Alþýðublaðið - 11.03.1987, Síða 2

Alþýðublaðið - 11.03.1987, Síða 2
Miðvikudagur 11. mars 1987 'RIT3T4ÓRNARGREIN' Hjálparstofnun kirkjunnar endurreist Hjálparstofnun kirkjunnar hefur verið endur- reist. Kosin hefur verið ný stjórn og ný skipu- lagsskrá hefur verið kynnt í fjölmiðlum, sem samþykkt var nýverið áaðalfundi stofnunarinn- ar. Hjálparstofnunin mun sem áður starfa á vegum þjóðkirkjunnar og er biskup íslands verndari hennar. Hjálparstofnun kirkjunnar hefur lent ámiklum villugötum áundanförnum árum. Helgarpósturinn skýrði fyrsturfjölmiðla frá óráðsíunni innan veggja stofnunarinnar og greindi m.a. frá slæmri nýtingu söfnunarfjár, braski og vafasömum fjárfestingum. Mikil um- ræðafylgdi I kjölfarskrifa fjölmiðlaum málefni Hjálparstofnunar kirkjunnarog leiddi hún m.a. til þess að kirkjumálaráðherra setti á laggirnar nefndað óskstofnunarinnarsjálfrartilað rann- saka staðreyndir varðandi starfsemi Hjálpar- stofnunarinnar. Niðurstöður nefndarinnar staðfestu að mestu ásakanirnar á hendur stofnuninni og skömmu sfðar sagði fram- kvæmdastjóri og aðrir starfsmenn störfum sfnum lausum. Hjálparstofnun kirkjunnar hefur unnið merkt og gott starf og haft skilning og samúð al- mennings. Eftir uppljóstranirnar um ráðstöf- un söfnunarfjár og annað bruðl, glataði Hjálp- arstofnun hins vegar trausti almennings eins og berlega kom f Ijós f sfðustu söfnun. það er einmitt þetta traust sem Hjálparstofnunin hyggst nú endurvekja með gagngerri hreinsun innan sinna veggja. Allir starfsmenn Hjálpar- stofnunarinnar hafa látið af störfum. Aðalfund- ur hefur kosið nýja stjórn sem hefur f hyggju að draga strik yfir fortfðina og endurvekja traust almennings og standa við skuldbindingarsem hvfla á stofnuninni. í umræðunni um málefni Hjálparstofnunar kirkjunnar gleymist oft hið góða starf sem stofnunin rekur víða um heim. Það er þvf ánægjulegt að stofnunin hafi ekki gefist upp og hætt starfsemi sinni og hjálpar- starfi heldur mokað flórinn og haldið áfram störfum með hreinan skjöld. Skuldir stofnunarinnar eru miklar og því er erfitt verkefni framundan fyrir nýja stjórnendur Hjálparstofnunarinnar. Lausafjárstaðan er slæm og rétt ákvörðun hjá stjórninni að selja húseign og bifreiðir til að minnka skuldafarg- anið. Engu að sfður stefnir f gjaldþrot Hjálpar- stofnunar kirkjunnar ef ekki verður að gert. Hjálparstofnunin hefur gert skuldbindingar erlendis sem hún ætlar að standa við og er stærsta verkefnið bygging munaðarleysingja- hælis í Haik í Eþíópfu. Fjárhagsáætlunin hljóð- ar upp á9 milljónir króna en aðeins ein milljón hefurverið greidd. Hjálparstofnun áþví þunga daga fyrir höndum. I skipulagsskrá sem samþykkt var á aðalfund- inum eru verkefni Hjálparstofnunarinnar skýrt afmörkuð. Tekjurhennarmunu sem áðurverða framlög styrktarmanna, fyrirtækja og hins opinbera. Ákvæði eru um að fé sem safnað er til sérstakra verkefna skuli renna til þeirra óskipt að frádregnum söfnunarkostnaði og framlagi ( rekstrarsjóð stofnunarinnar. Tekjur rekstrarsjóðs verða að jafnaði 8% af öllu söfn- unarfé, auk frjálsra framlaga, vaxta og fjár- magns sem fæst eftir sérstökum fjáröflunar- leiðum. Ný stjórn Hjálparstofnunar hefur lýst þvf yfir að skýr mörk verði milli hjálparstarfsins og reksturs stofnunarinnar. Hver söfnun verði gerð upp sérstaklega og reikningsyfirlitið birt opnberlega. Almenningi á þvf að gefast kostur á að fylgjast nákvæmlega með þvf hvernig fénu er varið. M álefni Hjálparstofnunar er dæmi um það hvernig upplýsandi blaðamennska geturtekið ámeinum þjóðfélagsins. Hjálparstofnunin hef- ur brugðist rétt við gagnrýninni, hreinsað til og þvf allarforsendurtil staðar að stofnuninni tak- ist að endurheimta traust almennings sem er grunnurinn að hinu mannúðlegaog góðastarfi Hjálparstofnunar kirkjunnar. Utför Frydenlunds Forsœtisráðherra Noregs Gro Harlem Brundtland við kistu Knut Frydenlunds. Knut Frydcnlund, utanríkisráð- herra Noregs, var jarðsettur s.i. föstudag. Jarðarförin fór fram í Dómkirkju Oslóar og að viðstöddu fjölmenni. Að sögn sjónarvotta einkenndist útförin af hátiðleik og persónulegri sorg viðstaddra. Forsætisráðherra Noregs, flutti minningarræðu um Knut Fryden- lurid og sagði m.a.: „Við þökkum Knut Frydenlund fyrir það öryggi sem hann hefur veitt okkur með þvi að sameina Noreg út á við og styrkt landið í utanríkismálum. Við sjáum á eftir einum af fremstu stjórn- málamönnum eftirstríðsáranna af alþjóðlegri stærðargráðu. Knut Frydenlund átti til að bera skilning og reynslu sem gerði hann að sjálf- kjörnum leiðtoga. Hæfileiki hans til að koma auga á lausnir var ein- stakur. Hann bjó yfir mannkær- leik, næmni og gáfum og mannlegri hlýju sem vakti hvívetna traust. Það styrkti hann sjálfan og landið sem hann þjónaði. Enginn annar stjórn- málamaður eftir Hallvard Lange, hefur haft jafnmikil áhrif og þýð- ingu fyrir norsk utanríkismál.“ Launasjóður rithöfunda: 81 rithöfundur hlaut starfslaun Lokið er úthlutun starfslauna úr Launasjóði rithöfunda fyrir árið 1987. í lögum og reglugerð sjóðsins segir að árstekjum hans skuli varið til að greiða íslenskum rithöfund- um starfslaun samsvarandi byrjun- arlaunum menntaskólakennara. Þessi laun eru nú kr. 39.159 á mán- uði. Starfslaun eru veitt samkvæmt umsóknum. Höfundur sem sækir um og hlýtur starfslaun til þriggja mánaða eða lengur skuldbindur sig til að gegna ekki fastlaunuðu starfi meðan hann nýtur starfslauna. Tveggja mánaða starfslaun má veita vegna verka sem birst hafa á næsta almanaksári á undan og þeim fylgir ekki kvöð um að gegna ekki fast- launuðu starfi. Alls bárust stjórninni að þessu sinni umsóknir frá 164 höfundum og sóttu þeir um því sem næst 819 mánaðarlaun auk mánaðarlauna til ótiltekins tíma frá 6 rithöfundum. Fjárveiting til sjóðsins nam hins vegar 304 mánaðarlaunum. Starfslaun til sex mánaða hlutu að þessu sinni 21 rithöfundur, fjög- urra mánaða laun hlutu 18 höfund- ar, þriggja mánaða laun hlutu 22 höfundar og tveggja mánaða laun hlutu 20 höfundar. Alls hefur þvð verið úthlutað starfslaunum til 81 rithöfundar. Öllum umsóknum hefur verið svarað og skrá um úthlutun verið send menntamálaráðherra. Frá stjórn Launasjóðs rithöfunda. Auglýsing um framlagningu kjörskrár í Hafnarfirði Kjörskrá fyrir Hafnarfjörö vegna alþingiskosn- inga, sem fram eiga að fara 25. aprfl 1987, liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofunni að Strandgötu 6, Hafnarfirði alla virka daga nema laugardaga, frá 13. mars til 6. apríl n.k., kl. 9:30— 15:30. Kærur vegna kjörskrárinnar skulu hafa borist skrifstofu minni eigi síðar en 6. aprfl n.k. Hafnarfirði, 10. mars 1987 Bæjarstjóri

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.