Alþýðublaðið - 27.03.1987, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 27.03.1987, Qupperneq 1
Föstudagur 27. mars 1987 60. tbl. 68. árg. Utanríkisráðherrafundur Norðurlanda: Embættismannanefnd- in náðist í gegn Samkomulag náðist á fundi ut- anríkisráðherra Norðurlanda um að fela forstöðumönnum stjórn- máladeildanna eða jafnsettum embættismönnum í ráðuneytum þeirra að gera greinargerð um for- sendur fyrir kjarnorkuvopnalausu svæði á norðurslóðum, er liður í viðleitni til að draga úr spennu og vígbúnaði í Evrópu. Samkvæmt heimildum Alþýðu- blaðsins var útlit fyrir, á fyrra hluta fundar ráðherranna í Reykjavík, að ekki næðist samkomulag um þetta atriði. Var helsti ágreiningur vegna sjónarmiða íslenska utanríkisráð- herrans í málinu. Á blaðamanna- fundi að afloknum ráðherrafund- inum í gær, kom fram að ráðherr- arnir væru þó mjög sáttir við þessa niðurstöðu. Matthías Á. Matthie- sen sagði að fullt tillit hefði verið tekið til hans skoðana í málinu, og endanleg niðurstaða væri sér því að skapi. í ályktuninni segir: „Vinnuhóp- urinn skal í störfum sínum leggja til grundvallar skuldbindingar þeirra ríkja, sem eru í varnarbandalagi og stefnu hinna, sem hlutlaus eru. Þá skal taka mið af samþykktum nor- rænu þjóðþinganna varðandi stefnu í öryggis- og afvopnunar- málum svo og skýrslum og greinar- gerðum ríkjanna í því efni. Niðurstöður af þessari könnun skal leggja fyrir utanríkisráðherra Norðurlanda til þess að auðvelda þeim frekari pólitískt mat í þessum málaflokki. — Athugunin snertir forsendur fyrir „kjarnorkuvopna- lausu svæði á norðurslóðum." Við höfum rætt hvað hugtakið „norðurslóðir" merkir — án þess að binda okkur við nokkra fasta landfræðilega skilgreiningu. Utanríkisráðherrarnir fimm eru samt sammála um að athugunin geti náð til landsvæða hinna fimm landa þar með talið Grænlands, að- liggjandi hafsvæða og landsvæða, t.d. Kólaskagans. “ Ingi Úlfars Magnússon, gatnamálastjóri: „Dýrt spaug“ Mikil brögð hafa verið að því, sem af er árinu, að ýmisskonar skemmdarverk hafa verið unnin á eigum borgarinnar. Nokkrum um- ferðarspeglum hefur verið stolið eða þeir eyðilagðir. Um 80 stöðu- mælar hafa verið brotnir við að reyna að ná úr þeim peningum. Mesta tjónið er í sambandi við stöðumælana, en eftir litlu er að slægjast þar því þeir eru tæmdir daglega, svo um smáupphæðir er að ræða. Kostnaður við endurnýj- un á þeim tækjum sem búið er að stela og skemma er á bilinu 2.0—2.5 millj. króna. Borgin hefur í samráði við lög- regluyfirvöld komið á fót sérstakri vaktsveit tii að koma í veg fyrir frekari skemmdarverk af þessu tagi. Ingi Úlfars Magnússon, gatna- málastjóri sagði í samtali við Al- þýðublaðið að mestu skemmdirnar væru unnar á kvöldin og á nótt- unni. Meiningin væri að draga það fólk til ábyrgðar sem hegðaði sér svona, í þeirri von að skemmdar- vargar áttuðu sig á að hér er um dýrt spaug að ræða, í orðsins fyllstu merkingu. SÉRFRAMBOÐ Albert fram undir merkjum S-listans Eftir mikil fundahöld og viðræð- ur hefur Albert Guðmundsson nú ákveðið að taka áskorunum stuðn- ingsmanna sinna um sérframboð. Mun hann bjóða sig fram pndir merkjum S-listans og hefur dóttir hans, lielena Albertsdóttir marg- lýst því yfir að hún sé tilbúin að stjórna kosningabaráttunni fyrir föður sinn, Albert Guðmundsson. Framboðslistar munu vera í smíðum í öllum kjördæmum lands- ins og sumir þeirra langt á veg komnir. Miklar bollaleggingar hafa staðið um hverjir munu verða á list- unum, en samkvæmt heimildum blaðsins verður enginn af þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins á þeim, að Albert frátöldum. Þegar er búið að útvega kosn- ingaskrifstofu í Reykjavík og verð- ur hún opnuð í dag. Þaðan mun Helena stjórna baráttunni, en talið Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstœðisfiokksins, hefur tekið efsta sœti flokksins í Reykjavík eft- ir að Albert ákvað að fara í sér- framboð. er að hún hafi verið því mjög með- mælt að Albert tók þessa ákvörð- Albert Guðmundsson er ekki af bakidottinn. Hann hefurnú ákveð- ið að taka áskorunum stuðnings- manna sinna um sérframboð. un, jafnvel að þrýstingur frá henni hafi gert útslagið. Helgi Valdimarsson, form. Lœknaráðs Landspítalans: „Verðum að loka Landspítalanum“ „Hjúkrunarfræðingar, sálfræð- ingar, félagsráðgjafar, sjúkraliðar, sjúkraþjálfarar og líffræðingar á ríkisspítulunum eru með 20—30% lægri laun heldur en fólk með sam- bærilega menntun á öðrum opin- berum heilbrigðisstofnunum. Þetta auðvitað getur ekki gengið og það er þess vegna sem þetta fólk sagði upp störfum 1. október s.l. Stjórn ríkisspítalanna hefur ekki getað leiðrétt þennan mun vegna þess að það er fjármálaráðuneytið sem fer með þetta vald og þeir hafa ekkert viljað sinna þessu,“ sagði Helgi Valdemarsson, formaður Læknaráðs Landspítalans, í sam- tali við Alþýðublaðið í gær. „Það hefur ekkert gerst í launa- málum þessa fólks sem það hefur orðið vart við. Hvað gerist í einka- samræðum veit maður ekki, nema að menn hafa farið stöku sinnum og rætt við einstaka aðila í stjórn ríkisspítalanna og fengið þau svör að málið sé ekki í þeirra höndum. Bæði forstjóri ríkisspítalanna og formaður stjórnarnefndar hafa gengið á fund heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra og skýrt þessi mál, en lausn er ekki fundin enn. En það er fjármálaráðuneytið sem fer með þetta ákvörðunarvald. Mér er kunnugt um að Ragnhildur Helgadóttir, heilbrigðisráðherra hefur mikinn hug á að leysa þetta mál, en það er ekki nóg ef enginn vilji er fyrir hendi í fjármálaráðu- neytinu. Það er misskilningur hjá Þor- steini Pálssyni að þetta snerti kjara- stefnu ríkisstjórnarinnar, eins og hann hélt fram á Alþingi um dag- inn. Hjúkrunarfræðingar t.d. eru í hæsta lagi í 67. launaflokki hjá okkur, en hjúkrunarfræðingar hjá öðrum heilbrigðisstofnunum eru u.þ.b. 4—6 launaflokkum hærri fyrir utan fríðindi alls konar. Þetta fólk er því að fara fram á sömu kjör og annað sérmenntað starfsfóik í landinu, en ekkert meira. Við megum heldur ekki glevma því að ríkisspítalarnir eru aðal kennslutæki heilbrigðisstofnana landsins. Þess vegna er það alveg fráleitt að bjóða starfsfólki þar upp á lægri laun en gerist annars staðar. Ef eitthvað er ættu þau að vera hærri. það sem liggur fyrir ef þetta fólk hættir störfum og gengur út 1. apríl, er einfaldlega það að þá verð- ur nánast að loka Landspítalanum og ekki verður hægt að framkvæma neinar meiriháttar skurðaðgerðir í landinu. Blóð yrði hægt að gefa í al- gerum neyðartilfellum og sú þjón- usta myndi þá byggjast á tveimur starfsmönnum. Það sjá allir að hér er þjóðarvá fyrir dyrum. Þetta mál verður að leysa straxý sagði Helgi Valdemarsson. „Vextir hafa líklega — segir Jóhann Nordal, seðlabankas iiitu iiaiiiitmi — segir Jóhann Nordal, seðlabankastjóri, en hann telur að raunvextir hér á landi geti ekki talist óeðlilega háir miðað við verðbólgu undanfarna mánuði „Okkar skoðun er sú að raun- vextir hér á landi á almennum lán- um með tilliti til verðbólgu und- anfarna mánuði, séu alls ekki óeðlilegir. Vextir hafa reyndar hækkað frá því í nóvember, en það er vegna þess að verðbólga er heldur meiri þessa mánuði, en var á seinni hluta síðasta árs,“ sagði Jóhannes Nordal, seðlabanka- stjóri, í samtali við Alþýðublaðið í gær. Frá því nýju bankalögin tóku gildi 1. nóvember s.l. haust hafa vextir verið að hækka stig af stigi. Fyrir 1. nóvember voru t.a.m. vextir á óverðtryggðum skulda- bréfum 15,5% en í dag eru hæstu vextir 21,5% hjá Iðnaðarbankan- um. Meðalvextir á óverðtryggð- um bréfum eru 21%. Jóhannes var spurður hvort menn reiknuðu með að vextir héldu áfram að hækka: „Nei, ég held að það sé ekki hægt að búast við því. Það er reiknað með því að aftur hægist á verðbólgu á næstunni og út árið og þess vegna hafi vextir líklega náð hámarki núna og fari því lækkandi þegar líður á vorið.“ — I samtölum við A Iþýðublað- ið hafa hagfrœðingar bent á að bankarnir freistist til að ákveða vexti með tilliti til verðlagsþróun- ar á of stuttu tímabili? „Það er rétt, að það er tilhneig- ing til þess að vextir séu ákveðnir með tilliti til verðbólguþróunar á hverjum tíma, en ekki til langtíma litið. Það stafar náttúrlega af því að bönkunum er ákaflega mikil- vægt að ekki sé mikill munur á kjörum á verðtryggðum lánum og óverðtryggðum. “ Jóhannes benti á að vextir eða kostnaður á verð- tryggðum Iánum hækkaði strax í beinu hlutfalli við verðbólgu og lækkaði síðan með að sama skapi. Það væri líka mikilvægt fyrir bankana að óverðtryggði hlut út- lánanna fylgdi nokkuð fljótt á eftir. Þetta stafar m.a. að mikið af innlánum eru með svokölluð „/ einkaskuldabréfum verða menn náttúrlega að passa sig á þvi sjálfir, hvernig samninga þeir eru að undirrita. Það er dálítið hœttu- legt eins og sumir hafa gert, að hafa fasta vexti til langs tíma, sér- staklega ef þeir eru með einhverju lágmarki en ekki hámarki,“ segir Jóhannes Nordal. skiptikjör, sem eru annaðhvort verðtryggð eða óverðtryggð, eftir því hvort gefur betri ávöxtun. Nú hafa margir áhyggjur af því hvernig svokallaðir breytilegir vextir verði meðhöndlaðir ef vext- ir fara lækkandi aftur. Á skulda- bréfum í bönkunum er tekið fram t.d. nú hjá Iðnaðarbankanum, að vextirnir séu 21,5% „eða þeir vext- ir sem bankinn ákveður síðar. “ — Þetta telja margir fullkomlega óeðlilegt og telja sig ekki hafa neina tryggingu fyrir því að bank- inn lækki vextina með tilliti til vaxtaþróunar. Jóhannes sagði að- spurður um þetta atriði að bank- arnir veittu yfirleitt lán með breytilegum vöxtum, þannig að þeir færu þá niður ef þróun vaxta væri í þá átt. „í einkaskuldabréfum verða menn náttúrlega að passa sig á því sjálfir hvernig samninga þeir eru að undirrita. Það er dálítið hættu- legt eins og sumir hafa gert, að hafa fasta vexti til langs tíma, sér- staklega ef þeir eru með einhverju lágmarki en ekki hámarki." — Erþað þáyfirleitt breytilegir vextir, en við getum ekki sagt um hvað menn semja um annarsstað- ar. Það er þó yfirleitt tilhneiging í þá átt að fara yfir i breytilega vexti. “ í nýju bankalögunum var sá fyrirvari gerður á vaxtafrelsinu, að Seðlabankinn fylgdist með vaxtamun banka og sparisjóða og að fengnu samþykki ráðherra verði hægt að setja takmarkanir við vaxtatöku innlánsstofnana, ef raunvextir verði hærri en að jafn- aði í viðskiptalöndum íslands eða ef vaxtamunur er óeðlilegur. Ekki hefur ennþá reynt á þetta laga- ákvæði og menn velta því fyrir sér hvort e.t.v. sé ástæða til að beita því í dag: „Það er ekkert tilefni til þess. Raunvextir á óverðtryggðum lán- um eru lægri hér en í viðskipta- löndum okkar,“ sagði Jóhannes Nordal.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.