Alþýðublaðið - 22.11.1988, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 22. nóvember 1988
3
Vel virtist fara á med framsóknarmönnum og krötum um helgina og vard
sumum á oröi aö flokkarnir heföu átt aö halda flokksþing sin saman.
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og formaöur Framsóknar
kom á laugardag og ávarpaði flokksþing Alþýðuflokksins á Hótel ís-
landi og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkissráðherra og formaður
Alþýöuflokksins var boöinn velkominn í framsóknarfjósiö, þegar hann
ávarpaði flokksþing Framsóknar í Bændahöllinni. Eftir aö Steingrímur
Hermannsson yfirgaf Hótel ísland kom hins vegar í Ijós að kratar voru
ekki á eitt sáttir um aö formanni Framsóknar skyldi vera boðiö. Meðal
ræöumanna sem viku aö því voru Guömundur Árni Stefánsson bæjar-
stjóri i Hafnarfirði og Birgir Árnason formaöur SUJ. A-mynd/ MagnúS'
Reynir.
A Iþýðuflokkurinn
STUÐNIHGUR VIÐ KVENNAATHVARFIÐ
Flokksþing Alþýðuflokks-
ins um helgina samþykkti
samhljóða stuðning við
Kvennaathvarfið og vill láta
tryggja fjárhagsgrundvöll
þess.
Samþykktin er svohljóð-
andi: „44. flokksþing Alþýöu
flokksins haldiö 18.-20. nóv-
ember 1988 lýsir yfir stuön-
ingi við starfsemi Kvenna-
athvarfsins og skorar á sveit-
arstjórnir og rikisvald aö
veita Kvennaathvarfinu allan
þann stuðning sem þarf, til
þess aö rekstur þess sé fjár-
hagslega tryggöur."
Flutningsmenn voru Helga
Kristín Möller, Kristín Á.
Viggósdóttir, Sigríöur Einars-
dóttir, Þráinn Hallgrímsson,
Friörik Guömundsson og
Lára V. Júlíusdóttir.
Starfshópur um varaflugvöll
HERFLUGVÖLL í AÐALDAL
Starfshópur um varamilli-
landaflugvöll hefur nú birt
niðurstöður sínar. Telur hóp-
urinn að ef flugvellinum sé
ætlað að þjóna Atlantshafs-
bandalaginu auk almenns far-
þegaflugs sé Húsavík besti
kosturinn, en ef hann á ein-
göngu að þjóna íslensku
millilandaflugi er lenging
Egilsstaðaflugbrautar hag-
stæðast. Staðsetning flug-
vallarins ræðst því af því
hvort hann eigi að geta gegnt
hlutverki herflugvallar.
FRÉTTIR
Flokksþing Alþýðuflokksins
Löngu tímabært að
endurskoða verktaka-
starfsemi fyrir herinn
Skrefum í afvopnarmálum fagnað. Tillaga SUJ felld um
en dursko ðun varnarsamningsins.
samningsins með þaö fyrir
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráöherra sagöi á
flokksþingi Alþýðuflokksins
um helgina að fyrir löngu
væri oröið tímabært að end-
urskoða verktakastarfsemi
fyrir varnarliðið. Flokksþingiö
samþykkti einnig samhljóöa
tillögu þess efnis frá starfs-
hóp um utanrikismál.
Samþykkt var sérstök
ályktun um afvopnunarmál,
þar sem flokksþingið fagnar
þeim árangri sem þegar hef-
ur náöst í niðurskurði
skammdrægra kjarnorku-
vopna og hvetur til að næstu
skrefum i afvopnunarviðræð-
um veröi hraöaö.
Þingið bendir á að fækkun
kjarnorkuvopna á landi megi
ekki veröa til þess aö þeim
fjölgi á og í hafinu. „Því telur
þingiö brýnt aö næsta skref í
afvopnunarmálum taki til tak-
mörkunar og samdráttar á
vígbúnaói á og í höfunum og
minnir einnig á nauösyn
þess aö í hugmyndum um
kjarnorkuvopnalaust svæöi á
Noróurslóóum veröi tekið til-
lit til þess.“
SUJ flutti sérstaka tillögu
um utanríkismál, þar sem
meöal annars var kveðið á
um endurskoóun varnar-
augum aö herinn hverfi af
landinu i áföngum. Tillaga
ungkrata miöaði einnig aö
því aó hernaðarbandalög
verói lögó nióur. Jón Baldvin
Hannibalsson mælti gegn til
lögunni og sagói hana m.a.
gamaldags og i Þjóöviljastíl.
Samþykkt var aö visa tillögu
SUJ frá meö 62 atkvæðum
gegn 33.
44. flokksþing Alþýðuflokksins
MÁLAMIÐLUN
UM PALESTÍNU
Flokksþing
jafnaðarmanna
ítarleg ályktun
um umhverfismál
Umhverfismál voru eitt
aöalmál 44. flokksþings Al-
þýðuflokksins um helgina.
Milliþinganefnd hafði unnið
ítarleg drög að ályktun sem
samþykkt var með lítilsháttar
viðbótum. Umhverfismála-
ályktunin verður birt i heild í
blaðinu á morgun.
Starfshópur um utanríkis-
mál lagði fram breytingartil-
lögu viö tillögu um málefni
Palestinu, sem Haukur
Helgason, Höröur Zophanías-
son og Guðmundur Arni
Stefánsson lögðu fyrir
flokksþing Alþýöuflokksins
nú um helgina. í breytingar-
tillögunni, sem var samþykkt
samhljóða, segir: 44. þing Al-
þýöuflokksins fordæmir
hrottalega framkomu
ísraelska hermanna viö al-
menning á svæóum sem þeir
hafa hernumió og öll hryöju-
verk sem unnin eru í nafni
Palestínumanna. Þingiö telur
aö viróa beri sjálfsákvörðun-
arrétt Palestínumanna og til-
verurétt Israelsrikis, enda
hljóti lausn mála að byggjast
á þessu tvennu. Þá segir i til-
lögunni aö Alþýöuflokkurinn
styðji friðarvióleitni Samein-
uðu þjóðanna og hvetur hann
rikisstjórn Islands til þess aö
beita áhrifum sinum af
fremsta megni til þess aö
deiluaóilar setjist aö samn-
ingarborði.
44. flokksþing Alþýðuflokksins
KONUR í MEIRIHLUTA í FORYSTUNNI
Konur í embœttum varaformanns, ritara og formanns framkvœmdastjórnar, en karlar fengu að halda
formennskunni og gjaldkerastarfinu. Kynjakvótinn varð tveimur körlum að falli.
Formaður og varaformaður
Alþýðuflokksins voru endur-
kjörin á flokksþinginu um
helgina. Nokkur vafi lék á því
fram að síðustu stundu hvort
Jóhanna Sigurðardóttir gæfi
kost á sér til endurkjörs en
hún lét undan eindregnum
óskum velunnara um að gera
það. Konur tóku um leið völd-
in í flokksforystunni, þar sem
eru 3 konur á móti 2 körlum.
Þegar kosið var um 30 ein-
staklinga í flokksstjórn féllu
2 karlmenn fyrir konum
vegna „kynjakvótans“ svo^
kallaða.
Jón Baldvin Hannibalsson
var endurkjörinn formaöur Al-
þýöuflokksins. Alls 206
greiddu atkvæöi. Jón hlaut
190 atkvæói (92,2%), 8 seðlar
voru auóir, aórir einstaklingar
fengu alls 8 atkvæöi.
Jóhanna Siguröardóttir var
endurkjörin varaformaöur
flokksins. Alls 209 greiddu
atkvæöi. Jóhanna hlaut 202
atkvæöi (96,6%), 6 seölar
voru auöir, 1 ógildur.
Árni Gunnarsson gaf ekki
kost á sér áfram í stööu rit-
ara. Ritari var kjörin Lára V.
Júliusdóttir. Alls 210 greiddu
atkvæði. Lára hlaut 184
atkvæöi (87,6%), 15 seðlar
voru auöir, aðrir einstaklingar
fengu alls 11 atkvæöi.
Geir A. Gunnlaugsson gaf
ekki kost á sér áfram í stöóu
gjaldkera. í þá stööu var kjör-
inn Eyjólfur K. Sigurjónsson.
Alls 207 greiddu atkvæöi.
Eyjólfur hlaut 189 atkvæöi
(91,3%), aðrir einstaklingar 6
atkvæöi, en auðir seölar voru
12.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
baöst undan endurkjöri i
stööu formanns fram-
kvæmdastjórnar. í þá stööu
hlaut kosningu Elín Alma
Arthursdóttir. Alls 206
greiddu atkvæði. Elin Alma
hlaut 181 atkvæöi (87,9%),
auðir seölar voru 18, aðrir
einstaklingar hlutu alls 7
atkvæði.
I framkvæmdastjórn
flokksins náöu að öðru leyti
allir kjöri sem kjörnefnd lagði
til. Þetta eru þau Aðalheiður
Alfreðsdóttir, Birgir Árnason,
Eiríkur Briem, Guðfinna Vig-
fúsdóttir, Rannveig Hálfdán-
ardóttir og Tryggvi Harðar-
son.
Alls var sérstaklega stung-
iö upp á 69 nöfnum fram-
bjóöenda í flokksstjórn, en
30 einstaklingar eru kosnir í
stjórnina á flokksþingi, en 31
eru kjörnir í stjórnina af ein-
stökum kjördæmaráðum. Þá
var samþykkt á flokksþinginu
aö formenn kjördæmaráð-
anna 8 væru sjálfkjörnir í
flokksstjórn. Fundi flokks-
stjórnar sitja síöan þingmenn
flokksins (10), flokksforystan
(5) og „óbreyttir" meölimir
framkvæmdastjórnar (6). 33
efstu einstaklingarnir í kjör-
inu til flokksstjórnar uröu
eftirfarandi:
1. Rannveig Guðmunds-
dóttir, Kópavogi, 163 atkv.
2. Guðmundur Árni Stefáns-
son, Hafnarfirði, 160.
3. Alda Möller, Kópavogi,
158.
4. Helga K. Möller, Garöa-
bæ, 156.
5. Bjarni P. Magnússon,
Reykjavík, 154.
6. Guðfinnur Sigurvinsson,
Keflavík, 152.
7. Guðmundur Oddsson,
Kópavogi, 148.
8. Arnór Benónýsson,
Húsavík, 146.
9. Stefán Gunnarsson,
Hofsósi, 145.
10. Jóna Ósk Guöjónsdóttir,
Hafnarfiröi, 141.
11. Gylfi Þ. Gíslason
prófessor, Reykjavík, 140.
12. Þorlákur Helgason,
Selfossi, 139.
13. Björn Friðfinnsson,
Reykjavík, 137.
14. Elín Harðardóttir, SUJ,
Hafnarfiröi, 133.
15. Gunnar Eyjólfsson,
Reykjavík, 133.
16. Hermann Ragnarsson,
Keflavík, 131.
17. Sveinn Elínbergsson,
Ólafsvík, 126.
18. Jón Bragi Bjarnason,
Reykjavík, 120.
19. Magnús H- Magnússon,
Reykjavík, 118.
20. Hreinn Pálsson, Akureyri,
117.
21. Heigi Sk. Kjartansson,
Reykjavík, 116.
22. Kristín Ólafsdóttir,
Akranesi, 115.
23. Valgerður Guðmunds-
. dóttir, Hafnarfirði, 114.
24. Guðmundur Þ.B. Ólafs-
son, Vestmannaeyjum,
113.
25. Ásthildur Ágústsdóttir,
Patreksfirói, 110.
26. Margrét Pálmarsdóttir,
SUJ, Hafnarfiröi, 110.
27. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir,
Reykjavík, 110.
28. Birgir Dýrfjörð, Reykjavik,
109.
• 29. Geir A. Gunnlaugsson,
Reykjavík, 104.
Jóhanna Sigurðardóttir þakkar
góðan stuðning á flokksþinginu
um helgina. A-mynd/G.T.K.
30. Skúli G. Johnsen, Reykja-
vík, 104.
31. Helgi Hálfdánarson,
Eskifiröi, 99.
32. Guðríður Elíasdóttir,
Hafnarfiröi, 94.
33. Margrét Heinreksdóttir,
Reykjavik, 94.
Vegna ákvæöis i lögum Al-
þýóuflokksins um „kynja-
kvóta“ náóu Guóríöur og
Margrét kjöri i flokksstjórn, á
kostnað Geirs og Skúla. Á
flokksþinginu var samþykkt
að boóa 10 einstaklinga í
næstu sætum á flokksstjórn-
arfundi, þar sem einnig er
tekið tillit til kynjakvótans, en
þeir hafa þá aöeins atkvæöis-
rétt aö aðalmenn vantar.
Gylfi Ingvarsson var sam-
hljóöa endurkjörinn formaður
verkalýósmálanefndar. Kosiö
var um 29 aöra einstaklinga í
nefndina, en frásögn af því
kjöri bíður næsta blaós.