Alþýðublaðið - 21.05.1987, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 21.05.1987, Qupperneq 4
 Thailand sendir flóttamennina heim ÞOLINMÆÐIN Á ÞROTUM r Ahuginn á flóttamannahjálp hefur dvínað. Sífellt fœrri lönd vilja taka á móti flóttamönnum. Okkar vandamál er það að við hjálpum flóttamönnum meira en okkar eigin fólki, segir Mechai Viravaidya, talsmaður thailensku stjórnarinnar. Thailenska stjórnin hefur í 12 ár barist við eitthvert mesta flótta- mannavandamál okkar tíma. Árið 1975 flykktist fólk hundruðum þús- unda saman til Thailands í kjölfar uppreisnanna í Víetnam, Laos og Kampútseu. Flestir þeirra komu slyppir og snauðir og margir voru örmagna, andlega og líkamlega. Sérstaklega hafði fólkið frá Kamp- útseu, sem flýði ógnarstjórn rauöu Khmeranna, ömurlega reynslu að baki. Nú hefur Mechai Viravaidya ver- ið falið að tilkynna opinberlega að Thailand sé búið að fá nóg. Tími velgjörðanna er liðinn, flóttamenn- irnir verða að snúa heim aftur. Flóttamannabúðum lokað Sem eitt af fyrstu táknum um þessa hugarfarsbreytingu, hefur stjórnin í Bangkok látið loka flótta- mannabúðunum Khao I Dang við landamæri Kampútseu, sem hafa fram að þessu verið helsta von þeirra sem bíða eftir að fá dvalar- leyfi í einhverju öðru landi. Upp úr 1980 voru þessar flótta- mannabúðir eins og meðalstór bær með 140.000 íbúa. Nú eru ekki meira en 50.000 manns eftir, sem hvorki hafa sérstaka verkþekkingu né kunningjasambönd erlendis og hafa því litla sem enga möguleika á að komast þaðan. Eftir margra ára bið við allra frumstæðustu skilyrði hefur fólkið nú misst alla von um nýja framtíð í nýju landi. Það er farið að taka saman fátæklegar eig- ur sínar, ferðinni er heitið yfir landamærin illræmdu, þar sem fjöldi fólks hefur látið lífið á und- anförnum árum. Til að vekja athygli Fram að þessu hefur Flótta- mannahjálp Sameinuðu þjóðanna borið ábyrgðina á íbúum Khao I Dang. Nú þegar búðunum er lokað þýðir það að íbúarnir verða að snúa sér til annarra, óskráðra búða sem eru við landamærin upp á von og óvon, því þegar þeir missa flótta- mannsréttindi sín eiga þeir enga að- stoð vísa — geta jafnvel átt von á að verða fluttir nauðungarflutningum til baka til Kampútseu. Þegar Prasong Sonsiri, leiðtogi landsins kunngerði ákvörðun stjórnarinnar um að tæma stærstu flóttamannabúðir landsins, færði hann fyrir því þrjár ástæður: í fyrsta lagi átti að fækka flótta- mönnum í landinu. í öðru lagi er sí- minnkandi áhugi á þeim flótta- mönnum sem enn dvelja þar. 1 þriðja lagi hafa búðirnar virkað sem segull á þá mörgu heimilislausu Kampútseumenn sem hafast við handan landamæranna. Hjálparstofnanir í Bangkok segja hins vegar að lokun búðanna sé fyrst og fremst liður í stöðugum tilraunum Thailendinga til að vekja athygli umheimsins á hinu gífurlega flóttamannavandamáli landsins. — Thailand hefur gleymst og þarf að vekja á sér athygli, segir einn bandariskur hjálparstarfs- maður í Bangkok. Búðir til bráðabirgða í upphafi árs 1987 hýstu Thai- lendingar flesta flóttamenn allra landa í Suðaustur-Asíu. Þar voru 86.000 flóttamenn frá Laos, 27.000 frá Kampútseu og 7.000 frá Víet- nam í hinum ýmsu flóttamanna- búðum landsins. Þar af höfðu að- eins 11.000 fengið dvalarleyfi í ein- hverju öðru landi. En þessar tölur segja hvergi nærri allan sannleikann. A landamærum Thailands og Kampútseu hefst geysilegur fjöldi óskráðra flótta- manna við í búðum sem hróflað hefur verið upp til bráðabirgða. Talið er að þarna séu um 270.000 manns. Búðunum er stjórnað af andspyrnuhreyfingunni í Kampút- seu og þær hafa því enga vernd frá því opinbera. Fólkið sem hefst þarna við verður að vera á sífelldum Eftir margra ára bið, þjáningar og erfiðleika hafa þau tapað i baráttunni fyrir betra llfi I öðru landi. Nú verða þau að snúast aftur til Kampútseu. flótta vegna vopnaðra átaka á svæðinu og flytur sig á milli búða, sem allar eru langt frá því að vera mannsæmandi hvað allan aðbúnað snertir. Þrjár leiðir eru færar til að leysa flóttamannavandamál — að koma flóttamönnunum aftur til síns heima, að taka við þeim inn í samfé- lagið eða útvega þeim hæli í ein- hverju þriðja landi. Thailand hefur með hjálp Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna reynt allt þetta og síðastnefnda aðferðin gef- ist best. Síðan 1975 hefur Thailand tekið á móti kringum 665.000 flóttamönnum og þar af hafa 547.000 fengið hæli í öðrum lönd- um. í fyrra ákvað stjórnin í Bangkok að reyna að losa sig við sem flesta af þeim flóttamönnum sem eftir voru í landinu og pressaði mjög á þau lönd sem hafa tekið við flestum flóttamönnum að jafnaði, s.s. Bandaríkin og Kanada. En undir- tektirnar voru dræmar í þetta sinn, þessi lönd voru búin að fá nóg og Thailendingar eru ekki hrifnir af því að þurfa að sitja uppi með flóttafólkið til eilífðar. Aukin óþolinmœði Það eru ekki aðeins þessar einu búðir sem verða tæmdar. Mikið hefur verið haft á orði að allir flóttamenn verði látnir yfirgefa landið áður en langt um líður. Um er að ræða allmargar búðir og bráðabirgðamóttökur sem stendur til að loka í þeirri von að það geti stöðvað straum flóttamannanna yf- ir landamærin. Sama óþolinmæði er farin að gera vart við sig í nágrannalandinu Malasíu. Að sögn vara-utanríkis- ráðherra landsins munu víet- nömsku bátafólksbúðirnar á Bid- ong-eyju verða lagðar niður á ár- inu. 1 Hongkong og Indónesíu er umræðan um „endanlega lausn“ á flóttamannavandamálinu orðin há vær. Það hafa orðið sinnaskipti, um það er ekki að efast og aðgerð- irnar gætu verið á næsta leiti.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.