Alþýðublaðið - 19.04.1988, Síða 2

Alþýðublaðið - 19.04.1988, Síða 2
2 Þriójudagur 19. apríl 1988 nmniBimin Útgefandi: Blaö hf. Framkvæmdastjóri Valdimar Jóhannesson Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson Umsjónarmaður helgasblaðs: Þorlákur Helgason Blaðamenn: Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttir, Omar Friðriksson, og Sigríður Þrúður Stefánsdóttir. Dreifingarstjóri: Þórdís Þórisdóttir Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent hf., Siðumúla 12. Áskriftarsíminn er 681866. Dreifingarsimi um helgar: 18490 Áskriftargjald 700 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virka daga, 60 kr. um helgar. Vinsældalisti stjórnmálanna Pólitiskar vinsældir viröast ekki vera í neinu hlutfalli viö skynsemi eöaheilindi þeirrarstefnu sem stjórnmálaflokk- arflytjaeöaframkvæma. Skoðanakannanir hafasýnt ótrú- lega miklar og tíðar sveiflur á fylgi stjórnmálaflokka. Og þaö er engu líkara en aö dagdraumar og óskhyggja ráöi feróinni fremur en jaröbundin rökhyggja, þegar almenn- ingur kýs flokk í skoöanakönnun. Þaö hefur sýnt sig aö auglýsingamennska og lýðskrum á mun greiöari leiö aö hjörtum kjósenda en pólitísk stefnumótun eöa efndir kosningaloforöa. Þaó er til aö mynda athyglisvert aö þeir flokkar sem mest hafa gert út á gagnrýni og tilfinningar, hafa náö mun betri árangri en þeir flokkar sem hafa stöðugleika og stefnufestu aö leiðarljósi. Fyrir síöustu kosningar til Alþingis tók til dæmis Framsóknarflokkur- inn stórstökk áfáum vikum fyrir kosningar, frá lágum fylg- istölum í skoðanakönnunum til góðra kosningaúrslita. Ástæóan fyrir snöggum árangri var rándýr og umfangs- mikil auglýsingabrella, þar sem engin stefnumótun var lögö til grundvallar, en lögð áhersla á að lemja einföldum frösum eins og „klettinum í hafinu" inn í hausinn á fólki. í núverandi stjórnarsamstarfi hefur Alþýöuflokkurinn tek- iö stjórnarsáttmálann og ábyrgö ríkisstjórnarinnar af mestri alvöru. Alþýðuflokkurinn bjóst ekki viö miklum hrósyróum eöa húrrahópum fyrir aö takast á viö alvarleg- an efnahagsvanda sem samstarfsaðilarnir, Framsóknar- flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn skildu viö eftir eitt mesta góðæri íslenska lýðveldisins. Alþýöuflokkurinn sýndi festu, viljaog mikla ábyrgð viö að skila hallalausum fjárlögum; viö aö taka ríkisfjármálin föstum tökum og gjörbylta tekjuöflunarkerfi ríkissjóðs. Enda upþskar Alþýöuflokkurinn aöeins pólitískaróvinsældir um tímaog dalandi fylgi samkvæmt skoðanakönnunum. En Sjálf- stæðisflokkurinn hefur einnig glataö fylgi en kannski á öörum forsendum, en Framsóknarflokknum hefur tekist aó halda nokkurn veginn fylgi sinu. Þaö hefur flokkurinn gert meö því aö sitja hjá í ríkisstjórnarsamstarfinu og fleyta rjómann af vinsælum málum ríkisstjórnarinnar en víkja frá í þeim málum sem ekki eru líkleg aö skapa ríkis- stjórninni vinsældir. Annaö dæmi: Kvennalistinn hefur vaxið jafnt og þétt í skoðanakönnunum, ekki síst síðan ríkisstjórnin tók viö. Vinsældir flokksins viröast einkum byggjast á tilfinningaríkri gagnrýni á ríkisstjórnina í staö málefnalegra og ábyrgra hugmynda. Annar flokkur, Borg- araflokkurinn, hlaut mikið fylgi viö síðustu alþingiskosn- ingar sökum tilfinningasveiflu kjósenda sem vottaöi for- manni flokksins samúð sína með þá meðhöndlum sem hann hlaut hjá Sjálfstæðisflokknum. í dag er Borgara- flokkurinn nær þurrkaöur út af hinu pólitíska korti. Ástæðan: Borgaraflokkurinn erekki lengur í sviösljósinu og hefurekki átt inngöngu í fjölmiölasirkusinn. Þaöerisjálfu séralvarlegt íhugunarefni þegarniðurstöð- ur skoðanakannana sýna að lausafylgi stjórnmálaflokka telur nú um helming allra kjósenda. Þaö þýðir aö fólk hall- ar sér í minna mæli en áöur upp aó grundvallarstefnu. Pólitísk hugmyndafræöi á meö öörum orðum ekki upp á pallborð almennings í dag. Dægurflugur og einstök upp- hlaup í fjölmiðlum viröast höfóameiratil kjósendaen hug- myndafræöi. Pólitík er því aö veröa eins og hver önnur markaðsvara. Stjórnmál, þjóöhagsleg velferð og ábyrgö, svo og pólitísk ákvöröunartaka gengur nú kaupum og sölu. Hinn pólitíski vinsældalisti sem skoðanakannanirn- ar hafa skapaö, er farinn aö móta viöhorf og vinnubrögð stjórnmálaflokkana í ríkum mæli. Þaö leiðir meðal annars til þess aó hagsmunum þjóðarinnar er fórnaö fyrir stund- arvinsældir. Þessi þróun er háskaleg. BRÉF FRÁ LESENDUM Af hverju er föngum mismunað af fullustunefnd? Mig langar aö gera fyrir- spurn til fullustunefndar fanga, af hverju er gert upp á milli fanga? Sumir fangar fá náóun á helming og þeir eiga kannski hvergi höföi sinu aö halla þegar þeir koma út. En aðrir fangar sem hafa staðið sig mjög vel og verið öðrum til fyrirmyndar inni i tangeisi, fá neitun. Þó svo að þeir eigi bæði fjölskyldu og heimili, þegar þeir koma út. Og jafn- vel bíður vinna eftir þeim líka. Hvernig væri að það væri tekið tillit til þess? Ég held að það megi fara að breyta hugarfarinu hjá þeim sem eru í þessari nefnd eða jafnvel stokka upp og setja í hana yngri menn. Ég er að- standandi eins af þeim föng- um sem fengu synjun á helming. Hans bíður fjöl- skylda og mjög gott heimili. Einnig bíður hans góð vinna. Ég bara spyr, hvers eiga þessir menn að gjalda og fjölskyldurnar? Má ekki hjálpa þeim sem vilja verða nýtir þjóðfélagsþegnar á ný? Ég óska eftir svari frá ykkur sem fyrst hér á síðunni. Ein reið (3169-4140) ÖNNURSJÓNA RMIÐ TIMINN birti um helgina athyglisverðar skoðanir konu sem nú hefur yfirgefið jaróneska vist. Hér er um að ræða bersögul skriftarmál Ólafar hinnar riku á Skarði sem blaðið segir að séu á mörkum að vera prenthæf enn þann dag í dag. Og því næst birtir málgagn Fram- sóknarmanna skriftarmálin. En grípum niður í skriftarmál Ólafar Loftsdóttur hinnar ríku á Skarði á Skarðsströnd eins og þau koma fyrir í Tímanum um helgina: „Því að þótt ég viti að ein en engin önnur sé réttleg sambúö karls og konu aö karlmaður á konukviði liggi, með hverri aöferð að ég var oftlega í nálægö míns bónda, þá afneytti ég allt eins mörgu sinni þeirrar aðferöar þannig að stundum lágum viö á hlið- ina bæði. Stundum svo aö ég horfði undan en hann eftir, fremjandi í hverri þessari samkomu holdlega bliðu með blóðsins afkasti og öll- um þeim hræringum liða og lima okkar beggja, sem ég mátti og þá samtengjandi. Þar meö blautlega kossa og atvik oröanna og átekning handanna og hneiging líkam- ans í öllum greinum." Og áfram: „Einkanlega hefi ég mis- gert eigi síður, minn kæri faðir, að ég hef oftlega í blíð- læti verið með aöra karl- menn, það er aö skilja í koss- um, faðmlögum, gleðilegum orðum og léttlátum augna til- renningum, i umspenningum og nákvæmri líkamanna sam- komum og í átekningum handanna og margháttuðum viðvikum þeim er full blíöa mátti af gerast. Og þó aö meö Guðs Drottins forsjá og þeirri minni ástundan aö eigi skyldi ég af þess háttar manni saurgast, og þó að ég hefði við sjálfa hórdómsins framning og framkomu getn- aðarlimanna frí verið, þá hefi ég allt eins af fyrrsögðum bliðskap ruglast með sjálfri mér og það hefur losnað sem ég átti að halda burt af geymslu mins kviðar og í óskaplegan staö komið. Og hvílík synd mér er þetta, legg ég hana upp undir miskunn- ardóm Drottins míns og yöur föðurlegt umdæmi í Guðs nafni...“ Þetta er nokkuð svæsinn lestur. Það er einna helst að tengja þessi skriftarmál við boðaðan miðstjórnarfund Framsóknar um næstu helgi og játningar þær sem ráð- herrar flokksins og aðrir forystumenn verða að hafa uppi fyrir miðstjórnarmönn- um. NÝLEG frétt um að fyrir dyrum séu breytingar á starf- semi Fteykjaskóla i Hrútafirði, varð gömlum nemenda skól- ans, Árna Bergmann ritstjóra tilefni til langra vangaveltna um hlutverk og örlög héraðs- skóla á íslandi. Umfjöllun hans birtist í Þjóðviljanum um slðustu helgi og var að * mörgu leyti skemmtileg og fróðleg. Grípum niður í texta Árna þar sem hann fjallar um eigin reynslu af skólalífinu í Reykholtsskóla: „Sá sem þetta skrifar kom í hérðasskóla árið 1947, þaö var í Reykholti. Sá timi var enn blómaskeið héraðsskól- anna að því leyti til, að að- sókn var mikil og enginn ef- aðist um framtíð þeirra. En allt var hvunndagslegra orðið náttúrlega en í þeim hátiða- ræðum og sigursælum skóla- skýrslum sem að ofan er vitnað til. Héraösskólar voru æ meira að líkjast þriggja vetra gagnfræðaskólum hvar sem væri á landinu, flestir reyndu við landspróf til að eiga aðgang að menntaskóla ef vildi eða öðru framhalds- námi. Þó hafði ýmisleg sér- staða varðveist frá frumbýl- ingsárunum. Hugsjónin um samtvinnun bóknáms og verkmenntunar lifði enn i því, að meiri alvara var í handa- vinnu og smiðum en í bæjar- skólum: meira að segja klauf- ar meö alltof marga fingur á höndunum smiðuðu sér koffort eða bókaskápa. Þaö var sungið heilmikið og byrj- Árni Bergmann tekur upp hansk- ann fyrir Reykjaskóla i Hrútarfiröi og aöra héraðsskóla. að fvrir kennslu á morgnana: Faðir andanna og Ó mig gleöur sveit að sjá þig enn. Iþróttalíf var feiknamikið meö endalausum áskorunum milli bekkja, landshluta og jafnvel kynja í handbolta eða boð- sundi: eitt sinn skoruöu minnstu strákarnir á stærstu stelpurnar í handbolta (við unnum). Fyrirlesarar komu og töluðu um siðgæöiö og eil- ífðina. Þórir skólastjóri las kvöldsögu." Og áfram minnist Árni gömlu skóladaganna: „Menn læröu vitanlega sína algebru, landafræði og sögu. En náttúrlega lærðu menn mest á því að vera í heimavist; það áleitna náb.ýli sem við vorum i þrjú til sex saman í herbergi var blátt áfram feiknaöflug lexía í mannlegum samskiptum og þá kannski ekki síst í því, hve skemmtileg vináttan getur verið og fjandskapurinn þungbært erfiði. Við læröum líka aö umgangast hitt kynið eins og vonlegt var — ekki barasta i vangadansi og merkilegum faðmlögum út í skoti, heldur og i jafnréttis- vinnu viö nauðsynlegustu heimilisstörf. Við deildum með okkur jafnt, strákar og stelpur, borðstofuvinnu, skúringum og þvottum og ekki síst höfðum við strákar gott af þessu. Sá pjakkur sem gat varla tínt bein úr fiski þegar hann kom undan verndarvæng móður sinnar á hausti var farinn að stífa skyrtur um voriö eins og fara gerir.“ Kannski héraðsskólanna hafi aldrei verið meira þörf en nú? Einn me5 kaffinu Einhverjir sjónvarpsáhorfendur muna sjálfsagt eftir þætti Ómars Ragnarssonar, þar sem hann heimsótti forneskjulegan einsetumann, er hélt til á eyðibýli í Álftafiröi vestra ásamt heilli hjörö af hundum. Á fundi sóknarnefnda og presta á Súðavík á síöasta hausti sat séra Baldur í Valsfirði aö kaffidrykkju viö hliö konu einnar, er spurði hann, hvort þaö væri ekki áhyggjuefni, ef karlinn dæi þarna drottni sínum án þess nokkur vissi. Séra Baldur svaraöi um hæl: „Þá éta hundarnir hann bara og þá er hann líka endanlega kominn í hundana."

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.