Alþýðublaðið - 18.03.1987, Page 3
Miðvikudagur 18. mars 1987
3
alþýðii'
blaðið
_ Umsjón: Jón Daníelsson
A AUSTURLANDI
Félag ferðamálasamtaka
stofnað á Egilsstöðum
Um síðustu helgi var stofnað á
Egilsstöðum Félag íslenskra ferða-
málasamtaka. Aðild að félaginu
eiga ferðamálasamtök I hinum
ýmsu landshlutum og sóttu fulltrú-
ar þeirra allra stofnfundinn, að frá-
teknum Vestfirðingum sem ekki
komust vegna ófærðar. Ferðamála-
samtök á landinu hafa haft með sér
óformlegra samstarf undanfarin
fjögur ár.
Rúnar Pálsson, umdæmisstjóri
Flugleiða á Austurlandi, sagði í
samtali við Alþýðublaðið á Austur-
landi, að hið nýja félag ætti að
verða sameiningaraðili ferðamála-
samtakanna, vera í forsvari fyrir
þau út á við og gæta sameiginlegra
hagsmuna þeirra.
Hann sagði ennfremur að mark-
mið félagsins að öðru leyti væru um
margt þau sömu og markmið ferða-
málasamtakanna, sem aðild ættu
að félaginu. Þar kvað hann bera
einna hæst það markmið að ferða-
mannaþjónustan nyti sömu fyrir-
greiðslu og aðrir atvinnuvegir
landsmanna. Þá mætti nefna að fé-
lagið hygðist beita sér fyrir sam-
ræmdari og betri landkynningu og
bættri þjónustu við ferðamenn.
Þá er ætlunin að félagið verði að-
ildarsamtökunum til ráðuneytis um
ýmis mál er ferðamannaþjónustu
varða og Rúnar nefndi einnig að
stofnun félagsins gerði öll sam-
skipti ferðamannaþjónustunnar út
á við auðveldari, þar sem einfaldara
væri að snúa sér til eins aðila, en
þurfa að bera einstök málefni undir
öll sex landshlutasamtökin.
Rúnar sagði að ferðamannaþjón-
usta skilaði nú um sjö prósentum af
gjaldeyristekjum þjóðarinnar og
vantaði þó örugglega ýmsa þætti
inn í þá tölu. Þannig væri í þessum
útreikningum væntanlega ekki tek-
ið tillit til þeirra landbúnaðaraf-
urða sem erlendir ferðamenn neyttu
á ferðum sínum hérlendis og ríkis-
sjóður losnaði þar af leiðandi við
að greiða niður á erlenda markaði.
Um 30 manns sátu stofnfundinn
á Egilsstöðum að sögn Rúnars Páls-
sonar. Fundurinn var haldinn í
Samkvæmispáfanum og Vala-
skjálf. Auk sjálfrar félagsstofnun-
arinnar voru á fundinum sam-
þykktar ályktanir um ýmis efni sem
varða ferðamannaþjónustuna á
landinu, m.a. um náttúruverndar-
mál og sagði Rúnar að í þeirri álykt-
un kæmi m.a. fram sú skoðun að
rétt væri að fleiri aðilar tækju á sig
ábyrgð í þessum efnum.
Meðal annarra atriða sem rædd
voru á fundinum og hið nýja félag
hyggst beita sér fyrir í framtíðinni,
er aukin fræðsla í greinum er varða
þjónustu og ferðamál og að sú
fræðsla verði tekin inn i skólakerf-
ið. Þá sagði Rúnar það einnig eitt af
markmiðum félagsins að mörkuð
verði stefna í ferðamálum og að í
samræmingu og stefnumörkun
verði gætt hagsmuna þeirra aðila
sem nú starfa að ferðamannaþjón-
ustu.
Ferðamálasamtök í hinum ýmsu
landshlutum hafa undanfarin fjög-
ur ár haft með sér ákveðið samstarf
og hafa samráðsfundir verið haldn-
ir reglulega, til skiptis í landshlut-
unum. Hafa samtökin hvert fyrir
sig tilnefnt fulltrúa í samráðsnefnd-
ina og verður sami háttur hafður á
um stjórn hinna nýju samtaka. Var
því engin stjórn kjörin á fundinum
og þannig t.d. enginn starfandi for-
maður í hinu nýja félagi, enn sem
komið er. Rúnar Pálsson sagði í
þessu sambandi að næsti aðalfund-
ur yrði væntanlega haldinn á Norð-
urlandi og mætti því gera ráð fyrir
að fyrsti formaður félagsins yrði
annað hvort úr Ferðamálasamtök-
um Austur- eða Norðurlands.
Rúnar sagði það áberandi hversu
mikil og góð samstaða væri með
aðilum í ferðamannaþjónustu.
Hann nefndi sem dæmi að austan-
lands væri sama hvort menn störf-
uðu í ferðamannaþjónustu á
Vopnafirði eða Höfn í Hornafirði,
__með aðild ferða-
málasamtaka í öllum
landshlutum.
ágreiningsmálin væru nánast ótrú-
lega fá.
Egilsstaðaflugvöllur
fær varanlega braut
í ár verða hafnar framkvæmdir
við að leggja flugbraut með varan-
legu slitlagi á Egilsstaðaflugvelli.
Þetta er nú komið endanlega á
hreint eftir að Alþingi hefur sam-
þykkt þingsályktunartillögu um
heimild til að taka 60 milljónir
króna að láni til þessara fram-
kvæmda.
Samkvæmt upplýsingum sem
fram komu í samtali Alþýðublaðs-
ins á Austurlandi, við Matthías
Bjarnason, samgönguráðherra,
þegar hugmyndin um þessa lántöku
kom fram fyrr í vetur, má jafnvel
gera ráð fyrir að nýja flugbrautin
verði tilbúin á árinu 1989.
Gert er ráð fyrir að unnið verði
fyrir allar þessar 60 milljónir á
þessu ári, en um hraða fram-
kvæmdanna eftir það fer síðan eftir
fjárveitingum Alþingis á fjárlögum
hvers árs, en þess mun þó almennt
talið að vænta að stærstu hindrun-
inni sé nú rutt úr vegi og ekki muni
líða mjög mörg ár þar til aurbleytan
á Egilsstaðaflugvelli heyri til sög-
unni.
í skipunarbréfi því sem ráðherra
gaf út fyrir flugmálanefnd á sínum
tíma, er talað um Egilsstaðaflugvöll
sem forgangsverkefni og virðist það
ætla að standast.
Sú nýja flugbraut sem nú verður
lögð á Egilsstöðum verður 2000
metrar að lengd og verður henni
þannig komið fyrir að unnt verður
að lengja hana í 3000 metra ef til
þess kemur að varaflugvelli verði
valinn staður á Egilsstöðum.
Smáauglýsingar
Rafmagnsofn óskast Frystikista óskast
Óska eftir notuðum raf- Óska eftir að kaupa frysti-
magnsofni. Einnig óskast rör kistu, ca. 210 lítra. Upplýsingar
(cirka 1 tomma) þurfa ekki að vera heil. í síma 88832.
Upplýsingar í síma 88867.
Eskifjörður:
Hraðfrystihúsið
býður í helgarferð
Hraðfrystihús Eskifjarðar, býður
starfsfólki sínu í helgarferð til
Reykjavíkur á þessum vetri. Fyrir-
tækið tekur flugvél á leigu í þessum
tilgangi og þarf að fara tvær ferðir
því ríflega 100 manns munu hafa
látið skrá sig í þessar ferðir, og eru
þá makar starfsmanna taldir með.
Helgarferðirnar eru eins konar
verðlaun til starfsfólksins fyrir vel
unnin störf. Fyrirtækið greiðir
ferðakostnaðinn og gistingu frá
föstudegi til mánudags, en skipulag
ferðarinnar að öðru leyti er í hönd-
um starfsmanna sjálfra.
Fyrri helgarferðin verður farin
10,—13. apríl en sú síðari helgina
8.—11. maí.
Kvennafundur á Höfn
Áþriðjudagskvöldið verður
almennur stjórnmálafundur á
vegum Alþýðuflokksins á
Höfn í Hornafirði. Þar munu
mæta fjórar konur sem eru of-
arlega á listum Alþýðuflokks-
ins eða í baráttusætum. Þetta
eru þœr Jóhanna Sigurðar-
dóttir, sem skipar annað sœtið
á listanum í Reykjavík, Lára
V. Júlíusdóttir sem er í fjórða
sœti, einnig i Reykjavík,
Rannveig Guðmundsdóttir,
sem er í þriðja sœti hjá Al-
þýðuflokknum í Reykjanes-
kjördœmi og Elína Alma
Arthúrsdóttir, en hún skipar
annað sœtið á listanum í Suð-
urlandskjördœmi. Þessum
fjórum konum hyggst Alþýðu-
flokkurinn koma á þing í
kosningunum í vor og verða
þar með fyrstur flokka til að
koma svo mörgum konum á
þing.