Alþýðublaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 3
Hmmtudagur 14. janúar 1988 3 FRÉTTIR Ríkisstjórnin: OLLUM RADIIM VERÐI REITT GEGN ÓÞARFA VERDHJEKKUNUM Verðlagsstofnun leyft að grípa til tímabundinnar hámarksálagningar ef þörf krefur. A fundi ríkisstjórnar á þriöjudag var fjallad um þær veröbreytingar sem fylgt hafa í kjölfar breytinga á tollum og vörugjöldum, söluskatt- skyldu og niðurgreiðlsum, sem gildi tóku um áramótin. ítrekaði rikisstjórnin tilmæli þau er viðskiptaráðherra beindi til Verðlagsráðs, að það beitti öllum þeim ráðum sem lög leyfa til þess að tryggja að skattalækkanir skiluðu sér að fullu i lækkun verðs til neytenda. Jafnframt að hækkun vöruverðs vegna skattbreytinga fari hvergi fram úr því sem hækkun skatta gefur tilefni til. í samtali við Alþýðublaðið sagði Jón Sigurðsson við- skiptaráðherra: „Með þessu og frekari aðgerðum viljum við tryggja að hagsmunir neytenda verði ekki fyrir borð bornir. Skattabreytingar eiga þess vegna ekki að verða skálkaskjól til verðbreytinga, sem þær hafa ekki gefið til- efni til.“ Viðskiptaráðherra sendi Verðlagsráði bréf um að.það beitti öllum ráðum, þar með talinn timabundin ákvæði um hámarksálagningu, til þess að tryggja að skattalækkanir skili sér í iægra vöruveröi til neytenda. Ennfremur hafði ráðherra sent verðlagsráði bréf í byrjun desember þar sem óskað var eftir því að Verðlagsstofnun gerði sér- stakar kannanir á vöruverði I tengslum við þessar breyt- ingarog kæmi niðurstöðum jafnharðan á framfæri opin- berlega. Var þetta mál rætt 1 .Verðlagsráöi um miðjan desember. Á miðnætti i gær var húsið við Tjarnargötu 11, sem elli- og félagsmáladeild Reykjavikurborgar hefur haft aðsetur í, flutt af þeirri lóð á gömlu Tivolilóðina í Vatnsmýrinni, þar sem það mun standa á einhvers konar uppistöðum. í gær unnu menn að þvi að ganga frá grunninum, undir flutninginn. A-mynd/Róbert. Frá Jóhanni Möller fréttaritara: SÍglufjÖrðUr: MISSA 20-25 MANNS ATVINNU? HÆKKANIR HJÁ PÓSTI 0G SÍMA 15. janúar n.k. hækkar póst- og símaþjónusta að meðaltali um 20%. Einstakir liðir hækka mismunandi, en stofngjald síma hækkar úr 5.500 kr. í 6.650 kr., ársfjórö- ungsgjald úr 641 kr. í 775 kr. og verð á teljaraskrefi úr 1,56 kr. í 1,90 kr. ? Fjöldi innifalinna skrefa er óbreyttur og með sama fyrir- komulagi og áður. Flutningsgjald innan sama símstöðvarsvæðis hækkar úr 2.750 kr. f 3.325 kr. Stofngjald farsfma hækkar úr 5.500 kr. f 7.300 kr. og árs- fjórðungsgjald úr 641 kr. I 850 kr. Mfnútugjald hækkar úr 7,80 kr. f 10,35 kr. Söluskattur er ekki innifal- inn f framangreindum gjöld- um. Þjónustugjöld til útlanda hækka minna. Þannig hækka t.d. sfmtöl til Danmerkur, Noregs og Sviþjóðar úr 38 kr. á mfn. f 45 kr., sfmtöl til Bret- lands úr 43 kr. f 51 kr. Sfmtöl til Bandarlkjanna hækka úr 85 kr. f 92 kr. og til Kanada úr 77 kr. f 80 kr. Sem dæmi um hækkun póstburöargjalda má nefna að 20 gr bréf innanlands og til Norðurlanda hækkar úr 13 kr. f 16 kr., og til annarra landa ( Evrópu úr 17 kr. ( 21 kr. Innborgunarglróseðill hækkar úr 20 kr. f 25 kr. Inn- rituð blöð og timarit undir 20 gr hækka úr 2,40 í 4,00 kr. og undir 100 gr úr 2,40 f 4,50 kr. Húsnæðislögin: REGLUGERÐIN TIL SKODUNAR Félagsmálaráðuneytið hefur, samkvæmt heimildum Alþýðublaðsins, lokið við gerð reglugerðar sem varðar útlán Húsnæðisstofnunar rik- isins. Reglugerðarinnar hefur verið beðið með töluverðri eftirvæntingu. Lffeyrissjóð- irnir vilja m.a. vita þann tón sem þar er gefinn f hús- næðislánakerfinu áðuren þeir ganga til samninga um skuldabréfakaup. Reglugerð- in mun vera til nánari umfjöll- unar hjá flokkunum. Stjórn Sölustofnun Lag- metis mun í dag taka fyrir umsókn nýstofnaðs fyrirtæk- is á Siglufirði, Sild hf. á yfir- töku gaffalbita-samnings við Sovétrikin, sem Sigló hf. hafði. Þessi gaffalbitafram- ieiðsla hefur verið starfrækt hér i Siglufirði i aldarfjórð- ung. Hluthafar Sfldar hf. eru Kristján Jónsson og Co. á Akureyri, Verkalýðsfélagið Vaka Siglufiröi, Siglufjarðar- bær og starfsmenn sem unn- ið hafa hjá Sigló hf. Fái hið nýja fyrirtæki framleiðslurétt- in á gaffalbitum sem Sigló hf. hafði, hyggst félagið hefja almenna hlutafjársöfnun og reisa hér hús undir starfsemi sfna er veiti 25—30 manns atvinnu eins og Sigló gerði í gaffalbitaframleiöslunni. Núverandi eigendur Sigló hf. seldu öllum að óvörum gaffalbitavélar og fram- leiðsluréttinn á gaffalbitum til Sovétríkjanna rétt fyrir jól- in kaupfélagsfyrirtæki á Höfn í Hornafirði, og var starfsfólki sem þar vinnur ekki sagt frá sölunni, né heldur atvinnu- málanefnd Siglufjarðar fyrr en sölusamningurinn hafði verið undirritaöur. Núverandi eigendur Sigló hf. keyptu fyrirtækið af rfkissjóði 17. des . 1983 á vildarkjörum. Þá undirrituöu þeir eftirfar- andi skuldbindingu m.a. við seljandann, rlkissjóð. „Kaup- andi lofar að starfrækja rækjuvinnslu og sildarniður- lagningu áfram í hinum keyptu eignum. Hann lofar einnig að skapa eins mikla vinnu og honum er frekast unnt á Siglufirði, bæði við frystingu, niöursuðu og nið- urlagningu. Kaupandaer Ijós sá megin tilgangur seljanda að tryggja atvinnuástandið á Siglufiröi sem allra best og lofar að vinna f þeim anda.“ Bréfaskipti hafa farið fram á milli fjármálaráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins um þessa sölu og i svari fjár- málaráðuneytisins frá 18. des. sl. er eftirfarandi tekið fram. 1. Ráðuneytið telur óæski- legt aö atvinnutækifæri á þessu sviði verði flutt frá Siglufirði og telur að það sé ekki i anda kaupsamn- ingsins frá 17. desember 1983. 2. Fjármálaráðuneytið bendir á, að nýstofnaö er fyrir- tæki á Siglufirði sem lýst hefur áhuga á að haida umræddum rekstri áfram þar i bæ. 3. Ráöuneytið vill undirstrika að sala á þeim tækjum og búnaði sem hér um ræðir felur á engan hátt I sér sjálfkrafa yfirfærslu á framleiðslurétti á gaffalbit- um sem Sigló hf. og fyrir- rennari þess fyrirtækis hefur haft á hendi á Siglu- firöi á þriðja áratug. í lok bréfsins beinir fjár- málaráðuneytiö þvf til iönað- arráðuneytisins aö það kanni til hlftar alla möguleika á far- sælli lausn málsins. Með þessar staðreyndir f huga vilja Siglfirðingar ekki trúa þvf, að stjórn Sölustofn- unar Lagmetis stuðli að þvi að framleiðsluréttur á gaffal- bitaframleiðslu Sigló hf. verði seldur úr bænum, enda væri það ekki ( samræmi við það meginmarkmiö sem tilgreint er í upphaflegum kaupsamn- ingi rfkissjóös og Sigló hf., það er að efla og styrkja fjöl- breytni atvinnulffs á Siglu- firði. VEÐUR KOM í VEG FYRIR FUND Veður kom i veg fyrir að Al- þýðusamband Vestfjarða og vinnuveitendur gætu haldið samningafund í gær eins og ráðgert hafði verið. Annar fundur hefur verið boðaður klukkan 14 í dag. Jón Páll Halldórsson for- maður Vinnuveitendafélags Vestfjarða sagði í samtali við Alþýðublaðiö að veður hafi verið kolvitlaust og fundar- menn því ekki getað komist. í dag væri hins vegar mokst- ursdagur og þvf væri áætlað aö halda fund klukkan 14 f dag. LÖGRERG LJÓSPRENTAÐ í tilefni af aldrafmælis Vestur-fslenska vikublaðsins „Lögbergs" í Winnepeg, sem er í dag, hefur Þjóöræknisfé- lagið á Akureyri Ijósprentað 1. tbl. „Lögbergs" á mynda- pappfr, en þaö kom út f Winnepeg 14. janúar 1888. Einnig kemur út á næstunni, annað blað á vegum félags- ins, „Lögberg f 100 ár“. Verður þar saga blaösins rakin lauslega og birtar afmæliskveðjur frá velunnur- um og vinum þess, bæði ein- staklingum og fyrirtækjum. Allur ágóði, sem verða kann, af útgáfu blaðanna rennur til „Lögbirtingar—Heims- kringlu" í Winnepeg. LÁNSFJÁRLÖG ÞOKAST ÁFRAM Þriðju umræðu i neðri deild Alþingis um frumvarp til lánsfjárlaga lauk I gær með atkvæða- greiðslu. Frumvarpinu var vfs- að til efri deildar, þar sem það verður að líkindum til umræðu fram yfir þinghlé sem hefst á föstudag og lýk- ur 1. febrúar. Frumvarpi um breytingar á lögum um verkaskiptingu rfkis og sveitarfélaga var hins vegar vlsað aftur til umfjöll- unar f félagsmálanefnd neðri deildar, að lokinni annarri umræðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.