Alþýðublaðið - 17.06.1987, Blaðsíða 3
'3
Miðvikudagur 17. júní 1987
Asmundarsalur:
Kristján sýnir verk um drauma
Kristján Kristjánsson sýnir
Ásmundarsal, 13—28. júní, 1987.
Á sýningunni eru málverk og
collachrome (graf-klipp) myndir.
Málverkin eru unnin með acryl lit-
um og öðrum efnum á striga og
graf-klipp myndirnar eru unnar
með collachrome tækni sem er ný-
lunda hérlendis. Verkin eru alls 19
og eru unnin á timabilinu 1981—
1987.
Flest verkin eiga það sameigin-
legt að efni þeirra er sótt í djúp
meðvitundar og drauma. Eða eins
og skáldið komst að orði. „Hér er
horft úr bakspeglinum til fortíðar
og framtíðar þar sem sjónglerin
sameinast í hvolfspegli nútíðar."
Kristján Kristjánsson nam við
Myndlista- og handíðaskóla fs-
lands 1969—1973 og við Listahá-
skólann í Stokkhólmi 1977—1981.
Þetta er fimmta einkasýning
Kristjáns.
Hátíöasamkoma aö Hrafnseyri
Hrafnseyrarnefnd gengst fyrir hátíðarsamkomu að Hrafnseyri, fæðingar-
stað Jóns Sigurössonar, 17. júní eins og mörg undanfarin ár. Þar flytur
Sigurður Samúelsson prófessor ræðu en hann er Arnfiröingur að ætt og
lærði undir skóla hjá sr. Böðvari Bjarnasyni að Hrafnseyri. Ágústa Ágústs-
dóttir söngkona syngur og sr. Gunnar Bjarnason leikur á selló.
Ennfremur mun sr. Gunnar Hauksson messa í Minningarkapellu Jóns
Sigurössonar og kirkjukórinn á Þingeyri syngur.
Kristjáns Kristjánssonar
Prestar sam-
kvæmt nýja
kerfinu
Umsóknarfrestur er runninn út
um sjö prestaköll, sem Biskup ís-
lands auglýsti nýlega laus til um-
sóknar. Eftirfarandi umsóknir hafa
Utboð
Óskaðereftirtilboðum í sterilahandþvottabursta
til notkunar á skurðstofum ríkisspítalanna.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Borgar-
túni 7, Reykjavík.
Tilboð verða opnuð föstudaginn 24. júlí n.k. kl.
11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartuni 7. simi 25844
Lögtök
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undan-
gengnum úrskurði verða lögtök látin fram fara án
frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en ábyrgð
ríkissjóðs, að áttadögum liðnum frá birtingu aug-
lýsingar þessarar, fyrir eftirtöldum gjöldum:
Söluskatti fyrir júlí-des. 1986, og jan., febr. og
mars 1987, svo og söluskattshækkunum, álögð-
um 1. okt. 1986 til 12. júní 1987; vörugjaldi af inn-
lendri framleiðslu fyrir júlí-des. 1986 og jan., feb.
og mars 1987; mælagjaldi af díselbifreiðum,
gjaldföllnu 11. sept. 1986 og 11. feb. og 11. júní
1987; skemmtanaskatti fyrir júlí-des. 1986 og jan.,
feb., mars og apríl 1987; launaskatti, gjaldföllnum
1985; skipulagsgjaldi af nýbyggingum, gjald-
föllnu 1986 svo og aðflutningsgjöldum, gjald-'
föllnum 1986.
Reykjavík 12. júní 1987
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgarf.h. Hitaveitu
Reykjavíkur óskar eftir tilboðum I: „Safnæðar —
jarðvinnaog undirstöður“, að Nesjavöllum. Verk-
ið felst í jöfnun leiðslustæðis, gerð vegslóða,
greftri og fyllingu fyrir undirstöðum og festum,
steypu á festum og uppsetningu undirstaða.
Þá skal leggja hluta vatnsveitu, borveitu og
merkjastrengi.
Heildarlengd safnæða er um 2,3 km.
Bjóðendur skulu bjóða í allt verkið, og eru fráviks-
tilboðóheimil nemaeinnig fylgi tilboð I fullu sam-
ræmi við útboðsgögn.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn
30. júní, kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Postholf 878 — 101 Reykjavik
borist:
Sauðlauksdalur í Barðastrandar-
prófastsdæmi: Jón ísleifsson,
cand. theol. Reykjavík
Bildudalur í Barðastrandar-
prófastadæmi: Sr. Flosi Magnús-
son, settur prestur á Bíldudal.
Prestsbakki í Húnavatnsprófasts-
dæmi: Sr. Bjarni Th. Rögnvalds-
son, Reykjavík.
Höfðakaupstaður í Húnavatns-
prófastsdæmi: Ægir Fr. Sigurgeirs-
son, cand. theol. Hafnarfirði.
Hrísey í Eyjafjarðarprófasts-
dæmi: Hulda Hrönn M. Helgadótt-
ir, cand. theol. Reykjavík. Um Ból-
staðarhlið í Húnavatnsprófasts-
dæmi var einn umsækjandi er ósk-
ar nafnleyndar en um Raufarhöfn í
Þingeyjarprófastsdæmi var engin
umsókn.
Skv. nýjum lögum um veitingu
prestakalla verða kjörmönnum (þ.e.
sóknarnefndarmönnum og vara-
mönnum þeirra) fljótlega send
gögn varðandi umsækjendur. Síð-
an verður viðkomandi prófasti falið
að boða kjörmenn prestakallsins á
sameiginlegan fund þar sem val
sóknarprests fer fram.
Hellaferöir
Nýlega var stofnað fyrirtækið
Hellaferðir s/f er vinnur að ferða-
málum í samvinnu við Ferðaskrif-
stofuna Faranda. Fyrst um sinn
verða ferðir í glæsilega nýfundna
hraunhella á Suðvesturlandi.
Farið verður í hella eins og Kerið
í Ölfusi sem er 500 m langur og Tví-
botna á Þingvöllum sem er 350 m
langur. Hellar sem þessir tveir eru
fjölmargir og eiga þáð sameiginlegt
að vera ósnortnir og óvíða er glæsi-
leiki íslenskrar náttúru meiri.
Ferðir eru alla sunnudaga, farið
frá bensínsölu við BSÍ kl. 11.00 og
tekur ferðin um 6 klst. þar af er
dvalið neðanjarðar 2—4 klst.
Hellaferðir s/f bjóða auk leið-
sögn jarðfræðings, ljós, hjálma og
annan þann útbúnað sem þarf til
siíkra ferða.
Upplýsingar, skráning og far-
miðasala er hjá Ferðaskrifstofunni
Faranda, Vesturgötu 5, sími 622420.
Illl Sit
5;S!!I
~~
er augljóst gildi þess að
vinna með öörum - taka sameigin-
lega á þeim verkefnum sem eru
hverjum og einum ofviða.
Án samvinnu og samstöðu lands-
manna allra hefði íslensku þjóðinni
seint tekist að brjóta á bak aftull
áþján erlends valds og öðlast sjálf-
stæði 17. júní 1944.
Samvinnufélögin eru frjáls og
óháð félagasamtök meira en 45.000
einstaklinga. Samvinnuhreyfingin
vill vera öflugur þátttakandi í fram-
fararsókn íslensku þjóðarinnar. Hún
vill vinna með öðrum þjóðhollum
öflum við að byggja upp traust efn-
ahagslíf og taka á þann hátt virkan
þátt í ævarandi sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar.
^ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA