Alþýðublaðið - 18.03.1987, Page 5
Miðvikudagur 18. mars 1987
5
Tvær nýjar
kosninga-
skrifstofur
Þessi myrtd var tekin þegar kosningaskrifstofa A-listans var opnuð ífélags-
heimilinu Skrúð á Fáskrúðsfirði. Eins og vera ber er kaffi á boðstólum og
líflegar umrœður um pólitíkina. Síminn á kosningaskrifstofunni er 5445.
Á laugardaginn var opnuð kosningaskrifstofa A-listans íNeskaupstað. Þar
er ekki síður líflegt en á Fáskrúðsfirði og sömuleiðis heitt á könnunni.
Símanúmerið á kosningaskrifstofunni í Neskaupstað er 7801 og hún er til
húsa að Hafnarbraut 22.
Kosnignaskrifstofa
Alþýðuflokksins á
Austurlandi er til
húsa að Bláskóg-
um 9 á Egilsstöð-
um. Lítið inn eða
hringið. Síminn er
1807.
Á œfingu leikritsins „Síldin kemur og síldin fer“, hjá Leikfélagi Seyðisfjarðar.
Síldin kemur
og síldin fer
Leikfélag Seyðisfjarðar átti 30
ára afmæli þann 6. mars sl. Nú er
leikfélagið að setja upp leikritið
„SÍLDIN KEMUR OG SÍLDIN
FER“ eftir Seyðfirðingana Iðunni
og Kristínu Steinsdætur. „Síldin
kemur og síldin fer“ var sviðsett í
fyrsta skipti hjá Leikfélagi Húsa-
víkur í haust og hefur notið mikilla
vinsælda og verið sýnt alls 37 sinn-
um og alltaf fyrir fullu húsi. Sögu-
sviðið er Seyðisfjörður síldarár-
anna þar sem uppgripaæðið ríkir
og allt flýtur í síld og peningum, við
misjafnan fögnuð heimamanna
sem muna hrunið eftir síldarárin
fyrri. Leikstjóri er Hlín Agnars-
dóttir. Leikritið var frumsýnt föstu-
daginn 13. mars.
Að þessu sinni er ekki fyrirhugað
að fara í leikferðir um nágranna-
byggðarlögin vegna þess hve viða-
mikil sýningin er og erfitt að fara
með hana. Leikfélagið býður hins
vegar alla velkomna á sýninguna á
Seyðisfirði og vekur athygli á því að
hér er fyrirtaks hótel við lónið þar
sem hægt er að snæða góðan mat
og gista. Flugleiðir ætla að bjóða
uppá sérstakar leikhúsferðir til
Seyðisfjarðar í tengslum við sýning-
una og boðið verður upp á sæta-
ferðir úr nærliggjandi byggðarlög-
VID KJÓSUM
ALÞÝÐUFLOKKINN
Steinn Jonsson, Þorsteinn Ásbjörnsson, Hulda Gunnþórsdóttir,
verðlagsfulltrúi, Eskifirði bankastarfsmaður, Djúpavogi húsmóðir, Seyðisfirði
Helgi Hálfdánarson, Ingólfur Sveinsson, Árni Stefánsson,
framkvæmdastjóri, Eskifirði framkvæmdastjóri, Djúpavogi verkamaður, Seyðisfirði
Guðmundur Svavarsson, Bergþóra Birgisdóttir, Halldór Harðarson,
bæjarfulltrúi, Eskifirði forstöðukona, Djúpavogi verkamaður, Seyðisfirði
Ásbjörn Guðjónsson, Hallsteinn Friðþjófsson, Þorsteinn Arason,
bifvélavirki, Eskifirði formaður Verkalýðsfélagsins Fram, Seyðisfirði nemi, Seyðisfirði
Gylfi Óskarsson, Egill Guðlaugsson,
sjómaður, Eskifirði Anna Dóra Árnadóttir, verslunarmaður, Seyðisfirði garðyrkjubóndi, Egilsstöðum
Ágúst Guðjónsson, Ingvi Svavarsson, járnsmiður, Seyðisfirði Björn Björnsson,
húsgagnasmiður, Djúpavogi bóndi, Norðfirði