Alþýðublaðið - 09.03.1988, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 09.03.1988, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 9. mars 1988 3 FRÉTTIR Fiskmarkaður erlendis: REIKNAÐ MEÐ MJÖG LAGU VERDI I ÞYSKALANDII NÆSTU VIKU Reiknað er með að verð á fiskmarkaðnum i Þýskalandi verði mjög lágt í næstu viku, sökum mikils framboðs frá íslandi og einnig er búist við að verð á markaði i Bretlandi lækki nokkuð frá því sem nú er. Þrjú íslensk skip eiga að selja I Þýskalandi I næstu viku, það eru Víðir HF, Björgólfur EA og Ögri RE, en það sem af er þessu ári, hafa aldrei landað nema tvö skip á viku í Þýskalandi, sökum þess hve markaðurinn er veikur. í gær var vitað um 20 gáma af fiski sem áttu að fara á markaðina í Cuxhaven og Bremerhaven og gerðu menn ráð fyrir að einir 10 gámar færu til viðbótar. Nú er vitað að mikill fjöldi gáma verður sendur frá Vestmanna- eyjum í dag og á morgun og á mest af fiski úr þeim að seljast í Bretlandi. Þá er verið að senda töluverðan fjölda gáma frá Reykjavíkursvæð- inu, en frekar fáir gámar eru nú á leið frá Vestfjörðum. Fimm íslensk fiskiskip eiga að selja í Bretlandi í næstu viku og eru þaö: Halkion VE, Bergey VE, Gideon VE, Nátt- fari RE og Sólberg ÓF. Vilhjálmur Vilhjálmsson hjá Landssambandi ísl. út- vegsmanna sagði þegar Al- þýðublaðið ræddi við hann, að menn hefðu mun meiri áhyggjur af V-Þýska markaðn- Akvörðun Verðlagsráðs sjávarútvegsins um fast fiskverð: r FRJALST FISKVERÐ EYKUR AÐHALD AÐ ÚT- GERÐ OG FISKVINNSLU er álit framkvœmdarstjórnar Farmanna- og fiski- mannasambands íslands en hún hefur sent frá sér harðorð mótmœli vegna þessa. Framkvæmdastjórn Far- manna- og fiskimannasam- bands íslands mótmælir harölega ákvöröun Verðlags- ráös sjávarútvegsins, hinn 5. mars s.l. er ákveðið var fast fiskverö og segir þetta enn eitt dæmið um hvernig ó- markvissar fjárfestingar í fiskiðnaði á Islandi séu fjár- magnaðar. Fundur framkvæmda- stjórnar Farmanna- og fiski- mannasambands íslands haldinn 7. mars hefur lýst yfir áköfum mótmælum vegna ákvörðunar Verðlagsráðs sjávarútvegsins að ákveða fast fiskverð. Segir stjórnin þetta enn eitt dæmið um hvernig ómarkvissar fjárfest- ingar í fiskiðnaði á Islandi séu fjármagnaðar. Sjómenn veróa alltaf að borga og þess vegna verða þeir að sameinast til varnar rétti sínum til að tryggja sér sömu afkomu og aðrar stéttir búa viö í þessu landi, segir í tilkynningu frá Farmanna- og fiskimannasambandinu. Sambandið vill ennfremur benda sjómönnum á mikil- vægi frjáls fiskverðs, þar sem það eykur aðhald að útgerö og fiskvinnslu og tryggir best kjör þeirra í framtíðinni. „Svar sjómanna við þessari fisk- ákvörðun hlýtur að vera krafa um aukna sölu á fiski á er- lendum mörkuðum til að tryggja kjör sín.“ KARLSEFNI TIL ÁSTRALÍU? Skuttogarinn Karlsefni RE-24 er nú kominn úr sinni siðustu veiðiferð fyrir íslend- inga, en Karlsefnisnafnið hef ur fylgt íslenskri togarasögu svo til frá upphafi. Karlsefni var lagt, er togarinn kom úr söluferð i siðustu viku, en LEIDRETTING í frétt Alþýðublaðsins um könnun á aðstöðu kvenna, sem Jafnréttisnefnd Reykja- víkurborgar er að fara af stað með, misritaðist nafn annarr- ar konunnar er Jafnréttisráð hefur fengið til að vinna að könnuninni. Hún heitir Her- dís Dröfn Baldvinsdóttir en ekki Herdis S. Bald vinsdóttir eins og sagt var í fréttinni. Alþýðublaðið biður hlutaðeig- anda hér með velvirðingar, á þessum mistökum. eigandi togarans Sjólastöðin hf. í Hafnarfirði á von á nýj- um frystitogara í stað Karls- efnis á næstu vikum. Ákveðið er aö selja Karls- efni úr landi i stað nýja togar- ans, en aflakvóti Karlsefnis veröur fluttur yfir á nýja skip- ið. Jón Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Sjólastöðvar- innar sagði að ekki væri enn ákveðið hvert Karlsefni færi, en aðilar í S-Ameríku, Ástralíu og Þýskalandi hefðu sýnt áhuga á togaranum. Hinn nýi togari Sjóla- stöðvarinnar verður skírður á næstu dögum, en ákveðið er að hann fái nafnið Haraldur Kristjánsson. Áhöfnin á Karlsefni fer yfir á nýja togar- ann og skipstjóri verður Helgi Kristjánsson, en hann hefurveriö skipstjóri á Karls- efni i mörg ár. um en þeim breska. Það hefði sýnt sig á undanförnum mánuðum að þýski markaður- inn þyldi lítið magn af fiski og ekki bætti úr skák að mik- ið hefði snjóað í Suður- Þýskalandi að undanförnu og ættu fiskkaupmenn þvi erfitt með að koma fiski frá'sér. Neytendasamtökin: VILJA SÉRSTAKA UPP- LÝSINGASKRIFSTOFU VIÐ VERÐLAGSSTOFNUN Segja núverandi upplýsingar um landbúnaðarafurðir og matvœli villandi og rangar Neytendasamtökin hafa farið þess á leit við stjórn- völd að sett verði á laggirnar sérstök upplýsingaskrifstofa við Verðlagsstofnun sem hafi það verkefni að veita full- trúum neytenda i verðlags- nefndum landbúnaðarafurða, Neytendasamtökunum og aðilum vinnumarkaðarins hlutlausar upplýsingar um framleiðslukostnað matvæla á íslandi og í helstu ná- grannalöndum. I fréttatilkynningu sem Al- þýðublaðinu hefur borist frá Neytendasamtökunum, segir, að við núverandi aðstæður sé neytendum stillt upp við vegg. Samtökin benda á aö landbúnaðarráðherra og ýmsir alþingismenn hafi að undanförnu gefið rangar upp- lýsinar um niðurgreiðslur landbúnaðarafurða í ná- grannalöndum okkar til að réttlæta skattlagningu á inn- fluttum afurðum, eða inn- flutningsbönn. Þá segir enn- fremur orðrétt í fréttatilkynn- ingunni: „Mjög hefur borið á því á undanförnum árum að svo- kallaðir fulltrúar neytenda í verðlagsnefnd landbúnðar- vara (sexmannanefnd), hafa haft veika stöðu og ekki sist vegna þess að allar helstu upplýsingar hafa komið frá Búreikningastofu landbúnað- arins og vinnslustöðvum landbúnaðarins. Nú nýlega hafa hagsmunasamtök fugla- bænda og kartöfluframleið- enda óskað eftir opinberri verðlagningu og kom þá í Ijós að engar áreiðanlegar upplýsingar eru til sem unnt er að byggja á. Á sama tíma er verðlagning umræddra af- urða ólögleg i landinu vegna samráðs framleiðenda." Thor tekur við Bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs: „LIFUM Á TÍMUM HINN- AR UPPHÖFNU LÁGKÚRU“ — sagði rithöfundurinn m.a. í rœðu sinni (Osló — Alþýðublaðið) „Ég er maöur sem eyði ævinni i að setja saman bækur, og því stend ég á þessu sviði i geisla kastljóss- ins sem strýkur skegg mitt og hár,“ sagði Thor Vilhjálmsson rithöfundur i ræöu sinni í Oslo Konsert- hus i gærkvöldi er hann tók við bókmenntaverölaunum Norðurlandaráös. Thor hefur vakið mikla athygli fjölmiðla í Noregi og á öðrum Norðurlöndum og hafa sjónvarpsstöðvarnar sýnt langa viðtalsþætti viö rithöfundinn sem hafa vakið mikla athygli. Ræða Thors í Oslo Konserthus í gærkvöldi við afhendingu Bókmennta- verðlaunanna vakti mikla hrifningu fyrir fullskipuðu húsi. „Við lifum á tímum hinnar upphöfnu lágkúru, hins íburðamikla auðvirðis. Öll skynjum við að við þurfum einhvers annars... Hvers er okkur vant? Kannski meiri galdurs í tilverunni. Kannski vantar okkur fleiri víddir í okkar skammtaða skeið á jörðinni?" spurði Thor við- „Ég er svo rómantískur að þumb- ast við og treysta hlutverki skálds- ins i mannlegu samfélagi,“ sagði Thor Vilhjálmsson m.a. i ræðu sinni i gærkvöidi er hann tók við Bókmenntaverðlaunum Norður- landaráðs i Osló. stadda í ræðu sinni. Og svar- aði sjálfur síðar i ræðunni: „Væri ég spurður, myndi ég geta þess að á mínum heima- slóðum treystum við því að Ijóðið megni sér enn nokk- urs. Að orð megni enn galdri.“ Thor sagðist ennfremur treysta því að bókin stæðist. Lögmál hennar væri allt önn- ur en annarra miðla og áhrif- in mögnuðust að sama skapi og almenningur væri gerður óvirkur og mataður, slóvgað- ur og svæfður með vaxandi lágkúru. I lok ræðu sinnar sagði Thor: „Listin sýnir hvað býr innra með okkur, sársaukann og gleðina, safnar saman öllu því sem við megnum að muna og veljum til að magna hverja stund. Hún færir okkur æðstu og helgustu blekking- una og það stuölar að því að espa upp þá logandi vitund sem helgar tilveruna og færir Ijós inn i tóm eilifðarinnar. í listinni spyrjum við hver við séum og um leið og við biðj- umst undan vægð, grátbiðj- um við í angist um staðfest- ingu að við séum orðin það sem við þráðum svo heitt að viö gætum orðið... Meö Ijóðinu ákveðum við hver við séum núna og meö Ijóðinu ákveðum við hver við verðum á morgun. Og með þvi að yrkja Ijóð ákveðum við hver við vorum í gær. Þakkir, ég þakka.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.