Alþýðublaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 14
14 Föstudagur 1. maí 1987 Er verkalýðshreyfingin áttavillt og framtakslítil? Árni Gunnarsson: Kjaramálin komu mjög við sögu í kosningabaráttunni. Segja má, að þeir verkalýðsforingjar, sem í fram- boði voru, hafi liðið verulega fyrir síðustu kjarasamninga. Þeir samn- ingar skópu þó láglaunahópunum meiri launahækkun en aðrir fengu, og voru undirstaða þess, að rikis- stjórnin gat farið að takast á við verðbólgudrauginn. Þeir, sem högnuðust á þessum samningum í kosningabaráttunni voru aðrir en verkalýðsleiðtogarnir. Eftir slaka útkomu Alþýðu- bandalagsins í kosningunum og átök, sem nú eru fyrirsjáanleg inn- an þess flokks og innan verkalýðs- hreyfingarinnar, er ekki úr vegi að birta erindi, sem Árni Gunnarsson, alþingismaður, flutti á afmælis- fundi Verkamannasambands ís- lands 11. júní 1984, þar sem hann fjallaði um stöðu verkalýðshreyf- ingarinnar og helstu verkefni henn- ar í náinni framtíð. Hugleiðingar Árna eiga mikið erindi inn í þá um- ræðu, sem þegar er hafin og á eftir að aukast og magnast á næstu misserum: Baráttumálin Staða verkalýðshreyfingar í þjóð- félaginu í nútíð og framtíð. Hver er hún, og hver verður hún? íslensk verkalýðshreyfing stendur nú frammi fyrir meiri vanda en nokkru sinni fyrr. Þetta er sá vandi, sem gíf- urlegar þjóðfélagsbreytingar, tækniöld og gjörbylting atvinnu- hátta, hafa fært að þröskuldi hreyf- ingarinnar. Við henni blasir svipað- ur vandi og verkalýðshreyfingum á meginlandi Evrópu, þar sem tækni- byltingin hefur svipt heila kynslóð réttinum til vinnunnar. Jafnvel hag- kerfi, sem taka mið af þörfum vinn- andi stétta, virðast ekki ráða neinu þar um. — Þó er sú bjarta hlið á þessu máli, að svo margt er óunnið í okkar landi, svo margir möguleik- ar ónýttir, sem aðrar þjóðir hafa brúkað til þrautar. En engu að síður verður sá vandi mestur að Iaga sig að síbreytilegu þjóðfélagi, sem lát- laust reynir að fækka störfum og draga úr hinni eiginlegu vinnu. Þetta kann að hljóma undarlega í samfélagi, þar sem strit er meira en þekkist meðal næstu nágranna. En það strit stafar af öðru en skorti á tækniundrum. — Ástæðan fyrir þeim þrældómi er sú, að íslensk verkalýðshreyfing virðist stundum hafa misst sjónar á því gamla bar- áttumáli, að dagvinnutekjur eigi að nægja fyrir nauðþurftum. Sú gamla krafa verður að fara sem logi um akur á næstu vikum og mánuð- um. Ef ríkisstjórn milliliðanna og mestu fjármagnstilfærslu um ára- tuga skeið, getur ekki orðið við þeirri kröfu, á verkalýðshreyfingin þann einn kost að reyna að koma henni frá völdum. Útþynnt vald Það er tákn þeirra tíma, sem í vændum eru fyrir íslenska verka- lýðshreyfingu, að forseti ASI skuli vera hagfræðingur og starfsmenn ýmissa verkalýðsfélaga hafa sömu menntun eða svipaða. Þetta er ekki sagt þeim til hnjóðs, heldur til að leggja áherslu á þá breytingu, sem er að verða á samtökum hinna eig- inlegu verkamanna. Upplýsinga- þjóðfélagið er að taka við, hvort sem því fylgir betri tíð eða ekki. Þróunin verður ekki stöðvuð. En þessu nýja þjóðfélagi má ekki fylgja sú grundvallarbreyting, að hér verði viðurkennd sú peninga- lega stéttskipting, sem endurspegl- ar það gífurlega launamisrétti sem hér er veruleiki. Verkalýðshreyfing- in má ekki láta þynna svo út vald sitt, að hún geti ekki haft áhrif á þróunina. Þessi valdsvipting blasir við, þegar sú stétt er orðin fjöl- mennari, sem er ofarlega í tekju- stiganum, en sú, sem neðar stendur. Sá meirihluti mun kæra sig kollótt- an um þann minnihluta, sem neðan nauðþurftarmarkanna er. Tómarúm Hér er dregin upp nokkuð ýkt mynd, en menn skyldu minnast þess að litirnir til að mála hana eru allir til. — Það er augljóst, að fram- undan er mikil breyting á skiptingu vinnuafls eftir stéttum. Nýleg spá frá Framkvæmdastofnun gerir ráð fyrir því, að engin fjölgun verði í sjómannastétt fram til ársins 2000, jafnvel fækkun með betri skipum og meiri tækni. í fiskiðnaði er ekki spáð fjölgun, jafnvel verulegri fækkun eftir því sem tækniframfar- ir verða meiri. Við landbúnaðar- störf mun fækka mikið. Það verður aðeins fjölgun í iðnaði og þjónustu- greinum. Samfara þessu hlýtur tekjuskipting að breytast og innri úr Sjálfstœðisflokki gerð verkalýðshreyfingarinnar. Og þá hvarflar að mér að ég heyri æ sjaldnar talað um verkalýðshreyf- ingu. Það er oftar og oftar talað um launþegahreyfingu, sem ekki hefur sömu merkingu í mínum huga. Og kannske er Verkamannasambandið hin eina eiginlega verkalýðshreyf- ing á íslandi. Tölvan og tæknin hef- ur tekið við af haka og skóflu. íslensk verkalýðshreyfing er um þessar mundir í hálfgerðu tóma- rúmi. Hún er áttavillt, rétt eins og stjórnmálaflokkarnir, sem eiga upptök sín í henni. Hin pólitísku stefnumið eru óljós, sem kemur meðal annars fram i því, að for- maður ASÍ kemur úr Alþýðu- bandalagi, en varaformaðurinn úr Sjálfstæðisflokki. Báðir eru hinir mætustu menn, en flokkar þeirra gætu aldrei orðið sammála um mik- ilsverðustu markmið verkalýðs- hreyfingarinnar. íslenskir lýðærðis- sósíalistar hafa brugðist verkalýðs- hreyfingunni; þeir hafa beitt kröft- um sínum í baráttunni hvorir gegn öðrum. — Það er þess vegna, að menn slá matarvíxla í bönkum á sama tíma og aðrir blikka ekki auga, þegar þeir skrifa ávísun fyrir Range Rover; litlar 1,4 milljónir. Það er þess vegna sem staða ís- lenskrar verkalýðshreyfingar er veik; jafnvel þótt hún hafi sýnt ótrúlega ábyrgð og þolinmæði gagnvart ríkisvaldi, sem í skjóli þessarar þolinmæði hefur fært til meiri fjármuni í þjóðfélaginu en dæmi eru um. Eða hafa ekki milli- liðir, bankar, stórfyrirtæki og allt er tilheyrir pilsfaldakapítalismanum, allt sitt á hreinu. Er þar nokkur fjármagnsskortur, — er nokkur samdráttur í smíði mjólkurhalla og peningastofnana? Væri nú ekki rétt að mæla ná- kvæmlega þann auð, sem vinnandi hendur skapa, og hve stór hluti af honum hafnar í Iaunaumslögum, sem þessar sömu hendur taka við. Síðan að mæla hvað hverfur á þess- ari stuttu leið og í hvað það fer. — Ég hef oft hugleitt af hverju verka- lýðshreyfingin nýtir ekki betur þann auð, sem hún skapar, svo hún megi hafa meiri áhrif á þá þróun, sem ákvarðar kjörin. Ég er ekki að tala um alræði öreiganna, né blóð- uga byltingu. Ég er að tala um áhrif verkalýðsins á eigin kjör, og póli- tísk áhrif hinna svokölluðu verka- lýðsflokka á atvinnuuppbyggingu, atvinnurekstur. Svart og hvítt Á ráðstefnu, sem haldin var fyrir nokkru, þar sem fjallað var um vel- ferðarþjóðfélagið, sagði ég m.a.: „En hvernig getum við varið og verndað það sem áunnist hefur? Við höfum á undanförnum árum barist af heift fyrir félagsmála- stefnu, sem kostar mikla fjármuni, og er ekki á færi nema efnaðra þjóða að standa við. Ég er þeirrar skoðunar, að á sama tíma höfum við ekki aðgætt nægilega vel hvern- ig unnt er að afla fjármuna til að „Islensk verkalýðshreyfing er í hálf- gerðu tómarúmi. Hún er áttavillt, rétt eins og stjórnmálaflokkarnir, sem eiga upptök sín í henni. Hin pólitísku stefnuljós eru óljós, sem kemur m.a. fram íþví, að formaður ASÍkemur úr Alþýðubandalagi en varaformaðurinn halda við, styrkja og jafnvel efla þetta kerfi. Heimur okkar hefur verið of svartur eða hvítur, og það kristallast í lítt hugsaðri andstöðu við atvinnurekstur í nær öllum myndum.“ Með þessum orðum vil ég benda á, að vinstri hreyfing á ís- landi hefur gert alltof mikið af því, að skapa andstæður úr atvinnu- rekstri annars vegar og verkalýðs- hreyfingu hins vegar. Allir hafa ver- ið bölvaðir kapítalistar, sem at- vinnurekstur hafa stundað, og verkalýðsflokkarnir, með örfáum undantekningum, hafa eftirlátið hægri öflunum einkarétt á atvinnu- rekstri. En hví skyldi verkalýðs- hreyfingin ekki taka upp harða at- vinnustefnu, og þar með huga meira að atvinnurekstri en hún hef- ur gert? Með því gæti áunnist tvennt, sem lýðræðissósíalistar verða að gera sér grein fyrir: í fyrsta lagi, að þeir verða að taka miklu meiri þátt í atvinnuuppbyggingu og atvinnurekstri en verið hefur. Þar verða þeir að beita þeim ráðum, sem þeir eiga best, m.a. að leiða stuðning verkalýðshreyfingarinnar og þeirra félagsmálaafla, sem fyrir hendi eru. í öðru lagi, að um leið og þeir gera kröfur um útgjöld til vel- ferðarsamfélagsins, bendi þeir á Ieiðir til að afla tekna. Hreyfiaflið Af hverju hafa þær andstæður verið skerptar í þjóðfélaginu, að öll hreyfing, athafnasemi og upphaf auðsköpunar komi frá hægri, en kröfugerð og aumingjaskapur frá vinstri? Verkalýðshreyfingin og vinstri flokkarnir hafa m.a. gefið tilefni til þess með neikvæðu tali og neikvæðri afstöðu til atvinnu- rekstrar. Ég hef alltaf litið svo til að lýð- ræðis-sósíalismi, sem er undirstaða nútíma-verkalýðshreyfingar, væri hreyfiafl, lifandi afl, sem stefndi að vaxandi hagsæld. Hann væri raun- veruleg hagsældarstefna. Þetta hreyfiafl má ekki koðna niður í höndum okkar vegna þess eins að við höfum haft alltof klára verka- skiptingu i þjóðfélaginu, þ.e. að hlutskipti sósíalista sé að sækja á á félagsmálasviðinu og innan verka- lýðshreyfingarinnar með kröfu- gerðina eina, en íhaldsaflanna að gleypa með húð og hári atvinnu- rekstrarþáttinn, og þar með stjórn- unina á því hverjar þjóðartekjur verða, svo og hlutur launþeganna og alls, sem þar er á milli. Frh. á bls. 11

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.