Alþýðublaðið - 30.07.1988, Page 13

Alþýðublaðið - 30.07.1988, Page 13
Laugardagur 30. júlí 1988 13 FRETTIR Aðalskipulag Reykjavíkur STAÐFEST AÐ MÖRKUM REYKJAVÍKUR OG KÓPAVOGS Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra staðfesti skipulag í Fossvogsdal einungis að mörkum lögsagnarumdœmanna. Jóhanna Sigurðardóttir fé- lagsmáiaráðherra hefur stað- fest uppdrátt að aðaiskipu- lagi Reykjavíkur 1984-2004 en þó er skipulag í Fossvogsdal einungis staðfest að mörkum lögsagnarumdæma Reykja- víkur og Kópavogs vegna ágreinings milli þessara bæj- arfélaga. Bæjarfélögin tvö hafa skip- að nefnd sem beitir sér fyrir lausn á þessari deilu sem ris- ið hefur upp vegna fyrirhug- aðrar Fossvogsbrautar. Eru uppi hugmyndir um að braut- ina megi færa austar og leggja hana þá í Kópavogsdal i stað Fossvogsdals. Agreiningur ríkir vegna skilnings á samkomulagi sem Reykjavik og Kópavogur gerðu sín á milli um breyt- ingu á mörkum kaupstað- anna. í þessu samkomulagi kveður á um að rísi upp ágreiningur um framkvæmd samningsins þá skuli hann lagður fyrir geröardóm. Jóhanna Sigurðardóttir telur þvi af þessum sökum að það sé ekki á valdi félagsmála- ráðuneytisins að úrskurða um þennan ágreining. Ráð- herra hefur af því tilefni ritað bæjarstjórn Kopavogs bréf er greinir frá þessari niðurstöðu hennar. Bæjarstjórn Kópavogs fagnar þessari ákvörðun fé- lagsmálaráðherra og segir hana staðfesta að þaö geti ekkert sveitarfélag skipulagt inn í land annars. Davið Oddsson segir hins vegar að úrskurður ráðherra geri ekki annað en að hafna kröfu Kópavogskaupstaðar um að ráðuneytið úrskurði í deilu sveitarfélaganna. Verði ekki fundnar neinar leiðirtil samkomulags i þess- ari deilu og ekki verður fallist á neinar tillögur nefndarinnar hvaö varðar breytingar á stað- setningu Fossvogsbrautar mun málið sennilega fara fyrir gerðardónn. VIRÐI Deilan stendur einungis um að Kópavogsbœr standi við okkar samn- ing. Ef ekki fer málið fyrir gerðardóm segir Davíð Oddsson. Davíð Oddsson borgar- stjóri segir að hugmyndir um að leggja braut í Kópavogs- dal i stað Fossvogsdals sé ekki lausn á deilunni, og hafi ekki verið borin fram sem til- laga frá þeirri nefnd sem skipuð var af Reykjavíkurborg og Kópavogskaupstað til að vinna að lausn i deilunni um Fossvogsdalinn. „Það hefur ekki heyrst í þessari nefnd þannig að það sé neitt innlegg I málið. Það hefur ekkert verið rætt af neinni alvöru um þetta enda er þetta lausn sem er lítils eða einskis virði. Það hafa verið viðræður í gangi milli þessara sveitarfélaga og það hefur ekki staðið á borginni hún hefur komið með margar hugmyndir, en við erum með samning við Kópavog sem viö viljum að þeir standi við. Deilan stendur bara um það, málið snýst ekki um neitt annað. Lausn deilunnar felst þvl ekki I neinu samkomulag um staðsetningu brautarinn- ar — málið fer þá bara fyrir gerðardóm" sagði Davlð Oddsson. Vandinn verður leystur á annan veg ef ekki verður af Fossvogsbraut Stefán Thors skipulags- stjóri ríkisins var inntur eftir því hvað honum fyndist um hugmyndir þær sem uppi eru um að leggja braut í Kópa- vogsdal í stað Fossvogsdals. „Það yrði að skoðast í samhengi og ef ekki verður af Fossvogsbraut þá þarf að leysa umferðarvandann á ein- hvern annan hátt. Ef Foss- vogsbraut verður ekki lögð þá þarf að breikka Miklubraut og gera þennan Suðurhlíðar- veg I Kópavogsdalnum. En á þessu stigi málsins get ég ekki sagt til um hvort þetta sé vænlegt eða ekki, það þarfnast nánari athugunar og við þurfum að átta okkur á hvað það felur í sér“ sagði Stefán Thors. Davíð Oddsson borgarstjóri LAUSN SEM ■ 1.1 ER EINSKIS I ágústj ÞU HAGNAST Á EIGIN SKIIVÍSI Það er þér í hag að greiða af lánum á réttum tíma og forðast óþarfa aukakostnað af dráttarvöxtum, svo ekki sé minnst á innheimtukostnað. Þú getur notað peningana þína til mun gagnlegri hluta, til dæmis í að: Flísaleggja baðherbergið jiJ* :'Æ 'S iaaaf 'mSSÍ 333 -yrs rJBtm 30W . Og I -jn .30 »»» a i TO arm » xa xa ■ ■ 3» M wr sr ar **■- eða eignast nýjan borðbúnað. Eindagi lána með lánskjaravísitölu. Eindagi lánameö bygginganisitöiu Gjalddagar húsnæðislána eru 1. ágúst, 1. nóvember, 1. febrúar og 1. maí (sum lán hafa fjóra gjalddaga á ári, önnur aðeins einn). Merktu gjalddaga þíns láns inn á dagatalið þitt, þá gleymir þú síður að gera tímanlega ráð fyrir næstu greiðslu. SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFA ÚTGJÖLD AF DRÁTTARVÖXTUM Greiðsluseðlar fyrir 1. ágúst hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna af hendi í öllum bönkum og sparisjóðum landsins. GYLMIR/SlA

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.