Annað dæmi um gróðabrallið er, að
innlend lyfjafyrirtæki framleiða dýr sérlyf I
samkeppni við innflutt lyf, en jafnframt leggj-
ast innlend lyfjaframleiðslufyrirtæki áerlendu
fyrirtækin og hóta þeim að hefja framleiðslu á
þeirra lyfjum, ef þau fái ekki umboðin fyrir þau.
Þesar og aðrar staðreyndir gera það að verkum
að verð lyfja hækkar um 140% I það minnsta
frá innflutningsverði og þar til neytandinn fær
lyfið afhent og er þá söluskatturinn undanskil-
inn.
w
Aðurhefurlltillegaverið fjallað um gróðabrall
lyfjamaflunnar. Til að mynda tók Helgarpóstur-
inn upp málið I ítarlegri grein sem birtist I blað-
inu þ. 6. móvember. Yfirlýsingar lækna hafa
birst um málið á opinberum vettvangi. Þannig
skrifaði Pétur Pétursson læknir langa grein I
Læknablaðið fyrir ári og fjallaði um ávísanir
sýklalyfjaog vinnuvenjurlækna. Þarsagði Pét-
ur m.a.: „Það er umtalað meðal lyfsala, hve
áróður lyfjafyrirtækja og útsendara þeirra á
greiðan aðgang að hlustum Isienskra lækna.
Það ber kunnáttu eða siðferðisþreki okkar ekki
fagurt vitni ef við eigum okkur ekki aðrar leiðir
skárri til endurmenntunar en hlusta á fánýtan
áróður lyfsala sem síðan er skolað niður með
mútum I formi Ijúfra veiga.” í greinargerð Árna
Jóhnsen er einnig komið inn á mútur til lækna:
„Öll lyfjafyrirtækin eru eins konar ferðaskrif-
stofur fyrir læknaog aðra sem sinna lyfjadreif-
ingu. Ferðir sem boðið er upp á heita fundar-
ferðir til þess að kynna sér lyf, en hér er að
sjálfsögðu um að ræðasporslurtil mannafyrir
dreifingu lyfja... Það hefurfærst I vöxt að lyfsal-
ar byggi eða kaupi húsnæði við apótek sln og
skapi aðstöðu fyrir læknastofur sem oft eru
setnar læknum sem skrifa út hátt hlutfall lyfja-
ávísanaen þessar lyfjaávísanir rennasíðan inn
I lyfjaverslun leigusalans."
Lyfjamaflan hefur þrifist I skjóli innri sam-
tryggingar og einokunaraðstöðu. Hún hefur
fitnað og dafnað á sjúkdómum og lyfjaþörfum
almennings. Allar upplýsingar um sölu- og
markaðsmál lyfjaeru sem hernaðarleyndarmál
sem landlæknisembættið fær ekki einu sinni
að reka nefið I. Þessi einokun lyfjamaflunnar
kostar ríkið og almenning svimandi upphæðir
sem renna að mestu I vasa gróðabrallara.
Þessu þarf að breyta með löggjöf.
„Endurskoða þarf
gengisstefnuna“
— segir m.a. í greinargerð launanefndar, sem fylgdi úr-
skurði um launahækkunina 1. mars.
Eins og kunnugt er hefur launa-
nefnd ASÍ, VSÍ OG VMSÍ ákveðið
að hækkun launa skuli verða 2%
hinn 1. mars, sem er jafn mikið og
kveðið er á um í jólaföstuslamning-
unum. I greinargerð með úrskurð-
inum er fjallað um verðlagsþróun-
ina á samningstímanuin, það sem
miður hefur farið í stjórnun pen-
inga og gjaldeyrismála og spáð í
verðlagsmálin á árinu. Alþýðublað-
ið birtir greinargerðina í fullri
lengd:
Launanefnd er sammála um
þennan úrskurð og vísar til þess, að
vísitala framfærslukostnaðar
reyndist í febrúarbyrjun nánast á
viðmiðunarmörkum kjarasamn-
ings eða 187.77 stig, en í samning-
unum í desember var miðað við
187.7 stig.
Þá hefur launanefnd endurmetið
verðlagsspár samningsaðila og
fjallað almennt um efnahagshorf-
ur, m.a. með hliðsjón af nýrri þjóð-
hagsspá. Nefndin telur rétt að eftir-
farandi komi fram:
1. Samningar sem gerðir hafa verið
í kjölfar jólaföstusamninga
hafa, — þegar á heildina er litið,
falið í sér svipaðar hækkanir
launakostnaðar og miðað var
við í áætlunum samningsaðila í
desember. Verðlagsáhrif þessra
samninga, umfram áður gerða
samninga, eru hverfandi. Niður-
stöður þeirra samninga sem enn
er ólokið kynnu að raska þeim
forsendum sem lágu til grund-
vallar verðlagsspánni í desemb-
er, en ekki er að svo stöddu
ástæða til þess að ætla að svo
fari.
2. Aorðnar breytingar á gengi
krónunnar leiða til nokkurrar
hækkunar innlends verðlags,
umfram það sem gert var ráð
fyrir í desember. Þessar breyt-
ingar má annars vegar rekja til
sviptinga á alþjóðlegum gjald-
eyrismörkuðum og hins vegar til
breyttrar viðmiðunar við
ákvörðun á gengi íslensku krón-
unnar gagnvart erlendum gjald-
miðlum. Verð á SDR er nú tæp-
um 2% hærra en í desember og
meðalgengi erlendra mynta, skv.
viðskiptavog, um 1.5% hærra.
Þrátt fyrir að þessi hækkun, sem
ekki varð fyrirséð, sé að miklu
leyti þegar komin fram stenst
verðlagsspá fyrir febrúar. Ýmsar
ástæður geta verið fyrir þessu,
en ljóst er að viðbrögð fyrir-
tækja við verðlagsbreytingum
eru allt önnur þegar verðbólga er
tiltölulega lág, — mælist ekki í
tugum prósenta, en við skilyrði
mikillar verðbólgu. Viðleitni er
til þess að eyða eða a.m.k. að
fresta óverulegunr hækkunum í
stað þess að velta sérhverri
hækkun jafnóðum yfir á neyt-
endur.
A síðustu tveimur árum hafa
mjög miklar breytingar orðið á
innbyrðis vægi erlendra mynta í
utanríkisverlun Iandsmanna.
Mjög hefur dregið úr þunga
dollaramarkaða, samhliða auk-
inni sókn á markaði í Evrópu og
Japan. Engan veginn sér fyrir
enda þessarar þróunar, sem í rík-
ustum mæli hefurgætt í útflutn-
ingi frystra sjávarafurða og hef-
ur þar með bein áhrif á eina mik-
ilvægustu forsendu gegnis-
ákvarðana hér innanlands. í
ljósi þessa, og að teknu tilliti til
verðhækkana á erlendum mörk-
uðum svo og almennt batnandi
viðskiptakjara frá síðasta ári,
verður að telja, að nýlegar
ákvarðanir varðandi gengisvið-
miðanir orki mjög tvímælis.
Fullt tilefni er til þess, að gengis-
stefnan verði tekin til endur-
skoðunar. Móta þarf gengis-
stefnu til lengri tíma og auka að-
hald gengisstefnunnar að verð-
lagsþróun innanlands í bráð og
lengd.
3. Á árinu 1986 jukust innlán inn-
lánsstofnana um 34%, en heild-
arútlán að frádregnum afurða-
lánum og erlendum endurlánum
um 29%. Með aðhaldi á sviði
peningamála fékkst því nokkurt
mótvægi við mikinn halla á rík-
issjóði. Hraðfara vexti í efma-
hagslífinu og halla á ríkisrekstri
fylgir hætta á þenslu, sem ann-
ars vegar kemur fram í halla á
viðskiptunum við útlönd og hins
vegar í aukinni verðbólgu, sem
grefur undan stefnunni í gengis-
málum. Mikilvægt er að áfram
verði gætt ýtrasta aðhalds á sviði
peningamála og komið í veg fyr-
ir þenslu með þvi að útlánum
bankakerfisins verði haldið vel
innan marka innlánsaukningar.
Stjórn peningamálanna verður
fyrst og fremst að hafa að leiðar-
Ijósi að hindra að innstreymi af
erlendu lánsfé verði aflvaki
óeðlilegrar þenslu. Stefna þyrfti
að því með peningalegum að-
gerðum að koma í veg fyrir þann
950 millj. kr. viðskiptahalla, sem
Þjóðhagsstofnun spáir í ár.
Beita verður markvissum að-
gerðum til þess að skuldastaða
þjóðarbúsins gagnvart útlönd-
um versni ekki á árinu, þrátt fyr-
ir innstreymi lánsfjár til langs
tíma.
4. Að gefnum fyrrgreindum for-
sendum um stefnu á sviði laurta-,
Vinnustaðafundur
Fyrirtæki sem óska eftir frambjóðendum Alþýðu-
flokksins á vinnustaðafundi hafi samband við
kosningamiðstöð Alþýðuflokksins, Síðumúla 12
sími 689370.
gengis- og peningamála hefur
launanefnd endurmetið verð-
Spá í des.
Hækkun F-vísit.
frá 1. nóv. 1986
til 1. feb. 1987, % 4.73
Frá 1. feb. — 1. maí 2.8
Frá 1. maí — 1. sept. 1.8
Niðurstöður þessarar spár fela í
sér nokkur frávik frá nýrri verð-
lagsspá Þjóðhagsstofnunar, sem
að teknu tilliti til mismunandi
forsenda eru þó óveruleg. Reikn-
að er með 8—9% hækkun
Framfærsluvísitölu frá 1. janúar
1987 til 1. janúar 1988 í stað
10.5% í spá ÞHS. Meðalhækk-
un vísitölunnar frá 1986 til 1987
er um 12.5—13.5%, en í spá ÞHS
er reiknað með 14.5% hækkun
milli ára.
5. í verðlagsspá samningsaðila frá
desember var reiknað með því að
á síðasta fjórðungi ársins yrði
hraði verðlagsbreytinga um 4%,
miðað við heilt ár. í fyrsta skipti
um áratuga skeið eygðu menn
vonir um að verðlagsþróun hér á
landi yrði komið á svipað stig og
lagsspá fyrir árið 1987. Megin-
atriði nýrrar verðlagsspár eru:
Niðurst. Mism.
og spá nú %
4.77 0.04
2.9—3.2 0.1—0.4
1.9—2.1 0.1—0.3
helstu nágranna- og viðskipta-
löndum íslendinga. Enn eru all-
ar forsendur til þess að þetta
markmið geti náðst, ef saman
fer almennur vilji sterkra hags-
munaaðila í þjóðfélaginu og
ákveðin og markviss stefna í
efnahagsstjórn.
Ekki þarf að fjölyrða um hvern-
ig mikil og stöðug verðbólga
hefur leikið efnahag heimila og
fyrirtækja á liðnum árum. Öll-
um er ljóst hvaða þýðingu það
getur haft fyrir efnahagslegar
framfarir í landinu, og þar með
efnahag alls almennings, ef því
marki verður náð að verðbólga
verði ekki meiri en í grannlönd-
unum. Ekkert bendir til annars
en að það sé nú fullkomlega í
eigin hendi okkar sjálfra hver
niðurstaðan verður.
Jón Baldvin
í Múlakaffi
Jón Baldvin Hannibals-
son, formaður Alþýðu-
flokksins heldur opinn
fund í Múlakaffi, laugar-
dagsmorguninn 7. mars kl.
9.00. Jón Baldvin mun
flytja ávarp og svara fyrir-
spurnum.
Kosningamiðstöð A—listans:
Opið hús á laugardag
Opið hús verður í Kosningamiðstöðinni að Síðumúla
12 í Reykjavík n.k. laugardag. Efstu menn á lista Alþýð-
uflokksins mæta og verða til skrafs og viðtals, Opið hús
verður milli 13.30—16.00.