Alþýðublaðið - 21.09.1988, Blaðsíða 8
Hverjir
íslenskt iþróttafólk tekur
þátt í fimm iþróttagreinum á
24. ólympiuleikunum i Seoul
17. september til 2. október,
frjálsum íþróttum, sundi,
handknattleik, siglingum og
júdó.
Keppni okkar manna er
þegar hafin í sundi, sigling-
um og handknattleik. Þeir
Gunnlaugur Jónasson og
ísleifur Friðriksson hafa
hafið keppni í siglingum á
svo kölluðum „470“ bát og
fóru rólega af stað á fyrsta
degi, voru í 24. sæti af þeim
28 áhöfnum sem halda áfram
keppni. Gunnlaugur og ísleif-
ur eru frumkvöðlar á sínu
sviði og hefur áreiðanlega
enginn ætlast til mikils
árangurs af þeim, heldur
gildir hér hið fornkveðna, að
aðalatriöið sé ekki að vinna,
heldur taka þátt.
Við sendum alls 6 kepp-
endur í sundið, Eðvarð Þór
Eðvarðsson, Arnþór Ragnars-
son, Bryndísi Ólafsdóttur,
Magnús Má Ólafsson, Ragnar
Guðmundsson og Ragnheiði
Runólfsdóttur. Helst er það
Eðvarð sem talinn er geta
komið á óvart, en hans fyrsta
sund verður í kvöld er hann
keppir i undanrásum 200
metra baksunds, eftir að
Magnús hefur keppt í 100
metra skriðsundi. Þegar hafa
synt Bryndis Ólafsdóttir í 100
og 200 metra sundi, Magnús
í 200 metra skriðsundi, Arn-
þór í 100 metra bringusundi
og Ragnheiður í 200 metra
bringusundi. Árangurinn
hingað til hefur ekki vakiö of
mikla hrifningu, þótt vænt-
ingar séu ekki miklar. Arnþór
var þó nálægt sínu besta í
100 metra bringusundi og
Bryndís í 100 metra skrið-
sundi, en í öðrum sundum
voru okkar keppendur
nokkuð frá sínu besta meö
tilheyrandi vonbrigðum. í
kvöld munu allraaugu hins
vegar mæna á Eðvarð.
I morgun hófst leikur
landsliðs okkar í handknatt-
leik við Alsír. Verður að vona
að betur gangi í þeim leik en
í leiknum gegn Bandaríkja-
mönnum! Fyrri hálfleikur
okkar manna var vægast sagt
hörmulegur, en reyndar er út
af fyrir sig skiljanlegt að
erfitt hafi verið að komast í
gang þegar andstæðingurinn
lék sem hann gerði. Fyrstu
40 mínúturnar voru það aðal-
lega Þorgils Óttar og Einar
markmaður sem eitthvað
sýndu af sinni eðlilegu getu.
Mörkin komu þá helst af línu
og úr hraðaupphlaupum, það •
sást varla langskot og horna-
mennirnir týndust gjörsam-
lega. Þótt vel hafi gengið slð-
asta þriðjung leiksins þá
stendur eftir, að lykilmenn á
borð við Alfreð Gíslason og
Sigurð Gunnarsson verða
aldeilis að fara að vakna til
lífsins ef „viðunandi" árangur
á að nást. En þótt menn gefi
Miðvikudagur 21. september 1988
FRETTASKYRING
Friörik Þór
Guðmundsson
skrifar
Olympíuleikarnir í Seoul
eru möguleikar okkar fólks?
Möguleika á verðlaunasœti er að finna í
handknattleik, spjótkasti og júdó. Einar er
okkar bjartasta von með fjórða besta
heimsárangurinn í spjótkasti í ár.
sér að það gerist þá er greini-
legt að sum liðin eru það
sterk að óþarfi sé að gera sér
minnstu vonir um verðlauna-
sæti.
Hinu veröur ekki neitað að
árangur íslenska landsliðsins
í handknattleik hefurverið
glæsilegur undanfarin ár og
möguleikarnir eru fyrir hendi
— ef bókstaflega allt gengur
upp í Seoul. Um leið er Ijóst
að allt þarf aö ganga hár-
nákvæmt upp hjá Bjarna
Friðrikssyni ef hann á að
endurtaka afrek sitt frá Los
Angeles 1984, er hann hlaut
bronsið I sínum þyngdar-
flokki I júdó. Nú verður sam-
keppnin öllu harðari með til-
komu þeirra ríkja sem huns-
uðu leikana I L.A. fyrir fjórum
árum. Þriðji möguleiki okkar
á verðlaunapeningi er góð
frammistaða Einars Vil-
hjálmssonar I spjótkasti. Sá
möguleiki er um leið sá raun-
hæfasti.
Einar er I hópi allra bestu
spjótkastara heims. Hann á
fjórða besta árangurinn I ár
(Miðað við 3. ágúst), með
84,66 metra, en aðeins
Zeleny frá Tékkóslóvakíu
(86,88), Tafelmeijer frá
V-Þýskalandi (85,96) og
Korjus frá Finnlandi (85,14)
hafa kastað lengra I ár. Um
leið er Einar sá sjöundi besti
í heiminum á afrekalistanum.
Telja verður líklegt að ef
Einari tekst að bæta árangur
sinn, kasta yfir 85 metra, þá
sé verðlaunasæti hans. Eins
metra viðbót og t.d. bronsið
ekki fjarri lagi! Sigurður
Einarsson er hins vegar fyrst
og fremst með I Seoul til að
vera með en ekki vinna. Hans
besti árangur er 84,80 metrar,
sem er harla gott og hefði I
ár orðið 20. besta kastið. í
spjótkasti keppir sömuleiðis
íris Grönfeldt. Hennar
lengsta kast er 62,04 metrar,
sem hún kastaði I ár og
bætti fyrri árangur sinn um
leið um nær 3 metra. Hún á
hins vegar vió greinilegt ofur-
efli að etja. Yfirburöamann-
eskja í greininni er Felke frá
A-Þýskalandi, heimsmet
hennar er 78,90 metrar og
hennar besti árangur I ár
78,14 metrar. Fjórar aðrar
konur hafa kastað yfir 70
metra í ár og alls 16 konur
yfir 66 metra.
Tveir íslendingar taka þátt I
kringlukasti, þeir Vésteinn
Hafsteinsson og Eggert
Bogason. Besti árangur
Vésteins hingað til er ís-
landsmet hans frá því I júlí
fyrir 5 árum, 65,60 metrar og I
ár jafnaði hann metið. Hins
vegar kastaöi hann 67,20
metra I fyrra, en það var
dæmt ógilt vegna smæðar
vallarins. Vésteinn er ótvírætt
I sókn um þessar mundir og
hann ætlar sér vafalaust að
bæta upp fyrir ófarirnar I Los
Angeles 1984, er hann féll á
lyfjaprófi. En mannavalið (
kringlukastinu er mikið og
möguleikar Vésteins á verð-
launasæti verða að teljast
mjög litlir. íslandsmet hans
er þó 19. besta kastið í heim-
inum í ár og ef ógilda kastið
hefði komið í ár og verið
samþykkt væri Vésteinn á
sama hátt í 8.-9. sæti og slíkt
kast gæti dugað honum
langt, enda hafa kriglukast-
arar ekki náð hróplega
góðum árangri í ár, aðeins
Ubartas frá Sovétríkjunum
hefur tekist að skríða yfir 70
metrana. Heimsmetið er hins
vegar 74,08 metrar, sett af
Schult frá A-Þýskalandi 1986,
en hans lengsta kast I ár er
„aðeins“ 69,80 metrar. Eggert
Bogason á lengst 63,64
metra. Hann á því enn eftir
tæpa 7 metra I það sem best
gerist I heiminum I ár og
veröur að teljast ólíklegt að
hann setji mark sitt á leikana
á afgerandi hátt, öðru vísi en
aö vera þjóð sinni til sóma
með því einfaldlega að bæta
eigið met.
I kúluvarpi keppur Pétur
Guðmundsson. Hans besti
árangur hingað til er 20,03
metrar og vantar hann því
enn rúman metra til að bæta
íslandsmet Hreins Halldórs-
sonar frá 1977, sem er 21,09
metrar. Heimsmetið I grein-
inni á A-Þjóðverjinn Timmer-
mann, 23,06 metra og var það
sett I ár. Álls hafa 12 menn
varpað 22 metra og meira I
gegnum tíðina, en þeim
árangri hafa þrír menn náð I
ár, auk Timmermanns þeir
Beyre samlandi hans og
Barnes frá Bandaríkjunum. Ef
Pétri tekst að bæta árangur
sinn um hálfan metra væri
hann kominn I hóp 20 bestu
manna ársins og er varla við
því að búast að hann fram-
kvæmi betri „kraftaverk'1 en
það. Hins vegar er athyglis-
vert að ef nú 11 ára gamalt
íslandsmet Hreins hefði verið
sett í dag samsvaraði það 8.
besta árangri einstaklinga i
ár! Með öðrum orðum væri
Hreinn I svipaðri stöðu og
Einar Vilhjálmsson miðað við
árangur manna I ár I kúlu-
varpi. í ár hafa heldur ekki
margir hlaupið hraðar en
Oddur Sigurðsson geröi I 400
metra hlaupi í Austin árið
1984!
Þá er hvað frjálsu íþrótt-
irnar varðar aðeins eftir að
minnast á Helgu Halldórs-
dóttur, sem keppir I 400
metra grindahlaupi. Hún setti
glæsilegt íslandsmet I grein-
inni I Los Angeles I byrjun
þessa mánaðar, hljóp vega-
lengdina á 56,54 sekúndum
og bætti fyrra met sitt um
heila sekúndu. Á fimm árum
hefur hún þá bætt árangur
sinn um rúmlega 5 sekúndur
eða sekúndu á ári að meðal-
tali. Við skulum vona að
sekúnda ársins hafi ekki
komiö i Los Angeles ein-
göngu helduröðlist henni að
taka fyrirfram út sekúndu
næsta árs! Heimsmetið I
greininni er 52,94 sekúndur,
sett af Stepanovu frá Sovét-
ríkjunum árið 1986 og á
Helga því enn 3,6 sekúndur í
það met. í ár hafa hins vegar
fjórar A-þýskar konur náð
bestu tlmunum, Þær Busch
með 54,11 sekúndur, Losch,
Fiedler og Ulrich með tíma á
bilinu 54,24 til 54,81 sek-
úndur. Ef „kraftaverkið11
gerðist og sekúnda ársins
kæmi fyrirfram hjá Helgu I
Seoul myndi það samsvara
nú 19. besta tíma ársins en
vitaskuld er I hæsta máta
óeðlilelgt að ætlast til þess
að sá draumur rætist.
KEPPENDUR ÍSLANDS í FRJÁLSUM ÍÞRÓTTUM
Keppendur: Besti árangur: ísl.- met: Heims- met: (3.8.88) Besti í ár:
*> Einar Vilhjálmsson spjótkast 84,66 m 84,66 87,66 85,14
M ■ Sigurður Einarsson spjótkast 80,84 m 84,66 87,66 85,14
Eggert Bogason kringlukast 63,18 m 65,60 74,08 70,06
■ Vésteinn Hafsteinss. t|wf kringlukast 65,60 m 65,60 74,08 70,06
Pétur Guðmundsson kúluvarp 20,03 m 21,09 23,06 23,06
É Helga Halldórsd. 400 m grindahl. 56,54 s. 56,54 52,94 54,24
íris Grönfeldt spjótkast 62,04 m 62,04 78,90 71,00