Tíminn - 09.11.1967, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 9. nóvember 1967,
3
TÍMINN
Afferming
tók tvo tíma
í stað dags
FB-Reykjavík, miðvikudag.
Ótrúlega stuttan tíma tók að
skipa á land rúmlega eitt liundr
að bílum, sem hingað komu með
bflaflutningaskipinu Rigoletto frá
Bandaríkjunum. Var bílunum ekið
á land á tveim klukkustímum, en
með venjulegum uppskipunarað-
ferðum liefði tekið að minnsta
kosti heilan dag gð koma öllum
bilum í land, og héfði þá mátt bú
ast við að einhverjir þeirra hefðu
orðið fyrir hnjaski, eins og oft
vill verða við uppskipun.
Það voru Bílainnflutningsfyrír-
tækin Vökull h. f. og Jón Lofts
son, sem hingað fengu þetta bfla
skip, og kom það með fyrstu
amerísku bílana af 1968 árgerð
innj, sem hingað kom að þessu
sinni.
GE tók myndina, þegar Rambl
er Javeline bfl var ekið frá borði
í gærmorgun.
jon ií. uannioaisson
Nýr formaður í Fé-
lagi háskólamennt-
aðra kennara
Aðalfundur Félags háákóla-
menntaðra kennara var haldinn
fimmtudaginn 19. okt. s. 1. Frá
farandi formaður Erlendur Jóns
son flutti skýrslu stjórnar. Mikil-
vægasti árangur af starfi félagsins i
síðaita ár var námskeið í uppeld j
is- og kennslufræðum fyrir há- j
skólamenntað fólk við kennslu !
störf, sem ekki hafði lokið prófi i
í þeim greinum. Fjörutíu og. einn i
lauk prófi frá námskeiðinu og öðl
aðist þar með kennararéttindi og
þeir sem voru í lægsta launaflokki
framhaldsskólakennara fá nú
hærri laun. Frumkvæði að nám-
Framhald á bls. 14.
Varpan er á leið
til Reykjavíkur
ÖXNADALS-
HEIDIN
ER ÓFÆR
FB-Rcýkjavík, miðvikudag
í kvöld var að verða ófært
fyrir fólksbfla yfir Öxnadals
heiði, að því er sagt var á
Vegamálaskrifstofunni, og
verða bílar ekki aðstoðaðir yf-
ir lieiðina fyrr en á föstudag.
Fært er frá Akureyrí til Ólafs
fjarðar fyrir Ólafsfjavðafmúl-
ann, og eins er fært um Dals-
minni og austur um.
Á morgun er ætkmin að að
stoða bíla yfir Möðrudalsörajf-
in, ef veður leyfir.
Sunnanlands heiur færð
verið allsæmileg, en þó er tölu
vérð hálka á vegum úti. í
gærkvöldi gerði austan hrinu,
óg urðu nokkrir erfiðleikar a
Hellisheiðinni, og hi'n vart fær
smábílum. í dag var Hellisheið
in fær, en allhált í Kömhunum,
og höfðu ýmsir átt þar í nokkr
u>m erfiðleikum..
IH-Seyðisfirði, miðviudag.
Allar líkur benta til að 18 skip
verjar brezka togaranum Lord
Tedder hafi svarið rangan eið fyr
ir rétti á Seyðisfirði ekki alls fyrir
löngu en skipstjórinn var ákærður
fyrir landhelgisbrot. Var hann
sýknaður af ákærunni en dæmd
ur í 70 þús. kr. sekt fyrir ólögleg
an veiðiútbúnað innan fiskveiðilög
sögunnar.
Varðskipið Óðinn tók togarann
innan fiskveiðilögsögunnar út af
Glettingi. Reyndi togarinn að
komast undan en tókst ekki. Þeg
ar Óðinn kom að togaranum var
hann botnvörpulaus og lék grun
ur á að skipverjar hafi höggvið á
67 ÞÚSUND STOLIÐ ÚRPOSTI
OÓ-fteykjavík, miðvikudag. j hendur síðar um daginn. Á laug-
67 þúsund krónur hurfu úr pen i ardagsmorgni tilkynnti hann yfir
ingascndingu sem Búnaðarbankinn völdunum að 67 þúsund krónur
sendi frá Reykjavík og vestur í
útibúið i Búðardal. Peningahvarf
ið varð ljóst þegar framkvæmda-
stjóra útibúsins barst sendingin
síðaii hluta dags á föstuúaginn í!
fyrri viku. Það var ekki nema j
hluti peningasendingarinnar sem j
hvarf.
Peningapakkinn sem var sendur ■
í ábyrgðarpósti var þannig útbu-j
inn, að brúnum umbúðapappír var i
vafið utan um peningana og var j
pakkinn innsiglaður. Upphæðin j
sein hvarf var öll í eitt þúsund j
króna seðlum.
i
Pakkinn var settur í póst s.l.!
fimmtudag og var hann sendur j
vestur í Búðardal með áætlunar-1
bíl v estf jarðaleiða og var skilað j
í Búðardal um hádegi á föstudag. j
Fékk útibússtjórinn pakkamj í'
vantaði i sendinguna. Sýslumaður-
inn i Eorgarnesi, Ásgeir Péturs-
Framhald á bls. 14.
vírana þegar varðskipið kom á
vettvang.
i^yrir réttinum báru allir skip-
verjar togarans að þeir hafi misst
vörpuna, er hún vnrð botnföst uti
fyrir Langanesi. ;
En kl. átta í morgun kom Óð-
inn hingað til Seyðisfjarðar með
botnvörpu í eftirdragi og hafði
hún verið slædd upp á saina stað
og varðskipið kom að Lord Tedd
er á sínum tíma.
Varpan var sett hér á land og
var í henni talsvert af fiski. Síð
an var botnvarpan sett um borð
í Óðinn og er hann nú á le'ð
með hana til Reykjavíkur. Einnig
_ tók varðskipið vírendana, sem
j teknir voru um borð í Lord Tedd
j er og voru í vörzlu bæjarfógeta
Framhald á bls. 15
MÚTMÆLI
Blaðinu hefur borizt- eftirfar-
andi yíirlýsing:
„Almennur félagsfundur hald-
inn í Verkalýðsféla^i Vopnafjarð
ar 5. nóvember 1967 mótmælir
harðlcga þeim freklegu árásum
ríkisvaldsins á kjör verkamanna
og annarra launþega, sem felast í
ráðstöfunum rikisstjórnarinnar í
efnahagsmálum. Fundurinn telur,
að með ráðstöfunum þessum hygg
ist ríkisstjórnin rifta grundvelli
allra kjarasamninga með bindingu
kaupgjaldsvísitölu jafnhliða stór-
felldum hækkunum á brýnustu
lífsnauðsynjum sem ávallt hljóta
að koma harðast niður á þeim
lægstlaunuðu og barnflestu fjö’-
skyldunum, ásamt öryrkjunum og
gamalmennum. Þetta telur fundur
inn koma sér því verr, þar sem
atvinnutekjur hafa stórminnkað á
þessu ári, 'vegna minnkandi eftir-
Framhald á bls. 15
STORMSVALAN LAGÐ
IST Á HLIÐINA
FB-Reykjavík, miðvikudag.
Klukkan 12.40 í dag var lög
rcglunni í Kópavogi tilkynnt,
að skúta nokkur, sem legið
hafði fyrir framan Ora-verk-
smiðjuna í Kópavogi hefði slitn
að upp, og lægi nú á hliðinni.
Þarna mun vera um að 'æða
Stormsvöluna, skemmtisiglinga
snekkju, sem nokkrir menn í
Reykjavík eiga, og hafa riglt
á sér til skemmtunar þegar veð
ur hefur Ieyft. Veður var all-
hvasst, þcgar Stormsvalan slitn
aði upp, og hafði ekki tekizt að
ná henni á réttan kjöl í gær
kvöldi. Myndina tók Gunnar af
Stormsvölunni, þar sem hún lá
á hliðinni.