Alþýðublaðið - 19.03.1988, Qupperneq 15
Laugardagur 19. mars 1988
15
VARLA TÖLUNA 25!
Hvers vegna kemur talán 25 aðeins tvisvar sinnum í Lottóinu þegar búiö er aö draga 64
sinnum i Lottóinu, en talan 4 tuttugu sinnum? Þetta var niöurstaðan 13. febrúar. Þá höfðu
51 orðið milljónamæringur í leiknum og eignaraðilar íslenskrar Getspár fengið 265 millj-
ónir i sinn hiut. Alls starfa 21 hjá fyrirtækinu.
var fram á Alþingi 8. mars s.l.
svo og umræðu um löggild-
ingu starfsgreinarinnar. Jafn-
framt er harmað að ekki skuli
hafa verið haft samráð við
félagið um útfærslu frum-
varpsins, þar sem ákveðin
ákvæði þess stangist á við
áratuga hefðir er viðgengist
hafa við sölu notaðra bif-
reiða.
í tilkynningu frá Félagi Bif-
reiðasala segir, að t.a.m. séu
ákvæði um upplýsingaskyldu
bifreiðasala um ástand bif-
reiða þar sem bifreiðasalinn
sé gerður ábyrgur fyrir
ástandi þeirra. Einnig að það
væri ákvæði um söluþóknun
bifreiðasala er gerði það að
verkum að rekstrargrundvöll-
ur fyrir bifreiðasölur væri
ekki fyrir hendi. Jafnframt að
hið opinbera sjái um að bif-
reiðasölum sé gert kleift að
starfa eftir frumvarpinu verði
það að lögum.
Þrjú prests-
embætti laus
Biskup (slands hefur nú
auglýst þrjú prestsembætti
laus til umsóknar og er um-
sóknarfrestur til 14. aprll
1988.
Embættin eru: Fellsmúli i
Rangárvallaprófastsdæmi
(Skarðs, Hagaog Marteins-
tungusóknir) þar þjónaði sr.
Hannes Guðmundsson um
skeið en hann lést 23. janúar
sl.
Bólstaðarhlíöarprestkall í
Húnavatnsprófastsdæmi
(Bólstaðarhlfðar, Bergstaða,
Auðkúlu, Svínavatns og
Holtastaðasóknar). Þetta
prestkall hefurverið prest-
laust um skeið en fengið
þjónustu af nágrannaprest-
um.
Auk þessa er embætti
æskulýösfulltrúa þjóðkirkj-
unnar auglýst laust til um-
sóknar og verður ráðið í em-
bættið frá 1. mal 1988.
Sr. Guðmundur Guð-
mundsson, sem hefur gegnt
embætti æskulýðsfulltrúa í
tæp tvö ár, hefur sagt því
lausu og hyggst fara til
kristniboösstarfa í Afríku á
vegum Sambands íslenskra
Kristniboðsfélaga.
Fimm fata-
hönnuðir sýna
í Kringiunni
Fimm íslenskir fatahönn-
uðir kynna ullarfatnað f búð
Rammagerðarinnar í Kringl-
unni dagana 18.-30. mars.
Hönnuðirnir eiga það sam-
eiginlegt að fara nýjar leiðir í
meðferð ullarinnar og leggja
áherslu á að íslendingar fari
aftur að ganga I eigin peys-
um.
Þarna gefst tækifæri á að
sjá þær nýjungar og þá fjöl-
breytni sem einkennir hönn-
un ullarfata nú. Hönnuðir eru
Hulda Kristln Magnúsdóttir
og Gunnhildur Ásgeirsdóttir
frá Álafossi, Ásta Björnsdótt-
ir og Birna Þórunn Pálsdóttir
frá Arblik og Þórdls Krist-
leifsdóttir frá Drífu.
íslenska ullarpeysan og
markaðssetning hennar er-
lendis var á sínum tíma mikið
afrek. Lopapeysan erorðin
heimsþekkt vara með gott
orðspor, en fyrir allnokkru var
fyrirséð að þróa þyrfti nýja
hönnun ef íslenski ullariðn-
aðurinn ætti að halda stöðu
sinni erlendis og ekki síður á
innanlandsmarkaði. Ef lands-
menn eru hættir að kaupa
innlenda framleiðsluvöru,
eins og ullarpeysuna, er það
ótvíræð vlsbending um að
endurnýjunar sé þörf. Undan-
farið hafa nokkrir hönnuðir
sem starfa hjá ullarfyrirtækj-
unum sett sér það mark að
hanna flikur sem bæði höfði
til okkar íslendinga og kaup-
enda erlendis. Árangurinn
sést á þessari sýningu.
Opið hús hjá
Orkustofnun
í tilefni af Norrænu tækni-
ári verður „Opið hús“ á Orku-
stofnun sunnudaginn 20.
mars 1988 milli kl. 13 og 17
þar munu starfsmenn kynna
starfsemina og hluta þeirra
verkefna sem verið er að fást
við þessa stundina.
Orkustofnun, sem varð 20
ára á síðasta ári, sinnir rann-
sóknum á eðli og skilyrðum
til nýtingar orkulinda á is-
lensku yfirráðasvæði, rann-
sóknum á orkubúskap þjóð-
arinnar, auk þess sem hún er
ríkisstjórn til ráðuneytis í
orkumálum.
A Orkustofnun starfa nú
um 100 starfsmenn, með fjöl-
þætta menntun og reynslu á
hinum ýmsu fræðasviðum er
varða rannsóknir á og undir
yfirborði jarðar.
Meðal þess sem fólki gefst
kostur á að sjá og reyna eru
sérútbúnir mælingabílar,
smíði og viðhald rafeinda-
mælitækja, tæki til efna-
greininga á heitu og köldu
vatni, greining borkjarna og
bergsýna í smásjám, töluvúr-
vinnsla gagna vegna olíuleit-
ar á hinu umdeilda Hatton-
Rockall svæði, rekstur
varmadælu, hvernig jarð-
fræðikort eru búin til, brugð-
ið upp svipmyndum frá starf-
semi vatnamælinga og rann-
sóknum virkjunarstaða, gerð
grein fyrir ýmsum þáttum i
orkubúskap þjóðarinnar og
margt fleira.
Ekki haft sam-
ráð við félagið
Á stjórnarfundi Félags
Bifreiðasala sem haidinn var
9. mars s.l. var ályktað að
fagna frumvarpi þvi sem lagt
Sigrún Stefánsdóttir er forstöðu-
maður fjarkennslunefndar.
FJARKENNSLA
í SJÓNVARPI
í dag hefjast i sjónvarpi til-
raunir með skipulegt fjar-
kennslunám.
Fjarkennsla getur verið
með ýmsu móti, en það starf
sem nú er verið að hrinda af
stokkunum fyrir forgöngu
menntamálaráðuneytisins
verður einkum af þrennu tagi.
í fyrsta lagi verður um að
ræða kennslu í tilteknum
námsþáttum á ýmsum stig-
um skólakerfisins, til áfanga-
eða lokaprófs eftir atvikum. í
öðru lagi verða álmennir
kynningarþættir en einnig
mjög sérhæft efni, einkum
tengt atvinnulifinu. í þriðja
lagi verður boðið upp á al-
menna fræðsluþætti sem
ekki miðast við tiltekinn hóp
þátttakenda.
Dagskrá tilraunasending-
anna næstu vikurnar verður
af ýmsu tagi og mikil breidd i
efnisvali. Nefna má sérstaka
þætti fyrir grunnskólanem-
endur vegna samræmdu próf-
anna í vor, þætti um vágest-
inn eyöni, þætti um skáklist,
landafræði íslands fyrir
grunnskóla, garðrækt og
fleira.
MUNDI
Myndasaga um sköllóttan karl.
Höfundur: Kristján Jón Guönason.
y þiLt
r
LOv £
6£st
&
<3
O
oC»
kV'1