Alþýðublaðið - 18.03.1987, Qupperneq 10
10
Frambjóðendur Alþýðu-
flokksins kynntir
5. sæti
KATRÍN GUÐMUNDSDOTTIR
Við eigum möguleika!
„Ég hef vissulega alltaf verið
fylgjandi Alþýðuflokknum og kos-
ið hann frá því fyrsta,“ segir Katrín
Guðmundsdóttir, „en að öðru leyti
hugsaði ég ekki mikið um pólitík
eða hafði afskipti af henni, fyrr en
ég fluttist til Eskifjarðar"
Katrín er uppalin í einhverju
sterkasta vígi Alþýðuflokksins um
áratuga skeið, ísafirði, og hún segir
að sér hafi blöskrað, hversu lítið
fylgi flokkurinn hafði á Austur-
landi. Þetta hafi sennilega verið
drýgsta ástæðan til þess að hún fór
að skipta sér af stjórnmálum þegar
hún kom austur.
„Ég fór þá fljótlega að starfa í
flokknum, en hafði ekki verið
flokksbundin áðurý segir hún.
Mikilvægustu kosingamálin tel-
ur Katrin vera einn lífeyrissjóð fyrir
alla landsmenn og húsnæðismálin,
þó að því ógleymdu að færa þurfi
meiri völd heim í héruðin. „Það á
að gerast með því að taka upp
þriðja stjórnsýslustigiðý segir hún.
Hún nefnir einnig félagsmál og seg-
ir að öldruðum þegnum þjóðfélags-
ins þurfi að sýna meiri umhyggju en
nú er gert. Katrín nefnir Jóhönnu
Sigurðardóttur, alþingismann í
þessu sambandi og segir að mál-
flutningur hennar i ýmsum málum
hafi verkað mjög uppörvandi á sig
og orðið sér mikil hvatning.‘
„Ég sé fyrir mér raunhæfan
möguleika á því núna að við fáum
loksins Alþýðuflokksmann kjörinn
á þing í þessu kjördæmi og Guð-
mundur Einarsson er mjög sterkur
kandidat. Af hálfu málefnasnauðra
andstæðinga okkar hér er verið að
reyna að skemma fyrir honum með
því að hann sé að sunnan, en ég held
að fólk geri sér grein fyrir því að
það skiptir auðvitað ekki höfuð-
máli. Aðalatriðið er að við kjósum
á þing mann sem við getum treyst
og vitum að vill vinna fyrir okkur
og með okkur. Og það hefur Guð-
mundur bæði sýnt og sannað.
Hann er mesti dugnaðarforkur.
Ég veit reyndar að jafnaðarmenn
á Austurlandi eru miklu fleiri en yf-
irleitt hafa gefið sig upp í kosning-
um, og ég er sannfærð um að nú
þegar breyttar kosningareglur gera
það að verkum að við eigum raun-
hæfan möguleika á að koma manni
að, þá munu margir jafnaðarmenn
á Austurlandi „koma úr felum“ og
kjósa A-listann að þessu sinni.“
Katrín Guðmundsdóttir í 5. sœti á framboðslista Alþýðuflokksins í
Austurlandskjördœmi, erfœdd 21. ágúst 1948 á ísafirði og uppalin þar.
Þar lauk hún gagnfræðaprófi vorið 1964 og síðan lá leið hennar út á
vinnumarkaðinn. Hún vann við ýmis störf næstu árin, m.a. um talsvert
skeið hjá Kaupfélaginu. Auk þess vann hún bœði ífiski og á dagheimili
og um eins árs skeið dvaldist hún í Reykjavík, þar sem hún vann á
vöggustofu.
Arið 1973 fluttist hún til Eskifjarðar þar sem hún hefur búið síðan.
Á Eskifirði hefur hún unnið ýmislegt ásamt húsmóðurstörfunum m.a.
má nefna að hún rak þar hótel um þriggja ára skeið um og upp úr 1980.
Nú annast hún tómstundastarf fyrir aldraða.
Katrín hefur látið félagsmál talsvert til sín taka. Hún er formaður
barnaverndarnefndar á Eskifirði og á sœti í félagsmálaráði bœjarins,
Frambjóðendur
Alþýöuflokksins kynntir:
10. sæti
ERLING GARÐAR JONASSON
Framsóknarflokkurinn
fari í endurhæfingu
„Ég var nokkuð efins um það
fram yfir tvítugt, hvert skyldi halda
í pólitík," segir Erling Garðar Jón-
asson. „Þótt ég væri uppalinn í einu
höfuðvígi íslenskra krata, og vissu-
lega farinn að gjóta augunum í þá
átt, var það eiginlega ekki fyrr en á
námsárunum í Danmörku sem
skoðanir mínar í stjórnmálum mót-
uðust fyrir alvöru. Ég er þannig
kannski fremur danskur krati en
hafnfirskur"
Erling Garðar hafði talsverð af-
skipti af stjórnmálum á námsárun-
um. Hann starfaði af talsverðum
krafti í DSU, ungmenna hreyfingu
danskra jafnaðarmanna og átti þátt
í stofnun hins norræna sambands
ungra jafnaðarmanna sem fulltrúi
íslendinga. Hann var varamaður í
stjórn sambandsins fyrsta árið og
sat þá flesta eða alla stjórnarfundi.
Meðal ýmissa meira og minna
þekktra andlita í þessari fyrstu
stjórn sambandsins má nefna Ingv-
ar Carlsson, núverandi forsætisráð-
herra Svía og Ole Teigen sem þá var
í forsvari fyrir unga jafnaðarmenn
í Noregi. A undirbúningsfundun-
um kynntist Erling Garðar einnig
Olof Palme.
Eftir að Erling Garðar fluttist til
Egilsstaða, sat hann í hreppsnefnd
þar á árunum 1970—82, var oddviti
hreppsins á kjötímabilinu frá
1974— 78 og formaður Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi frá
1975— 77.
Ekki má heldur gleyma því að
hann skipaði 1. sætið á framboðs-
lista Alþýðuflokksins í Austur-
landskjördæmi í kosningunum
1971 og 1974.
„Ég tel mikilvægasta atriðið í
þessum kosningunum núna að
Framsóknarflokkurinn fái frí og fái
þannig kost á því að fara í endur-
hæfingu. Það þarf að mynda starf-
hæfa ríkisstjórn með stuðningi
launþegahreyfingarinnar, sem er sá
aðili sem hefur mótað stefnuna út
úr verðbólgubálinu.
Mér finnst líka afar mikilvægt að
við jöfnum þær byrðar sem sam-
neyslan leggur á okkur. Við búum
við afar ósanngjarnt skattakerfi,
sem best kemur fram í því að aðeins
hluti þjóðfélagsþegnanna greiðir í
raun og veru skatta til ríkisins. Ég
fagna auðvitað staðgreiðslukerf-
inu, en vil jafnframt láta huga að
því hvernig næst til þeirra sem hafa
sloppið við skattgreiðslur síðustu
hundrað ár.
Ég tek ekki undir þennan bar-
lómsblástur sem er gagnkvæmur
milli aðila á Reykjavíkursvæðinu
og einstaka vælukjóa á landsbyggð-
inni. Hann hefur stórskaðað heil-
brigt atvinnulíf við strendur lands-
ins og fælt fólk frá landsbyggðinni
og orðið til þess að athafna menn
hafa flutt til Reykjavíkur vegna
hræðslu við að verðmæti þeirra úti
á landi yrðu að engu.
Það hefur enginn ástæðu til að
örvænta úti á landsbyggðinni. Það
er ekki rétt sem Guðrún Helgadótt-
ir sagði í eldhúsdagsumræðunum
að það ríkti einhver ördeyða í at-
vinnulífinu úti á landi. Bændur búa
hins vegar við stórkostleg vandamál
sem Framsóknaráratugurinn hefur
skapað, en þau verða leyst.
Grundvallaratriðið er hins vegar
það að íslendingar búi við sterka og
heilsteypta jafnaðarstjórn og það er
kominn tími til að Alþýðuflokkur-
inn setjist í öndvegi íslensks fram-
kvæmdavalds.
Erling Garðar Jónasson, sem skipar heiðurssœtið á lista Alþýðu-
flokksins á Austurlandi fyrir komandi alþingiskosningar, er fœddur í
Hafnarfirði 24. júní 1935 og uppalinn þar. Hann hœtti í menntaskóla
og fór í staðinn að lœra rafvirkjun. Sveinsprófi í þeirri grein lauk hann
21 árs að aldri og starfaði nokkur ár ífaginu áður en hann hélt til tœkni-
náms í Danmörku. Hann lauk prófi úr dönskum tœkniskóla árið 1964
og vann sem tœknifrœðingur i Danmörku um eins árs skeið áður en
hann sneri aftur heim til Islands.
Erling Garðar hefur unnið allan sinn starfsaldur á íslandi hjá Raf-
magnsveitum ríkisins. Hann byrjaði sem sendill og vann síðan verka-
mannavinnu ífríum, en eftir að lauk rafvirkjanáminu vann hann sem
rafvirki og var verkstjóri hjá fyrirtækinu um tíma áður en hann hélt út
til náms. Nú er Erling Garðar rafveitustjóri Austurlandsveitu hjá Rar-
ik.
l 1 [ l
A AUSTURLANDI
Alþýðublaðiö á Austurlandi fer inn á
hvert heimili í kjördæminu. Auglýsing
þín kemur því fyrir sjónir allra íbúa
Austurlands ef hún birtist í Alþýðublaö-
inu.