Alþýðublaðið - 15.01.1988, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 15.01.1988, Qupperneq 6
6 Föstudagur 15. janúar 1988 SMÁFRÉTTIR Peter Guth, stjórnandi á Vínartón- leikum Sinfóníuhljómsveitar ís- lands. Arlegir Vínar- tónleikar Sinfóníunnar Árlegir Vínartónleikar Sin- fóníuhljómsveitar íslands veröa haldnir í íþróttahúsinu á Akranesi föstudaginn 15. janúar kl. 20:30 og endurtekn- ir í Háskólabiói á laugardag klukkan 17.00. Aö vanda verö- ur efnisskrá við allra hæfi og fjölbreyttur tónlistarflutning- ur. Meö hljómsveitinni syngja Kór Fjölbrautaskólans á Akranesi og kirkjukórinn þar og einsöngvari er hin korn- unga austuríska sópransöng- kona Sylvana Dussmann. Stjórnandi átónleikunum veröur austuríski stjórnand- inn og fiölusnillingurinn Peter Guth, en kórstjóri er Jón Ólafur Sigurösson. Á efnisskrá veröa vinsælir polkar og valsar eftir Johann Strauss yr.gri og eldri og flutt verk úr óperunum Leöur- blökunni og Sígaunabarónin- um. Til dæmis veröur fluttur valsinn „An derSchönen Blaue Donau“ fyrir kór og hljómsveit. Stjórnandinn, Peter Guth, á litríkan feril aö baki sem fiðluleikari og stjórnandi. Hann nam fyrst fiðluleik í Vinarborg og síðar í þrjú ár í Moskvu hjá David Oistrach. Hann hefur tekið þátt i tón- leikaferðum um allan heim, leikiö inn á hljómplötur og unniö viö kennslu og kynnt nýja fiðlutækni. Hann er mikill áhugamaöur um sam- tíðartónlist, en samt ekki síö- ur þekktur fyrir flutning á Vínartónlist. Næturgali á Sögu „Næturgalinn- ekki dauður enn,“ er heiti á söngleik, sem frumsýndur verður í Súlnasal laugardaginn 6. febrúar. í kynningu Hótels Sögu á þessum nýja söngleik segir meóal annars: „Söguþráðurinn er örlaga- saga hinnar íslensku popp- hetju, sem þráir frægö og frama. Sígildar dægurperlur Magnúsar Eirikssonar mynda rammann um söguna. Sagan af ungum manni á þyrnum stráðri framabraut. Þráir aö verða Næturgali, en verður nætur-galinn. Tónlistarperlur Magnúsar Eiríkssonar í gegn um tiöina. Stórstjörnurnar Pálmi Gunn- arsson og Jóhanna Linnet ( aöalhlutverkum. Tónlistar- flutningur i öruggum hönd- um hljómsveitar Magnúsar Kjartanssonar. Sagan um vonir og þrár, ástir og átök, og um leiðina heim. Saganlætur engan ósnortinn og tónlistin heldur lengi áfram aö hljóma hiö innra.“ Nýtt met hjá Álverinu Framleidsla áiversins í Straumsvík áriö 1987 var 84.579 tonn og er þaö nýtt met í framleiðslu. Seld voru tæp 90.000 tonn af áii og út- flutningur nam rúmlega 89.000 tonnum. Kom þetta fram á blaðamannafundi er forsvarsmenn álversins héldu í Straumsvík í gær. Á árinu 1987 var álverð lágt og meðalverð á síöasta árs- fjórðungi fyrir staögreitt ál- tonn var 800 sterlingspund. Framan af árinu hækkaöi ál- verð rólega en féll síöan aftur í nóvember. í desember var verðiö, að meðaltali 994 GBP/tonn þ.e. samkvæmt skráningu London Metal Exchange (GBP). Fyrstu dag- ana í janúar var veröið á milli 1070 og 1080 GBP/tonn. Forsvarsmenn ISAL segja aö batinn á álmarkaðnum og viöbótar rekstrarfé hafi komið fram í afkomu ISAL, og því er gert ráð fyrir aö 1987 veröi lítilsháttar hagnaöur eftir skatt. Hafa þá afskriftir fasta- fjármuna aö upphæö kr. 235 milljónir veriö gjaldfærðar. Þá er talið aö afkoma heföi þó verið betri ef ekki heföu komið til rekstrarerfiðleikar vegna ófullnægjandi skauta. Kerrekstur olli erfiöleikum, sl. sumar, vegna ófullnægj- andi forskauta en i septem- ber og október breyttist rekstrarstaðan smám saman og var oröin eölileg i nóvem- ber. Heildarframleiðsla ársins varð því 84.579 tónn og er þaö mesta framleiðsla á einu ári í sögu íslenska Álfélags- ins. Seld voru 86.608 tonn af áli að verömæti 5,2 milljarðar króna og útflutningur nam 89.166 tonnum. Sala og út- flutningur umfarm fram- leiöslu stafaði af birgöalækk- un og fyrirframsölu. Steypuskálar stækkaðir í álverinu Ráögert er aö bæta viö einni svokallaöri sísteypuvél i steypuskála álversins, til aö mæta kröfum viðskiptavina um meira af börrum og stöngum. 1987 var um það bil 66% af framleiðslu ISAL málmur, sem viðskiptavinirnir nota beint í eigin framleiðslu án umbræðslu. Nýja steypu- llnan á að hafa um þaö bil 80 þús. tonna afkastagetu á ári. Meö þessari viöbót veröur hægt aö steypa alla fram- leiðsluna i völsunarbarra og þrýstimótunarstangir, sem notendur vinna úr án um- bræðslu. Meö þessum hætti eykst verðmæti framleiðslu ISAL verulega, þ.e.a.s. þegar allur málmur verður steyptur til beinvinnslu án um- bræðslu. Nýja steypulínan krefst stækkunar húsnæðis og veröur viðbótin við steypu- skálann rúmlega 1000 mJ að stærö. Áætlað er aö þessi framkvæmd kosti um 380 milljónir króna og aö verkinu Ijúki á tveimur árum. Aö af hálfu ALUSUISSE er ekki fyrirhugaö aö stækka kerskálana frekar nú, hvað sem síðar kann aö verða, ef áhugi stjórnvalda helst. Hins vegar hefur ALUSUISSE lýst sig reiðubúið til samstarfs við aðila, sem vildu fjár- magna stækkun álversins og gætu séö um sölu á viðbótar- framleiöslu, sem meö stækk- uninni fengist. R«l ^ _ ^ A r t|f Utboð Innkaupstofnun Reykjavfkurborgar fyrir hönd Hita- veitu Reykjavfkur, óskareftirtilboðum i uppsetningu ( 9 stykki hitablásara f birgðarskemmu á Nesjavöll- um og tengingu þeirra við hitaveitu á staðnum. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, að Fri- kirkjuvegi 3, Reykjavik gegn kr. 5.000,00 skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudginn 3. febrúar kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Poslholf 878 — 101 Reykjavik ^ RARIK ÚTBOÐ Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftir- farandi: RARIK 88002 raflínuvir 101 km. Opnunardagur: þriðjudagur 16. febrúar 1988 kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyrir opnunar- tímaog verða þau opnuð á samastað að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmangsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með fimmtudeginum 14. janúar 1988 og kosta kr. 300.00 hvert eintak. Rafmagnsveitur ríkisins, Laugavegi 118 105 Reykjavík Fræðsluskrifstofa Reykjavíkurumdæmis og Sálfræðideild skóla hafa flutt frá Tjarnargötu 20 að Austurstræti 14. Fræðsluskrifstofan er á 5. hæð og Sálfræðideildin á 4. hæð. Símanúmer er óbreytt 621559. Alþýðuflokksfólk Hafnarfirði Fundur í bæjarmálaráði Alþýðuflokksins í Hafnar- firði næst komandi mánudagskvöld 18. jan. I Alþýðu- húsinu kl. 20.30. Fundarefni: Fjárhagsáætlun bæjarins. Stjórnin Aðalfundur FUJ í Reykjavík Aðalfundur FUJ í Reykjavík verður haldinn í Litlu- Brekku klukkan 20.15 mánudaginn 18. janúar næst- komandi. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál. Félagar hvattir til þess að mæta. Stjórnin Flokksstjórn Alþýðuflokksins Fundur flokksstjórnarAlþýðuflokksins verður hald- inn laugardaginn 16. jan. n. k. kl. 11—16 á Hótel Sögu Dagskrá: Kl. 11 Stjómmálaástandið — Jón Baldvin Hannibals- son formaður Alþýðuflokksins. Kl. 12. Léttur hádegisveröur. Kl. 13—16 Verkefni til vors. 1. Dómsmál 2. Húsnæðismál 3. Fólk og fyrirtæki (launamál, gengi og vextir). Formaður Alþýðuflokksins.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.