Alþýðublaðið - 02.09.1987, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 02.09.1987, Blaðsíða 3
Miðvikudagur2. september 1987 3 Frá hát(ðahöldunum á Akureyri. Akureyringar héldu upp á 125 ára afmæli kaupstaöarréttinda sinnaá laugardaginn meö miklum glæsibrag. Hér ganga hátiöagestir úr kirkju og I fararbroddi forseti íslands, Vigdls Finnbogadóttir og Gunnar Ragnars, forseti bæjarstjórnar á Akureyri og framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar. Læknadeild Háskóla íslands: Námskeið fyrir verðandi læknanema Dagana 2. til 11. september næst- í læknisfræöi við Háskóla íslands. komandi verður haldið námskeið Námskeiðið, sem ber yfirskriftina fyrir stúdenta sem eru að hefja nám „Læknisfræði? Hvað er þaö“, er Fyrirlestur um samskipti foreldra •íVji • Dr. Thomas Gordon, forseti Effectiveness Training Inc. í Banda- ríkjunum, mun dveljast hér á ís- landi dagana 31. ágúst til 5. septem- ber n.k. Hann heldur fyrirlestur fyrir almenning í Biístaðakirkju þriðjudaginn 1. sept. kl. 20:30. Dr. Thomas Gordon er lieims- frægur sálfræðingur fyrir nám- skeið sín um nýjar aðferðir í upp- eldismálum og bækur sínar um sama efni. Eru bækur hans náms- efni í kennara- og uppeldisskólum víða um heim, m.a. hér á landi í kennaraháskólanum, fósturskólan- um og háskólanum. Samhliða heimsókn dr. Gordons kemur út á vegum Almenna bóka- félagsins í þýðingu Inga Karls Jó- hannessonar bók hans Samskipti og barna foreldra og barna — að ala upp ábyrga æsku, og verður hún til sölu á fyrirlestrarstaðnum. Dr. Gordon nefnir fyririestur sinn sama heiti og bókina: Samskipti foreldra og barna. Með dr. Gordon kemur hingað til lands kona hans, sem er varaforseti Effectiveness Training Inc, Linda Adams M.D. Hún hefur starfað með dr. Gordon við námskeiðin og ritað bókina Effectiveness Training for Women. Hún mun halda fyrir- lestur í Átthagasal Hótel Sögu fimmtudaginn 3. sept. n.k. kl. 20.30. Nefnir hún fyrirlesturinn: Sjálfstyrking — ákveðni — mann- leg samskipti. Fyririestrarnir verða fluttir á ensku. haldið á vegum Læknadeildar og er valnámskeið ætlað til þess að kynna háskólanám í læknadeild. Fluttir verða 16 fyrirlestrar um efni sem ætla má að gagni þeim, sem eru að hefja háskólanám í fyrsta skipti. Forseti læknadeildar, prófessor Ásmundur Brekkan og prófessor Helgi Valdimarsson for- maður kennslunefndar kynna læknadeild, starfsemi hennar og skipulag og Sigurður V. Sigurjóns- son aðjunkt ræðir um hlutverk há- skóla. Ásta K. Ragnarsdóttir náms- ráðgjafi HÍ talar um vinnubrögð í háskóla. Jón Júlíusson phil.kand. og læknarnir Jóhannes Björnsson og Sigurður Árnason tala um orða- forða læknisfræðinnar með sér- stöku tilliti til latínu. Þá mun Sól- veig Þorsteinsdóttir bókasafns- fræðingur tala um notkun bóka- safna. Prófessor Páll Skúlason ræðir um siðfræði læknisfræðinn- ar og kennarar í lyflæknisfræði, handlæknisfræði, geðlæknisfræði og heimilislækningum kynna grein- arnar. Þá munu fulltrúar frá Félagi læknanema kynna félagsstarf læknanema. Námskeiðið er haldið í stofu 101 í Lögbergi og hefst miðvikudaginn 2. september en lýkur föstudaginn 11. september. Haldnir verða tveir fyrirlestrar daglega klukkan 17.15-19.00. Einsog að ofan greinir þá er námskeiðið fyrst og fremst ætlað þeim sem eru að hefja nám í læknadeild en öllum læknanemum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Umsjón með námskeiðinu hefur Sigurður Árnason læknir, kennslustjóri læknadeiidar. Afmælisrit Prestafélags Suðurlands komið út Komið er út afmælisrit Prestafé- lags Suðurlands í tilefni af því að þann 7. sept. n.k. eru 50 ár liðin frá stofnun félagsins. í ritinu rekur sr. Guðmundur Óli Ólafsson sögu félagsins í stórum dráttum samkvæmt fundargerðar- bókum. Einnig er í ritinu grein um endurreisn Skálholts eftir sr. Hann- es Guðmundsson en uppbygging Skálholtsstaðar hefur verið sérstakt áhugamál félagsins. Sr. Heimir Steinsson ritar annál Skálholts- skóla. Dr. Jakob Jónsson skrifar um prestsstarfið fyrr og nú. Sr. Arngrímur Jónsson ritar grein sem nefnist „Litúrgísk hreyfing á Suð- urlandi“ og sr. Orn Báður Jónsson um Náðargjafavakninguna. í þætti sem heitir „Prestkona í hálfa öld“, segir frú Stefanía Gissurardóttir frá, en sr. Sigurjón Einarsson skráði. Prestafélag Suðurlands var stofnað á Laugarvatni 7. september árið 1937 en þar voru þá ellefu kennimenn samankomnir og stað- festu stofnun félagsins og lög. En í annarri grein félagsins segir um til- gang þess að hann sé „að glæða áhuga félagsmanna á öllu því er að starfi þeirra lýtur, auka samvinnu þeirra og gæta réttar þeirra“. Sam- kvæmt því hefur starf félagsins að- allega verið í því fólgið að efna til funda um málefni kirkju og kristni og rætt hefur verið um margbreyti- leg störf presta í söfnuðum Suður- lands. Á þessum tímamótum verður að- alfundur Prestafélags Suðurlands haldinn að Laugarvatni sunnudag- inn 6. september og verður þá sér- stök hátíðardagskrá í tilefni afmæl- isins. Núverandi formaður félagsins er sr. Frank M. Halldórsson. Ný ættfræðinámskeið að hefjast hjá Ættfræðiþjónustunni Tækjabúnaður og gagnasafn hefur verið stóraukið Ný ættfræðinámskeið hefjast á næstunni hjá Ættfræðiþjónustunni í Reykjavík. Standa þau frá fyrstu eða annarri viku september og fram undir lok októbcr. Markmið nám- skeiðanna er að gera menn færa um að rekja ættir sínar og annarra af öryggi og kunnáttusemi, með notk- un aðgengilegra heimilda. Annað starfsár Ættfræðiþjón- ustunnar er nú að hefjast, en starf- semi hennar er fyrst og fremst fólg- in í námskeiðahaldi. Aðsókn var mikil fyrsta starfsárið, og því hefur tækjabúnaður og gagnasafn Ætt- fræðiþjónustunnar verið stóraukið, svo þar er nú fyrsta flokks aðstaða til rannsókna jafnt sem kennslu. Boðið er upp á 8 vikna grunn- námskeið og 5 vikna framhalds- námskeið. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 8 manns í hverjum námsflokki og geta menn valið um að vera í námsflokki að kvöldi dags eða á laugardögum. Kennslan fer fram að hluta í fyr- irlestrum, en umfram allt í rann- sóknum á frumheimildum um ættir þátttakendanna sjálfra. Leiðbeint er um ættfræðileg vinnubrögð, heimildir, gildi þeirra og meðferð, hjálpargreinar ættfræðinnar, að- ferðir við samantekt ættartölu og niðjatals, uppsetningu ættarskráa o.s.frv. Þátttakendum eru útveguð þau frumgögn sem til þarf, s.s. ætt- artré, heimildaskrá og aðrir leiðar- vísar. Þá er veitt sérstök handleiðsla Forseti íslands til Færeyja Forseti íslands, Vigdis Finnboga- dóttir, fer í heimsókn til Færeyja dagana 3.—7. september 1987 í boði færeysku landsstjórnarinnar. í fylgd með forseta verða Hörður Helgason, sendiherra og frú Sarah Ross Helgason, Kornelíus Sig- mundsson, forsetaritari og frú Inga Hersteinsdóttir, svo og Kristín Sig- urbjörnsdóttir, hárgreiðslu- meistari. i þeim rannsóknarverkefnum, sem þátttakendur velja sér. Forstöðumaður Ættfræðiþjón- ustunnar og leiðbeinandi á þessum námskeiðum er sem fyrr Jón Valur Jensson. Skráning á námskeiðin er nú haf- in hjá forstöðumanni í síma 27101. Ný útvarpsstöð íslenska útvarpsfélagsins h/f: Jónas R. Jónas- son ráðinn dagskrárstjóri Jónas R. Jónasson hefur verið ráðinn dagskrárstjóri nýrrar út- varpsstöðvar Islenska útvarpsfé- lagsins hf. Stöðin hefur útsending- ar fyrir jól og sendir fyrst um sinn út á Ea xaflóasvæðinu, þar sem ætl- að er að hún muni ná til um 67% þjóðarinnar. íslenska útvarpsfélag- ið hf., hefur rekið Bylgjuna frá upphafi og með uppsetningu nýrrar stöðvar er stefnt að aukinni fjöl- breytni í flutningi tónlistar og ann- ars dagskrárefnis. Jónas R. Jónsson er þrautreynd- ur dagskrárgerðarmaður og stjórn- andi bæði I útvarpi og sjónvarpi. Hann hefur unnið að dagsrkárgerð fyrir ríkisútvarpið hljóðvarp og sjónvarp og var fyrsti dagskrár- stjóri Stöðvar 2. Hann lagði stund á fjölmiðlanám í Bandaríkjunum með sérstaka áherslu á útvarps- rekstur. Hin nýja stöð íslenska útvarpsfé- lagsins hf, verður undir dagskrár- stjórn Jónasar en lýtur sömu stjórn og útvarpsstjóra og Bylgjan. Nú er unnið að tæknilegum und- irbúningi hinnar nýju stöðvar og dagskrárstefna hennar verður kynnt von bráðar. Gert er ráð fyrir að stöðin höfði til nokkuð annarra hópa en Bylgjan, bæði í tónlistar- flutningi og annarri dagskrárgerð. I 'RAÐ Notið bílpúða og belti þegar barnið er orðið of stórt fyrir barnabílstólinn. ||UMFERÐAR

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.