Alþýðublaðið - 07.07.1987, Síða 1

Alþýðublaðið - 07.07.1987, Síða 1
Einkunnarorð nýrrar ríkisstjórnar: JAFNVÆGI OG JÖFNUÐUR Fyrstu aðgerðirnar sagðar miða aö betra jafnvægi í efnahagsmálum og auknum jöfnuði lífskjara. Aðgerðirnar leiða til hækkunar framfærsluvísitölu í byrjun en leggja jafnframt grunn að lækkun verðbólgu til lengri tíma. Ný byggðastefna á dagskrá Alþýðuflokkurinn: Stjórnar- þátttakan samþykkt Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráð- herra. — Karvel Pálmason andvígur stjórninni, — að óbreyttu. Ráðherrar Alþýðuflokksins í væntanlegri ríkisstjórn Þor- steins Pálssonar verða Jón Baldvin Hannibalsson, Jó- hanna Sigurðardóttir og Jón Sigurðsson. Á flokksstjórnar- fundi á sunnudag skýrði Jón Baldvin Hannibalsson fundar- mönnum frá tillögunum, en fyrr um daginn hafði á þingflokks- fundi verið gengið frá vali á ráð- herraefnum. Samkvæmt eigin tillögu verður Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráð- herra, Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra, og Jón Sig- urðsson viðskipta- dóms- og kirkjumálaráðherra. Á flokksstjórnarfundinum virtist meirihluti fundarmanna ánægður með væntanlega stjórnarþátttöku og aðeins Kar- vel Pálmason lýsti beinni and- stöðu sinni. Karvel hafði áður lýst því yfir að hann styddi ekki stjórnina, að óbreyttu. Hann hefur ekki tekið ákvörðun um að segja sig úr þingflokknum. Auk Karvels lýstu nokkrir fund- armanna yfir efasemdum vegna stjórnarþátttökunnar, en engin lýsti sig andvígan, — þótt menn teldu ýmis baráttumál flokksins fyrir borð borin í málefnasamn- ingi væntanlegrar ríkisstjórnar. Nokkrir flokksstjórnarfulltrúar frá Vestfjörðum mættu ekki til fundar og vildu með því mót- mæla hvernig þátttöku flokks- ins í stjórninni væri háttað. Á fundunum um helgina kom mönnum nokkuð á óvart að Jón Baldvin Hannibalsson skyldi gera tillögu um, að hann tæki við embætti fjármálaráðherra. Að undanförnu hefur Jón Sig- urðsson eingöngu verið nefndur fjármálaráðherraefni. Almennt virtust menn hins vegar sáttir við niðurstöðurnar og telja eðli- legt að formaður flokksins axl- aði þá miklu ábyrgð sem fjár- málaráðuneytinu fylgir. Um helgina gengu framsókn- armenn einnig frá sínum ráð- herralista og í dag verður tekin ákvörðun um ráðherra Sjálf- stæðisflokksins. Nánar er fjall- að um ráðherramálin í frétta- skýringu í blaðinu. Ný ríkisstjórn með aðild Sjálf- stæðisflokks, Framsóknarflokks og Alþýðuflokks og undir forsæti Þorsteins Pálssonar, tekur við völd- um að afloknum ríkisráðsfundi á morgun. Fyrstu aðgerðir ríkis- stjórnarinnar eru í málefnasamn- ingi sagðar miða að því að koma á betra jafnvægi í cfnahagsmálum og stuðla að auknum jöfnuði í lífs- kjörum. Að öðru leyti segir um markmið málefnasamningsins í heild að auka eigi einstaklingsfrelsi og jafnrétti, vinna að valddreifingu „Það er fyrirsjáanlegt að fjöl- margar skrifstofur utan Félags fast- eignasala munu þurfa að leggja upp laupana á næstunni. Ég tel að fast- eignasölunum fækki vegna þess að þeir sem ekki uppfylla lagaskilyrði til þess að stunda fasteignasölu, eiga ekki að geta keypt þær trygg- ingar sem ráðuneytið krefst sam- kvæmt nýju reglugerðinni,“ sagði Þórólfur Halldórsson, formaður Félags fasteignasala í samtali við Alþýðublaðið. Með nýjum lögum á Alþingi á síðasta ári auk lagabreyt- inga í vor, voru settar mun strangari reglur um starfsemi fasteignasala. Reglugerð á grundvelli laganna tek- ur gildi 1. september, en þar er gert ráð fyrir að fasteignasalar, hver og einn, leggi fram 10 milljóna króna tryggingu vegna rekstursins. Lík- legt er talið að fastcignasalarnir og félagslegum umbótum og treysta afkomuöryggi allra landsmanna. Þetta eru fögur fyrirheit, þótt tíminn verði að leiða í ljós hversu til tekst. Steingrímur Hermannsson, sem verður utanríkisráðherra hinn- ar nýju stjórnar, sagði í þessu sam- bandi í sjónvarpsþætti í fyrrakvöld að það væri kraftaverk ef allar 24 síður málefnasamningsins yrðu framkvæmdar. Fyrstu aðgerðum ríkisstjórnar- innar má skipta í tvo flokka. Ann- ars vegar eru aðgerðir í fjármálum kaupi sér vátryggingu og framvísi skírteini þar um í ráðuneytinu. Að mati Félags fasteignasala eru í dag sárafáar skrifstofur það stór- ar, að þær geti veitt þá þjónustu sem ný lög um fasteignasölur krefj- ast. „Þetta eru lög sem gera geysi- lega strangar kröfur, t.d. um upp- lýsingaskyldu, tryggingaskylduna, auk þess sem þau þýða aukin út- gjöld. Ef skrifstofurnar eiga að geta sinnt þessu verða þær að hafa aðstöðu til þess. Það gerist ekki með því móti að einn og einn maður sé að hokra, — þurfi jafnvel að loka skrifstofunni meðan hann sækir veðbókarvottorð. Það verður því aldrei nein mynd á þessu fyrr en hægt verður að reka skrifstofurnar eins og alvöru fyrirtæki og veita þá þjónustu sem nauðsynleg þykir í og peningamálum, sem einkum er ætlað að koma á betra jafnvægi og draga úr þeirri þenslu sem verið hefur að myndast síðustu mánuð- ina. Hins vegar eru svo aðgerðir sem miða að því að auka jöfnuð í lífskjörum. Hér er einkum um að ræða hækkun elli- og örorkulífeyris og hækkun barnabótaauka. Þessar aðgerðir munu hefjast 1. september og kosta ríkissjóð um 190 milljónir króna á þessu ári. Miklu viðameiri eru aðgerðir í ríkisfjármálum og peningamálum. mannsæmandi þjóðfélögum,“ sagði Þórólfur Halldórsson. Umsvif fasteignasala eru að sjálfsögðu mismikii, en talið er að um 20—30% af innkomu meðal skrifstofu fari i kostnað vegna aug- lýsinga í Morgunblaðinu. Getum hefur verið að því leitt að á þessu ári renni um 50 milljónir til Moggans vegna auglýsinga. Þórólfur vildi aðspurður ekki staðfesta þessar tölur: „En ég þekki ekki nokkurn annan atvinnurekstur sem setja þarf jafn stóran hluta af innkomu í auglýsingar. Ef fasteignasölur þurfa að auglýsa jafn mikið og þær hafa gert og jafnframt veita þá þjónustu sem ný lög krefjast, þá tel ég óhjákvæmilegt að þær komi til með að innheimta auglýsingarnar í framtíðinni," sagði Þórólfur Hall- dórsson. Tekjur ríkisins verða auknar um samtais 900 milljónir, þegar útgjöld vegna bótahækkana hafa verið dregnar frá. Þessu til viðbótar kem- ur svo frestur á endurgreiðslu sölu- skatts til sjávarútvegs upp á 300 milljónir. Tekjuaukningin felst í því að undanþágum frá söluskatti fækkar verulega. Þá verða einnig lagðir á ýmsir nýir skattar, svo sem sérstak- ur bílaskattur, sem verða 4 krónur á hvert kg., kjarnfóðurskattur, ríkis- ábyrgðagjald verður hækkað og tekið lántökugjald af erlendum lán- um. í peningamálum eru ýmsar að- gerðir fyrirhugaðar strax. Þannig verða nú vextir af spariskírteinum ríkissjóðs hækkaðir um 1,5% og settar reglur um fjármögnunarleigu og notkun greiðslukorta og sömu- leiðis koma til nýjar reglur um af- borgunarviðskipti. Fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinn- ar eru í heild taldar munu valda nokkurri hækkun framfærsluvísi- tölunnar til að byrja með, en jafn- framt munu þær draga úr þenslu og eftirspurn. Af þeim sökum er gert ráð fyrir að aðgerðirnar muni skapa grundvöll til að draga úr verðbólg- unni þegar til lengri tima er litið. I málefnasamningnum segir að aðgerðirnar muni halda aftur af þjóðarútgjöldum sem nemur einu til einu og hálfu prósenti og draga úr viðskiptahallanum sem nemi allt að einu prósenti af þjóðarfram- leiðslu. Þegar til lengri tíma er litið, má lesa í málefnasamningi ríkisstjórn- arinnar að lögð verði áhersla á stöð- ugt verð og atvinnuöryggi. Nefna má að genginu á að halda stöðugu, stefna að hallalausum utanríkisvið- skiptum og ná jöfnuði á fjárlögum á næstu þremur árum. Tekjuöflun ríkisins á að verða einfaldari, rétt- látari og skilvirkari, hér er með öðr- um orðum átt við heildarendur- skoðun skattakerfisins. Byggðaröskun undanfarinna ára virðist eiga að snúa við, því í máK efnasamningum segir ennfremur að ríkisstjórnin hyggist stuðla að eðli- legri byggðaþróun í landinu og fylgja byggðastefnu sem byggist á atvinnuuppbyggingu, eflingu í sam- göngumálum, eflingu þjónustu- kjarna og bættri fjármagns þjón- ustu heima í héraði. Þá vekur athygli að ríkisstjórnin hyggst taka upp samstarf við aðila á vinnumarkaði urn aukna fram- leiðni og styttingu vinnutíma á þeim forsendum. Ríkisstjórnin hyggst ennfremur bæta kjör kvenna og aðstöðu barna. Þá á að koma á samræmdu lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn, tryggja fjárhagsgrund- völl húsnæðiskerfisins og auka val- frelsi í húsnæðismálum. Hér er að sjálfsögðu átt við kaupleiguíbúð- irnar. Síðast en ekki síst er svo ætl- un nýju ríkisstjórnarinnar að auka virkni hins opinbera stjórnkerfis og leggja traustan grunn að samfélagi framtíðarinnar með því að efla ís- lenska menningu, menntun, rann- sóknir og vísindi. Nærri 180 manns tóku þátt I sumarferð Alþýðuflokksfélaganna I Reykjavlk og á Reykjanesi á laugardaginn. Fjór- arsneisafullar rútur fluttu mannskapinn um héruð Borgarfjarðarog Mýra undir leiðsögn valinkunnra heimamanna. Ferðalangarnirvoru heppnirmeð veðurog ferðin I allastaöi afaránægjuleg að sögn. Hérsiturferðafólkið aö snæð- ingi úti I náttúrunni. Nánar verður sagt frá ferðinni [ laugardagsblaöinu. A-mynd:ÖB Strangari reglur um fasteignasölur: Fasteignasölum fækkar? „Þær sem ekki uppfylla lagaskilyrði eiga ekki að geta keypt þær tryggingar sem ráðuneytið krefst samkvæmt nýju reglugerðinni,“ segir Þórólfur Hall- dórsson formaður Félags fasteignasala. — Getum að því leitt að fasteigna- sölur greiði 50 milljónir króna vegna auglýsinga í Morgunblaðinu á þessu ári.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.