Alþýðublaðið - 30.07.1988, Síða 19
Laugardagur 30. júlí 1988
(NÚMER) SEX
Enn einu sinni hefur hin
kynæsandi kvikmynda-
stjarna, Emmanuelle, gert sitt
besta á hvíta lakinu — og er
þvi mætt aftur á hvfta tjald-
inu í París. Myndin heitir
„Emmanuelle 6“ og allar likur
benda til þess aö hún verði
ekki síöur gróðavænleg en
þær fyrri.
Hin erótísku fíflalæti
Emmanuelle-myndanna hafa
hingað til reynst algjörlega
óbrigðul söluvara. Ævintýri
„söguhetjunnar“ hafa fært
aðstandendum hennar600
milljónir dollara í aðra hönd,
eða hvorki meira né minna en
um 27 milljarða íslenskra
króna. Slikur gróði er líka
alveg einstakur í þessum
geira kvikmyndalistarinnar.
HVÍT ÞRÆLASALA
Hin spengilega franska
leikkona, Nathalie Uher, leik-
ur Emmanuelli í nýjustu
myndinni, sem gerist í frum-
skógum Venezuela. Eins og
forverar hennar þjáist hin
þokkafulla kona af ákveönu
minnistapi, sem hún reynir
aö yfirvinna með „kynrænni
örvun“. Þó gefst henni einnig
tími til að gerast söluvarning-
ur hvítra þrælasala.
Kvikmyndahúsgestir í
meira en eitthundraö löndum
vilja ólmir fylgjast með þess-
ari „kynrænu örvun“ aöal-
persónunnar. Strax og fyrsta
Emmanuelle-myndin leit
dagsins Ijós áriö 1974 lét
fjöldi Grikkja sig t.d. hafa þaö
að skrópa í vinnunni til þess
aö þurfa ekki að fara úr bið-
rööinni fyrir framan miðasöl-
una. Það var í þá daga, þegar
Sylvia Kristel lék aðalhlut-
verkið.
Á þeim tima fóru spænskir
aðdáendur hins vegar í bið-
röð til að kaupa rútumiða yfir
landamærin til Frakklands.
Þangað náðu áhrif kvik-
myndaeftirlits Francós nefni-
lega ekki.
Nýverið fengu kvikmynda-
hússgestir í Suður-Kóreu líka
tækifæri til þess að fylgjast
með ævintýrum hinnar létt-
klæddu Emmanuelle. Og um
þessar mundir standa þar að
auki yfir samningaviðræður
við dreifingaraðiia á Indlandi,
svo hróður hinnar kynþokka-
fullu stjörnu fergreinlega
víða.
Yfirvöld í Kína Albaníu,
Sovétrikjunum og í flestum
múhameðstrúarlöndum eru
þó þeirrar skoðunar, að kvik-
myndahússgestir geti vel
þraukað án þessarar tegund-
ar bíómynda. Það kemur hins
vegar ekki I veg fyrir grósku-
mikið svartamarkaðsbrask
með Emmanuelle-myndir í
Rússlandi.
KYNLÍFSMYNOIR. SEM
ÞOLA DAGSINS UÓS
„Pabbi“ Emmanuelle, kvik-
myndaframleiðandinn Alain
Siritzky, telur þessar myndir
neysluvöru, sem hæfi til
heimabrúks. Þær hafi haft
þau áhrif að fólk þori nú að
horfa á djarfar kvikmyndir í
stofunni heima hjá sér, án
þess að skammast sín. Sú
tíð sé því liðin, að menn verði
að bretta upp kragann og
laumast inn í kvikmyndahús
eftir að Ijósin hafi verið
slökkt. Fullyrðir Siritzky þess
vegna að Emmanuelle sé al-
gjör himnasending fyrir
sómakæra heldri borgara,
sem aldrei nokkurn tíma
hefðu látið sjá sig á kynlífs-
mynd í bió. Létt pornó, sem
þoli dagsins Ijós. „Erótíkin er
ekki lengur í göturæsinu,11
segir framleiðandinn.
SÖGUSVIÐID í
SOVÉTRÍKJUNUM
í næstu Emmanuelle-mynd
flytur Siritzky sig um set.
Hann fer úr hitamollunni i
Venezuela til Sovétríkjanna,
þar sem kaldari vindar blása
19
Þessari muna eflaust margir eftir. Emmanuelle i túlkun Sylviu Kristcl i fyrstu myndinni.
Blúiu myndirnar, sem m.a.s. broddborgarar geta
horft á heima í stofu án þess að skammast sín.
Emmanuelle skipar sér á bekk með hetjum eins
og James Bond og Rambó. Hún er orðin goð-
sögn í yfir hundrað löndum.
úti fyrir — þó svo hitnað geti
í kolunum innan dyra. Ekki er
þó alveg vist að myndatakan
fari fram í Rússlandi. Hugs-
ast getur að eitthvað annað
land verði fyrir valinu, ef þar
finnst nægilega Síberíulegt
landslag.
„Þá getur Emmanuelle
blessunin komið inn úr kuld-
anum og við getum haft fullt
af forarleðju, snjó og þykkum
pelsum", segir Siritzky.
Seinna meir stendur svo til
að kvikmynda ámóta bólfim-
leika með Kína og Egypta-
land sem sögusvið. Emmanu-
elle er því ekkert á þeim bux-
unum að draga sig í hlé. Eöa
hvað segir framleiðandi
myndanna?
Hann svarar á þennan hátt:
„Emmanuelle er í sama flokki
og James Bond, Tarzan og
Rambó. Hún er orðin goð-
sögn og þess vegna ódauð-
leg.
(Det fri Aktuelt.)
Sjötta myndin um hina þokkafullu Emmanuelle gerist i Venezuela. Þar er pao transka leik-
konan Nathalie Uher, sem leikur aðalhlutverkið.