Alþýðublaðið - 30.06.1988, Qupperneq 7
Fimmtudagur 30. júní 1988
7
ÚTLÖND
Umsjón:
Ingibjörg
Árnadóttir
Birgit Nils-
son hefur
alltaf sagt að
„prímadonn-
ur“ eigi
heima á
sviði, og þar
hefur hún
sungið þœr
allar.
GOÐSÖGN í UFANDA LÍFI
Hún var farin aö syngja
áður en hún gat gengiö.
Sænska bóndadóttirin Birgit
sem geröi nafnið Nilsson
heimsfrægt.
Þegar hun var fimm ára
gömul átti hún að syngja á
jólahátið heima á Skáni. Hún
lék sjálf undir á harmonikku,
en var ekki ánægð með lófa-
klappið, fannst það oft dauft.
Þá prílaði hún upp á stól og
söng djarfar vísur. Þá brutust
út fagnaðarlæti!
Birgit Nilsson segir, að
þessi atburður hafi kennt
henni, hvað það sé áríðandi
að vanda val sitt á söngskrá.
Þetta hefur henni tekist
svo vel, að undravert þykir.
„Primadonna assolutá', þ.e.
listamaður sem hefur náð
svo langt í list sinni að ekki
er hægt að gera betur.
Orðheppin
Árið 1984 hætti Birgit Nils-
son að koma fram opinber-
lega. Þá má segja að hún
hafi verið búin að sigra heim-
inn með list sinni t.d. túlkun
á kvenhetjum Wagner og
Verdi. Hún er einnig þekkt og
vinsæl fyrir orðheppni sína
og kímnigáfu. Eitt af þeim
skemmtilegu tilsvörum henn-
ar sem frægt er um allan
heim er: „Það allra nauðsyn-
legasta þegar maður syngur
Wagner er að vera í þægileg-
um og skynsamlegum
skóm“!
Þær eru margar sögurnar
um orðheppni hennar og
kímni. Ein þeirra er um það,
þegar vont var að fá leigubíl
fyrir utan óperuhúsið í New
York. Hún fór út á götuna í
allri sinni stærð og veldi,
setti upp í sig tvo fingur og
flautaði hátt og ískrandi eins
og strákurog bifreiðastjóri
næsta leigubíls varð svo
undrandi að hann stoppaði
eins og skot!
Frægt er einnig samband
hennar og Herbert von Kara-
jan en það var oft hlaðið
spennu. Karajan var ekki
alltaf til í að vera í sviðsljós-
inu og það í þess orðs fyllstu
merkingu. í einu tilvikinu
vildi hann hafa sviðið al-
myrkvað. Birgit Nilsson
mætti þá á „general prufu“
Valkyrjunnar með námuhjálm
á höfði og Ijósið kveikt — í
stað hins hefðbundna hjálms
Brunhilde!
Birgit Nilsson býr ásamt
eiginmanni sínum á föður-
leifð hans á Skáni. Hennar Iff
og yndi er að dútla í garðin-
um og henni þykir æ vænna
um sitt eigið land.
Árum saman var það hefð
að hún söng í Tivoli á hverju
sumri. Þetta gerði hún árlega
frá 1962 til 1984, er hún dró
sig í hlé. Nú syngur hún
aðeins „upp á grín“ eins og
fyrir tveimur árum, þegar hún
birtist sem kirkjusöngvari við
brúðkaup ungs vinar, öllum
að óvörum!
Óþolinmóður hestur
Birgit Nilsson hefur alltaf
sagt að „prímadonnur" eigi
aðeins heima á sviði, en þar
hefur hún sungið þær allar!
Sjálfri þykir henni notalegt
að liggja á bakinu og ráða
krossgátur. Hún fær mikla
ánægju af þvi að kenna söng.
Það gerir hún í New York og
kennslustundir hennar eru
kallaðar „Meistara tilsögn".
Rödd Birgit Nilsson er það
sem kallað er á fagmáli
„dramatiskur sópran". Það er
mikið álag á röddina. Það
hafa önnur „dramá' komið
upp á en þau sem kennd eru
við tónlist. Eins og til dæmis
í Sviþjóð árið 1954. Þar var
verið að æfa Valkyrjuna, og
lifandi hestur var notaður á
sviðinu. Til þess að hafa
hestinn góðan tók Birgit
alltaf með sér sykurmola á
hverja æfingu. Þegar kom að
frumsýningu gleymdi hún
þvi. Hesturinn varð órólegur
og elti hana um allt svið.
Þegar kom að lokaatriðinu,
sem er mjög krefjandi —
jafnvel þó ekki sé hestur með
í spilinu — var hesturinn orð-
inn svo æstur, að Birgit varð
að taka fast í beislið og
ganga með hann um allt svið,
meðan hesturinn reyndi að
sparka í hana og alltaf söng
hún fullum hálsi!
Eftir sýningu kom aðdá-
andi til hennar og sagði:
„Þetta var stórkostlegt".
„Voruð þér ánægður með
Brunhilde mína?“ sagði Nils-
son. „Nei, mér finnst stór-
kostlegt hvað þér hafið mikla
stjórn á hestum", var svarið!
Birgit hefur einnig góða
stjórn á fjölmiðlafólki og á
marga góða vini meðal þess.
Einn þessara vina er Grimme,
fyrrverandi aðalritstjóri Sön-
dags-Aktuelt. Grimme er
hreykinn af því að vera gjör-
samlega laglaus, hreinlega
gortar af því. Þetta fannst
Birgit Nilsson svo heillandi
skemmtilegt, að hún sendi
honum tvo aðgöngumiða í
óperuna, þar sem hún átti að
syngja aðalhlutverkið í Tosca
og allir miðar höfðu verið
uppseldir fyrir löngu. Grimme
afþakkaði á sinn kurteislega
hátt og sagði: „Ég held að
þessir miðar myndu gleðja
einhvern annan miklu meira
en mig“!
Birgit Nilsson hafði aldrei
orðið fyrir öðru eins, og varð
svo hrifin, að þau hafa verið
bestu vinir síðan.
Birgit Nilsson á það sam-
eiginlegt með söngvurum
eins og Callas og Caruso, að
verða goðsögn í lifanda lífi.
Birgit Nilsson er sprelllifandi
og hélt upp á sjötiu ára af-
mælið sitt fyrir skömmu.
Hún var „að heiman“ ásamt
eiginmanni sínum á uppá-
halds hóteli þeirra í Róm.
Þaðan fór hún til New York
að gefa stórefnilegum
söngvurum „Meistara til-
sögn“. Hún gæti svo sannar-
lega gefið „Meistara tilsögn"
í því að notfæra og efla hæfi-
leika, en halda jarðsambandi,
því í því er hún heimsmeist-
ari. (Det fri Aktuelt.)