Tíminn - 02.07.1967, Síða 9
SUNNUDAGUR 2. júlí 1967.
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og indriði
G Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug-
lýsingastióri: Steingrímur Gíslason Ritstj.skrifstofur 1 Eddu-
búsinu. símar 18300—18305 Skrifstofur- Bankastræti 7 Af-
greiðslusími 12323 Auglýsingasími 19523 Aðrar skrifstofur.
sími 18300 Áskriftargjald kr 105.00 á mán innanlands — I
lausasölu kr 7.00 eint. - Prentsmiðjan EDDA h t
Langur listi
Dómarafulltrúafélag íslands hefur á fundi sínum
29. þ.m. vítt harðlega veitingu bæjarfógetaembættisins
á Akureyri. Félagið byggir mótmæli sín á því, að þar
sem hinir tveir umsækjendur hafi báðir verið hæfir,
hefði átt að fara eftir starfsaldri. Sá sem embættið fékk,
hafði starfað 13 árum skemur í þjónustu ríkisins en hinn,
sem var sniðgenginn. Sá, sem fékk embættið var Sjálf-
stæðisflokksmaður, en hinn Alþýðuflokksmaður.
Blaðið Alþýðumaðurinn á Akureyri hefur birt eftirfar-
andi lista um „embættaveitingar ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins síðan þeir tóku við dómsmálum frá þvi er
viðreisnarstjórnin var mjmduð og nær listinn yfir veit-
ingar í embætti sýslumanna og bæjarfógeta út um land:
Lögreglustjóraembættið í Bolungarvík: Hafsteinn
Hafsteinsson, Sjálfstæðismaður.
Borgarfjarðarsýsla: Ásgeir Pétursson, Sjálfstæðism.
Hafnarfjörður: Einar Ingimundarson, Sjálfstæðism.
Barðastrandasýsla: Ásberg Sigurðsson, Sjálfstæðism.
Akranes: Jónas Thoroddsen Sjálfstæðismaður.
Snæfells- og Hnappadalssýsla: Friðjón Þórðarson,
Sjálfstæðismaður.
Dalasýsla: Yngvi Ólafsson, Sjálfstæðisflokksmaður.
Húnavatnssýslur: Jón ísberg, Sjálfstæðisflokksmaður.
Siglufjörður: Elías Elíasson, Sjálfstæðisflokksmaður.
Neskaupstaður: Ófeigur Eiríksson, Sjálfstæðisflokksm.
Akureyri: Ófeigur Eiríksson Sjálfstæðisflokksmaður.
Suður-Múlasýsla: Valtýr Guðmundsson, Sjálfstæðism.
Skaftafellssýslur: Einar Oddsson, Sjálfstæðisflokksm.
Keflavík: Alfreð Gíslason, Sjálfstæðisflokksmaður.
Vestmannaeyjar: Freymóður Þorsteinsson, Sjálfst.m.
Samtals 15 embættisveitingar með hreinum flokkslit“.
Þessi listi staðfestir svo ve.1 það, sem Tímirin hefur
sagt um embættaveitingar núv ríkisstjórnar, að ofmælt
er að fara um það fleiri orðum að sinni.
Hækkun hitaveitunnar
Á miðju s.l. ári, eða rúmum mánuði eftir borgar-
stjórnarkosningarnar i fyrravor beitti íhaldsmeirihlutinn
í borgarstjórn Reykjavíkur sér fyrir stórfelldustu hækk-
un á gjaldskrá hitaveitunnar, sem nokkru sinni hefur
verið gerð. í heild voru taxtar hitaveitunnar hækkaðir
um 35—40% og einstakir liðir næstum 200%.
Fulltrúar Framsóknarflokksins í borgarstjórninni
beittu sér eindregið gegn þessum miklu hækkunum og
töldu þær ekki ná nokkurri átt. Fluttu þeir ítarlegar
breytingartillögur og lögðu til, að hófsamlega yrði farið
í allar hækkanir, þótt ekki yrði hins vegar hjá því komizt
að auka tekjur hitaveitunnar nokkuð vegna mikilla fjár-
hagserfiðleika, sem hún átti þá í. íhaldsmeirihlutinn í
borgarstjórninni felldi með sínum átta atkvæðum allar
tillögur borgarfulltrúa Framsóknarflokksins og samþykkti
síðan hina stórfelldu hækkun. Hins vegar fékkst samstaða
um það í borgarstjórninni, að láta hækkun heimæðagjald-
anna, ekki ná til þeirra húsa, sem áttu samkvæmt áætlun-
um og loforðum hitaveitunnar að vera búin að fá hita-
veitu þegar gjaldskrárhækkunm «ar samþykkt. Var þess-
um aðiium gefinn kostur á að greiða heimæðagjaldið
skv. eldri taxtanum til 1. júii 1967. Vegna stöðvunar-
laganna verður hins vegar að telja hæpið að hækkun
heimæðagjaldanna núna sé leyfileg og því ráðlegra fyrir
hitaveitustjóra að bíða með ahar hækkunarframkvæmdir
þar til haustar.
TIMINN
Tvær forustugreinar úr The Times, London:
Dómurinn yfir Mohammed Ali
Nýlegar var kveðinn upp
dómur yfir hnefaleikakappan-
um fræga, Mohammed Ali
(Cassius Clay) vegna þess að
hann heufr neitað að gegna
herþjónustu. Hann var dæmd-
ur í margra ára fangelsi. Mál
inu hefur hann vísað til yfir-
dóms. „The Times“ ræddi um
dóminn í eftirfarandi forustu-
grein 22. þ.m.:
STRÍÐIÐ í Vietnam er orð-
ið mikiivægt fyrir bandaríska
svertingja á tvennan hátt. Ann
ars vegar hafa margir einstak-
ir bandarískir svertingjar bar-
izt hetjulega í Vietnam og feng
ið þar aðstöðu, frama
möguleika, tilgang og fjármuni
sem þeim hefir verið meinað
að njóta heima fyrir. Þeir
verða enn óifúsari en áður til
að sætta sig við ójafnréttið
heima eftir að hatfa notið þessa
jafnréttis um sinn við að þjóna
þjóð sinni.
Hins vegar hneigist skipu-
lögð skoðanamyndun meðal
svertingja einkum til andstöðu
gegn styrjöldinni, og nýtur þar
við áhrifa jafn fjarskyldra
foringja og dr. Martin Lúther
Kings og Stokely Carmicihaels.
Afstaðan stafar að nokkru
leyti af því, að svertingjarnir
líta á þetta sem stríð hvítra
manna gegn þjóð með öðrum
Litarihætti, en einnig af hinu,
að styrjöldin dregur bæði fé
og athygli frá ófulnægðum
þörfum svertingja heima fyrir.
Hiámarkshegningin, sem Mu-
hammed Ali (Cassius Olay)
var dæmdur í þriðjudaginn 20.
júní fyrir að neita að gegna
herþjónustu, kann að auka eitt
hvað á andstöðu svertingja
gegn styrjöldinni, að minnsta
kosti ef dóminum verður full-
nægt. Þetta gæti einnig vald-
ið aukinni andstöðu hvítra
manna gegn jafnréttinu, þar
sem særð ættjarðarást kynni
Cassius Clay.
að auka á hneigð til kynþátta
misréttis.
SATT er að visu, að enn
sem komið er hefur Muhammed
Ali ekki hlotið mikið fylgi með
al svertingja. Til þess að svo
megi verða skoríir hann bæði
aðdráttarafl og málsnilld, og
hefir raunar lagt allt of mikla
áherziu á skrípalæti. En þegar
dómstóll hvítra manna dæmir
svartan hneföleikarameistara í
þungavigt til þyngstu refsing-
ar fyrir hugsjónir sínar getur
auðveldlega svo faráð, að horft
verði framhjá vanköntum hans
sem manns.
Ekki verður komið auga á,
að Muhammed Ali hafi orðið
fyrir alvarlegu misrétti laga-
lega séð. Hann bar því upp-
haflega við, að hann væri að
sannfæringu og samvizku and
stæður styrjöldinni, en tókst
hvorki að sannfæra herkvaðn-
ingarstjómdna um, að hann
sjálfur né samtök svartra mú-
hameðstrúanmanna væru yfir
leitt í andstöðu við styrjaldir
í sjálfu sér, — og þar hafði
sitt að segja, að nokkrir félag-
ar í samtökum svartra múham-
eðstrúarmanna börðust og
höfðu barizt á vígvöllunum í
Vietnam.
Muhammed Ali (Cassius
Clay) var heimilað að áfrýjg
til landsnefndar, sem svertingi
átti sæti í, en þar varð niður
staðan hin sama. Hann reyn;l
einnig að fá sig undanþeginn
á þeirri forsendu, að han-n
væri starfandi prestur safnað-
ar, en tókst ekki að sannfœra
yfirvöldin um að hann gegndi
í sannleika fullu prestsstarfi
samkvæmt lögum, — og þarf
raunar engum að koma sú af-
staða á óvart. Héraðsdómur-
inn þurfti því ekki að úr
skurða um annað en það, hvort
hann hefði neitað að gegna
kvaðningu til herþjónustu.
DÓMARINN hafði að
nokkru leyti á valdi sínu að
ákveða refsinguna og tók þann
kost, að ákveða hana eins
þunga og lög framast heimiL-
uðu. Hann kann að haifa hugs-
að sem svo, að áhættan við að
verða sakaður um kynþáttaof
sóknir, eða að leggja svertingj
um til pislarvott, væri minni
en hættan á að efna tiL flóð-
öldu mála af bálfu svertingja,
sem hyggðust reyna að komast
hjá að gegna herþj ón.ustu í
Vietnam. Dómarinn ákvað að
minnsta kosti að taka þá af-
stöðu, að þarna væri ekki um
að ræða nein mikilvæg atriði
til málsbóta.
f flestra augum munu þó
þessi atriði þyngst á metun-
um. Afstaða Muhammeds Ali
stafar fyrst og fremst af því,
að hann lítur einkum á stríð-
ið í Vietnam sem nýlendustríð
Pramhald á bls. 15.
Ummæli Kosygins um Svetlönu
Áður en Kosygin forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna, fór
frá Bandaríkjunum, hélt
hann blaðamannafund, sem
var sjónvarpað samtímis um
víða veröld. Hann var m.a.
spurður um brottför Svetl
önu, dóttur Stalíns, frá Sov-
étríkjunum. „The Times“
ræddi um svar Kosygin í
eftirfarandi forustugrein 28.
þ.m.:
SVETLANA Alliluyeva Sta-
línsdóttir kom til Bandaiikj-
anna fyrir tveimur mánuðum
tál þess að „öðlast það sjálf
stæði I orðum og athöfnum,
sem henni hafði lengst af ver-
ið meinað að njóta í Rúss-
landi“. Þannig lýsti hún sjálf
orsök landflóttans. Kosygin
lýsti annarri skoðun á þessu
s.l. sunnudag: „Hún er reikul
siðferðilega", sagði hann, „og
andlega vanheil. Við getum
ekki annað en aumkað þá,
sem hafa í hygigju að færa sér
hana í nyt í pólitískum til
gangi, eða Sovétmönnum til
álitshnekkis yfirleitt.“ Þetta
var ekki í fyrsta sinn, sem
því heyrðist fleygt af hálfu
Rússa, að Svetlana væri van-
heil á geðsmunum, eða að land
flétti hennar væri liður í ein
hverju samsæri CIA gegn Sov-
étríkjunum.
Ekki hafa verið dregin fram
í dagsljósið nein rök fyrir þess
um ásökunum. Sú staðhæfing,
að CIA sé flækt í málið, virð-
ist ákaflega ósennileg. Ef kon
an hefði verið ginnt úr landi,
hefðd henni að öllum líkind-
um verið kippt í einum svip
vestur yfir Atlantshafið, en í
reyndinni fór hún huldu höfði
í tvo mánuði í Indlandi og
Sviss, meðan bandarísk stjórn
arvöld ákváðu, hvað við hana
skyldi gera.
Hin staðhæfingin, að Svetl-
ana sé andlega vanheil, virð-
ist ekki á meiri rökum reist
en sú sameiginlegia skoðun rétt
hugsandi Sovétþegna yfirleitt,
að allir, sem flýja land, séu
truflaðir á geðsmunum. En
svipuð afstaða er algeng á
Vesturlöndum til þeirra
manna, sem þar flýja land.
DAPURLEGT er að heyra
forsætisráðherra Sovétríkj-
anna faxa niðrandi orðum um
siðferði og andlegt ástand ein-
staklings, sem er andstæðing-
ur hans í stjórnmálum. Satt
m,un að vísu, að Kosygin hafi
með þessu gert sjálfum sér
meira ógagn en Svetlönu Alli-
luyevu. Með ummœlum sínum
um hana setti hann blett á það
góða álit, sem hann hafði á-
unnið sér hjá almenningi i
Bandaríkjunum.
Rökstuddur dórnur um skap-
gerð Svetlönu og hæfileika.
verður að bíða þar til sjálfs-
ævlsaga hennar birtist í hjaust.
Víst er mögulegt, og raunar
vonandi, að hún geti sýnt
manngerð föður síns í nýju
ljósi og raunar allt andrúms
loftið, sem ríkti í Kreml með-
an hann sat þar að yöldum.
Haldið er fram, að bókin muni
að mestu snúíst um höfund-
inn sjálfan og skýra frá, hvers
vegna hún ákvað að flýja vest-
ur á náðir hins ókunna, undan
hefðbundnum leiðindum síns
ekkjustands. Fróðlegt verður
að sjá, að hve miklu leyti á
kivörðun hennar byggist á skoð
unum hennar á sovézfcu sam-
félagi og að hve miklu leyti
var um að ræða tilraun til
flótta undan oki faðernisins.