Alþýðublaðið - 24.12.1987, Qupperneq 3
Fimmtudagur 24. desember 1987
3
FRÉTTIR
Húsnœðisfrumvarpið og lífeyrissjóðirnir:
BIÐUM EFTIR REGLUGERÐINNI
segir Hrafn Magnússon, framkvœmdastjóri Sambands almennra lífeyrissjóða.
Við munum biða eftir
regiugerðinni og ráðfæra
okkur siðan við lífeyrissjóð-
ina um næstu skref í málinu
sagði Hrafn Magnússon,
framkvæmdastjóri Sambands
almennra lifeyrissjóða, SAL,
er Alþýðublaðið spurði hann
um næstu aðgeröir í samn-
ingaumleitunum lífeyrissjóð-
anna og Húsnæðisstofnunar,
nú þegar Húsnæðisfrumvarp-
iö er orðið að lögum.
Búist er við að reglugeröin
komi út mjög fljótlega og
sagði Hrafn að auk þess að
bíða eftir henni mundu þeir
kanna viðbrögð Alþýðu-
sambandsins og Vinnuveit-
endasambandsins til lag-
anna.
Hver einstök Iifeyrissjóöa-
stjórn tekur sjálfstæða
ákvörðun, sagði Pétur, en ég
hef trú á því að menn vilji
bera saman bækur sínar áður
en nokkuð annað er gert.
Sagði Hrafn að ekki mætti
þó skilja orð sin á þann veg
að verið væri að leggja stein
í götu húsnæðiskerfisins
heldur vildu þeir hjá SAL ekki
brenna sig á sama soðinu.
„Við mæltum með undirskrift
i haust vegna þess að við
stóðum i þeirri trú að það
ætti aö afgreiða lánsloforð
eins fljótt og auðið var. Síðan
ákváðu stjórnvöld að fresta
útgáfu lánsloforða þar'til
breytingar yrðu gerðar á lög-
um“ sagði Hrafn Magnússon.
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra:
KVÓTAFRUMVARPIÐ AB
LÖGUM FYRIR ÁRAMÓT
— Efnisrök þurfa að vera mikil til þess að
breyta frumvarpinu á þessu stigi, segir
sjá varútvegsráðherra.
Bubbi Morthens.
Nýtt íslandsmet:
BUBBIí 20 ÞÚSUND
EINTÖKUM FYRIR JÓL
Útlit er fyrir aö yfir 20 þús-
und eintök seljist fyrir jól af
hljómplötunni Dögun með
Bubba Morthens. „Önnur
eins sala er óþekkt í allri
íslandssögunni,11 sagði Hjört-
ur Jónsson hjá Gramminu í
samtali við Alþýðublaðið i
gær.
Hjörtur sagði að fyrir
gærdaginn hefðu tæplega 19
þúsund eintök verið farin í
dreifingu og í gær dreifði
Grammið 1600 eintökum til
viðbótar, en platan var þá
víða uppseld.
Dögun virðist því ætla að
verða langsöluhæsta hljóm-
platan í ár, því talið er að
aðrar hljómplötur seljist und
ir 10 þúsund eintökum. Sið-
asta hljómplata Bubba
Morthens, Frelsi til sölu, hef-
ur selst í um 17 þúsund ein-
tökum.
Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra á von á því að
kvótafrumvarpið verði sam-
þykkt fyrir áramót og segir
að efnisrök þurfi að vera
mikil til að breyta frumvarp-
inu á þessu stigi. Hann telur
að hlutur smábátasjómanna
sé aö mörgu leyti betri en
annarra sjómanna, og segist
ekki gera sér grein fyrir hvers
vegna þeir séu óánægðir
enda hafi það aldrei verið
skýrt fyrir sér.
I samtali við Alþýðublaðið
sagði Halldór að hann gerði
sér ekki almennilega grein
fyrir því hvað menn vildu
þegar þeir væru að gagnrýna
10. gein kvótafrumvarpsins,
en hún fjallar um smábáta.
„Þeir bátar sem stunda línu
og handfæri hafa tiltölulega
mikið frelsi og ég tel þeirra
kost vera góðan miðað vió
aðra.“ Þeir sem stundi neta-
veiðar fái kvóta sem nemi
90% af bestu tveimur af sl.
þremur árum, og þar að auki
sé helmingur af línuafla í
nóvember til febrúar utan
kvóta. „Ég get ekki séð betur
en að viðkomandi aðilar geti
verið ánægöir með það.“
Ákveðið verður í reglugerð
hver verður meðaltalsafli
þeirra sem ekki hafa róið sl.
þrjú ár.
Sagðist Halldór telja hlut
þessara aðila á margan hátt
betri en margra annarra sjó-
manna og eftir því sem veiði-
heimildir þessa flokks væru
rýmkaðar, því meiri yrði ó-
samræmið. „Ég átta mig ekki
á því hvar öll þessi ósann-
girni kemur fram, enda hefur
Halldór Ásgrimsson.
hún ekki verið skýrð fyrir
mér.“
Sagði hann að kvótafrum-
varpið hafi verið rætt ítarlega
og ýmsar breytingar hafa
verið gerðar á því. „Ég tel að
það þurfi að vera mikil efnis-
leg rök til aö gera breytingar
á frumvarpinu þegar það er
komið svona langt.“ Þá sagói
Halldór mjög brýnt að af-
greiða frumvarpið fyrir ára-
mót oy það hafi verið Ijóst
allan tímann. Afgreiðslan
verði þó að tryggja að inn-
byrðis samræmi sé með veið-
ar allra skipa í flotanum,
uppistaða aflans sé hluti
annarra skipa en smábáta.
— Áttu von á að frumvarp-
ið verði samþykkt fyrir ára-
mót?
„Já, ég á von á því.“
Skúlagata:
SÓTT IIM LEYFI FYRIR BYGGINGU ÍBÚÐAHÚTELS
Byggingafélagiö Dögun
hefur sótt um aö fá aö byggja
íbúöahótel á Laugavegi 148
eöa á Klapparstíg 1. Yröu þaö
notað sem hótel á sumrin, en
gæti nýst sem námsmanna-
íbúöir á veturna.
Eins og Alþýðublaðið
greindi frá I fyrradag hafa
átta aðilar sýnt áhuga á að fá
að byggja á Klapparstíg 1
(Völundarlóð) eða Laugavegi
148 (Timburverslun Arna
Jónssonar). Meðal þeirra eru
Dögun og Steintak.
Hjörtur Aðalsteinsson hjá
Dögun sagði í samtali við Al-
þýðublaðið að þeir hefðu
meiri áhuga á lóðinni á
Laugavegi, en sóttu um Völ-
undarlóðina til vara. Vitað
væri aö mun fleiri hefðu
áhuga á henni. Sagði hann
að byggt yrði íbúðahótel á
lóðinni ef hún fengist.
Fyrirmyndin að íbúðahóteli
er sótt erlendis og yrðu fyrir-
komulagið þannig að íbúðirn-
ar yrðu seldar með húsgögn-
um. Þær yrðu notaðar sem
hótel á sumrin, en á veturna
væri hægt að nota þær sem
námsmannaíbúðir. Sveitarfé-
lög gætu t. d. keypt eina íbúð
hvert. „Þetta bætir mjög úr
brýnni þörf fyrir Iausar leigu-
íbúðir." Bifreiöageymsla yrði
niðurgrafin og yrðu 60—70
íbúðir i húsinu og yrói hæð
hússins í samræmi við húsin
í kring. Sagðist Hjörtur ekki
vera mjög bjartsýnn á að fá
aðra hvora lóðina.
Vignir Benediktsson hjá
Steintaki hf. sagði að þeir
hefðu áhuga á Völundarlóð-
inni og hefðu verið fyrstir
byggingafyrirtækja til að
sækja um hana. Yrðu þetta
nokkur hús sem mynduðu
eins konar kjarna og væri
gert ráð fyrir um 100 ibúðum
og væri meðal stærð þeirra
um 97 fermetrar.
Sagði Vignir að sér þætti
spennandi þessi frumraun að
byggja nýtt hverfi inn í
gamalt hverfi. „Það verður
gaman að sjá hvort fólk nær
því að sjá Skúlagötu öðruvísi
en verksmiðjuhús og sjávar-
löður.“