Alþýðublaðið - 22.03.1988, Blaðsíða 6
6
Þriðjudagur 22. mars 1988
SMÁFRÉTTIR
Þær koma á
Listahátíð
Fyrir milligöngu Skífunnar
hf. hafa tekist samningar viö
bresku hljómsveitina „The
Blow Monkeys" og „The
Christians" um aö þær spili
hér á Listahátíð 16.-18. júní i
sumar. Báðar þessar hljóm-
sveitir eru vel kunnar í popp-
heiminum og íslendingum að
góðu kunnar.
„The Blow Monkeys" var
stofnuð 1984. Forsprakki
hennar er söngvarinn og
gítarleikarinn Dr. Robert
Howard, en auk hans eru i
sveitinni Neville Henry saxó-
fónleikari, Tony Kiley tromm-
ari og bassaleikarinn Mick
Anker.
Hljómsveitin hefur gefið út
þrjár breiðskífur, „Limping
for a generation", 1984,
„Animal magic“ 1986 og „She
was only a grocer’s daugh-
ter“ 1987. Meðal laga hljóm-
sveitarinnar sem komist hafa
á vinsældalista hér og er-
lendis má nefna „Digging our
scene“, „Wicked ways“ og „It
doesnt have to be this way“.
Þess má að lokum geta að
hljómsveitin vinnur nú að
nýrri breiöskífu sem mun
koma út nú í sumar.
„The Christians” var stofn-
uð í Liverpool 1985 af þremur
bræðrum er hétu Christian.
Síðar bættist Henry Priest-
man í hópinn og einn bræðr-
anna hætti. Hljómsveitin er
nú skipuð þeim Garry A.
Christian, söngvara, Russel
Christian, saxófónleikara og
Henry Priestman, hljóm-
borðs- og gítarleikara. Fyrsta
breiðskífa hljómsveitarinnar
leit dagsins Ijós í október á
síðasta ári og hlaut mikiö lof
gagnrýnenda. Meðal laga
Húsafriðunarnefnd
auglýsir hér með eftir umsóknum til húsafriðunar-
sjóðs, sem stofnaður var með lögum nr. 42/1975, til
að styrkja viðhald og endurbætur húsa, húshluta og
annarra mannvirkja, sem hafa menningarsögulegt
eða listrænt gildi.
Umsóknir skulu sendar fyrir 1. september n.k. til
Húsafriðunarnefndar, Þjóðminjasafni íslands, Box
1489, 121 Reykjavik á eyðublöðum, sem þar fást.
Húsafriðunarnefnd
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður
við grunnskóla
Umsóknarfrestur til 15. apríl.
Austurlandsumdæmi:
Staða skólastjóra og grunnskólakennara við Fella-
skóla.
Staða skólastjóra við grunnskólann í Breiðdals-
hreppi.
Norðurlandsumdæmi eystra:
Staða skólastjóra vió Grunnskólann í Svalbarðs-
hreppi N-Þingeyjarsýslu.
Staða yfirkennara við Grunnskólann á Dalvík.
1/2 sérkennarastaða við Grunnskólann í Önguls-
staðahreppi.
Stööur grunnskólakennara við grunnskólana Akur-
eyri, meðal kennslugreina íslenska, stærðfræði,
danska, enska, íþróttir, samfélagsfræði, raun-
greinar, mynd- og handmennt, tónmennt, heimilis-
fræði og sérkennsla, Húsavik, meðal kennslugreina
sérkennsla, erlend mál, stærðfræði, tónmennt,
myndmennt og viðskiptagreinar, Dalvik, meðal
kennslugreina íslenska, stærðfræði, danska og
íþróttir, Olafsfirði, hlutastaða í eðlis- og líffræði, -
Hrisey, meöal kennslugreina iþróttir, tónmennt og
mynd- og handmennt, Hrafnagilshreppi, Svalbarðs-
hreppi, Þórshöfn, meðal kennslugreina íþróttir og
handmennt, og Stórutjarnaskóla, meðal kennslu-
greina íþróttir, smíðar og enska.
Norðurlandsumdæmi vestra:
Stöður skólastjóra við grunnskólana Hólum og •
Akrahreppi.
Stöður grunnskólakennara við grunnskólana Siglu-
firöi, meðal kennslugreina íþróttir, raungreinar og
samfélagsfræði, Sauðárkróki, meðal kennslugreina
tónmennt og danska, Blönduósi, meðal kennslu-
greina mynd- og handmennt, Hvammstanga, meðal
kennslugreina raungreinar og stærðfræði, Staðar-
hreppi í V-Húnavatnssýslu, Höfðakaupstað, meðal
kennslugreina íþróttir, mynd- og handmennt, Hofs-
ósi, meóal kennslugreina mynd- og handmennt, -
Ripurhreppi, Haganeshreppi, Laugarbakkaskóia, -
meðal kennslugreins yngri barna kennsla, Vestur-
hópsskóla, meðal kennslugreina smíðar og hand-
mennt, Húnavallaskóla, meðal kennslugreina
stærðfræði og raungreinar, Varmahliðarskóla og -
Steinsstaðaskóla, meðal kennslugreina hand-
mennt.
Menntamálaráðuneytið.
„The Christians” sem notið
hafa vinsælda má nefna
„Forgotten town“, „When the
fingers point“, „Hooverville'1
og „Ideal World“.
Ljósmynda-
sýning í Lists-
stofu
Um þessar mundir stendur
yfir sýning á 18 Ijósmyndum
eftir Svölu Sigurleifsdóttur í
Listsstofu Bókasafns Kópa-
vogs.
Ljósmyndirnar eru teknar á
seinustu 6 árum á ísafirði og
á Hornströndum. Myndefnið
er fjöll, fuglar, sjór og fiskar
og eru þær svart-hvítar litað-
ar með olíulitum.
Svala er fædd 1950 á ísa-
firði og hlaut hún myndlistar-
menntun sína hér heima, á
Noröurlöndum og í Banda-
ríkjunum. Hún hefur haldið
sýningar hér heima og er-
lendis.
Opnunartimi sýningarinnar
er sami og bókasafnsins,
mánudaga til föstudaga kl.
9-21 og laugardaga frá
11.00-14.00. Ljósmyndasýning-
in stendur yfir til 15. apríl og
er aðgangur ókeypis og
öllum heimill.
Stuðningur við
Palestínumenn
Félagið Ísland-Palestina
krefst þess að íslensk stjórn-
völd setji fram mótmæli við
ísraelsstjórn vegna fram-
ferðis ísraela á hernumdu
svæðunum í Ghaza og vest-
urbakka Jórdanár, og fylgi
þeim eftir á alþjóðavettvangi.
Meðal annars með því að
krefjast þess af Bandarikja-
stjórn, sem veitt hefur ísra-
elsstjórn stuðning, að hún
knýi á um að hryöjuverkum
linni og að Palestínumenn á
hernumdu svæðunum geti
notið réttar síns.
Og að Islensk stjómvöld
taki þegar frumkvæði að
stjórnmálasambandi viö PLO.
Auk þess að íslensk stjórn-
völd leggi lóð á vogarskálar
friðar og mannréttinda til
handa þessu langhrjáða fólki
og bjóði aðstöðu hér á landi
fyrir alþjóðaráðstefnu með
þátttöku allra deiluaðila um
málefni Mið-Austurlanda.
Frumvarp í
undirbúningi
um Fóstur-
skólann
Menntamálaráðherra hefur
nýlega skipað nefnd til þess
að endurskoða lög nr. 10/1973
um Fósturskóla íslands og
ganga frá frumvarpi til laga
er tekur til menntunar fóstra,
þar með talin framhalds-
menntun þeirra.
Ennfremur á frumvarpið að
taka til menntunar annars
starfsliðs, sem vinnur á dag-
vistarstofnunum og á nefndin
að gera tillögur um hvar slíkt
nám ætti að fara fram og
hvaða starfsréttindi fylgi
náminu. Formaður nefndar-
innar er Guðmundur Magnús-
son, aðstoðarmaður mennta-
málaráðherra
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Bygginga-
deildar, óskar eftir tilboðum i lokafrágang að frá-
töldum innréttingum Heilsugæslustöðvarinnar að
Hraunbergi 6.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, að Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 20.000 skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 12.
apríl kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Postholf 878 — 101 Reykjavik
KRATAKOMPAN
Fundur á Akureyri
Opinn fundur með Jóhönnu Sigurðardóttur, félags-
málaráðherra og Árna Gunnarssyni, alþingismanni
verður haldinn miðvikudaginn 23. mars n.k. kl. 20.30
á Hótel KEA.
Alþýðuflokkurinn
Reykvíkingar
Jón Baldvin Hannibalsson, Jóhanna Sigurðardóttir
og Jón Sigurðsson verðaáopnum fundi áHótel Loft-
leiðum fimmtudaginn 24. mars n.k. kl. 20.30.
Alþýðuflokkurinn
Kratakaffi í Reykjavík
Næsta Kratakaffi verður miðvikudagskvöldið 13.
apríl n.k. Nánar auglýst síöar.
Alþýðuflokkurinn
Alþýðuflokksfélögin
í Hafnarfirði
Opið hús í Alþýðuhúsinu öll mánudagskvöld og
fimmtudaga frá kl. 17.30-19.30.
Næstkomandi fimmtudag verða bæjarfulltrúarnir
Valgerður Guðmundsdóttir og Jóna Osk Guðjóns-
dóttir að taka á móti gestum og gangandi.
Allir velkomnir.
Alþýðuflokksfélögin í Hafnarfirði
Fundir Alþýðuflokksins
Fundur á Siglufirði
Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra ásamt
Jóni Sæmundi Sigurjónssyni þingmanni halda fund
á Hótel Höfn þriðjudaginn 22. mars n.k. kl. 20.30.
Fundurinn er öllum opinn.
Alþýðuflokkurinn.
Flokksstjórn —
Sveitarstjórnarmenn
Laugardaginn 26. marz n.k. verður haldinn sameigin-
legur fundur Flokksstjórnar og sveitarstjórnarmanna
Alþýðuflokksins.
Fundurinn verður á Hótel Loftleiðum frá kl. 11-16.
Dagskrá:
Kl. 11-12, Stjórnmálin í dag - næstu verkefni. Jón
Baldvin Hannibalsson, fjármálaráð-
herra.
Kl. 12-13, Léttur hádegisverður.
Kl. 13-16, Samskipti ríkis og sveitarfélaga. Freyr
Ófeigsson, bæjarfulltrúi.
Almennar umræður.
Alþýðuflokkurinn.