Alþýðublaðið - 09.10.1987, Síða 7
Föstudagur 9. október 1987
7
tlönd
Umsjón:
Ingibjörg
Árnadóttir
Veislunni
er lokið
Bob Fosse kvik-
myndaleikstjóri og
danshöfundur,
sem meöal annars
stjórnaöi kvik-
myndinni
„Cabaret“ vildi
reyna aö gera allt,
og tókst það að
mestu leyti.
Rauðsprengd augu, titr-
andi fingur fálma í öskubakk-
ann og finna stóran stubb
sem kveikt er í, reykurinn
sogaður niður í lungu. Tauga-
piliunum er skolað niður með
freyðandi Alka Selzer. Eftir
svolitla stund, undir köldu
sturtunni virðist smám sam-
an færast líf i úttaugaðan
skrokkinn.
„Showtime“, (sýning að
hefjast) hvislar rám röddin að
spegilmynd sinni.
Joe líður fjandi illa.
Og það á eftir að versna.
Danshöfundurinn fær hjarta-
áfall og dettur niður og á
skurðborðinu rennur lifsskeiö
hans ímyndum í gegn um
huga hans.
Þetta er atriði úr kvikmynd-
inni „All That Jazz“, Bob
Fosse var bæði höfundur
dansanna og kvikmyndaleik-
stjóri og myndin hefurverið
kölluð æviminning eða
dauðaminning (nekrologi)
hans sjálfs árið 1979.
Þann 24. september sl.
andaðist Bob Fosse, sextíu
ára gamall.
Með „All That Jazz“ var
Bob Fosse að gera úttekt á
lífi sínu. Þetta er fyrsti söng-
leikur (musical) um dauðann
sem sýndur hefur verið í
heiminum.
Dregnar eru hliðstæður
milli hins fárveika manns i
sótthreinsuðu andrúmslofti
skurðstofunnar og fáránleika
skrautfjaðranna og álagsins
á Broadway.
Persónan Joe, í kvikmynd-
inni er eins likur Bob Fosse
og hugsast getur, sömuleiðis
allur hans lífsmáti.
Barnastjarna
Bob Fosse ólst upp í heimi
söngleikja og var barna-
stjarna, sem söng og dans-
aði með föður sínum í litlu
söngleikjahúsunum í smá-
borgum víðs vegar um
Bandarikin. Seinna varð hann
skemmtikraftur i næturklúbb-
um, þar sem hann var meðal
annars dansfélagi fyrstu
konu sinnar. Um 1950 tékk
hann smáhlutverk í kvik-
myndum og þá sem dansari.
Hann vakti fyrst athygli, svo
nokkru næmi i „Kiss me
Kate“. Sem dansahöfundur
varð hann fyrst vel þekktur af
söngleiknum „Pajama Game“.
Frumraun Fosse sem kvik-
myndaleikstjóra var „Sweet
Charity", árið 1969, en hug-
myndinni að þeim söngleik
var nappað úr kvikmynd eftir
Fellini. Dansamir sem hann
samdi fyrir þann söngleik
þóttu góðir, en ekki mjög
frumlegir.
Heimsfrægðin kom með
söngleiknum „Cabaret", sem
fékk afbragðs dóma, bæði frá
listrænu sjónarmiði og vin-
sælda. „Cabaret", var sýndur
á Broadway og tekið fádæma
vel. Gerð var kvikmynd eftir
söngleiknum og Liza Minelli
lék og söng aðalhlutverkið
og hlaut heimsfrægð fyrir.
Nú var Bob Fosse talinn
vera einn besti dansahöfund-
ur í heimi og Oscars verð-
launum og gullpálmum rigndi
yfir hann, Broadway, Holly-
wood og yfirleitt flestir sem
eitthvað máttu sín í
skemmtanaiðnaðinum, vildu
fá hann til starfa. Honum var
illa við smjaður og fyrirleit
ríka fólkið i New York, sem
nú gat vart vatni haldið af
hrifningu sinni á honum.
Hann var „showman", sem
vildi sífellt prófa eitthvað
nýtt.
Skyndilega breytti hann
um stíl, hætti að semja
dansa og byrjaði að gera
kvikmynd um Lenny Bruce,
sem þá var látinn. Lenny
Bruce var afskaplega sérstak-
ur skemmtikraftur hann gerði
í því að hneyksla áheyrendur,
hann stakk á mörgum kýlum
í bandarísku þjóðfélagi, var
hinn mesti klámkjaftur, var
eiturlyfjaneytandi mikill og
lést að lokum af of stórum
skammti. Bob Fosse var mik-
ill aðdáandi Lenny Bruce og
vildi gera hann ódauðlegan
með kvikmyndinni, sem og
tókst, með Dustin Hoffman í
hlutverki Bruce.
Það var margt svipað með
Bob Fosse og Lenny Bruce,
þetta vilita og grófgerða.
Á meðan á töku myndar-
innar stóð, fékk Bob Fosse
alvarlegt hjartaáfall. Drykkja,
eiturlyf, sígarettur og vinnu-
álag hafði komið honum í
koll. Hann lifði þetta áfall af,
með margra mánaða sjúkra-
húslegu og eftir alvarlegan
hjartauppskurð.
Þá, alveg eins og í „Allt
That Jazz“, horfðist hann í
augu við dauðann.
Bob Fosse var bæði frama-
gjarn og atorkusamur. Vildi
gera allt og gaf skít í afleið-
ingarnar.
Hann hafði hug á að gera
kvikmynd um stúlku, sem
hafði „rétt“ útlit, „réttan"
líkamsvöxt, en lætur
óprúttna dela koma sér á
framfæri á niðurlægjandi
hátt. Talið er, aö hann hafi
haft i huga Hugh Heffner og
Playboy samsteypuna, en á
þvi liði hafði hann megnan
viðbjóð. Myndin átti að verða
einskonar uppgjör við „amer-
íska drauminn", þar sem oft
vill verða ytri fullkomleiki en
innra tóm.
Hinn „ameríski" draumur
Bob Fosse rættist. Honum
hlotnaðist frægð og frami, en
það varð honum dýrt.
„Það er showtime", hvíslaði
Joe rétt áður en hann datt
niður.
Veruleikinn varð svipaður,
Bob Fosse datt niður í leik-
húsinu þegar verið var að
' sviðsetja „Sweet Charity".
(Det fri Aktuelt)
Roy Schneider (stóra myndin) kvikmyndaleikarinn frægi, lék aðalhlut-
verkiö i kvikmyndinni „All That Jazz“, sem Fosse stjórnaði og byggði
raunverulega á sínu eigin lifi.
(Neðst) Liza Minelli og Bob Fosse slógu bæði i gegn, i kvikmyndinni
„Cabaret“.
Bob Fosse (efst) varð sextiu ára gamall.