Alþýðublaðið - 30.07.1988, Page 5

Alþýðublaðið - 30.07.1988, Page 5
5 Laugardagur 30. júlí 1988 FRÉTTIR Landakotsmálið Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra og Guö- mundur Bjarnason heilbrigð- isráðherra eru sammála um að vísa á bug mótmælum yf- irstjórnar Landakotsspítala, við skýrslu ríkisendurskoðun- ar um gangrýni á rekstur spit- alans. Ráðherrarnir segja gagnrýni rikisendurskoðunar réttmæta í öllum meginatrið- um. Þessi niðurstaða var kynnt yfirstjórn spítalans i gær jafnframt því að ráðherr- arnir ákváðu að setja á fót gæslusveit sem hafa mun eftirlit með rekstri spítalans. Gæslusveitin verðurskip- uð þremur aðilum, fulitrúa fjármálaráðuneytis, fulltrúa heilbrigðisráðuneytis og full- trúa yfirstjórnar spítalans. Þessi ákvöiðun er staðfest- ing á niðurstöðum skýrslu ríkisendurskoðunar þar sem segir meóal annars að stjórn- endur spítalans breyti ekki áformum sínum í samræmi vió fjárlög, umfang rekstrar og stofnkostna'ðar hafi verið aukin langt umfram heimildir fjárlaga, keyptar hafi verið fasteignir fyrir fé rfkissjóös án þess að nokkurra heimilda væri leitað. Þar segir einnig ' * að rekstur rannsóknarStofú, ■■ lyfjabúrs og styrktarsjóðs sé mjög ámæiisverður, en yfir- læknir rannsóknarstofunnar virðist samkvæmt bókhaldi hafa þegið um 18 milljónir króna í laun á slðasta ári. Óljós hluti af þeirri upphæð er rekstrarkostnaður. Sérfræðingar spítalans greiða Landakoti 35% af reikningum þeim sem þeir sjálfir senda til Trygginga- stofnunar eða sjúkrasamlags vegna aukaverka eða svokall- aðra „ambúlanta“ sem þeir taka í meðferð á spítalanum. Læknarnir fá greitt sem verk- takar samkvæmt einingum, en stimpilklukka er ekki fyrir hendi á spltalanum. Ríkis- endurskoðun gerði athuga- semd við það, að í eftirlits- nefnd með reikningum lækna eiga sæti tveir yfirlæknar, sem þýðir með öðrum orðum að þeir fara sjálfir yfir eigin reikninga og samþykkja þá. í svarskýrslu yfirstjórnar Landakotssþítala frá 24. júlí erásökunum ríkisendurskoð- unar svarað á almennum nót- um. Stjórn spítalans vill vekja athygli á því að í allri þeirri gagnrýni sem fram hefur komið á starfsemi spítalans hefur engin gagnrýni komið fram á faglega starfsemi hans. Stjórnin bendir á að í 86 ára sögu spitalans hafi hann ávallt átt við fjárskort að stríða. Orsök rekstrarhalla spitalans sé fyrst og fremst sú að framlög hafi ekki verið í samræmi við þá starfsemi sem ætlast hafi verið til af spítalanum. í skýrslu stjórn- arinnar segir að spítalinn hafi greitt hærra álagshlutfall fyr- ir vaktir og ytirvinnu ofan á föst laun, en Fjárlaga- og hagsýslustofnun telur nauð- synlegt. í öðru lagi sé ágrein- ingur á milli spítalans og stofnunarinnar um hverjar hafi verið eðliiegar verð- hækkanir á milli ára, bæði að því er varðar laun og önnur rekstrargjöld. Stjórnin bendir á að miðað við sambærilega starfsemi er kostnaður Landakots ekki meiri en hinna spítalanna. Hins vegar sé Ijóst að framlög í fjárlög- um til hans eru mun lægri en þeirra, og þar af leiðandi hall- inn meiri. Þar sem um sjálfs- eignarstofnun sé að ræða tel- ur stjórnin aö fjárlög séu ekki sá rammi sem spítalan- um beri að starfa eftir, þar sem fleiri þættir spili þar inn í svo sem sjálfstæðar tekjur fyrir selda þjónustu. Fjármálaráðherra og heil- brigðisráðherra vísa báðir á bug mótmælum yfirstjórnar og telja Landakotssþítala skylt að starfa innan ramma fjárlaga, þó um sjálfseignar- stofnun sé að ræða. Framlag hins opinbera til reksturs spítalans er einungis fjórum prósentum lægri en til Borg- arspítalaog Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri. Þvi sé allt tal um frelsi gagnvart fjárlög- um út í hött. í gær tilkynntu ráðherrarnir yfirstjórn Landakotsspítala að þeir teldu gagnrýni rikis- endurskoðunar réttmæta i öllum meginatriðum og kom- ið yrði á fót gæslusveit þriggja aðila sem hafa mundi yfirumsjón með stjórn spítal- ans og veita honum aðhald. Þessi niðurstaða er í raun dómur yfir stjórn spítalans þess efnis að hún sé óhæf til að fara með yfirstjórn spítal- ans. Skýrsla ríkisendurskoð- unar er þungur áfellisdómur yfir einkarekstri í heilbrigðis- geiranum og vekur upp spurningar hvort réttast væri að sameina rekstur Landa- kotsspítala rekstri ríkisspítal- anna. I skýrslu ríkisendur- skoöunar eru gerðar tillögur til úrbóta, einmitt í þá áttina. Þar stendur meðal annars: Sjálfseignarstofnunin afsali ríkissjóði öllum fasteignum sem keyptar hafa verið án heimilda, kannað verði hvort hægt sé að leggja þvottahús niður og taka upp viðskipti við þvottahús Ríkisspitala. í skýrslunni er einnig lagt til að rekstur rannsóknarstofu í núverandi mynd verði lagður niður, að komið verði á fót sérstakri rekstrar- og fjár- málastjórn yfir spítalann sem tryggi að hann verði rekinn innan fjárheimilda hverju sinni. En til hvaða aðgerða ætla ráðherrar fjármála og heilbrigðis að grípa? Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra: „Við höfum gengið frá samkomulagi milli fjármálaráðuneytis og heil- brigðisráðuneytis um aðgerð- ir í fimmtán liðum. Innihald þessa samkomulags verður ekki gert opinbert fyrr en stjórn spítalans hefur fengið það í hendur og látið álit sitt í Ijós. Hlutverk þessarar eftirlits- nefndar, eða gæslunefndar er að hrinda í framkvæmd þeim aðgerðum sem við höfum komið okkur saman um.“ — Er Landakotsmálið og nú skipun gæslunefndar, ekki pólitiskur áfellisdómur yfir einkarekstur í heilbrigðis- geiranum? „Þessu er ekki hægt að svara með einföldu jái, ein- faldlega vegna þess að mað- ur verður að setja gæsalappir utan um þennan einkarekst- ur. Eigum við ekki frekar að kalla þetta pilsfaldakapítal- isma? Þessi stofnun hefur verið rekin í skjóli ríkiskerfis og á kostnað sameiginlegs sjóðs landsmanna." — Eru þá ekki iinur hrein- astar ef Landakotsspítali er færður alfarið inn i kerfi ríkis- spitalanna? „Að svo miklu leyti sem þeir byggja afkomu sína á fjárveitingu hins opinbera og afgreiðslu fjárlaga, þá verður að minnsta kosti að gera þá kröfu aö þeir reki sig á sama grundvelli og sitji viö sama borð og aðrar slíkar stofnanir. Þungur áfellisdómur yfir einkarekstri í heilbrigðisgeiranum. Pilsfaldakapítalismi, segir Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.