Alþýðublaðið - 16.08.1988, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 16. ágúst 1988
7
UTLOND
Umsjón:
Ingibjörg
Árnadóttir
í LEIT AD VARAFORSETA
Forsetaefni repúblikana,
George Bush, er farinn að lit-
ast um eftir varaforsetaefni,
bæði meðal þekktra og
óþekktra nafna. Oftast ber á
góma fyrrverandi forseta-
frambjóðendur, Robert Dole
öldungadeildarþingmann og
Jack Kemp úr fulltrúaráðs-
deildinni.
George Bush hefur því
annan hátt á en mótfram-
bjóðandinn Michael Dukakis,
því Bush ætlar ekki aö til-
kynna val sitt fyrr en á lands-
þinginu, sem haldió verður
um miðjan ágúst í New Orle-
ans.
Altalað er að mörg nöfn
séu á lista Bush, um þaö bil
fimmtán.
Bush hefur útnefnt Ftobert
M. Kimmitt, lögfræðing og
fyrrverandi starfsmann Hvíta
hússins, sem aðal„leitar-
manninn". Kimmitt þessi er
mikill vinur James Baker fjár-
málaráðherra, sem nú hefur
látið af störfum i ríkisstjórn
Reagans, til þess að veita
forstöðu kosningabaráttu
George Bush.
Þrír flokksmenn hafa verið
nefndir sem möguleg varafor-
setaefni og Joeir beðnir um
upplýsingar um persónuleg-
an bakgrunn. Þeir eru: Pete
Domenici, meðlimur í öld-
ungadeildinni, hann er frá
New Mexico, John Sumunu,
fylkisstjóri í New Hampshire,
og Jack Kemp, meðlimur í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings.
TVÆR KONUR
Tvær konur eru á listanum,
þær eru: Elizabeth H. Dole
(eiginkona Roberts Dole öld-
ungadeildarþingmanns frá
Kansas) og Nancy Landon
Kassebaum, sem einnig er
öldungadeildarþingmaður frá
Kansas.
Auk þeirra sem hér hafa
verið nefndir er sagt að á list-
anum séu eftirfarandi: Willi-
am Armstrong, þingmaður frá
Colorado, John Danforth,
þingmaður frá Missouri, Alan
K. Simpson, þingmaður frá
Wyoming, Carroll H. Camp-
bell, fylkisstjóri frá South-
Carolina, James R. Thomson,
fylkisstjóri frá lllinois, Thom-
as H. Kean, fylkisstjóri frá
New Jersey, George Seuk-
mejian, fylkisstóri frá
Kaliforníu, Lamar Alexander,
fyrrverandi fylkisstjóri frá
Tennessee, Dick Thurnburgh,
fyrrverandi fylkisstjóri frá
Pennsylvaníu, nýlega út-
nefndur dómsmálaráðherra.
Fleiri nöfn hafa heyrst
nefnd, þar á meðal núverandi
öryggisráðgjafi Hvíta húss-
ins, Colin Powell, þeldökkur
lægra haldi í slíkum könnun-
um gera. Þeir halda því fram,
að þessar tölur muni taka
stökkbreytingum eftir flokks-
þingið í New Orleans. Sögu-
leg skýrsla um skoðanakann-
anir frá Gallup-stofnuninni
sýnir fram á trúleg úrslit for-
setakosninganna: Það hefur
komið í Ijós, að allar götur
síðan í forsetakosningunum
1952 hefur sá frambjóðand-
inn komist í Hvíta húsið, sem
hafði meirihluta i skoðana-
könnunum fram að fyrra
flokksþingi flokkanna
tveggja.
Við síðustu athugun Gall-
up-stofnunarinnar, fyrir
flokksþing demókrata í
Atlanta á dögunum, reyndust
líkurnar vera þessar: Dukakis
47 á móti 41 fyrir Bush.
VINSÆLLI I MQSKVU
Gagnstætt því sem áður
var talið, að það væri repú-
blikaninn George Bush sem
ráðamenn í Moskvu væru
hlynntir sem arftaka Ronalds
Reagan í Hvíta húsinu, hall-
ast sovéskir fréttaskýrendur
æ meir að Dukakis, eftir því
sem bandaríska stórblaðið
Washington Post skýrði frá
nýveriö.
Talið er að það sé ekki síst
yfirlýsing Dukakis um að
hann sé andvigur stjörnu,-
striðsáætlunum Reagans,
SDI, sem menn austur þar
eru ánægðirmeð. Þeim líst
því á Dukakis sem kröftugt
leiðtogaefni, sem komi til
með að eiga meira sameigin-
legt með Mikhail Gorbatsjof
flokksleiðtoga í ýmsum áríö-
andi málum í utanríkispólitík-
inni.
(Det fri Aktuelt)
lnnan skamms
mun flokkur
repúblikana halda
landsfund sinn —
og þá fyrst mun
George Bush til-
kynna hvern hann
hefur valið sem
varaforsetaefni.
Hann er enn að
leita.
George Bush er öruggur
um að verða forsetaefni
flokks repúblikana —
hann vantar varaforseta-
efni.
yfirmaður í hernum.
í skoðanakönnunum meðal
kjósenda virðist Michael
Dukakis njóta meiri vinsælda
enn sem komið er og nú eru
aðeins nokkrir dagar þar til
landsfundur repúblikana-
flokksins verður haldinn.
Skoðanakönnun á vegum
bandarísku sjónvarpsstöðvar-
innar NBC og Wall Street
Journal bendir til, að forskot
Dukakis hafi aukist eftir
landsfund demókrataflokks-
ins í Atlanta á dögunum.
Hlutföllin voru: 51 prósent
studdi Dukakis en 34 prósent
Bush.
Meðal óháðra kjósenda og
svokallaðra Reagan-demó-
krata, tveggja kjósendahópa
sem samanlagt gætu skipt
sköpum, eru hlutföllin fjórir á
móti einum, Dukakis í hag.
Einnig virðist Dukakis mun
vinsælli meðal kjósenda af
kvenkyninu, sem eru fleiri en
karlkyns kjósendur. Hlutföllin
á þeim vettvangi eru: Fimm-
tíu og fjögur prósent kvenna
segjast myndu kjósa Dukakis
á móti tuttugu og fjórum pró-
sentum, sem myndu kjósa
Bush.
Bush og samstarfsmenn
hafa reynt að gera litið úr
þessum skoðanakönnunum
og segja þær marklausar,
eins og flestir sem lúta í