Alþýðublaðið - 06.06.1987, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 06.06.1987, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 6. júní 1987 Aðalfundur Félags íslenskra rithöfunda: Samþykkt áskorun til menntamálaráðherra Á aðalfundi Félags íslenskra rit- höfunda sem haldinn var að Hótel Esju var m.a. samþykkt áskorun á menntamálaráðherra að létta ein- okun Rithöfundasambands íslands af Launasjóði rithöfunda. Fundurinn var vel sóttur og mik- ill áhugi félagsmanna fyrir vexti og viðgangi félagsins endurspeglaðist í fjörugum umræðum um störf þess og stefnu, svo og stöðu rithöfunda í nútíma samfélagi. Fundarstjóri var Indriði G. Þor- steinsson og fundarritari Indriði Indriðason. Eftir inngöngu nýrra félaga flutti formaður félagsins, Sveinn Sæ- mundsson, skýrslu stjórnar. Félags- starfið var líflegt á árinu og unnið að ýmsum hagsmunamálum rithöf- unda. Samningar við útgefendur, svo og fjölmiðla eru á döfinni og innganga félagsins í Fjölís, félag rétthafa vegna fjölföldunar ritverka í skólum stendur fyrir dyrum. Þá ræddi formaður úthlutun starfslauna rithöfunda, sem hann kvað furðulega og í ýmsum tilfell- um sneypulega og sagði að stjórn Launasjóðs rithöfunda síðustu þrjú ár hefði ekki verið starfinu vaxin. Hann sagði meðal annars: „Stjórn Félags íslenskra rithöf- unda sendi menntamálaráðuneyt- inu bréf hinn 9. apríl 1986 og spurð- ist fyrir um hvort verið gæti að stjórn Launasjóðs, sem tilnefnd var af Rithöfundasambandi íslands og skipuð af menntamálaráðherra hefði brotið reglugerð um úthlutan- ir starfslauna. Svar barst loks tæp- lega ári síðar, hinn 27. mars sl. í þessu bréfi staðfestir ráðuneytið að stjórn Launasjóðs hafi brotið reglugerðina i sex tilfellum, en að ráðuneytið ætli ekkert að aðhafast í málinu. Þegar svo er komið að rétt yfirvöld bregðast skyldu sinni í máli sem þessu, þá er vandséð hvert leita skal um leiðréttingu!* Ármann Kr. Einarsson gjaldkeri las og skýrði reikninga og kom fram að hagur félagsins er góður. Sem fyrr segir urðu fjörugar um- ræður um málefni rithöfunda á þessum fundi. Ennfremur um starf Félags íslenskra rithöfunda á því starfsári sem framundan er. Mikill áhugi er ríkjandi fyrir vexti og við- gangi félagsins og fram komu ýms- ar snjallar hugmyndir. Stofnuð var sérstök útbreiðslunefnd. í hana voru kosnir þeir Haraldur Jóhanns- son, Steinar J. Lúðviksson og Sveinn Sæmundsson. Meðal álykt- ana á fundinum var svohljóðandi samþykkt einróma: „Aðalfundur Félags íslenskra rit- höfunda skorar á menntamálaráð- herra að létta einræði Rithöfunda- sambands íslands af Launasjóði rithöfunda. Bendir aðalfundurinn á að rithöfundar í Félagi íslenskra rithöfunda hljóti samkvæmt Iands- lögum og viðteknum siðvenjum að vera jafn réttháir öðrum íslenskum rithöfundum enda þótt þeir kjósi að vera í öðrum rithöfundasam- tökum. Vísast í þessu efni til bréfs formanns félagsins dags. 28. mars. 1987.“ í stjórn Félags íslenskra rithöf- unda eru: Sveinn Sæmundsson for- maður, Snjólaug Bragadóttir ritari, Indriði Indriðason gjaldkeri, Gunnar Dal, Hrafnhildur Valgarðs- dóttir, Indriði G. Þorsteinsson og Páll Líndal. Vigdís fær æðstu viðurkenningu Lionsmanna 32. þing Lionshreyfingarinnar á ís- landi verður sett að Hótel Sögu í Reykjavík í dag kl. 10:00. Allt að fimm hundruð Lionsfélagar víðs- vegar að af landinu munu sækja þingið. Við þingsetningu mun alþjóða- forseti Lions afhenda frú Vigdísi Finnbogadóttur, forseta, Lionsvið- urkenningu sem nefnist „Melvin Jones Félagi“ og er æðsti virðingar- vottur sem hreyfingin sýnir ein- staklingi. Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, er fyrsti þjóðarleiðtog- inn sem hlýtur slíka viðurkenningu. Því er hér um merkan viðburð að ræða sem vekja mun heimsathygli. Heiðursgestir á þinginu verða Svíinn Sten A. Akestam og Martha kona hans, en Sten A. Akestam er alþjóðaforseti Lionshreyfingarinn- ar þetta starfsár. Skógræktar- dagur Aðalfundur Skógræktarfélags íslands samþykkti fyrir nokkrum árum, að fyrsta laugardag í júní skyldi vekja sérstaka athygli á trjá- og skógrækt hér á landi. Þessi „skógardagur“ sem svo hefur verið nefndur er að þessu sinni 6. júní n.k. en þá marka skógræktarfélög- in víðsvegar um land daginn hvert með sínu móti, efna til gróðursetn- ingar, skoðunarferða, eða halda fræðslufundi fyrir félaga sína og áhugafólk. Áhugi á trjá- og skógrækt fer stöðugt vaxandi meðal almennings, og því til vitnis má geta þess að nú nýlega hafa bæst við 9 skógræktar- félög, auk þeirra 30 aðildarfélaga sem fyrir voru. Á Seyðisfirði og V-ísafjarðar- sýslu hafa skógræktarfélög verið endurvakin. ST. JÓSEFSSPÍTALI Landakoti Starfsmaður skóladagheimili Starfsmaöur óskast strax til frambúðar í 100% stöðu á skóladagheimilið Brekkukot. Brekkukot er skóladagheimili (börn á aldrinum 6-9 ára), rekið af Landakotsspítala. Upplýsingar veitir forstöðukona í síma 19600-260, alla virka daga frá kl. 9.00-15.00. Starfsmaður á röntgendeild Starfsmaður óskast í 100% starf á röntgendeild Landakotsspítala. Þyrfti að geta hafið vinnu strax. Upplýsingar gefur deildarstjóri röntgendeildar í síma 19600-330 alla virka daga frá kl. 9.00-15.00. Hjúkrunarfræðingur — vöknun Hjúkrunarfræðing vantar á vöknun, dagvinna. Æskilegt að viðkomandi gæti verið í 100% starfi. Upplýsingar gefnar á skrifstofu hjúkrunarfor- stjóra í síma 19600-300, alla virkadaga frá kl. 9.00- 15.00. Hafnarbúðir Hjúkrunarfræðingur — NV! Okkur vantar nú þegar hjúkrunarfræðing á nætur- vaktirl Hafnarbúðir. Hjúkrunarfræðingarathugið, þeir sem taka 60% NV fá deildarstjórafaun. Upplýsingar veitir deildarstjóri I síma 19600-200, alla virka daga frá kl. 9.00-12.00. Reykjavík 4.6.1987 Bygging K á Landspítalalóð Tilboð óskast í innanhússfrágang á hluta bygg- ingar K á Landspítalalóð í Reykjavík. Húsið, sem er fjórar hæðir, auk þakhæðar, er nú uppsteypt með ísettum og glerjuðum gluggum og fullfrá- gengið að utan. Stærð hússins er 19.060 m3 og heildargólfflötur um 4.600 m2. Verkið felur I sér fullnaðarfrágang á tveimur neðstu hæðum hússins, innrétting og lagnir, ein- angrun og múrhúðun útveggja tveggja efri hæö- anna með ofnakerfi og fullnaðarfrágang á þak- hæð sem lagnarými. Auk þess uppsteypu á lagnastokk og loftinntaki. Verkinu áað skilaí tvennu íagi, svæði A, sem skil- greint er nánar í útboðsgögnum, skal skila full- gerðu og lögnum að því svæði, eigi síðar en 1. maí 1988, en verkinu öllu fulllokið 1. september 1988. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borg- artúni 7, Rvk. gegn 30.000,- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 7. júlí n.k., kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RIKÍSINS Borgartuni 7. simi 25844 Arsrit, Kvenréttindafélaga íslands 19. júní er komið Fœst í bókaversl- unum, á blaðsölu- stöðum og hjá kvenfélögum um land allt. iK. Alþingi ÍSLENDINGA Skrifstofa Alþingis óskar að ráða starfsmann í fullt starf til að vinna við efnisgreiningu Alþingistíðinda. Umsækjendur skulu hafa lokið (eða vera að Ijúka) háskólanámi. Æskilegt er að umsækj- endur hafi menntun í bókasafns- og upplýs- ingafræði og hafi þekkingu á lyklunarað- ferðum. Kunnátta í tölvuvinnslu eða áhugi á henni er nauðsynlegur. — Framtíðarstarf. Umsóknarfrestur er til 20. júní. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Alþingis. Skrifstofustjóri. : Þetta ættu kennarar að lesa Enn vantar kennara við Grunnskóla Hafnarfjarðar sem hér segir: Nokkra kennara I almennri kennslu I 1—6 bekk. Nokkra kennara til að kenna (slensku, dönsku, ensku og samfélagsfræði í 7—9 bekk og kennara I tónmennt. Upplýsingar gefa skólafulltrúi á Fræðsluskrif- stofu Hafnarfjarðar Strandgötu 4 slmi 53444 og skólastjórar I viðkomandi skólum. Það er fallegt og notalegt í Hafnarfirði og gott að eiga þar heima. Því ekki að athuga þettaog sækja um kennarastarf þar. Dragðu ekki til morguns það sem þú getur gert I dag. Láttu ekki happ úr hendi sleppa. Skólanefnd Hafnarfjarðar. Digranesprestakall Aðalsafnaðarfundur verður haldinn í safnaðarheimil- inu Bjarnhólastlg26fimmtudaginn 11. júnf n.k. og hefst kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosnir verða þrlr menn I sóknarnefnd og þrír til vara. Sóknarnefndin

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.