Alþýðublaðið - 11.03.1987, Page 3
Miðvikudagur 11. mars 1987
3
Minning
Guðmunda Vilhjálmsdóttir
í dag er til moldar borin góð kona
og mikil ættmóðir.
Guðmunda fæddist 8. okt. 1907 í
Vinaminni á Eyrarbakka en þar
bjuggu foreldrar hennar, hjónin,
Gíslína Erlendsdóttir og Vilhjálm-
ur Ásgrímsson. Guðmunda var
næstelst barna þeirra, elstur var
Vilhjálmur Sigursteinn (VSV),
blaðamaður og rithöfundur í
Reykjavík (lést 1966), þá Erlendur,
fv. deildarstjóri, Ingibjörg húsmóð-
ir og Gíslína, skrifstofustúlka, öll í
Reykjavík.
Vorið sem Guðmunda fermdist
fluttist fjölskylda hennar til
Reykjavíkur og þar bjó hún ætíð
síðan. Eins og önnur ungmenni
þeirra tíma þurfti hún snemma að
fara að vinna. Þá sótti fólkið ýmist
til sveita eða i sjávarplássin og var
Guðmunda nokkur ár í margvís-
legri vinnu: vist á nokkrum stöðum,
einnig í fiskvinnu og um tíma hjá
frú Olsen í Garðastræti en hún
hafði kostgangara og gaf þeim gott
fæði, í það minnsta lærði Guð-
munda margt hjá henni í matargerð
sem ekki var beinlínis hversdags-
fæði þá. Einnig var hún í kaupa-
vinnu á sumrin og það var einmitt
þegar hún var kaupakona á Skeið-
unum sem hún kynntist myndarleg-
um kaupamanni, Guðmundi Kr. H.
Jósepssyni, en hann var ættaður úr
Kjósinni. Þau gengu í hjónaband i
ágúst 1926 og bjuggu til að byrja
með á ýmsum stöðum í Reykjavík.
Þau gengu í Byggingarfélag alþýðu
og fluttu árið 1935 i þriggja her-
bergja íbúð við Hofsvallagötu.
Þetta var ein af „stóru“ íbúðunum
og veitti ekki af, því þegar þau
fluttu inn voru börnin orðin sex og
fjögur áttu eftir að bætast við.
Á þessum árum var lúxus að
flytja í nýja íbúð, það var lúxus að
hafa rennandi vatn og þvottahús,
hvað þá baðaðstöðu inni í íbúðinni.
Verkamannabústaðirnir nálguðust
óhóf, svo mikið voru þeir á undan
tímanum. Ungu hjónin voru ein-
staklega samhent við að hlynna að
hreiðrinu sínu og ungahópnum og
kom sér vel að bæði voru nýtin og
hagsýn og bjuggu yfir kunnáttu
forfeðranna í meðferð kjöt- og fisk-
metis. Verkin á heimilinu voru
drjúg og dagur húsmóðurinnar
langur og oft farið seint í svefninn.
Guðmunda var alla tíð hraust og
börnin fæddi hún heima. Fjöl-
skyldan og heimilið voru sá garður
sem var ævistarfið hennar og hún
ræktaði af heilum hug. Hún var
lundgóð og kát að eðlisfari en
styggðist ef henni fannst á sig hall-
að. I henni bjó rík réttlætiskennd og
henni fann hún meðal annars far-
veg í jafnaðarstefnunni. Hún gaf
sér lítinn tíma til að taka þátt í fé-
lagsmálum en leyndi í engu í orðum
sínum með hverjum hún stóð.
Hún naut þess að sjá hópinn sinn
stóra vaxa úr grasi og verða að sjálf-
stæðum einstaklingum, gladdist
með þeim þegar vel gekk i lífsbar-
áttunni, hryggðist við þeirra mót-
læti og átti til að segja til syndanna,
en með hlýju og festu, þegar henni
leist ekki á blikuna.
Snemma eignaðist Guðmundur
vörubifreið og ók á Vörubifreiða-
stöðinni Þrótti árum saman. Oft
Atlantshafsbandalagið:
Utanríkisráð-
herrafundur
Vorfundur utanríkisráðherra
ríkja Atlantshafsbandalagsins
verður haldinn í Reykjavik 11.—12.
júní 1987.
Utanríkisráðherrafundir hinna
16 aðildarríkja Atlantshafsbanda-
lagsins eru haldnir tvisvar á ári, í
desember í höfuðstöðvunum í
Brussel og á vorin í einhverju
bandalagsríkjanna. Slíkur fundur
var síðast haldinn i Reykjavík vorið
1968.
Hjálmar W. Hannesson, sendi-
fulltrúi i utanríkisráðuneytinu hef-
ur umsjón með undirbúningi fund-
arins.
var þungur róðurinn, þau hjónin
komust í kynni við stopula atvinnu,
atvinnuleysi, kreppuárin og svo ríf-
andi vinnu þar á milli. Eina Iífs-
reglu höfðu þau að leiðarljósi, hún
gekk eins og rauður þráður í gegn-
um allt þeirra líf. Sú Iífsregla var:
„Að skulda engum neitt en vera
helst aflögufær“. Þau voru af þeirri
kynslóð sem ólst upp við það að
skömm væri að skulda og sækja til
annarra og þau lögðu metnað sinn
í að þurfa þess ekki.
Það færist stöðugt i aukana að
íslendingar á ferð erlendis velji
þann kostinn að aka á einkabíl
frjálsir og óháðir. Flugleiðir hafa
um árabil boðið ferðamátann „flug
og bíll“ og færeyska ferjan
Norröna hefur flutt fjölda manna
með fjölskyldubílinn til útlanda.
Af þessu tilefni hefur Félag ís-
lenskra bifreiðaeigenda, í samvinnu
við Ferðaskrifstofu ríkisins og
Flugleiðir, ákveðið að bjóða upp á
námskeið fyrir ferðalanga sem
hyggjast aka um Evrópu.
Helstu þættir sem námskeiðið
spannar eru:
1. Undirbúningur ferðar.
2. Fjárhagsáætlun, ferðakostnað-
ur og tryggingar.
3. Skipulagning, áfangaskipting og
gististaðir.
4. Notkun korta og upplýsingaöfl-
un.
5. Upprifjun almennra reglna og
kynning helstu sérákvæða er-
lendis.
6. Akstur á hraðbrautum og í þétt-
býli erlendis.
Á tíunda starfsári Norræna fjár-
festingarbankans (NIB) varð veru-
leg aukning á útlánum og einnig á
innlánum. Heildarútlán voru í árs-
lok 1.426 milljónir SDR eða 70.188
milljónir íslenskra króna. Aukning
frá fyrra ári varð 42%. Heildarráð-
stöfunarfé bankans er nú 2.408
milljónir SDR eða 118.522 milljónir
íslenskra króna, sem er 46% aukn-
ing frá fyrra ári. Hagnaður ársins
1986 varð 34 milljónir SDR eða
1.673 milljónir islenskra króna, sem
er 22% aukning. Stjórn bankans
hefur lagt til að arði að upphæð 6
milljónir SDR eða 295 milljónum
íslenskra króna verði úthlutað til
eigendanna, sem eru Norðurlöndin
fimm.
Hin mikla aukning útlána hefur
beint athyglinni að nauðsyn þess að
auka grunnfé bankans. Gildandi
rammi um norræn útlán að upp-
hæð 2.000 milljónir SDR eða um
100 milljarðar íslenskra króna verð-
ur væntanlega að fullu nýttur í árs-
Börn þeirra urðu, eins og áður
sagði, tiu og eru þessi: Hlöðver,
maki Esther Ingimundardóttir,
Ólafur, maki Alma Hansen, Guð-
rún, maki Reynir Guðbjörnsson,
Vilhjálmur, maki Alda Guðbjörns-
dóttir, Gísli, maki undirrituð,
Ellen, maki Ólafur Stephensen,
Ásta, maki Baldur Skaftason,
Jósep, maki Ólöf Björg Karlsdóttir,
Sigríður, maki Þorlákur Jóhanns-
son og Dagbjört, maki Haraldur
Sigurðsson.
Guðmundur lést árið 1969. Bjó
Guðmunda áfram í íbúðinni til
dauðadags, fyrst nokkur ár með
dóttur sinni en síðustu árin bjó
dóttursonur hennar hjá henni.
Fram á síðasta dag var hún að
sinna sínum, miðla öðrum af
reynslu sinni, gefa kaffi og með því
og stússa kringum þá sem litu inn.
Og alltaf var eitthvað að ske þvi af-
komendurnir eru 112 talsins og enn
bætist við.
Hún lést á 80. aldursári og varð
að ósk sinni að þurfa ekki að vera
upp á aðra komin.
Við þökkum henni góða sam-
fylgd, guð blessi minningu hennar.
Þóra Elfa Björnsson
7. Nokkrar hagnýtar ráðleggingar.
8. Kynning.
Fyrirhugað er að halda nám-
skeiðin á þriðjudagskvöldum og á
laugardögum í Reykjavík, á Akur-
eyri, Egilsstöðum og ísafirði. Sam-
ráðsaðili er Umferðarráð, en um-
sjón og kennslu annast Guðmund-
ur Þorsteinsson námsstjóri og
Hilmar Viktorsson viðskiptafræð-
ingur. Einnig verða til kvaddir á
námskeiðin gestir sem áður hafa
ekið erlendis og segja frá reynslu
sinni.
Fyrsta námskeiðið hefst í Reykja-
vík 14. mars, en hámarksfjöldi þátt-
takenda er 30 hverju sinni.
Innifalið í námskeiðsgjaldi eru
vegakort og létt máltíð meðan á
námskeiði stendur. Námskeiðs-
gjaldið er 900 kr. en 700 kr. til fé-
lagsmanna F.Í.B.
Nánari upplýsingar eru veittar
hjá Félagi íslenskra bifreiðaeig-
enda, á söluskrifstofum Flugleiða,
Ferðaskrifstofu ríkisins og Austfar
hf. á Seyðisfirði.
Skráning fer fram í síma 91—
29999.
byrjun árið 1988. Að beiðni bank-
ans hefur norræna ráðherranefndin
ákveðið að leggja til að grunnfé
bankans verði auídð úr 800 milljón-
um SDR í 1.600 milljónir SDR eða
80 milljarða íslenskra króna. Við
þetta aukast möguleikar til útlána
úr 2.000 í 4.000 milljónir SDR eða í
um 200 milljarða íslenskra króna.
hæöir og brýr
eru vettvang-
ur margra um-
ferðarslysa. Við
slíkar aðstæður
þarf að draga úr
ferð og gæta þess að
mætast ekki á versta
stað.
IÉUMFERÐAR
Flugleiðir — Ferðaskrifstofa ríkisins:
Námskeið fyrir
ferðalanga
Norræni fjárfestingarbank-
inn eykur útlán verulega
Lausarstöður
Við félagsvlsindadeild Háskóla íslands eru lausar til
umsóknar eftirtaldar stöður:
1. Lektorsstaða I stjórnmálafræði. Umsækjandi skal
vera hæfur til að annast kennslu I undirstöðugrein-
um I stjórnmálafræði og kennslu og rannsóknir á
a.m.k. einu af eftirfarandi sviðum Islenskra stjórn-
mála: 1. Ákvarðanaferli og stofnanaþróun innan
stjórnkerfisins. 2. Hegðun og viðhorf kjósenda. 3.
Samanburðarstjórnmál.
2. Dósentsstaða i aðferðafræði. Umsækjandi skal
hafa aflað sér viðtækrar menntunar og reynslu I
rannsóknaraðferðum félagsvlsinda og tölfræði.
Kennslan verður á sviði aðferðafræði, tölfræði og
tölvunotkunar.
3. Lektorsstaða ( bókasafns- og upplýsingafræði.
Æskilegarsérgreinareru einkum skráning og flokk-
un. Staða þessi ertimabundin og er gert ráð fyrir að
ráðið verði i hana til þriggja ára.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rlkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
unúsækjenda, ritsmlðarog rannsóknir, svo og námsfer-
il og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavik, fyrir 6. apríl n.k.
Menntamálaráðuneytið,
6. mars 1987.
Laus staða
Við læknadeild Háskóla íslands er laus til um-
sóknar tímabundin lektorsstaða (lífeðlisfræði.
,Gert er ráð fyrir að ráðið verði I stöðuna til þriggja
ára. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rik-
isins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um visinda-
störf umsækjenda, ritsmiðar og rannsóknir, svo
og námsferil og störf, skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavik, fyrir 6.
apríl n.k.
Menntamálaráðuneytið,
6. mars 1987.
Ferðaáfangar mega ekki vera of langir - þá þreytast
farþegar, sérstaklega börnin. Eftir 5 til lOminútnastanságóöum
stað er lundin létt. Minnumst þess að reykingar í bílnum geta
yUMFERÐAR
RÁÐ
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á þvi, að
gjalddagi söluskatts fyrir febrúar mánuð er 15.
mars.
Ber þáað skilaskattinum til innheimtumanna rík-
issjóðs ásamt söluskattskýrslu i þririti.
Fjármálaráðuneytið.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
(Reykjavfk vegna aiþingiskosninga 1987 hefst miðviku-
daginn 11. mars n.k.
Fyrst um sinn, þar til annað verður auglýst, verður kjör-
staður opinn á skrifstofu embættisins að Skógarhlið 6,
mánudaga til föstudaga kl. 10 til 15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Vinnustaðafundur
Fyrirtæki sem óskaeftirframbjóðendum Alþýðu-.
flokksins á vinnustaðafundi hafi samband við
kosningamiðstöð Alþýðuflokksins, Síðumúla 12
sími 689370.
Kosningamiðstöðin
Opinn fundur um skólamál
Umræðuefni: Frumvarp til grunnskólalaga, miðviku-
daginn 11. mars kl. 20 i Kosningamiðstöðinni.