Alþýðublaðið - 28.01.1988, Síða 7
Fimmtudagur 28. janúar 1988
7
UTLOND
Umsjón:
Ingibjörg
Árnadóttir
Amason
PARADISIN
SEM DEYR
Deild innana kaþólsku kirkjunnar\ sem
fjallar um málefni indíána er hlekkur í
alþjóðlegri viðleitni til að draga úr yfir-
ráðum Brasilíu yfir Amazon héruðun-
um. Stofnun óháðra lýðvelda indíána er
markmið þessara alþjóðlegu samtaka.
Þetta voru viðbrögð þjóðar-
öryggisráðsins í Brasilíu, í
ágúst 1987 þegar lögþing
Brasiliu átti að fjalla um laga-
frumvarp í sambandi við
landsréttindi indíjána.
Frumvarpið var lagt fram af
CIMI, sem er deild innan
kaþólsku kirkjunnar sem
reynir aö gæta réttar
indíjána. Það fól í sér bann,
við landraski á landsvæðum
indíjána, svo framarlega sem
ekki væri hægt að leggja
fram sönnun þess að málmar
væru í jörðu eða sönnun
þess að það væri þjóðar-
nauðsyn. Ef að sú staða
kæmi upp að uppgröftur væri
nauðsynlegur og gróði yrði á
því fyrirtæki ættu 50 prósent
að renna til málefna indíjána
og til umhverfisvarna.
Viku áður en gera átti til-
raun til þess að frumvarpið
yrði að lögum, hófu hernaðar-
yfirvöld eitraða áróðursher-
ferö gegn CIMI.
Þau kröfðust upplýsinga
um starfsemi CIMI og þing-
nefnd var sett á laggirnar til
að fara ofan í saumana á
starfsemi samtakanna.
Skjöl frá þjóðaröryggisráð-
inu sýna, svo ekki verður um
villst hvernig augum hern-
aðaryfirvöld llta samtök sem
vinna að umhverfisvernd og
að réttindum frumbyggja, í
Brasilíu og í öðrum löndum.
Regnskógurinn
eyðileggst
Skógarbrunar, allskonar
gröftur og stóriðnaður eru vel
á veg komnir með að eyði-
leggja Amazon héruðin.
Margir vlsindamenn og um-
hverfissérfræðingar, óttast
að stærstu regnskógasvæði í
heiminum munu verða horfin
eftir 10—20 ár.
Afleiðingar þess, að mati
sérfræðinganna yrðu ógn-
Ef eyðing skóganna heldur áfram sem nú horfir, munu regnskógarnir
verða horfnir eftir 50 ár.
Húðir buffalóa (vísunda) lestaðar i höfninni i Belem í Parahéraði. Húðirnar koma frá Amapa, sem er neðarlega
við Amazon-fljótið.
vænlegar breytingar á veður-
fari á svæðinu, ótal dýrateg-
undir myndu deyja út, hita-
beltissjúkdómar yrðu land-
lægir og frumbyggjarnir rifnir
upp með rótum.
Síðan portúgalir uppgötv-
uðu Brasilíu um aldamótin
1500, hefur hitabeltisskógur-
inn, sem er 5 milljónir ferkíló-
metra að stærð laðað að sér
ævintýramenn, námumenn
og innflytjendur. Fljótt á litið
virtist þetta vera yfirmáta
frjósamt land sem aldrei
myndi spillast.
— Þetta er sannkölluð
Paradís sem gefur svo mikið
af sér, að ég veit ekki hvar ég
ætti að byrja til að lýsa þvi,
— skrifaði náttúrufræðingur-
inn Alexandre Rodrigues
Ferreira yfir mönnum sínum
við hirðina í Lissabon árið
1700.
Á ferðalagi sínu um
Amazon héruðin 1913—1914,
sagði Theodore Roosevelt,
fyrrverandi forseti Bandaríkj-
anna: „Maðurinn hefurekki
leyfi til aö láta þetta land-
svæði halda áfram að vaxa
villt og að nýta það ekki“.
Nú eru allsstaðar í Amazon
héruðunum, bændur, kvikfjár-
eigendur, námumenn og
menn sem vinna við orkuver.
Þeir hafa, með hjálp hátækni
og vegna græðgi í gull,
málma og risaorkuver,
brennt, höggvið og veitt vatni
á þúsundir hektara af regn-
skógi.
Skógarbrunar
Á gervitunglamynd sem
tekin var í september í fyrra,
sást að á einum degi voru
6.800 skógarbrunar í Mato
Grossohéraðinu. Þessir eldar
eru kveiktir til að hreinsa
jarðveginn af jurtagróðri.
Þetta er gert þó það sé
bannað með lögum. Að
höggva og brenna skóginn er
ódýrasta leiðin til að ryðja
landsvæði og hefja nýrækt.
Það eru snauðustu hóparnir
sem hafa ekki önnur ráð til
að sjá sér farborða, sem gera
þetta.
I Brasilíu eru 12 milljón
fjölskyldur sem ekki fá út-
hlutað landi. Vegna þrýstings
frá stóru landeigendunum
hefur ríkisstjórnin stöðvað
úthlutun á landi til fátækra.
Þessir ríku landeigendur eru
aðeins örlítill hluti íbúa
landsins.
Löggjafinn
eyðileggur
Þó opinbera tölur sýni að
landeigendur og smábændur
beri ábyrgð á 70 prósent af
eyðileggingunni, er langur
vegur frá því að hægt sé að
skella skuldinni á fáfróóa
bændur eingöngu. Skatta-
reglur í Brasilíu gera það að
verkum að fyrirtæki I þunga-
iðnaði og stóriðnaði yfirleitt
sækjast eftir að athafna sig í
Amazon héruðum. Við þessi
verkefni vinnur aragrúi fólks
og allt hjálpar þetta til þess
að breyta umhverfi og mann-
lífi á verri veg.
Of seint?
Er orðið of seint að gera
ráðstafanir, sem hamla gegn
þessari þróun? Alþjóðabank-
inn heturveitt lán til ýmissa
verkefna. Þau verkefni hafa
orðið hrein slys, bæði frá
fjárhagslegu og umhverfis-
legu sjónarmiði. Nýjasta og
þekktasta verkefnið í Brasilíu
er Polonoroeste-verkefnið.
Með fáum undantekning-
um er jarðvegurinn í Amazon-
héruðunum ekki lengurfrjó-
samur. Hann er súr og snauð-
ur af næringarefnum. Askan
af brenndum skóginum er
notuð til áburðar en dugar
aðeins takamarkaðan tíma.
Áður en langt er um liöið er
landið orðið að svartri eyði-
mörk. Eftir eins til tveggja
ára nýtingu er jarðvegurinn til
einskis nýtur.
Visindamenn segjast hafa
náð töluverðum árangri við
að einangra sýrustigið í jarð-
veginum. Þeir gerðu tilraunir
með að setja niður jurtir sem
ekki höfðu verið í jarðvegin-
um áður, og ef það tekst að
gera jarðveginn frjósaman á
ný og ef það tekst að koma i
veg fyrir frekari útrýmingu
skógarins, hverjir svo sem
þar eiga hlut að máli, er von-
andi ekki öll von úti.
(Arbeiderbladet)