Alþýðublaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 21

Alþýðublaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 21
Laugardagur 28. maí 1988 21 Á SVIÐI OG UTAN Eyvindur Erlendsson skrifar Björk litla leikur ágætlega í Glerbroti, segir Eyvindur, en hvað er að hrósa þvi þótt fagmenn kunni sitt fag, og „Hið islenska kvikmyndaævintýri" er lítið annað en svona barnaleg nútímatæknitilgerð. Káfað í yfirborðið Kalífi einhver I austurlönd- um átti sér höll fulla af auð- æfum og þaulskreytta þús- und ára handverki þjóðar sinnar. Þar var meðal dýr- gripa Ijósahjálmur einn mik- ill, kertiberandi, gerður af skornum kristal, perlum og dýrum steinum. Þessi kalifi, eða sheik átti olíulindir sem hann lifði á, ásamt ríki sínu. Oft þurfti hann að taka á móti viðskiptavinum frá Evr- ópu og Ameríku og til þess að halda sér til fyrir þessum voldugu mönnum úr nútíma- menningunni lét hann hengja rafmagnsperur I Ijósahjálm- inn mikla og kveikja á þeim í sólskininu. Þetta átti að sýna að hann væri enginn ómennt- aður, tæknilaus villimaður. Menn hlógu að þessu inn- ani sér en upphátt hló eng- inn af því þeir þurftu olíuna. Kalifinn stendur því enn í þeirri trú að þessar Ijósa- perur séu stolt og prýði hall- ar sinnar. íslenskir sjónvarps- og kvikmyndamenn finna upp Ijósaperuna Satt best að segja er „Hið íslenska kvikmyndaævintýri1' lítið annað en svona barnaleg nútímatæknitilgerð, líkt og hjá kalifanum góða. Það sem háir að úr verði alvöru kvik- myndir er ofvaxinn áhugi á tækninni, áhrifsatriðum og listrænum brellum meðal kvikmyndamannanna en aftur á móti lítið auga fyrir hinum huglægu atriðum, eðlilegri frásögn, mun á raunveruleik og skáldskap og sjálfu hinu listræna innihaldi. Að ekki sé nú talað um hinn dýpri tilgang: að höf- undurinn eigi eitthvert erindi við aðra menn sem telja megi brýnna en það eitt að gera kvikmynd, láta til sín taka meö fyrirferð, mannmörgum leiðöngrum, miklum fjár- munum og skipulagslegum transaxjónum út um allan heim, í gegnum fjölda síma. Þetta má ég segja að hafi vantað i allar okkar myndir nema þá fyrstu og fátækleg- ustu: Land og synir. Hún var einföld og óbrotin. Saga sögð án effekta og brellna, einföld hið ytra en margbrot- in og stór hið innra. Skilin milli veruleika og skáld- skapar voru þar skýr: Einföla og sönn veruleikalýsing, gerð af höfundi sem þekkti um- fjöllunarefnið en lyft örlítið upp yfir hversdagsfrásögn (án lýsingarorða) þannig að hún náði því að verða skáld- leg liking. Því miður er þessi fyrsta kvikmynd Ágústs Guð- mundssonar jafnframt hans besta, — hefur hann þó kom- ist hvað næst því, íslenskra kvikmyndamanna, að gera góðar myndir. Þetta stafar sjálfsagt af því að í Landi og sonum hafði hann með sér höfund sem kann að segja sögu og einnig að sjá í ein- földum örlögum eins manns líkingu margfaldra örlaga allra manna, — jafnvel þjóða. Lögmál frásagnar, — hvað sem nútímalegir kvikmynda- menn segja, — eru nefnilega ætíð hin sömu, hvort heldur saga er sögð á bók, í ræðu, á leiksviði eða í kvikmynd. Sér- hæfðir „effektar" eða „mögu- leikar“ hverrar greinar um sig breyta sáralitlu um þetta meginatriði, sem er þó, þegar upp er staðið, ef til vill það eina sem máli skiptir. Og svo var það að sagan sé yfirleitt þess virði að vera sögð! Óðal feðranna og Sjónvarpið Sjónvarpiö reyndi svolitið að guma af islensku efni i hvítasunnudagskrá sinni. Eft- ir að hafa skoðað þetta verð- ur að játast að maður skilur betur hið margfræga „skiln- ingsleysi stjórnvalda" gagn- vart þessu efni. Fólkiö sem tekur við peningum hins op- inbera virðist því miður ekki þess umkomið að gera úr þeim verðmæti. Meðan svo er láta stjórnvöld ekki, fremur en aðrir, fjármuni af hendi með Ijúfu geði. Ekkert fremur smáar upphæðiren stórar. Það sem kemur til með að fást verða þvi áfram smáupp- hæðir, dregnar með fanta- skap undan blóðugum nögl- um fjárveitingavaldsins, rétt nóg til að láta það heita eitt- hvað. Og þeir sem koma til með að ná peningunum verða, eftir sem áður fyrst og fremst „dugnaðarmenn" lítt íþyngdir sjálfsgagnrýni og ekkert endilega mjög glöggir á skilsmun sanninda og til- gerðar í listum. Mynd Hrafns Gunnlaugs- sonar „Óðal feðranna" verður að flokkast undir stílæfingar nemanda. Sagan sjálf er að inntaki sú sama og i Landi og sonum, — mikið þynnt og einfölduð en hlaðin kvik- myndalegum áhrifameðulum, aðfengnum úr ýmsum áttum þar sem þau hafa kannski einhverntíma tengst verðugu innihaldi. Þó þarf það ekki að vera, því það er mjög til efs að þeir meistarar sem Hrafn gengur í smiðju til séu nokk- urrar eftirbreytni verðir. Ég leyfi mér að efast um djúp- tækt gildi Bergmans (nema í Fanny og Alexander og þá bara kannski) og ég veit ekki hvort Fellini er annað en glúr- inn loddari sem spilar á fá- fengileik síns samtíma. Fass- binder? Ég veit sannarlega ekki. Eða þessi ítalski káboj- myndasmiður sem ég nenni ekki einu sinni að muna nafn á. Leone kannski? Ég yrði ekkert hissa þótt allir þessir menn hyrfu úr kvikmyndasög- unni, hver og einn, óðar en jaröarförin verður afstaðin. Meðal annarra orða; hvað varð um Antonioni? Einu sinni þóttist vestræn menn- ing ekki geta komist af án hans. Allir stældu hann. Og eru menn ekki meira og minna farnir að sjá í gegnum fídusa Bunuels? En Eisen- stein blifur. Og Charlie Chap- lin, þótt hann þekkti ekki dolbýið. Áhrifameðul og möndl Menn geta rifjað upp með sjálfum sér allt það sém þeir halda að geri sig í kvikmynd og sett saman sögu utanum það. Svoleiðis gera þeir í Ameríku og lukkast vel. En nóta bene: þar eru langþjálf- aðir fagmenn og rótgrónar verksmiðjur að verki, með þaulræktuð verslunarsam- bönd og ætla sér ekki annað en gera myndir undir meðal- lagi, pottþétta söluvöru fyrir afþreyingarmarkað. Ekki verð- ur séð að okkar menn verði nokkurntíma samkeppnisfær- ir í þeim bransa. Ekki heldur sýnileg nein ástæðatil að fara út í slíka starfsemi, frem- ur en t.d. niðursuðu á mar- hnút, sem mér er tjáð að gæti verið ágætur bíssniss. Óðal feðranna hefur flest þessara gangnúmera sem menn halda að séu: islenskt landslag, nauðgun, gelding, aulalega sveitamenn sem ekki kunna fótum sínum for- ráð, fésýslumenn sem beita Ijótum klækjum, lausláta yfir- stéttardóttur í sundlaugar- svalli o.s.frv. Gallinn er sá að þetta verður falskt. Sagan stendur ekki undir því, hvorki sem veruleikalýsing eða órar. Höfundurinn þekkirekki þann veruleik „líf fólks úti á landi“ sem hann læst vera að lýsa, — allt verður því ótrú- verðugt, — og órarnir eru heldur ekki nógir til þess að maður láti heillast af þeim. Útkoman verður þvi áhrifa- meðul og möndl utanum ekk- ert. Sem skóla verkefni væri þetta allt í lagi en sem verk manns sem tekur til sín meirihluta alls þess litla fjár- magns sem ríkið leggur í list- greinina og hefur auk þess heistu stofnum landsins í bransanum, Sjónvarpið, til fullra afnota fyrir sig og sína er það alls ekki i lagi. Þetta er því verra sem ekki verður annað séð en Krummi hafi skáldskaparæð, jafnframt kappinu og framkvæmda- seminni. Einhverra hluta vegna virðist þessi skáld- skapargáfa hans sífellt vera að ká utaní hluti sem honum eru ekkert hjartfólgnir i raun og verða, þar af leiðandi, ekki áhorfendum hans heldur. Kannski kemur þetta með nýju myndinni í sumar. Það má varla seinna verða. Glerbrot Sjónvarpsins Þessi mynd stansar við sama punkt og allar hinar; fingraæfingar stutt kominna fagmanna utanum sögu sem er ekki þess virði að vera sögð. Þar að auki illa sögð. Þetta var á sínum tíma til- raun Matthíasar Jóhannes- sen til þess að gera hvell í al- menningsálitinu út af skand- ala sem svo reyndist enginn skandali og allt fór niður á miðri leið. Sagan hefurekkert batnað með tímanum. Hún er, eins og saga Hrafns, alltof ágrips- og ágiskanakennd til að vera raunsönn, en afturá- móti ekki nógu órafengin til þess að verða viðurkennd sem ímyndarveik hryllings- saga, eins og Spielberg gerir og aðrir þvílíkir. Dómar verða því: Björk litla leikur ágæt- lega, engu síður en atvinnu- mennirnir (sem er fjarri sanni), lýsing var með ágæt- um, hljóðsetning hnökralaus (allt heyrðist og var í sínki), sviðsetning einmanaleikans i sólargeisla einangrunarklef- ans áhrifarík, hugmyndarík leikstjórn o.s.frv. fastir liðir eins og venjulega. En hvað er að hrósa því þótt fagmenn kunni sitt fag? Er ekki nokkurnveginn sjálf- sagt að kvikmyndatökumaður kunni að taka myndir, hljóð- maðurað hljóðrita, klippari að klippa o.s.frv.? Er það ekki jafn sjálfsagt og að bifvéla- virki kunni að setja saman mótor, jafnvel aó fá hann til að ganga „af listfengi"? Hef- ur þetta fólk ekki allt verið í löngu skólanámi vegna þessa? Þakka skyldi því. Gallinn er bara sá að öll kunnátta er einskis virði þeg- ar skáldskapurinn er hnoð. Ég hef litla trú á að Kristín hafi tekið þessa sögu fyrir ástar sakir á henni. Miklu fremur „tekið hana að sér“ til þess að komast i góðan fé- lagsskap. Hún ætti, eins og Hrafn, að leita uppi eitthvað sem henni er í alvöru hug- þekkt. Eða er þess ekki von að slfk afstaða til hlutanna nái viðurkenningu? Sé svo þá get ég sagt ykkur það að allt bjástur við þessa hluti er vonlaust hvort eð er og jafn- gott að láta þá eiga sig. Um Daniels Bruuns þátt Baldurs Hermannssonar gild- ir hið sama: Tilgerð. Illa dul- búin auglýsing fyrir Örn og Örlyg sem að vísu eiga allt gott skilið fyrir að hafa kom- ið myndum Daníels á prent. Baldur ætti að fara í nokkurra ára lýsingarorðabindindi ef hann ætlar að semja fleiri svona texta. Skáldlegheit og hástemmdar tilfinningar, í orðum, geta verið ágæt en umfjöllun um hversdagshluti eins og vatnsvirkjanir eða danskar rannsóknir á fjallveg- um og fatnaði verður slíkt pínlegt. Sem sagt: Allt minnir þetta óþægilega á kalífann góða og stertimennsku hans með rafmagnsperuna. Átti þó svo ágæta hluti til að vera stoltur af.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.