Alþýðublaðið - 24.12.1987, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 24.12.1987, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 24. desember 1987 mBUBLMÐ Útgefandi: Blað hf. Framkvæmdastjóri Valdimar Jóhannesson Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson Umsjónarmaður helgarblaðs: Þorlákur Helgason Blaðamenn: Haukur Hólm, Ingibjörg Árnadóttir og Sigríður Þrúður Stefánsdóttir. Dreifingarstjóri: Þórdls Þórisdóttir Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12. Áskriftarsiminn er 681866. Áskriftargjald 600 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakió virka daga, 60 kr. um helgar. AÐ GLEYMA EKKIFOLKINU I dag er aöfangadagur jóla. í tæpan aldarfjórðung hefur Alþýöublaöiö ekki verið gefiö út á aðfangadag. Sú útgáfu- hefö er nú rofin meö vaxandi Alþýöublaöi. Á þessum dög- um er fátt sem minnir á jól eöa hátíðahald. Veðurfar hefur veriö meö eindæmum og jólin í ár eru ekki aðeins rauó heldur er tíðarfarið eins og aö vorlagi. Umsvifin og átökin í þjóðfélaginu eru ennfremur þess eölis að þjóöin hefur varla tíma til að rýmkatil fyrir jólahaldi, hvað þá njóta þess friðarog samverustundameö fjölskyldu og ástvinum sem þessirdagarársins bjóöa upp á samkvæmt hefö og venju. Streituafgreiösla frumvarpa og málþóf á Alþingi setur svip sinn á þessi jól og nú er Ijóst aö halda verður þing milli jóla og nýárs. Þaö er öllum hollt aö doka vió á jólunum og verja hluta þeirra til hugleiöslu um þessa hátíðardaga kristninnar. Hvaöa þýöingu hefur fæöing frelsarans fyrir íslendinga í dag? Hvaða hlutverki gegnir kirkjan í dag? Þaö er ekki síst hollt fyrir jafnaöarmenn aó lítayfirfarinn veg og spyrjasig hvort þeir séu sáttir viö þá farvegi sem jafnaðarstefnan hefur grafið sig í, bæði almennt í stefnumálum Alþýöu- flokksins og í ríkisstjórnarsamstarfi viö Sjálfstæöisflokk og Framsóknarflokk. Þaö er hart sótt að Alþýðuflokknum þessa dagana. Menn spyrja: Samræmist það jafnaöar- stefnu aö leggja matarskatt á almenning? Samræmist þaö hugjón jafnarstefnunnar aö leggja auknar álögur á al- þýöuheimilin? Er hávaxtastefnan að verða aöall jafnaðar- stefnunnar? Erdeyfö og áhugaleysi á örlögum og veruleik þriója heimsins í anda jafnaöarstefnu? Eru afvopnunar — og friðarmál ekki lengur áhugamál jafnaöarmanna? Eru jafnréttismál, dagvistunarmál og heilbrigðismál ásamt fé- lagsmálunum öllum að heltast úr lest jafnaðarmanna? Þaö er von aö fólk spyrji. Jafnaöarstefnan er nefnilega í eðli sínu alheimsstefna lýöræðis og jafnréttis, hún er hreyfing frelsis og bræðralags sem neitar ofbeldi, kúgun og óréttlæti. Jafnaöarstefnan íslenska hefur hins vegar fjarlægst uppruna sinn vegna aukinnar áherslu á lögmál hagfræói og markaðar með þeim afleiöingum aö skrif - finnskuleiðireru farnaraö einkenna Alþýðuflokkinn. Ríkis- stjórnarsarnstarfið hefur einnig reynst Alþýöuflokknum þungt i skauti.endaflokkurinn klemmdurmilli hagsmuna- gæsluflokkanna tveggja. Engu aó síöur hefur Alþýðu- flokkurinn verið drifaflið í þessari ríkisstjórn og átt allt frumkvæöi, bæði við gerö stjórnarsáttmálans og við fram- lagningu nýrra stjórnarfrumvarpa sem fela í sér jákvæðar breytingar fyrir íslenskt þjóðfélag. En forystumenn Al- þýðuflokksins veröa einnig að gera sér grein fyrir því aö þeir eru að fjarlægjast fólkið. í dægurbaráttu frumvarpa, málsþófs, ráöuneytaranghala og efnahagsaðgerða má forystusveit jafnaöarmanna aldrei gleyma fólkinu í land- inu. Afkoma þeirra og heill byggist ekki einungis á hag- fræðitölum og stuðlum. Forystusveit jafnaöarmanna má aldrei gleyma því að fólk finnur til og er lifandi verur, en ekki dauöar tölur. Kjarni allrar sannrar jafnaðarstefnu er að skilja mann- eskjunaog brotalamir hennar, eflasamstööu og rétta hlut þeirrasem minnamegasín. Jafnaöarstefnan erekki bund- in við eitt land, helduralheimshreyfing, lifandi og rík, sem réttir hendur sínar til hinna þjáðu, kúguöu og fátæku. Al- þýöublaöið óskar lesendum sínum og öllum landsmönn- um gleöilegra jóla. ÖNNUR SJÓNARMIÐ HELGARPÓSTURINN ■ birti í gær afar athyglisveröar qreinar um ofsóknir banda- riskra yfirvalda á McCarthy- tímanum gegn Halldóri Lax- ness rithöfundi og Nínu Tryggvadóttur listmálara. Of- sóknirnar voru skipulagöar af stórum hluta frá bandaríska sendiráðinu á íslandi í byrjun sjötta áratugarins. Skjálftinn gagnvart Nóbelsskáldinu var greinilega mjög mikill þegar Atómstöðin kom út. Helgar- pósturinn birtir skeyti frá bandaríska sendiráöinu í Reykjavík til utanríkisráöu- neytisins i Washington. Þar segirorörétt skv. Helgarpóst- inum: „Sendiráðinu sagt, að tónninn i henni sé heiftar- lega and-ameriskur og haldið sé fram þeirri kenningu, að við íslandi blasi tortíming í styrjöld, sem Bandaríkin séu að undirbúa (og ástæðan sé) tilvist herstöðvar á íslensku landsvæði." Og Helgarpósturinn skrifar í beinu framhaldi af þessu: „í framhaldi af þessu segir Trimble, að orðspor Halldórs Laxness myndi biða veruleg- an hnekki, ef við (Bandaríkja- menn) létum þaö vitnast, að Halldór væri skattsvikari. í samræmi við þetta gerir Trimble það að tillögu sinni, að hafin verði rannsókn á höfundargreiðslum til Hafl- dórs, að iikindum vegna Sjálfstæðs fólks, sem búið var að gef út í Bandaríkjun- um. í skýrslu frá sendiráðinu í Reykjavík er minnt á það, aö Sjálfstætt fólk hafi verið val- in Bók mánaðarins í hinum þekkta „Book-of-the-Month Club“ og fyrir vikið hafi Halldór og útgefandi hans fengið $80 þúsund. Í athugasemdum dr. George H. Reese, starfs- manns sendiráðsins i Reykja- vík, þar sem hann lætur í Ijós i skýrslu skoðanir á kommún- ískum áhrifum á íslandi og hvernig megi draga úr þeim, nefnir hann sérstaklega Halldór Laxness og kveðst fagna öllum hugmyndum, sem gætu komið kommúnist- um í bobba. „Mér dettur í hug „hlutlaus“ grein skrifuð í Bandarikjunum, þar sem Halldór Laxness væri lofað- ur...“ Síöan minnir hann á, að Sjálfstætt fólk hafi verið valin Bók mánaðarins, sem tákni að $80 þúsund skiptist á milli höfundar og útgef- anda, auk höfundarlauna handa Laxness og séu þetta tekjur að undanskildum tekj- um frá Bretlandi. Dr. Reese gengur svo langt, að stinga upp á fyrir- sögn að greininni: „Lítil þjóð auðug að menningu fæðir af sér rithöfund sem gerir það gott í listrænu og fjárhags- iegu tilliti.“ Síðan segir Dr. Reese: „Laxness er vel stæð- ur kommúnisti. íslendingar myndu kunna vel að meta meinhæðni greinarinnar. Nat Halldór: Átti að klina á hann skatt- svikum. Óskar: Gestur ekki sammála hon- um að Ólafur sé jafn stór og Hannibal og Héðinn. Barrows hjá Chicago News gæti gert þetta.“ Ekkert kom þó fram sem hægt var að nota gegn Hall- dóri Laxness. Þessar upplýs- ingar Helgarpóstsins eru ekki aöeins óhugnanlegar, heldur kasta svörtu Ijósi á starfsemi bandaríska sendi- ráösins á þessum myrku tím- um kalda stríðsins. En jafn- framt hljóta slíkar uppljóstr- anir aö vekja upp spurningar um eðli, tilgang og markmið sendiráða stórveldanna og umsvif þeirra hérlendis. ÓSKAR Guömundsson ritstjóri og blaðamaður hefur vakiö talsverðar umræöur með nýrri bók sinni „Alþýöu- bandalagiö — Átakasaga." Dómar eru nú farnir að birt- ast um bókina og sýnist sitt hverjum. Athyglisvert er aö þegar Þjóöviljinn loks birtir ritdóm, þá eru ekki hinir hag- vönu gagnrýnendur kallaöir til leiks eins og Árni Berg- mann sem les þó bækur ská- hallt fyrir jólin og var I Tíman- um kallaöur „Sjömyndamað- ur í jólabókastuði". (Þar sem Árni átti sjö ritdóma í einu tölublaði Þjóöviljans). Nei, fram á sviðið er kallaóur merkisberi 68-kynslóöarinnar, Gestur Guðmundsson, sem reyndar situr í stjórn Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík. Gestur, sem er ungur að ár- um, er þó ekki sammála Ósk- ari í söguskoðun hans á alla- böllum. Grípum niöur í dóms- glefsu: „Óskar hefur valið að tak- marka sjónarhorn sitt við at- burða- og persónusögu. Hann er fáorður um samfé- lagslegan bakgrunn þess valdaspils sem hann lýsir og gerir vanda Alþýðubanda- lagsins í stefnumótun ekki skipuleg skil. Þó koma eftir- farandi viðhorf mjög skýrt fram í bókinni: ASÍ-hluti verkalýðshreyfingarinnar er ekki lengur vettvangur fjölda- baráttu né baráttutæki verka- lýðs, heldur þunglamalegt skriffinnskuapparat. Alþýðu- bandalaginu ber að temja sér sjálfstæði gagnvart bæði verkalýðsforystu og flokki. Undirtóni skrifanna er kannski hægt að lýsa með hugtakinu „anarkókratismi". í efnahags- og atvinnumálum mælir Oskar með litlum rekstrareiningum, og geta lenínistar þar með stimplað Óskar sem „talsmann smá- borgaralegra viðhorfa." Óskar færir ekki mikil rök fyrir þessum viðhorfum enda er það ekki efni bókar hans. Hins vegar má segja að hann færi allsterk söguleg rök að gagnrýni sinni á starfshætti Alþýðubandalags og ASÍ-for- ystunnar. Sá málflutningur hefði þó orðið sterkari ef hann hefði verið studdur ein- hvers konar vísi að úttekt á þróun islensks samfélags. Skorturinn á slíkri greiningu verður til þess að ýmsar nið- urstöður og túlkanir eru ansi hæpnar. Þannig er þaö held- ur grunnfærið að líkja hlut- verki Ólafs Ragnars i Alþýðu- bandalaginu við hlutverk Héðins og Hannibals. Sam- félagsaðstæður eru ger- breyttar og verkefni og staða sósialísks flokks þar með.“ Þaö er greinilegt aö Ólafur Ragnar á enn erfitt uppdrátt- ar sem hinn eini, sanni, sterki leiðtogi. Einn með kaffinu Jólabjöllurnar glymja í dag. Engu aö síður eru margir að hugsa um nýju skattkortin sín og við birtum einn léttan í því tilefni. Niðurbrotinn maður kom til deildar- stjóra hjá Gjaldheimtunni og sagðist ekkert botna í þessum nýju skattkortum. Deildarstjórinn var greinilega stressaður vegna jólanna og álagsins sem fylgir hinu nýja skattkerfi, og hafði ekki mikinn tíma til að útskýra skattkortin fyrir manninum. Að lokum sagði maðurinn: — Ég er búinn að sitja hjá endurskoðandanum mín- um í allan dag og hef enn ekki fattað þetta nýja stað- greiðslukerfi. — Það er ekki mér að kenna, svaraði deildarstjórinn. — Endurskoðandinn gaf mér þó heilræði, sagði maðurinn. — Hvaða bölvaða, heimskulega ráð var það? — Að leita ráða hjá þér, svaraði maðurinn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.