Alþýðublaðið - 09.02.1988, Page 6
6
Þriðjudagur 9. febrúar 1988
t MINNING t
ÁGÚST STURLAUGSSON
f 14. maí 1899 — d. 1. febrúar 1988
í dag, 9. febrúar, verður til
moldar borinn Ágúst Stur-
laugsson frá Fjósum í Laxár-
dal, Dalasýslu. Hann var
fæddur að Öxl í Breiðuvíkur-
hreppi á Snæfellsnesi, þar
sem foreldrar hans bjuggu
þá, en fluttist ungur með
þeim inn í Dalasýslu.
Foreldrar hans voru Ásta
Lilja Kristmannsdóttir frá
Litla-Vatnshorni og Sturlaug-
ur Jóhannesson frá Sauðhús-
um. Ágúst var þriðji í röð níu
systkina. Kristmann var elst-
ur, síðan Jóhannes, þá
Ágúst, sem hér er kvaddur,
fýlagnús, Sigurjón, Liljaog
Áslaug, sem dó á öðru ári.
Nokkrum árum síðar fæddist
stúlka, Áslaug Friömey.
Yngstur var Kristján. Þessi
stóri systkinahópur er nú all-
ur horfinn yfir móðuna miklu.
Var Ágúst síðastur að kveðja.
Fyrir aldamót voru erfiðir
tímar hjá alþýðufólki i Dala-
sýslu. Systkini Ástu Lilju
fluttu ásamt fleira fólki vest-
ur um haf og ungu hjónin,
foreldrar Ágústs voru um
tíma að hugsa um aö fara
þangað líka. Af þvi varð þó
ekki. Þau settu saman bú og
fljótlega komu börnin hvert
af öðru.
Gústi frændi, eins og við
kölluðum hann alltaf, ólst
upp við takmörkuð efni hjá
góðum, bókhneigðum for-
eldrum sem lásu húslestra
lenguren almennt tíðkaðist
og ólu börn sín upp við heið-
arleika og samvizkusemi.
Upp úr fermingu fór Gústi til
sjós, fyrst með frænda sínum
Kristmanni, skipstjóra í
Stykkishólmi. Frá 17 ára aldri
fór hann á vertíðir til ver-
stöðvanna á Suðurnesjum og
gekk þá mest alla leiðina
með sjópokann sinn.
Þrautseigja hans var ótrú-
lega mikil, enda mun ekki
hafa veitt af í þá daga. Við
undruðumst sögur hans, svo
látlausar sem þær voru. Ein
þeirra greindi frá þvi er 18 ára
unglingurinn kom að vestan
á leiö i verið — til Grindavík-
ur. Hann veiktist af Spönsku
veikinni á leiðinni, en áfram
hélt hann þó veikur væri.
Hann stansaði eina til tvær
nætur á hverjum áningarstað
og ioks tókst honum að kom-
ast á sjóinn eftir að lungna-
bólgan var um garð gengin.
Eftir nokkurra ára sjó-
mennsku á árabátum og
skútum veiktist hann af
berklum og dvaldi í nokkur ár
á berklahælum, lengst á
Kristnesi í Eyjafirði. Þar kom
þolgæði Ágústs aftur að
góðu gagni og náði hann
fullri heilsu.
Þegar foreldrar hans fóru
að eldast hugsuðu þau Ágúst
og systir hans Lilja um bú
foreldra sinna og önnuðust
þau af alúð árum saman.
Ásta Lilja lést 77 ára gömul
árið 1946 en Sturlaugur 79
ára árið 1952, bæði heima að
Fjósum.
Fyrir 30 árum fluttust þau
systkinin, Gústi og Lilja til
Reykjavíkur. Þau bjuggu að
Hraunteigi 15 og héldu
heimili saman uns Lilja dó
fyrir tæpum 10 árum. Lilja,
sem einnig hafði þurft að
berjast við berkla á æskuár-
um sínum, var fremur heilsu-
litil en hugsaði um heimilið
meðan Gústi vann almenna
vinnu, lengst af hjá Reykja-
víkurborg. Um helgar brá
Gústi sér á hestbak enda átti
hann góða hesta og hafði
yndi af. Hann tók mikið af
Ijósmyndum og tók margar
góðar myndir á gömlu kassa-
vélina sína. Hann las mikið af
Ijóðum, sérstaklega Ijóð
Davíðs Stefánssonar, Stefáns
frá Hvítadal og Jóhannesar
úr Kötlum. Jóhannes úr Kötl-
um var Dalamaður, vel kunn-
ugur þeim systkinum og
heimsótti þau oft.
Eftir að Lilja dó var Gústi
oft einn og einmana. Hann
varð þvi feginn er hann fékk
inni á Hrafnistu í Reykjavík.
Þar var hann í sínu hverfi og
gat framan af gengið heim í
íbúð sína á Hraunteignum.
Hugurinn var þó oft vestur í
Dölum.
Gústi var mjög barngóður
og hændust börn okkar að
honum. Eftir að bróðir hans
Kristján dó 1974, gegndi
Gústi hlutverki afans í fjöl-
skyldu okkar. Hann vann oft í
Teigahverfinu síðari ár starfs-
ævi sinnar og fyldi honum þá
oft hópur ungra barna sem
kölluðu hann afa. Hlýlegt og
rólegt fas hans, fullkomlega
æðrulaust hlaut að laða að
honum börn. Gústi var veit-
andi alla sína ævi. Hann kom
ávallt færandi hendi og tók
vel á móti gestum. Aldrei
kvartaði hann né bað um
neitt sér til handa. Hann var
þakklátur fyrir allt sem fyrir
hann var gert. Við viljum
flytja þakkir öllu því góða
starfsfólki á Hrafnistu i
Reykjavík sem annaðist hann
af alúð og hlýju eftir að fjör
hans tók að þverra síðustu
árin.
Nú þegar hann er horfinn
finnst okkur að heilum kafla
úr íslandssögunni sé lokið.
Þessi heilsteypti, látlausi al-
þýðumaður var góður fulltrúi
kynslóðar sem ólst upp við
kjör sem okkur virðast að
sumu leyti hafa verið ótrú-
lega hörð. Af þessum kjörum
mótaðist þrautseigja hans,
en jafnframt æðruleysið og
manngæzka, sem við nutum
ríkulega.
Blessuð sé minningin um
Gústa frænda. Hvili hann í
friði við hlið Lilju systur sinn-
ar.
Sigurlaug Kristjánsdóttir
Ingólfur S. Sveinsson
SMÁFRÉTTIR
Breytingar á
akstri SVR
Helgarakstur Strætisvagna
Reykjavíkur, SVR, breyttist að
nokkru í gærdag, 8. febrúar.
Vagnar á leiðum 2,3,4,5 og
15A munu aka niður Lauga-
veg, mánudaga — föstudaga
til kl. 13.00 og laugardaga til
kl. 11.00 á sama hátt og hefur
verið áður. Frá kl. 13.00,
mánudaga-föstudaga (Kl.
11.00 laugardaga) aka þeir
hins vegar frá Hlemmi um
Skúlagötu án viðkomu að
Lækjartorgi.
Sérstakur vagn, merktur
HLEMMUR-MIÐBORG ekur
niður Laugaveg frá ofan-
greindum timatil kl. 18.30
mánudaga — föstudaga en
til kl. 17.00 á laugardögum.
Eftir að akstri Laugavegs-
vagnsins lýkur á sunnudög-
um og öðrum helgidögum
aka engir vagnar niður
Laugaveg frá Hlemmi.
Kvefið trónar
á toppnum
Að öllum likindum er ekki
til sá íslendingur, sem ekki
hefur fengiö kvef, enda er
þetta einn algengasti sjúk-
dómur hér á landi. Enda fór
það svo að fjölmargir Islend-
ingar kvöddu gamlapxXÓ með
kvefi og voru í desémber 887
skráð tilfelli af kvefi. Tala
þessi kemur frá skýrslu 7
lækna og Læknavaktarinnar
sf. og samkvæmt henni er
annars konar kvef næst á vin-
sældalistanum þ.e.a.s. iðra-
kvef, þess konar sjúklingar
voru 77.
Upp úr því fer sjúk-
dómstilfellum að fækka, 55
voru með lungnabólgu, 37
fengu smitnæma þvagrásar-
bólgu, Clamydiu 16 hlaupa-
bólu, og 12 voru með
influensu og hálsbólgu. Með
aðra sjúkdóma voru 10
manns eða færri.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Byggingardeildar óskar eftir tilboöum í framleiðslu
og flutning á gleri.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fri kirkju-
vegi 3, Reykjavík gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Til-
boðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 25.
feb. n.k. kl. 11. -
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Postholf 878 — 101 Reykjavik
ÚTBOÐ
Norðausturvegur um Hafra-
lónsá í Þistilfirði
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í of-
angreint verk. Lengd vegarkafla2,0 km, fyll-
ingar 36.000 m3 og burðarlag 7.000 m3.
Verki skal lokið 1. október 1988.
Útboðsgögn verðaafhent hjá Vegagerö rík-
isins á Akureyri og í Reykjavík (aðalgjald-
kera) frá og með 10. febrúar n.k.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrri kl.
14:00 þann 29. febrúar 1988.
Vegamálastjóri
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKiSINS
Rafmagnsveitur ríkisins óskar eftir tilboðum í eftir-
farandi:
RARIK-88001: Nýbygging verkstæðis- og geymslu-
húss í Ólafsvík.
Opnunardagur: Miðvikudagur 24. febrúar 1988, kl.
14:00.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Ramagns-
veitna ríkisins við Sandholt 34, Ólafsvík og Lauga-
veg 118, Reykjavík frá og með miðvikudeginum 10.
febrúar 1988 gegn kr. 5.000 skiltatryggingu.
Tilboðum, skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Ólafsvik fyrir opnunartíma og verða þau
opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum
er þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu
„RARIK-88001 Húsnæði í Ólafsvík".
ÚTBOÐ
Alþýðuflokksfélag
Húsavíkur
Félagsfundurverðurhaldinn á Hótelinu miðvikudag-
inn 10. febrúar n.k. kl. 20.30
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga
2. Fjárhagsáætlun bæjarins
3. Önnur mál.
Stjórnin.
KRATAKOMPAN
OPIÐ HÚS
Miðvikudaginn 10. febrúar n.k. verður
opið hús í Félagsmiðstöðinni Hverfis-
götu 8—10.
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmála-
ráðherra mætir á fundinn.
Komið, spjallið og spáið í pólitíkina.
Alþýðuflokkurinn
Borgarfulltrúi
Alþýðuflokksins
Bjarni R Magnússon verður við á
skrifstofu Alþýðuflokksins
Hverfisgötu 8-10 á þriðjudögum
frá kl. 10-12.
Alþýðuflokkurinn