Alþýðublaðið - 18.03.1987, Page 9
Miðvikudagur 18. mars 1987
9
Hér skrifar HRANI
Frj álshyggj uflokkar
á hárréttri leið?
Hvað vitið þið um Framsókn-
arflokkinn, lesendur góðir? Vitið
þið til dæmis hvernig stefnuskrá
þessa flokks lítur út? HRANI,
hefur þessa stefnuskrá að vísu
ekki undir höndum, en hins vegar
eintak af því gagnmerka blaði
Framsóknarflokksins á Austur-
landi, Austra, sem út kom 5. mars
sl.
Þ;ar er í opnunni vitnað í
stefnuskrá Framsóknarflokksins,
nánar tiltekið fyrsta kaflann. Og
þarna stendur orðrétt: „Fram-
sóknarflokkurinn er frjálshyggju-
flokkur, sem vinnur að lausn sam-
eiginlegra viðfangsefna þjóðar-
innar á grunni samvinnu og jafn-
aðar.“
Skyldi það virkilega geta verið
að stjórnarsamstarfið við Sjálf-
stæðisflokkinn, þar sem frjáls-
hyggjuöflin, ríða nú húsum, sé
farið að hafa þvílík áhrif að
flokkurinn sé nú óhikað farinn að
kenna sig við frjálshyggjuna.
Það hefur reyndar gerst áður í
sögu Framsóknarflokksins að
ruglað hafi verið saman hugtök-
unum frjálslyndi og frjálshyggju.
Þetta var þegar NT sáluga tók við
af gamla Tímanum heitnum. Þá
var að sjálfsögðu gerð mikil upp-
stokkun á blaðinu og meðal ann-
ars skipt um texta í hausnum.
Fyrsta daginn sem NT kom út
stóð þar m.a. að blaðið væri mál-
svari frjálshyggju. í öðrum blöð-
um var að sjálfsögðu hent nokk-
urt gaman að þessu og frjálshyggj-
an fékk ekki að standa í hausnum
lengur en þennan eina dag. Dag-
inn eftir var orðið frjálslyndi
komið í staðinn.
Reyndar er kannski skaðlaust
að rifja upp muninn á þessum
tveim hugtökum í fáeinum orð-
um, því allt of margir virðast ekki
gera neinn virkilegan greinarmun
á merkingu þessara orða.
Orðið frjálslyndi í pólitískri
merkingu kom inn i íslensku sem
þýðing á hugtakinu „líberalismi“.
Þessi stjórnmálastefna á nú nokk-
uð langa sögu að baki og í flestum
löndum Vestur-Evrópu eru til
stjórnmálaflokkar sem kenna sig
við hana. Upphaflega er stefnan
til komin sem eins konar andsvar
við óheftri markaðshyggju og var
á sínum tíma kölluð vera til vinstri
við þá hægri flokka sem á þeim
tíma voru víða öflugir í skjóli tak-
markaðs kosningaréttar almenn-
ings. Umhyggja fyrir þeim sem
minna mega sín í samfélaginu hef-
ur t.d. alltaf verið meðal stefnu-
mála hinna frjálslyndu flokka, og
minna má á flokksheitið
„Venstre" í Danmörku.
Þegar hugtakið „nýlíberalismi“
kom til sögunnar var á íslensku
fundið upp orðið „frjálshyggja“,
en sú stefna er sem kunnugt er
fólgin í óheftu valdi peninganna
og er því um flest í mikilli and-
stöðu við frjálslyndi í stjórnmál-
um.
Kjörorð Sjálfstæðisflokksins
fyrir þessar kosningar er „á réttri
leið“ eða eitthvað í þá áttina. Þeg-
ar Jón Baldvin Hannibalsson var
spurður álits á nýlegri skoðana-
könnun DV í fyrri viku, benti
hann á þetta kjörorð og sagði að
flokkurinn væri alveg greinilega á
réttri leið, nefnilega niðurleið.
Við sjáum reyndar ekki betur
en þessi staðreynd komi einkar
greinilega fram í arnarmerki
flokksins og birtum hér mynd af
því til glöggvunar. Við sjáum ekki
betur en fuglinn sé um það bil að
setjast.
AÐALFUNDUR
Hf. Eimskipafélags íslands uerður haldinn
í Súlnasal Hótel Sögu,
miðuikudaginn 25. mars 1987,
og hefst kl. 14:00.
------------DAGSKRÁ-----------------
1. Aðalfundarstörf samkuœmt 14. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillögur til brexjtinga á samþykktum
félagsins.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram
á aðalfundi, skulu uera komnar skriflega
í hendur stjórnarinnar eigi síðar
en sjö dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar að fundinum uerða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa
á skrifstofu félagsins í Reykjauík
frá 17. mars n.k.
Reykjauik, 14. febrúar 1987.
STJÓRNIN
EIMSKIP
w
VIÐ KJOSUM
ALÞYE Árni S. Róbertsson, KJFLOI Elín A. Hermannsdóttir, IvKINN Björg Hávarðardóttir,
húsvörður, Vopnafirði húsmóðir, Neskaupstað verkakona, Eskifirði
Guðmundur Jónsson, Ingibjörg Aradóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir, húsmóðir, Eskifirði
vélvirki, Vopnafirði húsmóðir Neskaupstað
Lilja Eðvarðsdóttir,
Haraldur Óskarsson, Ari Magnússon, húsmóðir, Eskifirði
kennari, Neskaupstað verkamaður Neskaupstað Bjarney Hallgrímsdóttir,
Jón Svanbjörnsson, Sigurmundur Ragnarsson, sjómaður, Eskifirði
pípulagningamaður, Neskaupstað iðnverkamaður Eskifirði Jón Ævar Haraldsson,
bílasmiður, Eskifirði
Katrín Ingvadóttir, Brynjar Þór Ragnarsson, Kristján Ragnarsson,
húsmóðir, Neskaupstað verkamaður, Eskifirði
bæjarverkstjóri, Eskifirði
Óskar Helgason, Stefán Óskarsson, Rögnvar Ragnarsson,
húsasmiður, Neskaupstað matsmaður, Eskifirði verkstjóri, Eskifirði