Alþýðublaðið - 28.01.1988, Qupperneq 1
Efnahagsmálin
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
UNDIRBÝR STÓRAÐGERÐIR
i fjármálaráðuneytinu er til-
lögugerð á lokastigi um að-
gerðir af hálfu ríkisstjórnar til
að styrkja stöðuna í efna-
hagsmálum. Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráð-
herra segir aðgerðirnar til
þess fallnar að leiðrétta að
nokkru misvægið milli at-
vinnugreina í landinu, rétta
hlut fiskvinnslunnar og draga
úr kapphiaupinu eftir fjár-
magni og vinnuafii, sem sé
einn helsti þensluvaldurinn á
höfuðborgarsvæðinu. Tillög-
urnar snúast aðallega um
fernt: Endurgreiðslur á upp-
söfnuöum söluskatti í sjávar-
útvegi. Skuldbreytingar i
sjávarútvegi. Breyttar starfs-
reglur Verðjöfnunarsjóðs.
Heildarendurskoðun á fjár-
festingaráformum opinberra
aðila, rikis, sveitarfélga og
atvinnulífsins. Þar á meðal
telur fjármálaráðherra brýnt
að hefja ekki á ný útgáfu nið-
urgreiddra lánsloforða til
húsnæðismála í óbreyttu
kerfi.
í samtali við Alþýðublað-
ið í gær sagði Jón Baldvin að
varðandi endurgreiðslur á
uppsöfnuðum söluskatti
bæri að athuga að hinar
ýmsu greinar sjávarútvegsins
væru misjafnlega á vegi
staddar: „Útgerðin stendur
bærilega. Það sést best á
fjárfestingaráformum um ný-
smíði og meiriháttar endur-
bætur á fiskiskipum, sem
áætlað er að nemi á fimmta
milljarð króna, að langmestu
leyti fjármagnað með erlend-
um lánum.“ Fjármálaráöherra
sagði að þessi fjárfestingar-
áform væru verulega stór
hluti af þeim tölum sem birt-
ar hafa verið um óhæfilegan
viðskiptahalla. í Ijósi sam-
dráttar afla og mikillar verð-
bólguþenslu, væri þvi ein-
sýnt að endurskoða þessi
áform og fresta þeim.“ Endur-
greiðsla á söluskatti ætti þvi
fyrst og fremst að beinast til
þeirra greina, eins og fryst-
ingarog loðnuafurða, sem
bágasta hafa afkomu."
Arið 1984 fengu fyrirtæki i
sjávarútvegi skuldbreytingu til
þriggja ára á opinberum
gjöldum. Uppi eru tillögur um
að lengja lánstíma, fresta
vaxtagreiöslum fram að árinu
1989. Að sögn Jóns Baldvins
er um að ræða fjárhæðir sem
nema um 400—500 milljón-
um króna.
Þriðja aögerðin felst í
breyttum starfsreglum Verð-
jöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins
og fjóróa meginatriðið snýst
um heildarendurskoðun á
fjárfestingaráformum opin-
berra aðila, ríkis, sveitarfé-
laga og atvinnulífsins. Um er
að ræða lánsfjármögnuð fjár-
festingaráform, aðila eins og
Landsvirkjunar, Pósts og
síma, sveitarféíaga og einka-
aðila. Jón Baldvin sagði
einnig ástæðu til að endur-
skoða áform um fjárfestingar
í samgöngumannvirkjum.
„Auk þess er brýnt að draga
úr þenslu með því að hefja
ekki á ný útgáfu niður-
greiddra lánsloforða til hús-
næðismála i óbreyttu kerfi.
Einkum og sér í lagi þar sem
risavaxinn niðurgreiðsla
þessara lána og látlaus eftir-
spurn eftir fjármagni, á stór-
an þátt í aö spenna upp vexti
á fjármagni í landinu."
Jón Baldvin sagði að end-
anlegar ákvarðanir um út-
færslu á slíkwm aðgerðum
yrðu að sjálfsögðu ekki tekn-
ar fyrr en liggi fyrir hvaöa
þróun kjaramálin.taka. „Það
er ekki unnt að grípa til slíkra
almennra aðgerða á grund-
velli kjarasamninga í einum
landshluta og það er að sjálf-
sögðu einnig erfitt að gera
það ef einungis er verið að
tala um samningatil örfárra
mánaða. Ákvarðana er því
ekki að vænta fyrr en þau
mál hafa skýrst betur,“ sagði
fjármálaráðherra.
Aðspurður um kjarasamn-
ingana á Vestfjörðum sagði
Jón Baldvin, að þeir sem
harðast gagnrýndu þá samn-
inga, þeirra á meðal ýmsir
sem síst skyldi, ættu að
reyna að setja sig i spor
Vestfirðinga.
„Vestfjarðarsamningarnir
eru um það, að leiðrétta kjör
verkafólks almennt til jafns
við BSRB-samningana og
tryggja fiskvinnslufólki sér-
staklega leiðréttingu sinna
mála. Það er gert með nám-
skeiðsálaginu.. Starfsaldurs-
álögum og þeim ávinningi
sem frystiiðnaðurinn á Vest-
fjörðum telur sig geta tryggt
sínu fólki með nýju hluta-
skiptafyrirkomulagi eða hóp-
bónuskerfi í stað gamla
bónuskerfisins."
Þá sagði Jón Baldvin að
fulltrúar vinnslunnar ög vinn-
andi fólk hefði sameinast um
að gera samning sem vitandi
vits væri gerður á plani hins
raunverulega, þótt vafalaust
væri boginn spennturtil hins
ítrasta miðað við greiðslu-
getu í rekstri sem rekinn
væri með halla.
Barnabœtur
700 MILLJ.
SENDAR ÚT
Sendar hafa verið út ávís-
anir vegna barnabóta tii tæp-
lega 69 þúsund aðila, að upp-
hæö 575 milljónir króna. Enn-
fremur er i vinnslu útborgun
barnabótaauka, sem þýðir að
í heild verði greidd út upp-
hæð á bilinu 650 til 700 millj-
ónir króna vegna barnabóta
og barnabótaauka.
Barnabætur hjóna með 1
barn eldra en sjö ára eru í ár
17.888 krónur, en voru í fyrra
12.625 krónur. Fyrir annað
barn og fleiri eru greiddar
26.832 krónur en í fyrra 18.910
krónur. Óskertur barnabóta-
auki er 41.414, en var í fyrra
25.230 krónur.
í fyrra komu barnabætur til
frádráttar álögðum gjöldum.
Húsnæðisstofnun brá á þaö ráð í þessari viku að loka sima lánadeildar svo næði gæfist til að afgreiða
tilkynningar um lánsrétt. Á mánudag fóru, að sögn Sigurðar E. Guðmundssonar forstjóra Húsnæðis-
stofnunar, nokkuð á fjórða þúsund tilkynningar í póst. Sigurður sagði að i vikunni ætti að takast að af-
greiða flestallar tilkynningar, og í næstu viku verði hafist handa við að afgreiða lánsioforð. Það er þvi í
nógu að snúast hjá Húsnæðisstofnun og ófáum möppum flett þessa dagana. A-mynd Róbert.
Þráinn Peningar i ^
fékk þann i _ 13 mættu vera
stóra ipr p' meiri
3 W-iJi'' i 8 ðakflji ijL mm
Neytenda-
samtökin
í hart
3