Alþýðublaðið - 09.02.1988, Side 7

Alþýðublaðið - 09.02.1988, Side 7
Þriöjudagur 9. febrúar 1988 7 ÚTLÖND Umsjón: Ingibjörg Árnadóttir EKKJUR Á BÁLKÖSTINN Ef hún hefði verið sönn „sati“, hefði kviknað í bálkestinum sjálfkrafa. Hin unga Roop Kanwar sat í bálkestinum með höfuið eiginmannsins í örmum sér, mágur hennar tendraði eldinn og áhugasamir áhorfendur létu sig ekki vanta. Eftir ekkjubrennuna í ind- verska ríkinu Rajastan, hafa komiö upp deilur um þessa óhugnanlegu viðburði „sati“. Þeir sem eru andvígir ekkju- brennum reyna að sýna fram á að það er ekki neitt krafta- verk sem er að gerast, heldur sjálfsmorð eða blátt áfram morð, og þvi beri að refsa þeim sem að þessu standa. Rétt fyrir jól voru sett ný ströng lög, sem banna „sati“. Þrátt fyrir þaö er ekki eining í þjóöfélaginu um þetta. Á síöustu tíu árum hafa verið skráö 13 tilfelli af ekkju- brennum í þremur sambands- ríkjum Indlands. Hvaö mörg tilefelli sem ekki eru skráö veit enginn, en vitað er aö í mörgum afskekktum sveitum og þorpum er þetta viötekin venja. Pressan ásakar lög- reglu og yfirvöld á þessum stöðum og segir þau taka þátt í ósómanum. „Sati“ hef- ur veriö ólöglegt síöan áriö 1929 þegar Bretar réöu í Ind- landi. Sterk öfl Umbótasinnar benda á, aö ekkjubrennur séu ekki ein- angraö fyrirbæri og að þeir sem aöhyllast þær segi þær hluta af þjóöarmenningunni. í Indlandi eru ekkjur ákaflega varnarlausar og eru settar á neösta þrep þjóöfélagsstig- ans. Konur eru yfirleitt ekki hátt skrifaðar í þessum fylkjum og þaö eru ekki eingöngu ekkjur sem eru brenndar lif- andi. Kerfisbundió ofbeldi gegn konum, felur meöal annars í sér brúðarbrennur, og þá er verió aö mótmæla of litlum heimanmund frá fjöl- skyldu brúðarinnan Ennfrem- ur eru bæöi nýfædd stúlku- börn og litlar stúlkur iöulega drepnar. Á þetta er litið sem löglegan kraftaverkadauöa í mörgum þessara fylkja. Lög- reglan horföi aðgeröarlaus á, þegar 3-4 þúsund manns horföu á bálför Roop Kanwar. Um það bil 300.000 þús. manns komu saman i þorp- inu 13 dögum eftir aö Roop Kanwar var brennd, til aó halda upp á atburðinn! Yfir- völd gripu heldur ekki í taum- ana þá, þrátt fyrir aö hæsti- réttur Rajastan haföi lagt oiatt bann við samkomunni. Nefnd, sem berst fyrir áfram- haldandi „sati“ skipulagói fjöldagöngu sem um 50.000 þús. manns tók þátt í. Göngumenn hrópuöu takt- fast: „Sál Roop Kanwar mun lifa aö eilífu". Loksins, þrem- ur vikum eftir bálförina for- dæmdi Rajiv Gandhi ódæðið. Helgiathöfn Hvernig er hægt aö rétt- læta ekkjubrennur? Þeir, sem eru í forsvari fyrir stuönings- menn „sati“ eru úrefri stétt- um i Rajastan — tveir lög- fræöingar, blaðamaður og auðugur forstjóri í útflutn- ingsversluninni. Formaöur samtakanna Narinder Singh Rajawat, er ungur kaupsýslu- maóur sem klæöist á vest- ræna visu. Kona hans er há- skólamenntuð í stjórnmála- fræöi. Hún segir: „Roop Kanwar gekk í eldinn af fús- um og frjálsum vilja, undir- gefin eiginmanni sínum. Slik undirgefni hlýtur aö vera frá guödóminurrLkominn. Sati er þess vegna kraftaverk og þýðingarmikið innan hindú- ismans". Konan sem sagði þessi orö er sem sagt há- menntuð og víðförul. Hof, til minningar um ekkj- ur sem láta lítið á bálinu, voru reist um allt Indland á miööldum. Þangaó streyma heittrúaöir hindúar í þeirri von að hin látna „sati“ geri kraftaverk, ekkjurnar látnu gegna því sama hlutverki og dýrlingarnir innan kaþólsku kirkjunnar. Aftur fær frú Harsh Rajawat oröið: „Andstaða viö sati er þessvegna talin árás á hindúismann og hlutverk hans í því aö viðhalda hefó- um samfélags okkar og koma í veg fyrir að tískubylgjur rífi heföir okkar upp meö rótum“. Milljóna viðskipti í efnahagslegu tilliti táknar sati milljónaviöskipti. Þorp, þar sem ekkja „tekur þá ákvöröun" aö ganga á bálið, verður einskonar minni út- gáfa af Lourdes, staöur sem pílagrímar heimsækja árlega svo skiptir þúsundum. Stærsta satihofið í Indlandi er Rani Sati í Rajastan, það var reist til minningar um sati á fjórtándu öld. Þetta hof veltir á hinni árlegu „kjöt- kveöjuhátíö“ rúmlega fimm milljónum rupees. Fylkis- stjórnin hjálpar til með því að lýsa yfir, þremur opinberum helgidögum. Styrktarmenn sati-hof- annnaeru úr.helstu fjölskyld- um í viöskiptalífinu. Má þar nefna iö.n jöfurinn Birla, Modi- samsteypuna stóru og sjálf- an blaðakónginn Goenka sem berst gegn Rajiv Gandhi I mörgum héruðum i indversku þjóðfélagi er litið á ekkjubrennur sem löglegan, sjálfsagðan krafta- verkadauða, og hundruð þúsunda manna flykkjast að til að vera vitni að atburðinum. í öllum góðum málum sem hinn síðarnefndi vill vinna aö. Baráttan gegn sati Kvenréttindakonur hafa gert áætlun um baráttuna gegn sati. Mörg kvenna- samtök hafa hafið meö sér samstarf og telja konurnar að það nauðsynlegasta til aö byrja meö sé aö ryója rök- færslum stuðningsmanna sati úr vegi. „Af íúsum og frjálsum vilja“ hefur ekki trúverðuga meiningu í þjóðfélagi þar sem konur eiga aö vera undirgefnar og er oftast stjórnaö af öörum. Sjálfs- morö er eitt, en aö á þaö sé litið sem óskahlutverk kon- unnar er annaö. Sjálfsmoró vegna undirgefni viö látinn eiginmann er villimannsleg hefð, ríki sem telur sig vera á braut framfara á að sjá til þess aö slikur ósómi veröi upprættur. Fyrir 150 árum síöan var samskonar hreyfing gegn sati í gangi og sömu rök sett fram og nú. Þaö var á ný- lendutímabilinu og þá var það fólk úr indversku miö- stéttunum, sem beitti sér gegn sati ásamt breskum yfirvöldum. Þetta gaf góða raun sérstaklega i Bengal- héraðinu og er taliö aö áriö 1861 hafi verið tímamótaár þar um slóðir því þá hafði tekist að útrýma sati. Þótti þaö tíðindum sæta að jafnvel Rajput-konur af furstaættum í Udapiur í Rajastand, þver- neituöu að ganga á bálið. (Arbeiderbladet.)

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.