Alþýðublaðið - 07.07.1987, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 7. júlí 1987
3
Minning
Steingrímur Magnússon
verkstjóri, Siglufirði
Fæddur 3. okt. 1918. Dáinn 7. júní 1987.
Með Steingrími Magnússyni í
Hlíð er til foldar hniginn einn af
merkari borgurum þessa bæjar,
heilsteyptur maður, traustur og
ábyggilegur sem mátti ekki vamm
sitt vita í neinu.
Hann var fæddur að Hóli á Ól-
afsfirði, sonur hjónanna Jónu Stef-
ánsdóttur og Magnúsar Ólafsson-
ar, eitt af átta börnum þeirra hjóna.
Tvö systkina hans eru á lífi, Ólöf
búsett í Reykjavík og Ingólfur bú-
settur í Ólafsfirði. Er Steingrímur
var 3ja ára missti hann föður sinn
og var þá komið í fóstur til hjón-
anna Sólveigar Jóhannsdóttur og
Sigfúsar Ólafssonar í Hlíð á Siglu-
firði en Sigfús var föðurbróðir
Steingríms.
Þau Sólveig og Sigfús ólu upp
mörg börn og reyndust þeim öllum
sem bestu foreldrar. Heimili þeirra
hjóna í Hlíð var víðfrægt fyrir
rausn og myndarskap allan. Þar fór
saman atorkusemi, hlýlegt viðmót
og alúðleg framkoma við alla. Þar
voru allir jafnir. Margir voru þeir
sem hjónin í Hlíð studdu á lífsleið-
inni en aldrei var haft hátt um þá
hluti.
í þessu umhverfi ólst Steingrímur
upp og án efa hefur hinn góði andi
sem ríkti á heimilinu í Hlíð mótað
að einhverju leyti viðhorf hans
seinna á lífsleiðinni.
Sextán ára að aldri hóf Stein-
grímur störf hjá Síldarverksmiðj-
um ríkisins á Siglufirði og hafði
starfað hjá fyrirtækinu í rúm fimm-
tíu ár, er kallið mikla korh.
Hann var einn af þessum sam-
viskusömu verkamönnum sem
stunduðu vinnu sína af sérstakri
iðjusemi. Traustur var hann og
ábyggilegur, rólegur og yfirvegaður
og það sem Steini í Hlíð sagði og
lofaði stóð eins og stafur á bók.
Hann var því virtur og vel liðinn af
vinnufélögum sínum.
Eftir að Steingrímur gerðist verk-
stjóri hjá fyrirtækinu leit hann á
undirmenn sína sem jafningja og
var samvinnuþýður í starfi. Þetta
kunnu þeir vel að meta. Hann var
því góður verkstjóri sem hugsaði
ekki aðeins um hag fyrirtækisins
heldur Iíka verkamannanna enda
vildu þeir ávallt allt fyrir hann gera.
Það þurfti mikið að ganga á til að
koma Steingrími úr jafnvægi. Hann
hélt fast á skoðunum sínum ef hann
taldi þær réttar og gaf þá ekki eftir
sinn hlut.
Steingrímur var félagslyndur og
sómi sinnar stéttar. Hann var um
margra ára skeið virkur félagi í
Verkamannafélaginu „Þrótti“ og í
stjórn félagsins í nokkur ár og í
samninganefndum félagsins við at-
vinnurekendur. Hann stóð fast á
málstað verkamanna enda átti
hann alltaf tiltrú þeirra.
Steingrímur skipaði sér snemma í
raðir siglfirskra jafnaðarmanna.
Hann vildi að jafnrétti og bræðra-
lag fengi að ríkja og móta í ríkara
mæli líf samferðamannsins. Frá
þeirri sannfæringu sinni hvikaði
hann aldrei.
Um langt skeið var Steingrímur
einn af bestu bridsspilurum bæjar-
ins og vann til fjölda verðlauna í
þessari íþrótt bæði innan bæjar og
utan. Þótti hann skemmtilegur og
vandvirkur spilari og eignaðist
lceland Seafood í Bretlandi:
Söluverðmæti
aukist um 10%
— Ástand fiskmarkaða í Evrópu gott. — Aukið framboð
ferskfisks frá íslandi er þó talið hafa áhrif á eftirspurnina
og leiða til verðlækkana.
Heildarverðmæti frystra sjávar-
afurða hjá Iceland Seafood Ltd.,
sölufyrirtæki Sambandsins í Bret-
landi nemur 16,5 milljónum
sterlingspunda fyrstu 6 mánuði
þessa árs. Á sama tíma síðast liðið
ár nam saian 14,9 milljónum
punda.
í Bretlandi einu nemur salan 10,3
Danir fengu
afreksmerki
Forseti íslands hefur sæmt 4
Dani afreksmerki hins íslenska lýð-
veldis úr silfri fyrir björgun skip-
verja af m/s Suðurlandi 300 sjómíl-
ur aust-norðaustur af Langanesi á
jólanótt 1986. Þeir sem heiðurs-
merkið hlutu voru áhöfn þyrlu
danska varðskipsins Vædderen og
heita:
Jan Rasmussen, liðsforingi, Arne
Fröge, liðþjálfi, Claus T. Eriksen,
liðþjálfi og Jörgen Laursen, lið-
þjálfi.
Afhending afreksmerkisins fór
fram í Kaupmannahöfn 2. júlí.
Afreksmerki hins íslenska lýð-
veldis var stofnað árið 1950 og má
sæma merkinu innlenda menn og
erlenda, er hafa hætt Iífi sínu eða
heilsu við björgun íslenskra manna
úr lífsháska.
Forseti íslands hefur ennfremur
sæmt Preben A. Andersen, skip-
herra á Vædderen, riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu.
milljónum punda, en það er 10,8%
aukning frá fyrra ári. í magni talið
er salan í Bretlandi um 6 þúsund
tonn, eða 3% meiri en fyrstu 6 mán-
uði í fyrra. Nokkur samdráttur hef-
ur orðið í sölu til Frakklands,
Belgíu og Hollands, sem rekja má
fyrst og fremst tii minnkandi fram-
leiðslu á karfaflökum fyrir Evrópu-
markað, en eins og kunnugt er hef-
ur karfi í auknum mæli verið seldur
ferskur á markaði í Evrópu.
Mikil aukning hefur orðið á sölu
hjá skrifstofu Iceland Seafood Ltd
í Hamborg. Söluverðmæti fyrstu
sex mánuði ársins nemur 8,1 mill-
jónum marka og hefur aukist um
tæp 70% í verðmæti og um 23% í
magni frá fyrra ári.
Almennt er talið að ástand fisk-
markaða í Evrópu sé nokkuð gott
og eftirspurn stöðug. Töluverðrar
samkeppni gætir þó á markaðnum,
fyrst og fremst vegna mjög aukins
framboðs á ferskum fiski frá ís-
landi, sem dregið hefur úr eftir-
spurn á frystum afurðum og haft
áhrif til verðlækkana. Ennfremur
hafa Norðmenn aukið frystingu um
borð í fiskiskipum og dregið á móti
úr frystingu í landi, en þeirra stærsti
markaður fyrir sjófrystar afurðir er
Bretland.
/'T - N
A mölinni mætumst með
bros á vör — ef bensíngjöfin
yujFBnw
fjölda kunningja meðal bridsspil-
ara um land allt.
25. apríl árið 1942 var mikill
hamingjudagur í Iífi Steingríms
Magnússonar en þá kvæntist hann
eftirlifandi konu sinni, Ester Sig-
urðardóttur, dóttur hjónanna Ólaf-
ar Ásgrímsdóttur og Sigurðar Sig-
urðssonar sem aldraðir Siglfirðing-
ar minnast sem sómafólks.
Hjónaband þeirra Esterar og
Steingríms var afar farsælt. Hlýtt
viðmót mætti hverjum þeim sem til
þeirra kom. Húsmóðirin elskuleg
og alúðleg í framkomu, húsbónd-
inn vingjarnlegur og yfirvegaður.
Steingrímur var heimakær maður
og góður heimilisfaðir, laghentur
og snyrtilegur enda ber heimilið
vott um myndarskap þeirra hjóna.
Auður þeirra hjóna var mikið
barnalán. Börn þeirra eru:
Sigfús, kvæntur Sædísi Eiríks-
dóttur, Ölöf gift Jónasi Jónssyni,
Sólveig gift Jóni Bjargmundssyni
og Sigurður kvæntur Sólveigu Þor-
kelsdóttur. Þeir bræðurnir eru bú-
settir á Siglufirði en systurnar í
Reykjavík.
Steingrímur var hamingjusamur
maður og stoltur af börnum sínum
og afkomendum þeirra, vildi alltaf
allt fyrir þau gera.
Kallið mikla til hans kom óvænt
og enginn tími var til að kveðjast,
en þetta er lífsins saga. Við Stein-
grímur höfðum verið kunningjar
og vinir í 45 ár. Eftir að við urðum
verkstjórar hjá S.R. varð samstarf
okkar náið, einnig lágu leiðir okkar
saman innan verkalýðshreyfingar-
innar og innan raða siglfirskra jafn-
aðarmanna. Aldrei bar skugga á
samstarf okkar. Ég er harmi sleginn
og kveð kæran vin með söknuð í
huga. Það er huggun harmi gegn að
minningarnar um þann mikilhæfa
mannkostamann sem Steingrímur
Magnússon var, verða ekki frá okk-
ur teknar.
Ég flyt Ester, börnum þeirra
hjóna og öðrum ástvinum Stein-
gríms mínar dýpstu samúðarkveðj-
ur, það gera einnig samstarfsmenn
hans og siglfirskir jafnaðarmenn.
Blessuð sé minning Steingríms í
Hlíð.
Jóhann G. Möller
Siglufirði.
Seölabankinn:
Nýr aðstoðar-
bankastjóri
Eiríkur Guðnason hefur verið
ráðinn aðstoðarbankastjóri við
Seðlabankann frá og með 1. júli
1987, en hann hefur verið forstöðu-
maður peningamáladeildar frá
1977 og hagfræðingur bankans frá
1984.
Eiríkur er fæddur 3. apríl 1945 og
lauk námi frá Háskóla lslands árið
1970. Hann hefur unnið við Seðla-
bankann frá 1969, einkum að pen-
ingamálum, við mótun lánskjara-
stefnu, við samningagerð við
banka, ríkissjóð o.fl. Hann hefur
verið formaður stjórnar Verðbréfa-
þings íslands sl. ár og hefur verið
fulltrúi bankans í nefndarstörfum
um efnahagsmál við Efnahags- og
framfarastofnunina í París
(OECD) og við Fríverslunarsamtök
Évrópu (EFTA) í Genf.
Eiríkur mun starfa áfram að
sömu verkefnum og vakin er athygli
á því, að búið er að greina á milli
peningamáladeildar og hagfræði-
Jeildar í starfsskiptingu við bank-
ann.
Minning
Kristín Þorgrímsdóttir
Fædd 2. ágúst 190í
í dag verður tengdamóðir mín,
Kristín Þorgrímsdóttir, jarðsungin
frá Ólafsvíkurkirkju en hún lést á
St. Fransiskusspítalanum í Stykkis-
hólmi eftir skamma legu aðfaranótt
mánudagsins 29. júní siðastliðinn.
Kristín fæddist í Ólafsvík og bjó
þar alla sína ævi. Foreldrar hennar
voru Sigrún Sigurðardóttir og Þor-
grímur Vigfússon, kennd við bæinn
Baldurshaga í Ólafsvík.
Kristín var elst barna þeirra og
ólst hún upp ásamt systrum sínum
Laufeyju og Þórdísi og bróðurnum
Kristni. Árið 1932 giftist Kristín
Ottó A. Árnasyni síðar bókara í Ól-
afsvik. Sama ár eignuðust þau tví-
burana Hallgrím og Örn og á árun-
um 1935 og 1938 fæddust þeim
dæturnar Nanna og Þuríður. Árið
1939 tóku berklar sig upp í gömlu
meiðsli hjá Ottó og varð hann að
dvelja samfellt í 4 ár á sjúkrahúsi í
Reykjavík. Þennan tíma varð Krist-
ín að sjá heimilinu farborða og hafa
þau ár efalaust skilið eftir sig sín
spor hjá henni. Skal í þessu sam-
bandi sérstaklega minnst fjöl-
skyldna bræðra Ottós sem tóku
drengina til dvalar um tíma og
minnist ég hlýhug ar Kristínar til
þeirra fyrir aðstoðina sem þeir
veittu á þessum erfiðu tímum. Eftir
að Ottó komst til heilsu aftur eign-
uðust þau tvo syni, Vigni árið 1944
og Gunnar ári síðar. Fóru nú bjart-
ari tímar í hönd hjá þeim og byggði
Ottó nýtt hús þar sem heimili for-
eldra hans hafði staðið. Skin og
skúrir vilja tíðum skiptast á í lífi
fólks. Urðu þau hjónin fyrir því að
árið 1950 misstu þau soninn Vigni
af slysförum aðeins 6 ára gamlan.
Nokkru síðar kynntist ég þeim
hjónunum og hreifst ég strax af
þeim áhuga sem Ottó sýndi hinum
fjölbreyttu viðfangsefnum sem
hann fékkst við svo og því hve Krist-
ín helgaði sig heimili sínu, manni og
börnum. Var sem henni fyndist
aldrei full bætt fyrir þá erfiðleika
sem að heimilinu höfðu steðjað.
Ingibjörg móðir Ottós var þá á lífi
og dvaldi hún hjá sonum sínum til
skiptis en andaðist 93 ára gömul á
heimili Kristínar.
í. Dáin 29. júní 1987.
Ottó lést árið 1977 og bjó Kristín
áfram í Nýjabæ. Eftir síðustu ára-
mót fór hún til dvalar á Dvalar-
heimilinu Jaðri í Ólafsvík og var
þar með Laufeyju systur sinni sem
var hennar stoð og stytta þar.
Starfsfólki heimilisins og vistfólki
eru hér með færðar þakkir fyrir
ágæta umönnun síðustu mánuði
svo og systrunum á St. Fransiskus-
arspítalanum í Stykkishólmi sem
önnuðust hana síðustu dagana í lífi
hennar.
Þegar komið er að kveðjustund
vil ég þakka Kristínu einlæga vin-
áttu sem aldrei bar skugga á. Bless-
uð sé minning hennar.
Bjarnar Ingimarsson
Vinningsnúmer í
stuðningshappdrætti
Kvennalistans
Dregið var í stuðningshapp-
drætti Samtaka um Kvennalista
30. júní. Upp kom númerið 623
og er eigandi miða með því
númeri vinsamlegast beðinn að
hafa samband við skrifstofu
Kvennalistans, Hótel Vík, s.
13725 sem fyrst.
Kennarar —
Kennarar
Kennara vantar við grunnskólann á Stokkseyri
næstkomandi skólaár.
Kennsla yngri barna og enskukennsla.
Upplýsingar I símum, 99-6300, 99-3244 og 99-
3267.
Dvalar og hjúkrunarheimili
Egilsstöðum:
Óskað ereftirtilboðum í innanhúsfrágang á Dval-
ar- og hjúkrunarheimili aldraðra á Egilsstöðum.
Byggingin ertværhæðirog ernú tilbúin undirtré-
verk með frágengnum niðurhengdum loftum (að
mestu) og loftræstingu uppsettri.
Alls er byggingin um 1870 ferm., en þar af er full-
gerður hluti hússins, sem er um 160 ferm.
Innifalið í verkinu erallt sem þarf til að Ijúka bygg-
ingunni (timburveggir, hurðir, innréttingar, málun,
gólfefni raflagnir o.s.frv.) að undanskilinni lyftu.
Verkinu skai vera lokið eigi síðar en 1. júlf 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að
Borgartúni 7, Reykjavlkog hjáframkvæmdastjóra
Heilsugæslustöðvarinnar á Egilsstöðum gegn
10.000.- króna skilatryggingu.
Tilboðverðaopnuðáskrifstofu vorri þriðjudaginn
28. júlí 1987 kl: 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Boig;irtuni 7. simi 25844