Alþýðublaðið - 25.03.1987, Page 3
Miðvikudagur 25. mars 1987
Athol Farmer og Katrín Hall á œfingu á danssýningu Þjóðleikhússins Ég dansa við þig.
íslenski dansflokkurinn og gestadansarar frumsýna
í Þjóðleikhúsinu í kvöld
Eg dansa við þig
Leikandi fjörug, eggjandi og
fyndin danssýning verður frum-
sýnd í kvöid, miðvikudag, í Þjóð-
leikhúsinu. Þetta er danssýning,
sem kemur öllum i gott skap og vek-
ur vafalaust Ijúfar endurminningar
hjá mörgum, sem kannast við tón-
listina. Sýningin samanstendur af
22 mismunandi dansatriðum við
tónlist sem byggir á 46 vinsælum
dægurlögum i nýrri útsetningu.
Höfundur tónlistar er Samuelina
Tahija. Egill Ólafsson leikur á
píanó, syngur og talar og ásamt
honum syngur Jóhanna Linnet en
annar hljóðfæraleikur er fluttur af
segulbandi frá upprunalegu sýning-
unni í Þýskalandi.
Það er Islenski dansflokkurinn
ásamt gestadönsui um sem bera hit-
ann ogþungann af 'ýningunni.Hver
dansari fær'að njóta sín í sérstökum
atriðum auk glæsilegra hópatriða.
Gestadansarar eru tveir aðalkarl-
dansarar Kölnaróperunnar, Nýsjá-
lendingurinn Athol Farmer og
Frakkinn Philip Talard. Einir 6 ís-
lenskir karldansarar bætast einnig í
hópinn.
Listdansstjórinn Jochen Ulrich
er bæði höfundur dansa, leikmynd-
ar og búninga en Ásmundur Karls-
son lýsir sýninguna.
Önnur sýning á Ég dansa við þig
er sunnudaginn 29. mars.
Arshátíð
Grikklandsyina
Grikklandsvinafélagið Hellas
boðar til aðalfundar á Hótel Esju
föstudaginn 27. mars kl. 19.30. Fara
þar fram hefðbundin aðalfundar-
störf.
Að aðalfundi loknum verður efnt
til árshátíðar félagsins á sama stað
og hefst hún kl. 20.30. Boðið verður
upp á gríska máltíð, en meðal
skemmtiatriða má nefna bráðfynd-
ið atriði úr gamanleiknum Friðin-
um eftir Aristófanes i þýðingu
Kristjáns Árnasonar, sem flutt
verður af Róbert Arnfinnssyni og
nemendum fjórða bekkjar í Leik-
listarskóla íslands, þeim Halldóri
Björnssyni, Hjálmari Hjálmars-
syni, Ingrid Jónsdóttur, Ólafíu
Hrönn Jónsdóttur, Stefáni Sturlu
Sigurjónssyni, Valgeiri Skagfjörð,
Þórarni Eyfjörð og Þórdísi Arn-
ljótsdóttur. Leikstjóri er Sveinn
Einarsson. Eins og kunnugt er, var
Aristófanes einhver snjallasti
ádeilu- og gamanleikahöfundur
sem sögur fara af, og er Friðurinn
meðal öndvegisverka hans ásamt
með Lýsiströtu og Þingkonunum
sem mörgum íslendingum eru í
fersku minni í þýðingu Kristjáns
Árnasonar.
Seinna um kvöldið syngur Sif
Ragnhildardóttir nokkur lög eftir •
Mikis Þeódórakis við undirleik Hil-
mars J. Haukssonar. Textarnir eru á
sænsku og ættu því að vera árshá-
tíðargestum tiltölulega aðgengileg-
ir. Milli skemmtiatriða og undir
borðhaldi verður leikin grísk tónlist
af snældum og í lokin er ætlunin að
sýna kynningarkvikmynd um
Grikkland af myndbandi. Á árshá-
tíðinni verður að sjálfsögðu vikið
að fyrirhugaðri menningarferð til
Grikklands 5.—27. júní næstkom-
andi.
Róbert Arnfinnsson, leikari, er
einn þeirra sem skemmta mun á árs-
hátíð Grikklandsvinafélagsins.
BÖRN í BÍLUM
ÞURFA VÖRN
- sama
hve gömul eru.
UMFERÐAR
RÁÐ
Útboð
Innkaupastofnun rlkisins f.h. Vegagerðar rlkisins óskar eftir
tilboðum í 5 stk. dráttarvélar ásamt tilheyrandi búnaði, til af-
greiðslu árið 1987 og ársbyrjun 1988. Tilboðsgögn eru afhent
á skrifstofu vorri. Tilboð verða opnuð kl. 11.00 f.h. 14. aprll
1987.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartuni 7. simi 25844
Fulltrúaráð
Alþýðuflokksfélaganna
í Reykjavík
Aðalfundur verður haldinn mánudaginn 30. mars kl.
20.301 Kosningamiðstöð Alþýðuflokksins að Siðumúla
12.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Breyting á reglugerð fulltrúaráðs. Fyrri umræða.
3. Jón Sigurðsson efsti maður A-listans flytur ræðu.
4. Önnur mál.
Stjórnin
da?ar
í reyklausa
daginn.
Tilkynning
til kjósenda
Athygli kjósenda sem ekki verða heima á kjördag 25.
aprfl n.k. ervakin áþvi að utankjörstaðakosningerhafin
og fer fram hjá hreppstjórum, sýslumönnum og I
Reykjavfk hjá Borgprfógeta.
A-listi
Alþýðuflokkurinn.
Kjósendur —
kjörskrá
Athugið hvort þið eruð á kjörskrá. Þeir kjósendur sem
hafa veriö við nám erlendis eða dvalist erlendis af öðr-
um ástæðum eða flutt sig milli kjördæma eru sérstak-
lega hvattir til að athuga hvort þeir eru á kjörskrá.
Kosningaskrifstofur Alþýðuflokksins um allt land veita
upplýsingarog aðstoð ef með þarf. Utankjörstaðaskrif-
stofa Alþýðuflokksins l Reykjavlk Alþýðuhúsinu Hverf-
isgötu 8-10 er opin milli kl. 9.30-18. Simar 15020—29282
—623244—623245.
A-listi
Alþýðuflokkurinn
Kosningaskrifstofur
Alþýðuflokksins
um landið
REYKJANES
Skrifstofan er að Esjugrund 40, Kjalarnesi.
Opin daglega frá kl. 10—11. Sími 666004.
Kosningastjóri Hulda Ragnarsdóttir.
Skrifstofan er að Hamraborg 14, Kópavogi.
Opin daglega frá kl. 13—19, laugardaga og sunnudaga frá kl.
13— 17. Simi 44700.
Kosningastjóri Guðrún Emilsdóttir.
Skrifstofan er að Strandgötu 32, Hafnarfirði.
Opin daglega frá kl. 17—19 og 20.30—21.30 og laugardaga kl.
14— 17. Sími 50499 — 51506 — 51606.
Kosningastjóri Elln Harðardóttir.
Skrifstofan er að Hafnargötu 31, Keflavfk.
Opin daglega frá kl. 14—19. Simi 92-3030.
Kosningastjóri Haukur Guðmundsson.
VESTURLAND
Skrifstofan er að Vesturgötu 53 (Röst), Akranesi.
Opin daglega frá kl. 16—19, fyrst um sinn laugardaga frá kl.
14—19. Sími 93-1716.
Kosningastjóri Sigurbjörn Guðmundsson.
NORÐURLAND—EYSTRA
Skrifstofan er að Strandgötu 9, Akureyri.
Opin daglega frá kl. 9—17. Simi 96-24399.
Kosningastjóri Jón Ingi Cesarsson.
AUSTURLAND
Skrifstofan er að Skrúð, Fáskrúðsfirði.
Opin daglega frá kl. 20—22 fyrst um sinn. Simi 97-5445.
Kosningastjóri Rúnar Stefánsson
Skrifstofan er að Bláskógum 9, Egilsstöðum.
Opin daglega frá kl. 9—24. Slmi 97-1807.
Kosningastjóri Karl Birgisson.
SUÐURLAND
Skrifstofan er að Heiðarvegi 6, Vestmannaeyjum.
Opin daglega frá kl. 17—19 fyrst um sinn. Simi 98-1422.
Kosningastjóri Þorbjörn Pálsson.
BORGARNES: Svarfhóli v/Gunnlaugsgötu. Kosningastjóri:
Sæunn Jonsdóttir. Sfmi: (93) 7412. Opið: kl. 20.30—21.30 virka
daga. 14.00—17.00 um helgar.
NESKAUPSTAÐUR: Hafnarbraut 22. Sfmi (97) 7801. Opið á
kvöldin og um helgar.
SEYÐISFJÖRÐUR: Kosnignaskrifstofa Hafnargata 26, kjall-
ari. Opið á kvöldin og um helgar.
Fleiri kosningaskrifstofur Alþýðufiokksins verða opnaðar á
næstu dögum og verður þeirra getið nánar sfðar. Frekari upp-
lýsingar um nýjar kosningaskrifstofur veitir kosningamið-
stöð Alþýðuflokksins að Sfðumúla 12. Sími 689370. ,