Tíminn - 01.12.1967, Qupperneq 5

Tíminn - 01.12.1967, Qupperneq 5
FÖSæiiB&fim L d esonber VSSL TÍMINN I SPEGLITÍMANS í New York er nú farið að ia til kjóla úr lifandi blóm ÍIIÍÍIlIlÍÍÍlÉÍlliiiiÍIÍS Roger Vadim hefur nýlokið við að gera kvikmynd, sem nefnist Metzengerstein. Aðal hlutverkið í j myndinni leikur eiginkona hans, Jane Fonda. Myndin fjallar um tuttugiu og tveggja ára gamla greifynju, sem er síðasta afsprengi gam allar aðalsættar og baráttu ættar hennar við aðra aðals ætt. Aðalmótstöðumann henn Danska leikkonan Bodil Steen hefur gefið út endur minningar sínar, sem hún nefn ir Tíu eiginmenn minir og ég. í tilefni af útkomu bókar- innar hélt leikkonan hádegis- verðarboð sem allir tíu eigin menn hennar tóku þátt í- Bandaríski hjartasérfræðing urinn Paul Dudley White held ur því fram, að hjarta manns- ins sé í höndum konunnar. Ekki alls fyrir löngu hélt hann fyrirlestur i Milanó þar sem hann sagði meðal annars. Ef maður deyr innan við áttrætt er það oftast annað hvort hon um að kenna eða konu hans. Hann lifir í of mikilli spennu eða konan hans gefur honum að borða í tíma og ótíma. Þess vegna bera bonurnar mikla ábyrgð. ar í kvikmyndinni leikur svo Ibróðir hennar, Peer Fonda, svo að segja má, að kvikmyndin sé einskonar fjölskyldufyrirtæki. I béa til kjóla um, sem saumuð eru á pappdr. Kjólar þessir kosta um það bil 3000 krónur, en ef kona óskar eftir að fá kjól úr orkideum verður hún að panta hann sér- staklega og er hann talsvert dýrari. Hann er sem sagt ein- ungis gerður eftir pöntun og verður að geyma hann inni í ís- skáp þar til hann er sóttur og ekki er hægt að reikna með því að nota hann nema einu sinni. Er það fyrst og fremst af því að blómin visna en oft vill það brenna við að vinir tíni blómin af kjólnum, svo að ekkert er eftir af honum nema pappárinn. ★ Bandaríski söngvarinn Denn is Day og kona hans eignuð ust fyrir nokkru ellefta barn sitt. Þau fengu þegar í stað hamingjuóskir frá Ethel og Bobert Kennedý. Skrifuðu þau hjónunum eftirfarandi: Til hamingju_ með fjölskylduaukn inguna. Árjð 1968 skorum við á ykkur að keppa við okkur um heimsmeistaratitilinn í fjölskyldufótbolta. ★ Paeo nokkur Rabanne var méinaður aðgangur að Parísar óperunni af því að hann var ekki í smóking. Hann fór þegar í stað heim til sín og bjó sér til smoking eftir eigin höfði: Úr svörtu jerseyi og með Mao- krága. . ★ Nautabaninn E1 Oordobes drepur ekki einungis skepnur í nautaati. Fyrir nokkru drap hann tvær kýr og eitt naut á þjóðvegum Spánar. ★ Enski hárskerinn frægi, Vid al Sassoon flaug fyrir nokkru til Hollywood og var erindið að klippa hár leiikkonunnar Mia Farrow áður en hún færi að leika í kvikmyndinni Ros- mary's Baby. Er þetta ein dýr asta hárklipping, sem sögur fara af og bostaði hún um það bil 75 þúsund krónur, og eftir klippinguna er meðallengd hár lokka Miu um 2,5 sentimetrar. mk-’í Brezka söngkonan Shirley Bassey vakti mikla athygli fyr ir klæðaburð sinn, þegar hún kom á hið fræga hótel í New York Hótel Astoria. Hér á myndinni sjáum við þann kjól sem vakti einna mesta eftir- tekt. Bandaríski gamanleikarinn frægi, Bob Hope sést hér á mynddnni, sem er tekin, er hann var gerður að heiðursfélaga í alþjóðafélagsskap skurðlœkna. Myndin er tekin í Las Vegas en ekki vitum við af hvaða ástæðu Bob var gerður að heið ursfélaga. Á VÍÐAVANGl Þá var öldin önnur Fyrir tæpum hálfum öðrum mánuði eða 16. okt., afneitaði Bjarni Benediktsson, í þing- ræðu, gengisfellingu algerléga og taldi hana myndu skapa fleiri vandamál en hún leysti. Tald' hann, að þeir, sem væru fylgjandi gengislækkun hefðu ekki hugsað málið til hlítar og væru á villigötum og rökstuddi það m.a. með þessum orðum: „Eins og við erum staddir er ég sannfærður um, að geng- islækkun skapar okkur fleiri vandamál en hún leysir. Ég er sannfærður um, að þeir, sem tala um gengisbreytingu, sem ætti að verða lausn, er hjálpaði sjávarútveginum, og laínvcl iðnaðinum á næstu miss erum hafa ekki hugsað það mál til hlítar. í fyrsta lagi: Við hvaða söluverð á okkar af-. urðum eigu mvið að miða geng isbreytingu, er nú færi fram? Eigum við að miða við það lágmarksverð á síldarlýsi sem nú er komið, eða það lágmarks verð á hraðfrystum fiski, sem nú er á sumum tegundum hans í aðalmarkaðslöndunum? Eigum við að Iáta slíkar verð- sveiflur leiða til svo örlaga- ríkra breytinga eins og gengis lækkun óneitanlega hlýtur að vera? Það þarf að skoða betur Ennfrgmur sagði Bjarni: „Nei, ég þori að fullyrða, að það þarf að skoða það lyiál miklu betur heldur en gert hef ur verið, til þess að menn geti varið að ákveða gengislækkun, sem þar að auki hlyti að lenda mjög hart og e.t.v. einna harð ast á útvegsmönnunum nú vegn? þeirrar miklu endurnýj unar flotans, sem hefur átt sér stað undanfarin ár og er m.a. möguleg vegna þeirra mildu lána, sem erlendir út- flytjendur hafa veitt út á þessi skip. Ég á þess vegna eftir að sjá, að það myndi létta fyrir sjávarútveginum í heild, þó að gengisbreyting yrði nú ákveð in, alveg eins og ég vil segja, að það er engin gengishreyt- ing, sem getur forðað okkur frá erfiðum vertíðum öðru hverju, sbr. hina mjög erfiðu vetrarvertíð s.l. ár. Það er eng in gengisbreyting, sem gerir það auðveldara að ná í síld- ína norður við Svalbarða. held ur en ef hún er nokkra tugi mílna út frá landinu sjálfu aða uipp við þess strendur. Hér er um allt annað eðlis vandamál að ræða heldur en gengisbreyting geti leyst“. OKUMENN! Látið stilla í tima. HJOLASTILLINGAR MÓTORSTILLINGAR LJOSASTILLINGAR Fljót oq örugg þjónusta. BÍLASKOÐUN & STILLING Skúlagötu 32 Skni 13-100

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.