Alþýðublaðið - 01.11.1988, Síða 3

Alþýðublaðið - 01.11.1988, Síða 3
Þriðjudagur 1. nóvember 1988 FRÉTTIR Hundahaldskönnunin Manfred Wörner til íslands Aðalframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, Manfred Wörner, ásamt fylgdarliöi, kemur í opinbera heimsókn til íslands 2. til 3. nóvember n.k. i boði Jóns Baldvins Hannibalssonar, ut- anrikisráöherra. Auk þess að eiga viðræður við utanríkisráðherra mun að- alframkvæmdastjórinn ganga á fund forseta íslands og hitta að máli forsætisráð- herra. Jafnframt mun aðalfram- kvæmdastjórinn heimsækja Keflavíkurflugvöll. Á flokkstjórnarfundinum var samhljóöa lýst yfir stuðningi við málflutning og framgöngu utanrikisráöherra vegna íhlutunar bandariskra stjórnvalda i islenska viöskiptahagsmuni. A-mynd/Guölaugur Tryggvi. Davíð Oddsson borgarstjóri: Hér var hundabann í 50 ár án þess að fylgja því. Davíð Oddsson borgar- u' oKki annað fært en að stjóri sagði í samtali viö Al- styðjast við þá niðurstöðu þýðublaðið að úrslitin hefóu sem fékkst." Meirihluti þátttakenda i skoðanakönnun borgarstjórn- ar reyndist andvigur óbreyttri reglugerð um hundahald i Reykjavik. Davíð Oddsson borgarstjóri telur einsýnt að tekið verði tillit til þessara úr- slita og reglum breytt á þann veg að hundahald verði bannað. Skoðanakönnun um hundahald fór fram í Laugar- dalshöll alla siðustu viku og lauk á sunnudag. Á kjörskrá voru 68.525 manns, en aðeins 8.777 kusu eða 12,8%. Spurt var hvort viðkomandi vildu að núgildandi reglur um hunda- hald héldust óbreyttar og vildu það 3.459 þátttakenda eða 39,4%. Andvígir voru hins vegar 5.279 eða 60,15%. Auðir og ógildir seðlar voru 37 eða 0,4%. Meginþorri borgarbúa á kjörskrá lét því skoðanakönnun þessa eiga sig og höfðaði hún því aðal- lega til harðlínumanna til beggja átta. ekki komið á óvart. „Það hefur verið vitað að stór hluti borgarbúa er á móti hunda- haldi hér. Menn hafa kannski gleymt því að það var bannað hundahald hér i 50 ár án þess að þaó hafi tekist að halda þvi uppi. En ég tel ein- sýnt að menn muni hafa hlið- sjón af þessum úrslitum og miða reglurnar við að banna hundahald framvegis. Nú er sem sagt leyft að hafa hunda með ákveðnum skilyrðum, en ég vænti að það verði nú bannað, þó þannig að þeir sem hafa fengið sér hund með löglegum hætti fái að leyfa þeim að lifa sína tíð. Ég geri ráð fyrir þvi að borgarráð taki ákvörðun á þá lund að frá og með einhverjum ákveðnum tima verði ekki leyft að taka hunda. Ég skal ekki segja hver geri tillöguna, en úr þvi ráðist var út í at- kvæöagreiðslu af þessu tagi Borgarstjóri sagði þátt- tökuna í könnuninni hafa verið fremur rýra. „Ég held að eftir að þessar ströngu reglur voru settar á sinum tima hafi allur þorri borgarbúa verið fremur sáttur við málið, án þess að ég vilji túlka þá sem tóku ekki þátt sem hlynnta tekist hafi að fram- frekar en hlutlausa eða and- viga. En þátttakan ber með sér að það hafi verið tiltölu- lega mikil ró um málið." Þetta sagði Davíð Oddsson borgarstjóri um málið, en hvernig leist Davíð Oddssyni hundaeiganda á úrslitin? „Hann er fyrir sitt leyti ekki sáttur við þetta, en verður náttúrlega eins og aðrir að bíta i þetta súra epli.“ HUNDABANN ER FRAMUNDAN Kannanir í tannlœknamálinu Niðurstöðurnar bornar saman Stefán Ólcifsson Félagsvísindastofnun: Munurinn ekki það mikill að hann gefi tilefni til yfirlýsinga formanns Tannlœknafélagsins. Flokksstjórnarfundur A Iþýðuflokksins ÍHLUTUN RANDARÍKJAMANNA MÓTMÆLT Stefán Ólafsson forstööu- maður Félagsvísindastofnun- arinnar segir að munurinn á niðurstöðunum i könnun stofnunarinnar á tannlækna- þjónustunni og niðurstööum i könnun prófessors Guðjóns Axelssonar réttlæti á engan hátt yfirlýsingar Börks Thoroddsens formanns Tann- læknafélags íslands, en í við- tali við Alþýðublaðið á laug- ardag bar Börkur brigður á könnun stofnunarinnar og sagði niðurstöður hennar rangar. „Eg hef kynnt mér niöur- stöður Guðjóns Axelssonar. Það er rétt að hann fær held- ur lægri tíðni ferða til tann- lækna en fram kemur í könn- un Félagsvísindastofnunar. Um þetta er tvennt að segja á þessu stigi málsins. í fyrsta lagi er þessi munur ekki verulega mikill þannig að hann gefi tilefni til yfirlýsinga af því tagi sem formaður Tannlæknafélagsins hefur látið frá sér fara. í öðru lagi verða menn að gæta að því að könnun Guðjóns Axels- sonar var gerð tveimur árum fyrr en könnun Félagsvís- indastofnunar og það eitt sér skýrir þann mismun sem er á niðurstöðunum að stórum hluta.“ Aðspurður sagði Stefán að eftir væri að skoða niður- stöðurnar fyrir sömu aldurs- hópa og yrði það gert á næstunni, en i könnun Guð- jóns Axelssonar er miðað við þrjá hópa, þá sem voru 18 ára, 35-44 ára cg 65 ára og eldri, en í könnun Félagsvís- indastofnunar voru 18-75 ára f úrtakinu og aldurshópaskipt- ing í niðurstöðunum á annan hátt en hjá Guðjóni. „Við hyggjumst keyra niðurstöð- urnar saman til að fá úr því skorið nákvæmlega hverju munar. Ef fram koma eðlileg- ar skýringar á þessum mun verður ekki ástæða til að bregöast við þessum um- mælum formannsjns á annan hátt sérstaklega. Ég hygg að eðlilegar skýringar séu fyrir hendi“ sagði Stefán. Börkur Thoroddsen sagði í viðtalinu viö Alþýðublaðið á laugardag aö niöurstööur Fé- lagsvísindastofnunar væru rangar og minntist sérstak- lega á tíðni ferða til tann- lækna. Hann gaf einnig í skyn að stofnunin kynni að hafa spurt á leiðandi hátt. Sem kunnugt er reiknaði Pressan út frá niðurstöðum Félagsvísindastofnunar að 1.200 milljón króna munur væri á framburði tannlækna um heildarrekstrartekjur ann- ars vegar og framburði Trygg- ingastofnunar vegna tryggðra sjúklinga og svarenda ótryggðra í könnun Félags- vísindastofnunar hins vegar. Út frá útreikningum á fram- færslukostnaði var síðan komist að þeirri niðurstöðu aö mismunur þessi væri ekki lægri en 720 milljónir króna. Könnun Guðjóns Axelssonar er síðan þriðji vettvangurinn til að fá nálgun i máli þessu. Japanskir fiskkaupendur sem til landsins koma hafa sagt frá þvi að dregið hafi úr fisksölu á meðan keisarinn liggur veikur. Benedikt Sveinsson aðstoðarfram- kvæmdastjóri sjávarafurðar- deildar Sambandsins segir að ekki sjáist breytingar á sölutöium, enn sem komið er a.m.k. Benedikt sagði í samtali við Alþýðublaðið að Japanir sem hingað hafa komið hafi sagt frá því að fólk í Japan fari minna út að borða og skemmta sér nú á meöan Hirohitho keisari liggurfár- A flokksstjórnarfundi Al- þýöuflokksins s.l. sunnudag var samþykkt samhljóða ályktun vegna hvalveiðimáls ins þar sem flokksstjórnin mótmælir harðlega ihlutun bandariskra stjórnvalda i ís- lenska viðskiptahagsmuni. Mikii og sterk viðbrögð voru við norsku myndinni um kynferðisafbrot gagnvart börnum sem sýnd var á Stöð 2 á sunnudagskvöld. Yfir 50 manns hringdu og sögðu frá reynslu sinni. Peninga vantar tilfinnanlega til að hefja for- varnarstarf, en yfirvöld hafa litinn skilning sýnt enn sem komið er. Hópur á vegum Rauða kross hússins, kvennahóps Kvennaathvarfs- sjúkur. Þar af leiðandi seljist minna af betri og dýrari mat- vöru. Sagði hann aö ekkert hafi þó komið fram i sölutöl- um þeirra, en það kæmi kannski ekki i Ijós fyrr en síó- ar. Hann sagði Austurlönd fjær þó vera ört stækkandi markað og nefndi því til stuðnings að salan á þennan markað fyrir sama tíma árið 1987 hafi verið 4900 tonn, en er fram til dagsins í dag á þessu ári 8800 tonn. Gat hann þess að fyrir um það bil 10 árum hafi varla nokkuð af fiski verið selt á þennan markaó. „Flokksstjórnin telur að með þessum hætti hafi stjórnvöld i Bandaríkjunum gengið á geröa samninga og meó því hafi orðið trúnaðar- brestur i samskiptum land- anna. Flokksstjórnin lýsir fullum ins og vinnuhópsins Sifja- spell sá um að svara í sim- ann og hélt hann blaða- mannafund i gær. Á fundinum kom fram, að vel yfir 50 manns hringdu og sögðu frá reynslu sinni. Fylgdi sögunni að þar hafi verið um mjög hrikalegar frá- sagnir að ræða. Þolendur voru í mun fleiri tilfellum konur og voru þetta allt frá- sagnir af verknuðum sem framdir voru fyrir mörgum ár- um. Yngsti þolandinn var þriggja ára er hann var beitt- ur kynferðislegu ofbeldi á heimili sínu. Reiknaði hópur- inn með að mun fleiri hafi reynt að hringja en ekki náó sambandi þar sem allar linur voru uppteknar allan tímann. Ekkert barn hringdi, en senni- legasta skýringin á því er að þátturinn var ekki ætlaður börnum, auk þess sem hugs- anlega er erfiðara fyrir börn sem orðið hafa fyrir kynferð- islegu ofbeldi á heimili sinu, aó hringja á meðan fullorðna fólkið er heima. Hópurinn gagnrýndi skiln- ingleysi stjórnvalda, og sagði gjaldkeri Kvennaathvarfsins að mjög illa gengi að fá yfir- völd til að skilja hvers vegna meira fé þurfi nú en-áöur til Kvennaathvarfsins, en farið hefur verið út í að launa stuðningi viö málflutning og framgöngu Jóns Baldvins Hannibalssonar, utanríkisráð- herra, í málinu, þar sem rann- sóknir á lífriki sjávar við ís- land eru á forræði íslendinga sjálfra í samræmi við alþjóð- legar samþykktir," segir í samþykkt fundarins. starfsfólk athvarfsins. „Við fórum fram á aukafjárveitingu frá Reykjavíkurborg í ágúst, en það er ekki enn búið að afgreiða málið. Þeir skilja aó það þarf kvennaathvarf, þaö þarf hjálp, en það má bara setja peninga i lágmarkslaun og lágmarkskostnað, en ekk- ert forvarnarstarf. Við erum að reyna að fá styrk til að fara út i það aö hjálpa börn- um og kynna þetta og hvaö við getum gert, en þvi miður höfum við lítinn stuðning fengið." Stöð 2 var gagnrýnd fyrir að sýna þáttinn í læstri dag- skrá og kom til tals að fara fram á það við Ríkissjónvarp- ið að það fengi þáttinn til sýningar, enda hafi verið búið að gefa í skyn fyrir skömmu að hann yrði þar á dagskrá. Úti á landi er ástandið verra en í Reykjavík að því leyti, að í litlu bæjarfélögun- um þekkist fólk betur og því erfiðara að afgreiða þessi mál. Hvað er til úrbóta þar? „Ég held aö það strandi á peningum að einhverju leyti og ég held lika að það þurfi að fara endurskoðun fram á þvi hvernig við byggjum fé- lagslega þjónustu úti á landsbyggðinni", sagði Guð- rún Jónsdóttir félagsráðgjafi. Fisksala til Japans Draga veikindi keisarans úr sölu? Sýning norsku myndarinnar um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum: MIKIL 0G STERK VIDBRÖGÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.