Alþýðublaðið - 06.06.1987, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 06.06.1987, Blaðsíða 1
Fundur um burðarþol í verkfræðingafélaginu: FAIR VÖRÐU SKÝRSLUNA Ýmsir veigamiklir gallar á rannsókninni. Ekki sammála um reikningsstuðla. Átök framundan meðal verkfræðinga sjálfra. atriði. Þá hefur Þórður Þorbjarn- arson, borgarverkfræðingur, einnig látið falla orð í líkum dúr. Þótt verkfræðingar virtust flestir á einu máli um skýrsluna á fundin- um i fyrrakvöld, voru ekki sam- þykktar neinar ályktanir á fundin- um, beinlínis um þessi atriði. Slíkar tillögur komu vissulega fram, en voru felldar. Þeir fundarmenn sem Alþýðu- blaðið hefur rætt við eftir fundinn, hafa látið í ljós tvenns konar skýr- ingar á þessu atriði. Annars vegar að verkfræðingar vilji ekki flana að neinum yfirlýsingum um málið. Hin skýringin er sú að umfjöllun fjölmiðla um þetta mál hafi verið með þeim ósköpum að verkfræð- ingar hafi ekki áhuga á að blása málið út meira en orði er. Það eru þó talsverð líkindi til að burðarþolsmálið sé komið inn á blaðsíður og Ijósvakabylgjur til að vera, a.m.k. enn um hríð. Annars vegar eru niðurstöður burðarþols- skýrslunnar svo alvarlegar, að reikna má með frekari rannsóknum á burðarþoli húsa á næstunni. Hins vegar telja margir það hvernig staðið var að skýrslugerð- inni og rannsókninni sem á undan fór, sé órækur vottur þess að átök séu framundan milli verkfræðinga sem starfa á þessum markaði. Þannig séu nú að ráðast inn á mark- aðinn verkfræðingar sem fram að þessu hafi haft framfæri sitt af hönnun stærri mannvirkja, svo sem virkjana o.fl. Til að komast inn á markað hinna smærri bygginga þurfi þeir að rýmka þar til og marg- ir vilja skoða skýrsluna að hluta til í þessu ljósi. Um „hina hliðina" á burðarþols- skýrslunni er fjallað í fréttaskýr- ingu í Alþýðublaðinu í dag. Burðarþolsskýrslan margumtal- aða var mikið rædd á fundi í Verk- fræðingafélagi íslands í fyrrakvöld. Fáir urðu til þess á fundinum að mæla skýrslunni bót, þegar frá eru taldir höfundarnir sjálfir. Meðal verkfræðinga og ýmissa annarra sem til þekkja eru taldir ýmsir veigamiklir gallar á því hvernig staðið var að burðarþolsrannsókn- inni eftir fundinn í fyrrakvöld virð- ist mega telja þetta nokkurn veginn samdóma álit manna í verkfræð- ingastétt. Það eru einkum tvö stór atriði sem menn finna skýrslunni til for- áttu. Annars vegar hvernig húsin voru vaiin, nins vegar hvaóa reikn- ingsstuðlar voru notaðir til að reikna jarðskjálftaálag á húsin. Þessi atriði hafa reyndar verið gagnrýnd áður opinberlega og má í því sambandi minna á viðtal Al- þýðublaðsins við Gunnar Sigurðs- son byggingarfulltrúa Reykjavíkur sem birtist um sióustu helgi. Þar gagnrýndi Gunnar einmitt þessi Á blaðamannafundi I Seðlabankanum I gær þegar kynnt var frumvarp um starfsemi llfeyrissjóða, sagði Jó- hannes Nordal, formaður endurskoðunarnefndar lífeyriskerfis, að nýja frumvarpiö muni leiða til fækkunar llf- eyrissjóða og aukins samstarfs milli sjóða. í dag eru um 95 lífeyrissjóðir I landinu. Yfirmenn herliðsins um íbúðabyggingar: „NO COMMENT" Yfirmenn bandaríska herliðs- ins á Keflavíkurflugvelli, sjá ekki ástæðu til þess að tjá sig um kostnað við fyrirhugaðar íbúðabyggingar á vallarsvæð- inu, þar sem samningar við ís- lenska aðalverktaka hafa ekki verið gerðir. Þetta stutta og lag- góða svar barst Alþýðublaðinu í gær, eftir rúmlega sólarhrings umhugsun yfirmanna. Alþýðublaðið sneri sér til blaðafulltrúa bandaríska her- liðsins i fyrradag með beiðni um álit yfirmanna liðsins á kostnaði við fyrirhugaðar byggingar- framkvæmdir á vellinum. Svar- ið barst i gær og sagði Friðþór Eydal, blaðafulltrúi, að yfir- menn herliðsins sæju ekki ástæðu til að tjá sig um málið þar sem engir samningar lægju fyrir við íslenska aðalverktaka. Þeir menn sem Alþýðublaðið hefur rætt við í þessu sambandi og þekkja vel til þessara mála, segja að bandaríski herinn sé í nokkurri klemmu þegar mál af þessu tagi komi upp, vegna þess að þótt menn séu út af fyrir sig hundóánægðir með gegndar- laus gróðasjónarmið Islend- inga, séu þeir tilneyddir að verja þennan kostnað gagnvart Bandaríkjaþingi til að fá fjár- veitingar til framkvæmdanna gegnum þingið. Þetta gerir þeim óhægt um vik að senda frá stór- orðar yfirlýsingar í málum af þessu tagi. Þeir heimildarmenn Alþýðu- blaðsins sem best þekkja til þessara mála, segja þó jafn- framt að það fari í vöxt að sjóðir NATÓ séu notaðir til að kosta framkvæmdir á vegum herja Atlantshafsbandalagsins og á næstu árum geti því orðið erfið-' ara að útskýra hina gífurlegu fjárþörf til framkvæmda á Is- landi, þar sem öðrum aðildar- þjóðum bandalagsins sé sárara um sína peninga en Bandaríkja- mönnum. LfFEYRISKERFIÐ „POPPAÐ UPP“ Endurskoðunarnefnd lifeyriskerfis hefur lagt fram nýjar tillögur á gömlum grunni. Endurskoðunarnefnd lífeyris- kerfis hefur skilað fjármálaráð- herra frumvarpi til laga um starf- semi lífeyrissjóða. Nýja frumvarpið er byggt á endurbótum á núvcrandi kerfi lífeyristrygginga. Öllum þeim sem taka laun eða afla annarra at- vinnutekna verður nú skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að lágmarksiðgjald verði 10% og greiðist af öllum laun- um, en ekki bara dagvinnulaunum eins og verið hefur. Þeir sem ekki greiða í lífeyrissjóði, eins og heima- vinnandi húsmæður verða áfram að sætta sig eingöngu við lífeyris- greiðslur almennra trygginga. Endurskoðunarnefnd lífeyris- kerfis var stofnuð 1976 og hefur síðan starfað að frumvarpinu um starfsemi lífeyrissjóða auk laga- setningar um lífeyrismál. í nefnd- inni eiga sæti 17 fulltrúar, helstu samtaka aðila vinnumarkaðarins, samtaka lífeyrissjóða og frá stjórn- völdum. Allir fulltrúarnir sam- þykktu frumvarpið nema fulltrúi Launamálaráðs BHMR sem lýsti sig andvígan mörgum megin- ákvæðum frumvarpsins. Nýja frumvarpið gerir ráð fyrir að Iífeyrir verði tryggður miðað við lánskjaravísitölu í stað þess að fylgja breytingum kauptaxta eða launa, eins og nú er algengast. Meg- inatriði þessarar tillögu er, að með þessu verða lífeyrisréttindin tengd með beinum og opinskáum hætti við þá vísitölu, sem verðtrygging eigna lífeyrissjóðanna miðast við. Nýja frumvarpið, ef verður að lög- um, mun hafa í för með sér gífurleg útgjöld fyrir ríkissjóð á næsta ári því nú verða svokallaðar ábyrgðir sem ríkið greiðir til lífeyris opin- berra starfsmanna teknar af. Nýja frumvarpið mun einnig þýða aukið fjármagn til lífeyris- sjóðanna og þar af leiðandi aukið fjármagn til húsnæðiskerfisins. í frumvarpinu er lagt til, að sett verði heildstæð og samræmd lög- gjöf um starfsemi allra lífeyrissjóða í landinu, þannig að þeir lúti allir sömu starfsskilyrðum og starfs- skyldum. Er þá gert ráð fyrir, að lögfest verði ákvæði um lágmarks- skyldur og réttindi lífeyrissjóða og sjóðsfélaga, þ.e. um greiðslu ið- gjalda, ávöxtun þeirra og tryggingu og myndun lífeyrisréttinda, en jafn- framt taki löggjöfin til skipulags, réikningshalds og opinbers eftirlits með sjóðunum. Frumvarpið byggir á þeirri meginreglu, að sjóðir verði jafnan að geta staðið undir Iífeyris- loforðum með ávöxtuðum iðgjalds- tekjum. „Það er enginn vafi á því að þetta frumvarp mun stuðla að því að sjóðum fækki. Ég held t.d. að við nánari úttekt á sjóðunum samfara gildistöku laganna muni ýmis vandamál koma í ljós sem leiði til þess að sjóðirnir leiti eftir samvinnu eða sameinist í einhverjum tilfell- um“, sagði Jóhannes Nordal for- maður nefndarinnar í samtali við Alþýðublaðið. Það lífeyriskerfi, sem gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi, er í megin- atriðum byggt á endurbótum á nú- verandi kerfi lífeyristrygginga hér á landi. Er þá reiknað með, að al- mannatryggingar annist grunn- tryggingar í lífeyriskerfinu eins og nú er, og greiði m.a. áfram elli- og örorkulifeyri, sem sé óháður tekj- um manna á starfsævinni. Til við- bótar þessu grunnkerfi starfi svo lífeyrissjóðir og lúti starfsemi þeirra einni löggjöf, sem taki með sama hætti til allra sjóða og skyldi þá m.a. til að veita elli- og örorkulif- eyri, sem er háður iðgjaldsgreiðsl- um og þar með tekjum manna á starfsævinni. Öllum sem taka laun eða afla annarra atvinnutekna, skal skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði. Tillögur frumvarpsins um lág- marksiðgjald til lifeyrissjóðs mið- ast við það iðgjaldshlutfall, sem nú er yfirleitt samningsbundið á vinnumarkaðnum, 10%. Hins veg- ar er lagt til, að í stað þess að iðgjald greiðist eingöngu af dagvinnulaun- um svo sem nú er í flestum sjóðum, verði öll greidd laun iðgjalsskyld.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.