Alþýðublaðið - 22.03.1988, Side 7
Þriðjudagur 22. mars 1988
7
ÚTLÖND
Umsjón:
Ingibjörg
Árnadóttir
DAUÐASVEITIR
Amnesty Inter-
national, ákœrir
Honduras fyrir
víðtœk brot á
mannréttindum.
Dauðasveitir eru aftur
komnar upp á yfirborðið í
Honduras, enn eitt dæmið
um kúgunina sem þar við-
gengst. Amnesty Internation-
al siær þessu föstu í nýrri
skýrslu, sem þeir sendu frá
sér á dögunum um þetta
land í Mið-Ameríku.
„í Honduras eiga sér stað
alvarleg og mjög útbreidd
brot á mannréttindum,
ástæðulausum handtökum,
pyntingar og misþyrmingar",
eins og segir í skýrslunni.
Amnesty International hef-
ur snúið sér til ríkisstjórnar
Honduras, og farið fram á að
ríkisstjórnin beiti sér fyrir
rannsókn á þremur morðum,
sem talið er að hafi verið
framin af dauðasveitunum í
janúar s.l. Eitt fórnarlamb-
anna var einn af leiðtogum
CODEH, sem er félagsskapur
í Honduras er berst fyrir
mannréttindum. Sá var ný-
kominn heim frá Costa Rica
þar sem hann hafði lagt fyrir
Mannréttindadómstólinn
sannanirgegn ríkisstjórninni
í Honduras, fyrir að bera
ábyrgð á mannshvörfum. For-
maðurCODEH hafði einnig
fengið morðhótanir.
Talið er að leyniþjónustan
Bataljon 3-16 beri ábyrgö á
þeim morðum sem dauða-
sveitirnar fremja. Hin opin-
bera leyniþjónusta lögregl-
unnar DNI er einnig talin
eiga hlut aö máli í flestum til-
fellum þegar um yfirgang er
að ræða.
Amnesty International hef-
ur á síðastliðnum tveimur ár-
um fengið æ fleiri upplýsing-
ar um handtökur óbreyttra
borgara, sem hafa verið ólög-
lega lengi i varðhaldi og hafa
ekki fengið að hafa samband
við umheiminn. Eftir að hafa
verið látnir lausir hafa margir
þeirra kvartað yfir þvi að þeir
hafi verið pyntaðir. Vitni hafa
lýst barsmíðum, að mönnum
séu gefin raflost og kynferð-
islegar árásir. Svo virðist sem
bundið sé fyrir augu þeirra
sem sitja inni, reglulega og
um langan tima.
Það eru aðallega verka-
lýðsleiðtogar, iðnaðarmenn,
Stúdentar, bændurog þeir
sem berjast fyrir mannrétt-
indum, sem eiga handtökur
og árásir yfir höfði sér. Marg-
ar handtökur hafa átt sér
stað þegar verkföll eru í
gangi, þegar bændur krefjast
landréttinda og þegar her-
menn ráðast gegn frelsis-
sveitum.
Pyntingar
Skýrsla Amnesty Inter-
national fjallar meðal annars
um Doris Benevides Tarrius
tuttugu og níu ára sálfræð-
ing, sem „hvarf“ í tæpar þrjár
vikur, eftir að hafa verið
handtekin af DNI leyniþjón-
ustu lögreglunnar.
Leyniþjónustan heldur þvl
fram, að hún hafi verið í sam-
bandi við frelsishóp, og vildu
fá hana til aö játa. Þegar hún
neitaöi var hún hengd nakin
upp í málmbjálka og sfðan
voru henni gefin raflost í fæt-
ur og brjóst. Eftir það var
sparkað í hana, hún var lamin
og að endingu var henni
nauðgað. Á meðan á öllu
þessu gékk, var bundið fyrir
augu hennar. Fyrstu dagana
var henni haldið í aðalstöðv-
um DNI í San Pedro Sula, en
seinna var hún flutt á óþekkt-
an stað. Allan tímann neitaði
DNI að hún væri i þeirra
vörslu.
Eftir tæplega þriggja vikna
misþyrmingar var Doris Tarri-
us sleppt lausri. Það var
bundið fyrir augu hennar og
hún sett út úr bíl í götu sem
er rétt hjá sendiherrabústað
Mexico, í höfuðborginni
Tegucigalpa. DNI hótaði að
myrða hana, ef hún væri ekki
horfin úr landi innan 24
klukkustunda. Doris býr nú f
útlegð í Mexico.
Dauðasveitirnar í Hondur-
as voru einkar athafnasamar
á tímabilinu 1981-84.
Amnesty International skýra
nákvæmlega frá handtökum,
morðum og árásum á þessu
tímabili og segja þessar að-
farir hafi verið unnar í sam-
vinnu Bataljon 3-16 og contra-
skæruliða þeirra, sem hafa
aðsetur í Honduras en berj-
ast gegn ríkisstjórninni í
Nicaragua.
Fyrrverandi meðlimur
Bataljon 3-16, hefur borið
vitni um, að hann og margir
fleiri hafi verið þjálfaðiraf
Bandaríkjaher í Bandaríkjun-
um árið 1981. Hann sagði
jafnframt að mikil leynd hefði
verið í sambandi við þessa
þjálfun.
Amnesty International seg-
ir þessa miklu hreyfingu á
dauöasveitunum nú, beri
þess augljóslega merki að
ástand í mannréttindamálum
í Honduras, fari hríðversn-
andi.
Ríkisstjórn í Honduras hef-
ur ekki ennþá sagt álit sitt á
skýrslunni, sem hlýtur óneit-
anlega að koma sér óþægi-
lega fyrir ríkisstjórnina með
tilliti til friðaráformanna í
Miö-Ameríku.
Ríkisstjórnin í Honduras
virðist ekki á nokkurn hátt,
gera sig líklega til að sýna í
verki að hún hugsi sér að
fara eftir þeim áformum sem
Mið-Ameriku friðarsamning-
arnir gerðu ráð fyrir.
Þetta er einkum áberandi í
sambandi við hina 12.000-
15.000 Contraskæruliða sem
í sjö ár hafa barist gegn ríkis-
stjórn Nicaragua, frá bæki-
stöðvum í Honduras.
í friðaráætlun Mið-
Ameríkurikjanna segir, að
ekkert ríki megi hafa erlendar
baráttusveitir á umráðasvæöi
sinu.
Eftir þessu aö dæma, ætti
Honduras að losa sig við
Contraliðana hið bráðasta.
Það hefur ekki gerst og sýnir
þetta berlega að ríkisstjórnin
i Honduras hefur enga stjórn
á Contraliðum. Eftir skýrslu
Amnesty International að
dæma, hefur ríkisstjórn
Honduras heldurekki neina
stjórn á lögregluyfirvöldum
né heldur á hernaðaryfirvöld-
um.
(Det fri Aktuelt.)
Dauöasveitir eru að verki í
Honduras, landi þar sem fá-
tækt er útbreidd og mannrétt-
indabrot algeng.