Alþýðublaðið - 09.10.1987, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 09.10.1987, Blaðsíða 5
Föstudagur 9. október 1987 5 LABYLTINGUNA mér viö að bera fram á þenn- an hátt, eöa svipaðan. Ástæðan er oftast röng önd- um. Þriðji flokkur: Framburður með ítarlegum þögnum: „í dag. Ætlum við. Að heim- sækja. Dóttur Jóns Jónsson- ar. Og konu hans. En hún. Hefur að sérgrein. Að smiða öskutunnur. — Ætlar hún að geyma. Tamdar köngulær I öskutunnu? Við fáum svar. Við því í dag.“ Þá er hægt að nefna f ram- burð, sem er blanda af öllu þessu. Lesendum finnst ugglaust ég taka of djúpt í árinni. En hlustið vandlega og metið sjálf hvort ekki felist í þess- um fullyrðingum mfnum sannleikskorn. — Ég er ekki i minnsta vafa um það, að í mörgum tilvikum er þessi sérkennilegi framburður sótt- ur til erlendra plötusnúða. Ég kannast við hljóðfallið úr amerískum og breskum út- varpsstöðvum. Én takið ekki orð mín svo, að ég vilji staðla svo fram- burð, að allir tali eins. Slíkt getur aldrei gerst. Hver mað- ur hefur sín sérkenni. Ég er hins vegar á móti því, að (s- lenskt mál, íslenskur fram- burður, sé afbakaður viljandi. Við megum ekki víkja svo langt frá málhefðinni sjálfri að úr verði nýtt tungumál. Útvarp hefur áhrif Ég er sannfærður um, að allir hér inni eru þess fýs- andi, að í útvarpi heyrist hljómfagurt mál, að útvarps- menn hafi lipurt tungutak og vald á orðasjóði, sem gerir talað mál að ferskum og ið- andi straumi. Ég er lika sann- færður um, að það þarf ekki verulega mikið átak til að breyta ástandinu til batnaðar. Svo margir góðir og hæfir is- lenskurnenn starfa hjá út- varpsstöðvunum, að sameig- inlegt átak þeirra gæti mörgu breytt til betri vegar. í þessum hugleiðingum mínum felst gagnrýni, sem ég vona að þið lítið ekki á sem neikvætt nöldur. Ég hef sagt, að útvarþsmaður axli verulega ábyrgð. Á hann er hlustað, málfar hans hefur áhrif, einkum á yngri kyn- slóðina. Ég vil að útvarps- menn hafi þann metnað til að bera, aö áhrif þeirra verði góð en ekki vond. Það á að vera hverjum útvarpsmanni keppi- kefli, að tala góða og lýta- lausa íslensku. Að öðrum kosti getur hann vart talist góöur útvarpsmaður. Að koma hugsunum sinum á framfæri á hnitmiðaðan hátt er vandaverk. Hvernig til tekst getur haft umtalsverð áhrif á þróun tungunnar á hverjum tima. Ég hygg að íslensku út- varpsstöðvarnar ynnu vart þarfara verk á þessum vett- vangi en að koma á fót nám- skeiði eða vísi að skóla, þar sem kennd yrði íslenska og íslenskur framburður. Þegar ég var í forystu fyrir Blaða- mannafélag íslands, var eitt helsta baráttumál félagsins, að stofnuð yrði deild í blaða- mennsku eða fjölmiðlun við Háskóla íslands. Úr því hefur enn ekki orðið. Mér býður í grun, að forráðamenn Há- skólans hafi talið þjóðfélags- fræðideild geta komið í stað hennar. Þetta er mikill mis- skilningur, og raunar skiln- ingsleysi á starfi fjölmiðla- fólks. Skólakerfið hefur brugðist Ég vil einnig lýsa þeirri skoðun minni, að skólakerfið hafi ekki staðið sig sem skyldi í kennslu íslensks máls. Þar skortir mest á kennslu í tjáningu, — í því að tjá hug sinn blaðalaust frammi fyrir kennara og nem- endum. Þessi mikilsverði þáttur hefur verið vanræktur. Ég nefndi áðan námskeiða- hald eða vísi að skóla. 30. júlí 1964 var stofnuð íslensk mál- nefnd. Samkvæmt lögum er hún málræktar- og mál- verndarstofnun, sem á að vinna að eflingu íslenskrar tungu og varðveislu hennar í ræðu og riti. í bréfi, sem þá- verandi menntamálaráðherra ritaði vegna stofnunar nefnd- arinnar, segir um meginverk- efni hennar: 1. „Að annast nýyrðastarf- semi þá, sem hingað til hefur farið fram á vegum ráðuneytisins með atbeina orðabókanefndar Há- skólans. 2. Að gegnasvipuðu leið- beiningar- og málverndar- hlutverki og málnefndirnar annars staðar á Norður- löndum og hafa samstarf við þær.“ Samkvæmt þessu ætti það að vera auðveldur leikur fyrir útvarpsstöðvarnar að snúa sértil íslenskrar málnefndar og óska eftir leiðbeiningum og aðstoð við hugsanlegt námskeiðahald. Aó lokum þetta: Ég nefndi ábyrgð löggjafarvalds og stjórnmálaflokka, og síðast en ekki síst nefndi ég okkar eigin ábyrgð gagnvart ís- lenskri tungu. Við höfum ekki leyfi til þess að fara illa með hana eða misnota. Ég ftreka ábyrgð fjölmiðlafólks, sem getur verið áhrifa- og ör- lagavaldur tungumálsins okkar, islenskunnar. — Þessa tungu talar lítil þjóð, aðeins um 250 þúsund manns. Hún verður fyrir stöðugu áreiti frá öðrum málheimum milljóna manna. Aldrei sem nú þurf- um við að standa vörð um hana, gæta hennar — því hún er verðmætasta eign þjóðarinnar. (Greinin byggist að hluta til á fyrirlestri sem greinar- höfundur hélt á ráðstefnu út- varpréttarnefndar um út- varpsmál þ. 3. okt. s.l.) SÉRFRÆÐINGUR MINN Guðmundur Einarsson skrifar „Sérfræðingur minn i ríkisstjórnum, sagði að i landinu væri ekki ein rikisstjórn við völd heldur þrir flokkar og þeirra ráðherrar," skrifar Guðmundur Einarsson m.a. í grein sinni. Athugun á ríkisstjórn Sérfræðingur minn í mann- réttindum sagði mér nýlega frá rannsóknum sínum á mannréttindabrotum i land- búnaði. Fyrst rakti hann fyrir mérdæmi um bændur, sem ekki fengu að vita hvað þeir mættu framleiða mikið fyrr en þeir voru búnir að fram- leiða það. Svo sagði hann mér dæmi um bændur, sem höfðu verið hvattir til að framleiða feitt kjöt þangað til þeim var sagt í upphafi slát- urtíðar eitt haust að feita kjötið yrði verðfellt. En skelfi- legasta sagan var af bónda, sem á örfáum árum hafði hrakist frá velsæld til ver- gangs. Hann lenti í niður- skurði og ýmisskonar nátt- úrulegri óáran. En þau nátt- úruöfl, sem trúlega riðu hon- um að fullu voru blýantsnag- arar í bændaforsjárkerfinu. Meðan afkomu hans hrak- aði stöðugt sendi hann ítar- legt bréf i Bændahöllina og fékk aldrei svar. Hann hringdi suðurog fékk aldrei úrlausn. Hann talaói við búnaðaryfir- völd í sinni sveit og fékk lítil svör og loðin. Sagan af efnahagslegu hruni heillar fjölskyldu og blómlegs bús var fólgin i einu bréfi, sem aldrei var svarað og símtölum sem hvergi voru skráð. Lærdómurinn er þessi: Bóndinn kunni að bregðast við duttlungum dýranna, veð- urs og moldar. En gagnvart duttlungum velgjörðarmanna sinna stóð hann ráðþrota. Sérfræðingur minn í þing- störfum spurði mig um dag- inn hvort Alþingi yrði ekki sett hálfum mánuði fyrren venjulega úr því að nýjar að- stæður leyfðu. Ég kannaðist ekki við neinar „nýjar að- stæður" sem vörðuðu sam- komudag Alþingis. Þá sagði hann að sauðfjárslátrun yrði trúlega hálfum mánuði fyrr á ferðinni en venjulega. Þá áttaði ég mig strax á málinu. Það hefur alltaf legið fyrir að starfstími Alþingis markast af hormónastarfsemi sauðkindarinnar. Þing hefst ekki á haustin fyrr en búið er að slátra, jóla- leyfi þingmanna miðast við fengitíma fjárins og á vorin er þinginu slitið fyrir sauð- burð. Þetta hefur valdið því að starfstími þingsins hefur ver- ið alltof stuttur. En nú horfir þetta semsagt til bóta með þingsetningu á haustin. Lærdómurinn er þessi: Næsta stórbreytingin á þingsköpum Alþingis verður trúlega þegar hormóna- svampar og tæknisæðingar gera styttingu jólaleyfis mögulegar. Sérfræðingur minn í rikis- stjórnum sagði mér nýlega frá athugun sinni á rikis- stjórn Þorsteins Pálssonar. Hann sagði það hafa komið í Ijós að í landinu væri ekki ein ríkisstjórn við völd heldur þrír flokkar og þeirra ráðherr- ar. Máli sínu til sönnunar rakti hann nokkurdæmi. Þegar Steingrímur Her- mannsson var lokaður inni á hóteli í Kanada, svo að menn gætu leyst hvalveiðideiluna í friöi fyrir honum, var talað um sigur Steingríms í máiinu en ekki ríkisstjórnarinnar. Þegar Jón Baldvin fór að framfylgja ríkisstjórnarsátt- málanum var talað um matar- skatta Jóns Baldvins en ekki ríkisstjórnarinnar. (Hér vantar dæmi um ráðherra Sjálfstæð- isflokks, en sérfræðingurinn gat ekki fundið að þeir hefðu gert neitt.) Hann sagði ennfremur að þótt í rikisstjórninni væru þrír talsmenn, þá ætti stjórn- in sjálf engan talsmann. Jón Baldvin talar fyrir hönd krata, Steingrímur fyrir hönd Fram- sóknar og ef Þorsteinn segði eitthvað, taldi sérfræðingur- inn trúlegast að það yrði fyrir hönd jsess hluta Sjálfstæðis- flokksins, sem lifði af deil- urnar um forseta sameinaðs þings. Þannig taldi sérfræðingur- inn augljóst að í raun væri ekki forsætisráðherra í land- inu, heldur sérstakur fundar- stjóri með ráðherratign og bílstjóra. Lærdómurinn er þessi: Til að koma í veg fyrir að menn gleymi hver er forsæt- •isráðherra, er öruggast að kjósa hann beinni kosningu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.