Alþýðublaðið - 01.05.1987, Page 5

Alþýðublaðið - 01.05.1987, Page 5
Föstudagur 1. mal 1987 •5 raunverulega tekist að hafa þau áhrif að verðbólgan minnkaði, jafnframt því sem við höfum náð þeim árangri að kaupmáttur tíma- kaups hefur einmitt á þessum tíma vaxið mjög hratt. Það er hins vegar merkilegt að heyra stjórnarflokkana hæla sér af því að hafa komið verðbólgunni niður. Það vita auðvitað allir sem þarna horfðu á að frumkvæði þeirra var ekkert. Þeir tóku að vísu sæmilega við því sem að þeim var rétt, en unnu ekki beinlínis að nein- um hlutí* Húsnœðislánakerfið framfaraspor „Með nýja húsnæðiskerfinu er sett mikið aukið fé í húsnæðislán. Það er ljóst að þetta kerfi er mikil bót fyrir það fólk sem er að fara af stað í íbúðarkaup. Það fær mun hærri lán en áður. Við stöndum engu að síður einnig þarna við dæmi þar sem ríkisstjórnin hefur ekki staðið við sinn hluta. Eina framlag ríkisstjórnarinnar hefur verið að minnka ríkisframlagið milli ára um einn þriðja. Sú úrlausn sem kerfið hefur getað veitt ein- staklingunum hefur því verið minni sem því svarar og biðlistarnir, sem myndast hafa, orðið lengri. Þess vegna þarf meira fé í þetta húsnæð- iskerfi og það er mjög brýnt að til þess verði séð strax af nýrri ríkis- stjórn. Það er einnig mjög brýnt að stór hluti af því viðbótarfé, sem þannig verður sett inn í kerfið fari til fram- kvæmdalána, — til nýbygginga. Það er nauðsynlegt að hægt verði að koma nýbyggingum í gang strax. Það sem gerst hefur hingað til, er að fólk hefur óskað eftir lánum til kaupa á eldri húsnæði. Lán til ný- bygginga hafa verið mun færri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þetta end- urspeglar verðhlutfall, á milli eldri og nýrri íbúða og þetta hlýtur að breytast um leið og þau hlutföll komast í það horf, að nýbyggingar teljist hagkvæmar. Þá snýst eftir- spurnin við og það getur gerst með mjög snöggum hætti og strax í haust þarf að gera ráð fyrir því að nýbyggingar fari í gang. Það má segja að slík aðgerð sé til- tölulega auðframkvæmanleg, vegna þess að víða út á landsbyggð- inni er ládeyða á byggingarmark- aðnum og hér á Reykajvíkursvæð- inu er að Ijúka núna í sumar og haust þeim stórframkvæmdum sem mest hefur borið á, eins og flug- stöðinni, Hagkaupshúsinu og Seðlabankanum. Þess vegna er hægt að setja kraft í nýbyggingar, án þess að það valdi spennu á þess- um markaði. Það er mín skoðun að húsnæðis- lánakerfið sem samið var um í fyrra, sé mikið framfaraspor. Það er hins vegar engan veginn galla- laust og rétt að benda á að í þeim breytingum, sem þar eru gerðar er ekki tekið á félagslega hluta kerfis- ins. Það er auðvitað brýnt að gera og samræma þann hluta almenna kerfisins þannig að við fáum sam- fellda heild. Stærsta málið er, að það vantar í dag peninga í kerfið, — hvort sem um er að ræða í félags- lega- eða almennakerfið. Það er fjárskorturinn sem háir en ekki að- ferðafræðin. Mér finnst t.d. að kaupleiguhugmyndirnar sem kratar eru með séu grunnur sem að vel sé byggjandi á, en sú leið leysir ekki heldur fjármögnunarvandann" 27þúsund krónur er ekki stefna verkalýðssamtakanna „Það sem vó þyngst í samningn- um í desember var sú hækkun sem þar var gerð á lágmarkslaunum. Þau hækkuðu um 40% og í kaup- mætti talið um 30% við þessa samninga. Ég held að slík raun- hækkun í einum samningum hafi aldrei orðið áður. Það segir hins vegar ekki að við höfum náð þar á leiðarenda. Það segir okkur það, að sú samstaða sem var í hreyfingunni um það að knýja á um sérstaka hækkun á lægstu launum, skilaði okkur stóru skrefi í síðustu samn- ingum. Það er nauðsynlegt að fylgja því skrefi eftir og eins og allir vita höfum við núna óskað eftir endurskoðun á gildandi samning- um gagnvart atvinnurekendum, þar sem við að sjálfsögðu munum leggja á það áherslu að Iágmarks- launum verði lyft. Okkar stefnu- mörkun í desember var að tryggja að þau laun hækkuðu meira en önnur og við verðum að tryggja að sú niðurstaða standi eftir, þegar öll hringrás samninganna er frá. Það er athyglisvert í umfjöllun um þessi mál að undanförnu, að það virðist vera tilhneiging til þess í ákveðnum hópum, að gera niður- stöður af samningum af þessu tagi, t.d. töluna 27 þúsund, sem stefnu verkalýðssamtakanna. Menn virð- ast gleyma því að samningar eru niðurstaða samskipta verkalýðs- hreyfingarinnar við atvinnurekend- ur. í öðru lagi gleyma menn því að verkalýðshreyfingin hefur aldrei Iit- ið á niðurstöðu samninga sem sína óskaútkomu, heldur alltaf sem áfanga á leið til betri niðurstöðu. — Þessi hugsun virðist sækja mjög á, — sú tilhneiging í stórum hópum að umsnúa heimsmyndinni þannig að kjarabarátta sé ekki baráttan milli verkalýðshreyfingar og atvinnurek- enda og stundum ríkisstjórnar, heldur sé baráttan á milli verkalýðs- forystu og fólksins. Sú heimsmynd er kjarabaráttunni hættuleg, vegna þess að hún þýðir að þeir sem standa fyrir úrbótum eru gerðir tortryggilegir. Þetta veikir stöðu verkalýðshreyfingarinnar og eykur innbyrðis sundrunguí* Vinir og óvinir „Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir alla sem vilja vinna að bættum kjörum og traustari stöðu verka- lýðsstéttarinnar, að þeir geri sér grein fyrir því um hvað kjarabarátt- an snýst og hvernig sé hægt að vinna að henni. Það er mikilvægt að menn rugli ekki saman vini og óvini og veiti styrk þeim sem eru að reyna að knýja fram bætt kjör og láti ásakanirnar ganga á þá sem þar standa fyrir í veginum" — Nú töldu sumir óeðlilegt að þú sem forseti ASÍ færir i framboð til Alþingis. Má ekki segja að það séu breyttir tímar og flokkur og verka- lýðshreyfing eigi að vera aðskilin? „Ég held nú að einu mistökin í sambandi við það hafi verið hjá fólki, — að gefa mér ekki nægilegt atkvæðamagn til að komast á þing,“ segir Ásmundur og brosir. „Auðvit- að eru um margt breyttir tímar, en eftir stendur að það sem gert er í samningum er aldrei nema hluti þess sem gera þarf til að ákveða kjör og réttindi okkar félagsmanna. Það er ótalmargt sem þar gerist á vettvangi stjórnmálanna. Þess vegna held ég að það sé sjálfsblekk- ing að ímynda sér að þarna sé hægt að greina á milli að fullu. Það verð- ur væntanlega aldrei hægt. Spurn- ingin er hins vegar hvort rétt sé að sömu menn séu á báðum stöðum. Um það geta verið skiptar skoðanir. Ég er þeirrar skoðunar að það sé mjög nauðsynlegt að á Alþingi sitji menn sem hafi sterk tengsl inn í verkalýðshreyfinguna. Þeir viti hvað þar er að gerast. Þess vegna held ég að það sé nauðsynlegt þeim flokkum sem telja sig vinstri flokka, eða verkalýðsflokka, að hafa i þingliði sínu menn sem upp- fylla þessi skilyrði. Það hefur Al- þýðuílokkurinn raunar í dag með bæði Karli Steinari og Karvel, sem eru báðir virkir innan hreyfingar- innar. Ég tel að þeir styrki þing- flokk Alþýðuflokksins. Á sama hátt held ég að það sé galli fyrir þingflokk Alþýðubandalagsins, að þar skuli ekki vera neinn úr þessum hópi. Það er líka gott fyrir verka- lýðssamtökin að á Alþingi séu menn sem geta túlkað málstað hreyfingarinnar og komið sjónar- miðum á framfæri. Þetta getur aldrei gerst á þann hátt að flokksvald geti ráðið hvað viðkomandi maður geri í verkalýðs- hreyfingunni. Þessi tvö svið verða aldrei tengd saman á þann hátt í dag. Menn verða að vinna sjálf- stætt í hreyfingunni sem hópur og eru auðvitað þar hver fyrir sig mót- aðir af sínum pólitísku viðhorfum, en verða að vinna saman á hinum skýru forsendum verkalýðshreyf- ingarinnar sjálfrar en aldrei þannig að flokksboð geti ráðið þar niður- stöðum. Þannig held ég að tenging- in sé báðum til gagns, en að þar sé ekki gagnkvæmt hægt að tala sam- an í boðhætti“ Megináhersla á lœgstu launin — Hver eru helstu mál framund- an hjá Alþýðusambandinu? „Stærstu mál verkalýðssamtak- anna í dag eru annars vegar að efla innra starf, sem líður illilega fyrir takmarkaða þátttöku félaganna. Hitt verkefnið er að sækja fram til bættra kjara með megináherslum á lægstu launin sem þarf að hækka verulega svo tryggt sé að þau gefi fólki viðunandi framfærslu. Sam- hliða því þarf að verða stytting á vinnutímanum. Meðalvinnutími karlmanna er í kringum 53 stundir á viku. Það er ljóst að svo langur vinnudagur skilar ekki afköstuin sem skyldi. Með því að stytta vinnu- daginn kerfisbundið, þá á að vera hægt að auka afköstin á hverja stund og stytting vinnudagsins því að geta orðið án þess að tekjur minnki. Þetta þarf að gerast eins hratt og hægt er. Við þurfum Iíka að knýja á um úrbætur á ýmsum öðrum sviðum. í Mjög hefur blásið um Ásmund Stefánsson, forseta ASI, síðustu vikur og mánuði. Eftir kosningaósigur Alþýðubandalagsins í alþingiskosningunum hefur einnig víða heyrst hljóð úr horni og þá ekki síst úr her- búðum hans eigin félaga í Alþýðu- bandalaginu. Ás- mundur hefur verið sakaður um að hafa átt stœrstan þátt í ósigri flokksins vegna kjarastefnu sinnar og A Iþýðusambandsins. í tilefni baráttu- dags verkafólks, 1. maí, ræddi Alþýðu- blaðið við Ásmund um verkalýðshreyf- inguna, nýja tíma og óánœgjuraddirnar. því sambandi má nefna lífeyrismál- in, sem núna eru í endurskoðun, þjónustu við aldraða og börn. Hjúkrunarþjónusta við aldraða er okkur t.d. til háborinnar skammar. Það fólk sem hefur gefið okkur það þjóðfélag sem við lifum við í dag, liggur bjargarlaust heima fyrir í stað þess að njóta eðlilegrar að- hlynningar. Börnin eru meira og minna á vergangi í dag meðan báðir foreldrarnir vinna úti. Þjóðfélagið hefur ekki komið upp þeirri þjón- ustuaðstöðu sem þau þurfa á að halda. A Iþýðubandalagið utan ríkisstjórnar „ Ég kvíði nýrri ríkisstjórn. Mer sýnist að niðurstaða kosninganna sé nánast sú að stjórnarflokkarnir hafi fengið syndakvittun og umboð til áframhalds, — að vísu þá í klofn- un Sjálfstæðisflokks. Mér sýnist sú ríkisstjórn, með Sjálfstæðisflokk- ana tvo ásamt Framsókn, vera lík- legust eftir þessar kosningar. Sú ríkisstjórn er ekki björguleg fyrir þjóðina. Auðvitað kæmu til greina aðrar samsetningar, en þetta er sú stjórn sem mér þykir líklegust og ég kvíði því að þurfa að búa við hana.“ — Væri rétt af Alþýöubandalag- inu að taka þátt í ríkisstjórn, t.d. með Alþýðuflokki og Sjálfstæðis- flokki? „Ég held að það væri ekki rétt metið hjá Alþýðubandalaginu að ganga til ríkisstjórnar, nema það væri þá mjög vel tryggt að Alþýðu- bandalagið fengi miklu ráðið um stefnu þeirrar stjórnar. Við þær að- stæður sem eru núna, eftir þann kosningaósigur sem flokkurinn hefur goldið, þá er útilokað að fara inn í ríkisstjórn nema flokkurinn fái mjög skýrt ráðið meginlínum í stjórnarstefnu. — Að það verði mögulegt í slíkri rikisstjórn verður að teljast afar ósennilegt. Ég held því að sú stjórn verði afar ólíkleg og tel það sama líka um rikisstjórn Sjálfstæðisflokks, Kvennalista og Alþýðuflokks. Ef við fáum á annað borð ríkisstjórn, finnst mér því lík- legast að það verði Sjálfstæðis- flokkarnir tveir og Framsókn sem taki málið að sér. Það má einnig gera ráð fyrir því að við fáum stjórnarkreppu fram eftir sumri og jafnvel kosningar í haust“ segir Ás- mundur Stefánsson.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.