Alþýðublaðið - 14.04.1988, Síða 6
6
Fimmtudagur 14. apríl 1988
SMÁFRÉTTIR
Hildur Hálfdánardóttir (t.h.) af-
hendir fyrir hönd Soroptimista
Önnu Þruði Þorkelsdóttur (t.v.)
formanni stjórnar RK-hússins
ágóðann af fjáröflun.
Soroptimista-
samtökin
styrkja Rauða-
krosshúsið
Sunnudaginn 20. mars sl.
héldu Soroptimistasamtökin
fjölskylduskemmtun á Broad-
way til styrktar starfsemi RK-
hússins aö Tjarnargötu 35,
en það er neyðarathvarf fyrir
börn og unglinga.
Á skemmtuninni komu
fram góðir skemmtikraftar og
sýningarfólk sem allt tengd-
ist samtökunum á einhvern
hátt. Má þar nefna ein-
söngvarakvartett, Valgeir
Guðjónsson söngvara og
lagasmið, jassballetstúlkur
og tískusýningu sem félags-
konur önnuðust af glæsi-
brag.
Skemmtunin var öll hin
glæsilegasta, vel skipulögð
og vel sótt af gestum. Allt
meðlæti var heimabakað og
voru hlaðborðin sérlega
glæsileg.
Mánudaginn 29. mars 1988
afhentu Soroptimistaklúbb-
arnir síðan ágóðann af
skemmtuninni kr. 251.000 for-
manni stjórnar RK-hússins
sem þakkar hér fyrir.
Kópavogsbær
veitir ferða-
styrk á
Norrænt
kvennaþing
Jafnréttisnefnd Kópavogs
vill minna á að nú eru tæpir 4
mánuðir þar til Norræna
kvennaþingið í Osló hefst, en
það fer fram dagana 30. júll
til 7. ágúst, á háskólasvæð-
inu í Blindern.
Norræna kvennaþingið er
öllum opið. Þar verður dregin
fram mynd af lífi og starfi
kvenna á Norðurlöndum og
fjallað um allt sem þeim við-
kemur. í Osló verða konur frá
öllum Noröurlöndum með
fyrirlestra, ýmiss konar sýn-
ingar, tónlist og alls konar
upþákomur. Þá verður einnig
fjallað sérstaklega um friðar-
mál og kjör kvenna á vinnu-
markaði. Ætla Islenskar
konur sér virkan og stóran
þátt I þinginu.
Bæjarstjórn Kópavogs
hefur ákveðið að veita farar-
styrk til þeirra kvenna i Kópa-
vogi sem hyggjast fara á
þingið og hafa ekki aðgang
að styrkjum annars staðar
frá. Umsóknir um fararstyrk
þurfa að berast Skólaskrif-
stofu Kópavogs, merktar
Jafnréttisnefnd fyrir 1. maí.
Ennfremur bendum við kon-
um á ferðasjóð Norræna
kvennaþingsins en markmið-
ið með sjóðnum er að styrkja
þær konur sérstaklega sem
hvergi fá styrk annars staðar
frá.
Fyrir 15. apríl þurfa þær
sem ætla á þingið í leigu-
flugi og/eða vilja láta útvega
sér gistiaðstöðu að láta vita.
Þess má geta að fargjaldi er
mjög stillt i hóf eða kr.
11.500. Umsóknareyðublöð
liggja frammi hjá Fram-
kvæmdanefnd Norræns
kvennaþings sem hefur að-
setur hjá Jafnréttisráði,
Laugavegi 118d, 105 Reykja-
vik. Síminn þar er 91-27877/
27420 og hikið ekki við að
leita ykkur frekari upplýs-
inga.
Um stofnút-
sæði og annað
kartöfluútsæði
Nú fer í hönd sá tími þegar
kartöfluræktendur kaupa sér
útsæði til niðursetningar í
vor. Með reglugerð landbún-
aðarráðuneytisins nr. 66/1987
um kartöfluútsæði var því
komið á, að einungis þeir
framleiðendur sem hafa til
þess sérstakt leyfi, mega af-
henda útsæði til almennrar
sölu og dreifingar. Markmiðið
með þessum hömlum er
einkum að koma í veg fyrir
frekari útbreiðslu sjúkdóms-
ins hringrots og meindýrsins
kartöfluhnúðorms, en þessir
skaðvaldar eru veruleg ógnun
við kartöfluræktun í landinu.
Slík útsæðisleyfi hafa nú um
60 framleiðendur.
Undanfarin 40 ár hefur far-
ið fram svokölluð stofnrækt-
un á kartöfluútsæði. Mark-
miðiö með henni er að fá
fram afkasameiri og heil-
brigðari stofna af mikil-
vægustu afbrigðunum. Fag-
leg yfirstjórn á stofnræktinni
er nú í höndum þriggja
manna „Útsæðisnefndar",
sem starfar á vegum land-
búnaðarráðuneytisins. Rann-
sóknastofnun landbúnaðar-
ins hefur eftirlit með heil-
brigði stofnútsæðis. Unnið er
að því að draga úr tíðni hinna
ýmsu sjúkdóma og mjög ná-
kvæm prófun gerö til að úti-
loka að hringrotssmit geti
borist með stofnútsæði. Far-
in er eftirlitsferð um stofn-
ræktargarða siðla sumars og
útsæðið er einnig skoðað í
geymslum framleiðenda í
marsmánuði. Nú eru um 14
sérhæfðir útsæðisframleið-
endur í stofnræktinni og eru
þeir allir við Eyjafjörö. Heitið
„stofnútsæði“ máeinungis
nota yfir útsæði af afbrigð-
unum: Bintje, Gullauga,
Helgu og Rauðum íslensk-
um, sem framleitt er í stofn-
ræktun hjá þessum útsæðis-
framleiðendum. Það á að
koma fram á merkimiðanum
að um stofnútsæði sé að
ræða.
Sú grundvallarregla gildir
að þar sem hringrot eða kart-
öfluhnúðormur hefur fundist
eða sé rökstuddur grunur um
þessa skaðvalda, er óheimilt
að afhenda öðrum ræktanda
útsæði þaðan. Sé slíkur
grunur ekki fyrir hendi, eru
bein útsæðisviðskipti milli
ræktenda heimil án sérstaks
leyfis og þá á þeirra eigin
ábyrgð. Eitthvað hefur borið á
því að ræktendur án útsæðis-
leyfis auglýsi í staðarblöðum
útsæði í heimasölu. Vara
verður við slíkum útsæðis-
kaupum.
Ekki er hægt að meta
gæði útsæðis eftir útliti einu
saman. Ekki sést á kartöfl-
unum hvort þær bera smit
alvarlegra sjúkdóma. Alls
ekki skal setja niður að-
keyptar matarkartöflur heldur
eingöngu kartöflur sem
seldar eru sem útsæði.
Það útsæði sem völ verður
á hjá dreifingaraðilum er því
tvenns konar, annars vegar
stofnútsæði og hins vegar
annað útsæði. Á höfuð-
borgarsvæðinu verður stofn-
útsæði fáanlegt hjá: Ágæti,
Siðumúla 34; Blómavali, Sig-
túni; Mata, Sundagörðum 10
og Sölufélagi garðyrkju-
manna, Skógarhlíð 6. Dreif-
ingaraðilar og stærri fram-
leiðendur geta snúið sér til
Búnaðarsambands Eyjafjarð-
ar á Akureyri með pantanir í
stofnútsæði.
Tölvudagar í
Félagsmála-
skólanum 25.
apríl - 4. maí.
Menningar og fræðslu-
samband alþýðu býður fé-
lagsmönnum aðildarfélaga
Alþýöusambandsins að
sækja svokallaða tölvudaga (
Ölfusborgum 25. aprfl - 4. mai
n.k. Tölvudagar eru nýr þáttur
i starfi Félagsmálaskólans i
Ölfusborgum, en á undan-
förnum árum hefur MFA hald-
ið ýmis sérnámskeið í Ölfus-
borgum auk hins almenna
náms í Félagsmálaskóla al-
þýðu.
Námskeiðið Tölvudagarnir
skiptist í þrjá námsþætti,
sem hver um sig stendur í
þrjá daga. Á fyrsta hluta nám-
skeiðsins 25.-27. apríl verður
fjallað um einkatölvur, M.S.
Dos stýrikerfið og helstu
jaðartæki þess. Ritvinnsla
(Orðsnilld) og fjárhagsbók-
hald verða einnig tekin fyrir í
þessum hluta námskeiðsins.
í öðrum þætti námskeiðs-
ins 28.-30. apríl verður á ný
rætt um einkatölvuna, en í
framhaldi af því er umfjöllun
um gagnagrunn (D.base
111+) og töflureikni (Visi-
calc).
Síðasti námsþátturinn er
svo helgaður móðurtölvu líf-
eyrissjóöanna að Suður-
landsbraut 30 í Reykjavík.
Námsefni er m.a. uppbygging
og notkun félagsskrár, at-
vinnuleysisbætur, reglur, rétt-
indi og tölvuvinnsla, prentun
og tölvupóstur.
Nánari upplýsingar um
tölvudaga eru veittar á skrif-
stofu MFA í Reykjavík.
Sunnlenskar
konur and-
mæla bjór
58. ársfundur Sambands
sunnlenskra kvenna haldinn
að Heimalandi, V-Eyjafjalla-
hreppi dagana 19.-20. apríl
1986, skorar á háttvirt Alþingi
að fella framkomið frumvarp
um að leyfa bjórsölu í land-
inu. Fundurinn óttast þær af-
leiðingar sem þetta frumvarp
hefur, ef samþykkt verður.
Það skal tekið fram að árs-
fund S.S.K. sitja fulltruar frá
öllum kvenfélögum úr Árnes-
og Rangárvallasýslu og ríkti
algjör samstaða um áskorun
þessa.
Hjúkrunarfræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu-
stöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar:
1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð-
ina í Ólafsvík.
2. Staöa hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð-
ina á Egilsstöðum.
3. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð-
ina á Þingeyri.
4. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð-
ina í Reykjahlíð, Mývatnssveit.
5. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð
Suðurnesja í Keflavík.
6. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð-
ina á Þórshöfn.
7. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð-
ina í Hafnarfirði.
8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð-
ina í Kópavogi.
9. Hálf staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöð Eskifjarðar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
við hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
Heilbrigðis- og tryggingamáiaráðuneytið
14. apríl 1988.
KRATAKOMPAN
SUJ í líkamsrœkt
Hittumst í sturtunni
í Engihjalla!
Ungkratar eru þeirrar skoðunar að
heilbrigð sál þrífist best í hraustum
líkama. Þess vegna hefur verið
ákveðið að hittast reglulega í
Æfingamiöstöðinni í Engihjalla,
klukkan 12 á laugardögum. (í sama
húsi og Kaupgarður).
Bjarni P. Magnússon, borgarfull-
trúi, verður sérstakur heiðursgarpur
á fyrstu æfingunni á laugardaginn
kemur.
Siðar er ráðgert að bjóða Bryndisi
Schram, en ekki fyrr en SUJ-félagar
verða komnir í betra form.
Alþýöuflokksfélag
Garðabæjar og
Bessastaðahrepps
Aðalfundur og bæjarmálaráðsfundur verður haldinn
að Goðatúni 2, Garðabæ mánudaginn 18. apríl kl.
20.30.
Stjórnin