Alþýðublaðið - 16.08.1988, Blaðsíða 3
'3
Þriðjudagur 16. ágúst 1988
_____________
Niðurfelling dráttarvaxta af skattskuldum
FRÉTTIN TÓMT RII6L
segir Bjarni Sigtryggsson, upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins.
Frétt ríkissjónvarpsins um
niðurfellingu rikissjóös á
dráttarvöxtum af gömlum
skattskuldum er á misskiln-
ingi byggð og fullyrðingar
fréttarinnar þar af leiðandi
gjörsamlega út í hött.
Bjarni Sigtryggsson, upp-
lýsingafulltrúi fjármálaráöu-
neytisins, sagði í samtali viö
Alþýöublaðið í gær að frétt
ríkissjónvarpsins um niður-
fellingu dráttarvaxta væri
tómur misskilningur. „Hún er
reyndar algjört rugl. Þar er
fullyrt um hluti sem ekki einu
sinni voru komnir í viðræðu
og hvað þá í framkvæmd —
þetta eru mál sem rétt er
I búið að taka til skoðunar.
Allar fullyrðingar sem komu
fram í sjónvarpinu voru þar af
leiðandi út í hött því það var
ekki búið að ræða þetta við
kóng eða prest,“ sagði Bjarni
Sigtryggsson.
Bjarni Sigtryggsson
AGAifvsr riMt
Guðjón Magnússon, aðstoðarlandlæknir og Rauðakrossmaöur, og Aidan Prior, framkvæmdastjóri Evrópudeildar Sport Aid-samtakanna, eru fullir
bjartsýni á árangur heimshlaupsins i þágu bágstaddra barna í heiminum í dag.
Sameining hreppanna
við Isafjarðardjúp
Óvíst um
framhaldið
Samkvæmt upplysingum
frá félagsmálaráðuneytinu
hefur ekki verið tekin ákvörð-
un um hvert framhaldið verð-
ur um sameiningu allra
hreppa við ísafjarðardjúp, en
tillaga um sameiningu hrepp-
anna var felld i kosningum
nú um helgina. Voru allir
hreppar andsnúnir samein-
ingunni nema Snæfjalla-
hreppur.
Ibúafjöldi I Ögurhreppi og
Snæfjallahreppi er innan við
50, og því ber samkvæmt
lögum að sameina hreppana
nágrannasveitarfélagi. Ef
fleiri en 50% af þeim íbúum
sem eru á kjörskrá greiða at-
kvæöi gegn sameiningu er
ekki heimild til sameiningar
hreþpa. Það hefur því ekki
enn verið tekin ákvörðun um
hvaö beri að gera í málum
hreþþannavið ísafjarðardjúp
sem felldu sameiningartil-
lögu nú um helgina.
Engilbert Ingvarsson á
Tyrðilsmýri í Snæfjallahreppi,
formaður sameiningarnefnd-
ar, sagði í samtali við Alþýðu-
blaóið í gær að það kynni að
vera að ekki hefði verið nógu
markviss og skipuleg um-
ræða um kosti þá sem sam-
eining hreppanna hefði í för
með sér. Taldi hann kostina
tvímælalaust marga, og byðu
þeir upp á nýskipan í sveitar-
stjórnarmálum sem gæti leitt
til lausnar ýmissa byggðar-
mála. Engilbert sagði að
héraðið væri stórt og strjál-
býlt og fólk kannski hrætt við
að fara út í svona stökkbreyt-
ingu. Hann bjóst þó ekki við
að sameining Ögurhrepps og
Reykjarfjarðahrepps annars
vegar og Snæfjallahrepps og
Nauteyrarhrepps hins vegar,
þannig að hrepparnir yrðu
tveir, hlyti meiri hljómgrunn
en sameining allra hrepp-
anna.
Heimshlaup 11. september
HLAUPIÐ í ÞÁGII BARNA
Sport Aid-samtökin standa
fyrir heimshlaupi þann 11.
september og er gert ráð
fyrir að um 20—30 milljónir
um allan heim taki þátt i
hlaupinu. Markmið hlaupsins
er að vekja athygli á slæmri
aðstööu barna viða i heimin-
um og safna fjármagni til að
bæta úr því. Hlaupið verður
ræst frá byggingu Samein-
uðu þjóðanna i New York að
viðstöddum 2 börnum frá
hverju þátttökulandi. ís-
lensku fulltrúarnir hafa ekki
verið valdir enn, en gert er
ráð fyrir 14 ára stelpu og
strák sem talist geta verðugir
fulltrúar íslenskrar æsku, og
munu Rauði kross Islands og
Frjálsiþróttasamband íslands
sjá um skipulag og fram-
kvæmd heimshlaupsins hér á
landi.
Heimshlaupið er ekki
keppni heldur byggist á þátt-
töku allra aldurshópa og geta
þátttakendur hlaupið, skokk-
að eða gengið 10 km, eða þá
vegalengd sem þeim hentar.
Gert er ráð fyrir aó um 80%
af söfnuðu fjármagni renni til
aðstoðar börnum utanlands
og þá sérstaklega I jjróunar-
löndunum, en 20% til innan-
landsverkefna. Á íslandi mun
söfnunarféð rennatil starf-
semi Rauðakrosshússins í
Tjarnargötu, til fíkniefnavarna
ávettvangi barna og ungl-
inga. Tekjuöflunin hér á landi
mun fyrst og fremst fara fram
meó sölu þátttökunúmera
sem fengin verða hjá Sþort
Aid-samtökunum I London.
Valdar hafa verið um 23
borgir til þess að sjónvarpa
beint frá hlaupinu og var
Reykjavík ein af þeim borg-
um sem urðu fyrir valinu.
Markmiðið er að a.m.k. 15.000
manns taki þátt í hlauþinu
hér á landi og er vonast til að
bæði börn og fullorðnir leggi
málefninu lið.
Atvinnuástand í júlí
Atvinnulausum fækkar
I júli var minnsti fjöldi
skráðra atvinnuleysisdaga á
yfirstandandi ári. Þá voru
skráðir 11.300 atvinnuleysis-
dagar á landinu öllu og hefur
skráðum dögum fækkaö um
eitt þúsund frá mánuðinum á
undan. Þetta svarar til þess
að 520 manns hafi að meðal-
tali verið á atvinnuleysisskrá
i mánuðinum.
Skv. yfirliti vinnumálaskrif-
stofu félagsmálaráðuneytis-
ins um atvinnuástand í júlí-
mánuði voru skráðir 11.300
atvinnuleysisdagar á öllu
landinu. Það jafngildir 0,4%
af mannafla á vinnumarkaði
samkvæmt spá Þjóðhags-
stofnunar. Skráðum atvinnu-
leysisdögum hefur fækkað
um eitt þúsund frá mánuðin-
um á undan, en ef miðað er
við sama mánuö í fyrra hefur
skráðum atvinnuleysisdögum
hins vegar fjölgað um 2.200
og hlutfallslegt atvinnuleysi
aukist um 0,1%. Atvinnuleysi
meðal kvenna er enn sem
fyrr töluvert meira en meðal
karla, af 520 skráðum
atvinnulausum í mánuðinum
v'oru 367 konur.