Alþýðublaðið - 28.05.1988, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 28.05.1988, Qupperneq 7
330r ifiíTi 8S 'iup0b"í£0UGJ Laugardagur 28. maí 1988 Ingibjörg lét draum rœtast og rekur hjúkrunarheimili fyrir aldraða Það er friðurinn sem fólk leitar að Fyrir fjórum árum hófst Ingibjörg handa. Myndarlegt hús var byggt þar sem öllu var fyrirkomið, en húsmóðirin sjálf hafði ekkert afdrep. Nú eru vistmenn ellefu konur, sú elsta 92 ára og Ingibjörg búin að reisa aukahús, sem á að vera hennar. En oft er aðsókn svo mikil að þar verður aö koma heimilisfólki fyrir. „Ég var ákaflega vel sett,“ segir Ingibjörg. „Við áttum jörðina og þess vegna gat ég látið drauminn rætast að koma upp heimili eins og mig hafði dreymt um. Eg er sannfærð um að lítið heimili eins og þetta er fram- tíðin. Fólki finnst miklu eðli- legra að búa á vistlegu heim- ili en á stofnun. Þörfin er mikil, og þess vegna hefur það orðið þannig að ég hef fyrst og fremst tek- ið á móti fólki sem þarf á að- hlynningu að halda. Það get- ur ekki hugsað um sig sjálft. Mikið eru einstæðingar, sem geta ekki verið heima hjá sér.“ Lœrðar og ólœrðar vinni saman „Ég skil vel að fólk sem vinnur úti og er með gamal- menni heima hjá sér, geti ekki sinnt fólkinu í hjáverk- um. Það er ekki hægt að skilja það eftir heima. Hvernig á kona sem kemur heim úr vinnu að hugsa um bæði börn og gamalmenni? Það er óskaplegt álag.“ — Geta sjúkrastofnanirnar ekki tekið við fólkinu? Eru þær yfirfullar? „Já, og þær sem eru ekki yfirfullar, hafa ekki starfsfólk. Það er ekki vel séð að nota ólært starfsfólk, en það er þó hægt að nota það í neyð. Mér finnst það voðaleg vitleysa, því að þessar stúlkur eru alveg eins færar i starfinu og hjúkrunarkonur. Ég sé ekki ástæðu þess að ekki er hægt að koma því heim og saman að báðir hóparnir, lærðir og ólærðir séu í starfi.“ Friðurinn sem fólk leitar að „Ég var búin að vera með aila vega fólk á heimilinu áður en ég setti þetta á lagg- irnar.“ — Er þörfin jafn mikil og þegar þú byrjaðir? „Já, tvímælalaust." — Hvaðan er það fólk sem hingað kemur? „Fyrst og fremst af sjúkra- stofnunum í Reykjavík. Mér fyndist eðlilegra að ég tæki fólk úr héraðinu, en ég verð að taka þær sem hafa mesta þörf fyrir hjúkrun. Ég varð t.d. að taka konu sem var ein í sinni íbúð, og ég vissi að hún yrði erfiður sjúklingur. Þegar hún kom var næringarskorturinn svo mikill að ég varð að koma henni á sjúkrahúsið á Sel- fossi í viku. Hún varð að fá næringu i æð til þess að hressa sig við. Þessi kona var alein í íbúð, en kona kom til hennar með mat — sem var ósnertur í næsta skipti sem hún var heimsótt." — Þú rekur stórt heimili.. „Já, það má segja það.“ — Ertu sannfærð um að þetta sé betra en stofnanir? „Já, það er friðurinn sem fólk leitar að, en finnur ekki á stofnunum í skvaldrinu og hávaðanum þar. Við gerum allt sem við get- um fyrir konurnar, en stund- um hvarflar það að mér að þær byndist mér of miklum böndum. Ég held að ég megi ekki fara frá.“ — Er eldra fólk hrætt við að þurfa aö lenda á stofnun? „Nei, það held ég ekki, en þær sem hafa þurft að fara á spítala héðan hafa spurt mikið hvort þær megi ekki koma aftur. Sumar hafa kom- ið aftur en sumar farið alla leiðina." Dautt líf að ganga með hendur í vösum um götur Reykjavíkur — Finnst þér ekki að sam- félagið eigi að sinna þessari þörf í stað þess að stóla á að til séu góðar konur eins og þú? „Það má kannski segja það, en það þýðir ekkert fyrir aðra að taka þetta að sér en þá sem finna hjá sjálfum sér að þeir séu tilbúnir að taka á móti fólkinu. Það er ekki hægt að fara út í þetta til dæmis til þess að græða á því. En enginn gerir það af góðri samvisku með því hugarfari. Sem betur fer veit ég að mikið er til af góðu fólki sem vill og getur, en hefur ekki tækifæri til þess að sinna því. Ég gat vegna minna sér- stæðna komið mínu áhuga- máli í framkvæmd. Ég segi það stundum að bændur sem verða að flosna upp af jörðunum og verða að flytja buft, ættu að setja upp stofnun í stað þess að flytja búferlum. Ef ég væri í þeirra sporum vildi ég það heldur en að þurfa að fleygja jörðinni frá mér og fara að vinna í fiski eða kexverksmiðju i Reykja- vík. Mér finnst dautt Iff að ganga með hendur í vösum um göturnar f Reykjavfk og fara kannski niður í frystihús að vinna. Það er gífurleg þörf fyrir heimili fyrir börn, unglinga, gamalmenni — já allar sortir. Það er t.d. allt yfirfullt í kvennaathvarfinu í Reykjavík, og mikil þörf fyrir heimili fyrir mæður sem þurfa að hvilast með börnunum sínum — ekki síður úti i sveit. Ég er sannfærð um að það væri skynsamlegra fyrir fólk að reka svona heimili en að yfirgefa verðlaus hús til þess að flytja suður.“ „Ég erviss um aö fólkfæri aö hugsa sig um,ef það kynntist heimili eins og þessu.“ Bergþóra Eggertsdóttir starfstúlka á heimilinu: Eitt gott heimili handa öllum Bergþóra Eggertsdótt- ir er starfsstúlka á Blesastöðum. Hún hef- ur unnið á hálfan annan áratug innan um gamalt fólk, og finnst heimili eins og hér til fyrir- myndar. „Það er ekki hægt að líkja þessu við stofnanir. Vistfólk- ið lítur á þetta sem sitt heim- ili, allt er miklu persónulegra með nánara sambandi milli vistfólks og starfsfólks. í rauninni erenginn munur, því að þetta er eitt gott heimili handa öllum. Vonandi verður þetta í framtíðinni hjá okkur að við byggjum svona heimili. Það verður miklu meiri færi- bandavinna á stofnunum. Þar er hugsað fyrir því að hlutirn- ir gangi fyrir sig, rífa fólk fram úr rúmi, þvo því og koma því fyrir í stól. Hér er ekki verið að hlýða klukkunni í einu og öllu, heldur farið að óskum og líðan fólksins sjálfs. Fólk má vera hvar sem er í einni stórri ibúð. Það er ekki til í gömlu konunum hér leiði, þeim líður vel, og þær líta ekki á að þær séu hér sem einhverjir þurfa- lingar. Eg er viss um að fólk færi að hugsa sig um, ef það kynntist heimili eins og þessu — ekki síst myndu aðstandendur skilja hvers virði heimilið er. Sveitarfélög skynjuðu kannski hversu vel fer að leyfa fólki að vera á heimaslóð i stað þess að senda alla i bæinn. Það er erfitt að rífa fólk upp með rótum og flytja á stórt sjúkra- hús i bæinn. Maður finnur vel á stóru stofnunum að gamla fólkið er í biðsal, en hér eru allir eins og ein fjölskylda. Hér fær fólk mikla hlýju, og hver skyldi trúa því að hér finni gamla fólkið þá ástúð sem það hefur aldrei fundið. Það er hætta að mannúðlega hliðin verði útundan á stofn- unum. Fólk verður að geta treyst manni.“

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.